Morgunblaðið - 14.11.1989, Blaðsíða 47
esei aaaMavövi m huoaœjmeiíh siaAjaMuoHOM
MÖRGUNBLAÐIÐ' ÞRIÐJUDAGUR '14. NOVEMBER 1989“
Dr. Paul H. T. Thor-
lakson - Minning
Fæddur 5. október 1895
Dáinn 19. október 1989
Þann 19. þessa mánaðar lést dr.
Paul Hernrik Thorbjorn Thorlak-
son, en þannig leit nafn hans út á
ensku, vestur í Winnipeg tæplega
hálftíræður. Eiginkona hans, Glad-
ys Maree, lést fyrir rúmum tveimur
árum rúmlega níræð. Komust þau
hjón því bæði á tíunda tuginn. A
æskuheimili sínu var hann nefndur
Þorbjörn, og síðar kölluðu íslend-
ingar vestra hann Þorbjöm lækni.
Hann fæddist í Park River, Norð-
ur-Dakota, sonur þeirra hjóna, séra
Níelsar Steingríms Þorlákssonar
frá Stóru-Tjörnum í Ljósavatns-
skarði og Eriku Rynning, sem fædd
var og uppalin í Noregi. Þau hjón
fluttust síðan til Selkirk í Manitóba,
og þar ólst Þorbjörn upp í hópi
systkina sem öll urðu þrítyngd,
töluðu íslensku, norsku og ensku.
Ungur að árum lauk Þorbjörn
prófi í læknisfræði, nam síðan al-
mennar skurðlækningar í Englandi
og á meginlandi Evrópu. Varð hann
afburðamaður og prófessor í þeirri
grein. Þekktastur varð hann þó fyr-
ir margháttuð skipulagsstörf, bæði
heima fyrir og á alþjóðavettvangi,
á sviði læknavísinda. Sjálfur stofn-
aði hann eina stærstu heilsugæslu-
stöð í Kanada, The Winnipeg Clinic.
Var hann yfirmaður þeirrar stofn-
unar í nærri hálfa öld og jafnframt
yfirlæknir við stærsta spítalann í
Winnipeg — stofnun sem hann sjálf-
ur endurskipulagði frá grunni. Er
ekki að ófyrirsynju að nýjasta stór-
hýsi spítalans er við hann kennt.
Þess ber að geta að endur fyrir
löngu stunduðu læknar héðan að
heiman framhaldsnám við lækna-
miðstöð Þorbjarnar. Þar starfa nú
um 80 sérfræðingar.
Þorbjörn rækti íslenskan menn-
ingararf af kostgæfni, og á þeim
vettvangi lét hann ekki sitja við
orðin tóm. Má nefna sem dæmi hlut-
deild hans að útgáfu vestur-íslensku
blaðanna, en þeim var hann stoð
og stytta í marga áratugi. Hann
var og aðalhvatamaður að stofnun
íslenskudeildar við Manitóba-
háskóla um miðbik þessarar aldar
og annar af tveim stofnendum ís-
lensk-kanadíska sjóðsins (The
Canada Iceland Foundation), en sú
stofnun hefur síðastliðin 30 ár
styrkt ýmsa menningarstarfsemi
með Ijárframlögum og stutt ungt
fólk af íslenskri ætt þar vestra til
Hjónaminning:
Hinn 21. september síðastliðinn,
andaðist á Landspítalanum Stein-
björn Jónsson, til heimilis í Lækjar-
seli 7 í Seljahverfi.
Steinbjörn fæddist 19. september
1896, en Elínborg kona hans fædd-
ist 10. maí 1902, en hún andaðist
9. desember síðastliðinn á öldrunar-
deild Borgarspítalans eftir um rúm-
lega tveggja ára sjúkralegu þar svo
það var nú ekki nema tæpt ár á
milli þeirra.
Eg get nú ekki annað en skrifað
nokkrar línur um þessi heiðurshjón,
þau voru alltaf svo góð við mig frá
því ég kom til þeirra fyrir um sex
árum sem heimilishjálp og var þar
til síðasta dags og reyndi ég að
láta þeim líða sem best.
Eftir að Steinbjörn var orðinn
einn, þá var ég daglega hjá honum
og kunni hann vel að meta það,
ekki síst