Morgunblaðið - 14.11.1989, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. NOVEMBER 1989
• 40
REYKJAVÍK:
Álafossbúðin
Árbœjarapótek
Borgarapótek
tíretdbottsapótek
Ellingsen
Garosapótek
Holtsapótek
Ingólfsapótek
Laugavegsapótek
Lyfjabúðin Iðunn
Rammagerðin
Skátabuðin
SportVal
Úll og gjafavörur
Útilíf
Veiðibúsið
Veiðivon
SELTJARNARNES:
Sportlíf
KÓPAVOGUR:
Kópavogsapótek
GARÐABÆR:
Apótek Garöabœjar
HAFNARFJÖRÐUR:
Apótek Norðurbœjar
KEFLAVÍK:
Samkaup
KgFLAVÍKURFLUG-
VÓLLUR:
íslenskur markaöur
MOSFELLSBÆR:
Mosfellsapótek
Verslunin Fell
Verksmiðjuútsala Álafoss
AKRANES:
Sjúkrabúsbúðin
BORGARNES:
KJ. Borgfirðinga
OLAFSVÍK:
Söluskáli Einars
Kristjánssonar
STYKKISHÓLMUR:
Hólmkjör
BÚÐARDALUR:
Dalakjör
PATREKSFJÖRÐUR:
Versl. Ara Jónssonar
TÁLKNAFÍÖRÐUR:
Bjamabúð
FLATEYRI:
Brauðgerðin
BOLUNGARVÍK:
Einar Guðfinnsson
ÍSAFJÖRÐUR:
Sportblaðan
HÓLMAVÍK:
Kf Steingrímsfjarðar
HVAMMSTANGI:
Vöruhúsið Hvamms-
tanga
BLONDUÓS:
Apótek Blönduóss
SAUÐÁRKRÓKUR:
Skagfirðingabúö
VARMAHLÍÐ:
Kf Skagfirðinga
SIGLUFJÖRÐUR:
Versl. Sig. Fanndal
ÓLAFSFJÖRÐUR:
Valberg
DALVIK:
Dalvíkurapótek
Versl. Kotra
AKUREYRI:
Versl. París
HÚSAVÍK:
Bókav. Þórarins
Stefánssonar
REYKJAHLÍÐ:
Verslunin Sel
RAUFARHÖFN:
Snarliö
sími 666006
SEYÐISFJÖRÐUR:
Versl. E.J. Waage
NESKAUPSTAÐUR:
S.tJ.N.
EGILSSTAÐIR:
Kf. Héraðsbúa
ESKIFJÖRÐUR:
Sportv. Hákons Sófussonar
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
Kf. Fáskrúösfjarðar
BREIÐDALSVÍK:
Kf Stöðfirðinga
HÖFN:
Kf. A-Skaftfellinga
HELLA:
Rangárapótek
SELFOSS:
Vörubús K.Á.
HVERAGERÐI:
Olfusapótek
Nærfatnaður úr 100% angóruull heldur á
þér hita í köldum vetrarferðum. Angóruull
gefur meiri einangrun en aðrar ullartegundir
en þrátt fyrir það andar húðin óhindrað
í gegnum angóruullina. Angóruullin
hrindir vel frá sér vatni, hún er
fínni og léttari en aðrar ullar-
tegundir og orsakar ekki kláða
eða óþægindi.
Það jafnast ekkert á við nær-
fatnað úr 100%
angóruull þegar farið er
til fjalla í kalsaveðri.
Vanda þarf
grunninn
Myndatökur frá kr. 7.500.
til jóla.
Öllum tökum fylgja tvær
prufustækkanir, 20x25 cm.
Ljósmyndastofan Mynd,
sími 5 42 07,
Ljósmyndastofa Kópavogs,
sími 4 30 20.
FESTINGARJÁRN FYRIR BURÐARVIRKI
Þ.ÞORGRlMSSON&CO
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
eftir Guðjón R.
Sigurðsson
Við sem heyrum alþýðunni til
komust ekki hjá að sjá og heyra
hvað gerist í okkar þjóðfélagi.
Verður manni þá hugsað til hvað
oft virðist auðvelt að leiða almúg-
ann út í ógöngur. Mark Twain
sagðist að gamni hafa staðnæmst
á einni aðalumferðabraut borgar-
innar og staðið þar og horft upp
í loftið. Og bráðlega hópaðist fólk
í kring um hann og undraðist hvað
Mark væri að horfa á. Styijaldir
hafa verið almennar úti í löndum
og svo eru menn kallaðir þjóð-
höfðingjar, þeir sem flesta gátu
drepið og þóttust vera að gera þjóð
sinni mikinn heiður. Almúginn
borgar með lífi sínu og stundum
eru styijaldir kölluð heilög stríð.
Þetta er allt blekking. Hitler féll á
sinni blekkingu, sem kostaði marg-
ar milljónir saklausra mannslífa.
Á íslandi stærum við okkur af
að hér hafi aldrei verið háð styij-
öld. En óréttlæti þróast hér, ekki
síður en í öðrum löndum. Þeir voru
ekki háreistir, þeir sem fóru til
menntunar út í Iönd með styrk frá
MARGVERÐLAUMÐUR
ríkinu, en þegar þeir komu heim
þá var annar tónn í þessum þegn-
um okkar. Já, þá þykjast þeir
býsna miklir menn, svo miklir að
þeir séu langt fyrir ofan aðra
landsmenn og því eigi þeir að fá
tvöfalt kaup eða margfalt það sem
almenningur fær fyrir sína vinnu,
fólkið sem er undirstaða allrar
framþróunar í landinu, fólkið sem
borgar alla reikninga landsins.
Þetta fólk og landstjórnina og öll
lög landsins lítilsvirtu þessir sem
þóttust svo hálærðir, heimtuðu
verkföll, gátu stoppað alla skóla
og síðast en ekki síst heimtuðu að
fá kaup fyrir tímann sem fór í
verkföllin.
Þið vitringarnir skuluð hugsa
útí spuminguna til hvers sendi
okkar almáttugi Guð okkur á þessa
plánetu? Það virðist ekki koma
þessum góðu herrum neitt við, né
heldur er tilgangur lífsins kenndur
í skólunum. Þar er aðaláherslan
Iögð á að verða ríkur og gæða
meira heldur en almúginn, og Guð
er „mammon“. Virðingin fyrir
landi og þjóð er troðin niður í
skítinn.
Þið skuluð muna að allt sem við
gerum hér á jörðu það er að mynda
grundvöll fyrir framhaldslífi okkar.
Ef við viljum iðka græðgi, ágirnd
og sjálfselsku, þá mun sú hugsun
þróast í sálu þess manns og verður
honum að falli, þó það verði ekki
fyrr en á næsta tilverustigi.
Guðjón R. Sigurðsson
„ Alla okkar reynslu í
þessu lífi tökum við með
okkur í næsta líf. Þess-
vegna skulum við vanda
grunninn sem við erum
að byggja hér í okkar
samfelagi við bræður
og systur.“
Kristur sagði: „í húsi föður míns
eru mörg híbýli. Það eru til tilveru-
stig bæði góð og" ill. Hin illu verða
til þungrar kennslu, því fyrr eða
síðar munu sálirnar átta sig á að
þær séu á rangri leið til hamingju.
Hamingja er guðs gjöf, sem færir
Ijós og skilning inn í okkar sálu
eða innri mann. Látum því kenn-
ingar Krists verða okkur að leiðar-
ljósi, áfram hina mjóu braut upp
á við.
Leitið og þér munuð finna. En
við leitum oft langt yfir skammt.
Það væri hollt að reyna að þekkja
sjálfan sig. í þessum líkama býr
oft ónotaður kraftur. Má í mörgum
tilvikum finna auðuga sál í barns-
líkama. Þar leynast oft andleg fræ-
korn sem þurfa aðhlynningu. Barn
sem ekki fær móðurást eða kær-
leika í samfélagi getur tæplega
þroskast andlega. Það er staðreynd
að allt líf er byggt af ást. Horfum
út í náttúruna, dýrin sýna sínum
afkomendum ást og faðir alls lífs
er kærleikur. Því skulum vér
byggja líf vort á kletti en ekki á
sandi, með öðrum orðum, á sann-
leika en ekki á falsi né sýndar-
mennsku. Það er ekki nóg að stæra
sig af menntun eða vísdómi sem
aldrei kemur að gagni. Allt lífið
er garður föðurins sem sendi okkur
hingað til að þroskast, sjálfum
okkur til heiðurs og öðrum til hjálp-
ar.
Hve sæl, ó hve sæl er hver leik-
andi lund
en lofaðu engan dag fyrir sólarlags
stund.
_ Við skulum ætíð hafa í huga að
„í fornöld á jörðu var frækorni
sáð“ og ávextir þess er Guð sáði
þá á jörðu eru ennþá að margfald-
ast.
Hvert einasta atvik er við fram-
kvæmum að morgni mun færa oss
ávöxt áður en dagurinn líður.
Hvort sem það er hugsun eða verk,
og alla okkar reynslu í þessu lífi
tökum við með okkur í næsta líf.
Þessvegna skulum við vanda
grunninn sem við erum að byggja
hér í okkar samfélagi við bræður
og systur. Það varðar mestu allra
orða, að undirstaðan rétt sé fund-
inn.
Höfundur er búsettur að
Fagvrhólsmýri.
Fjallhress í hlýrri
og þægilegri
angóruull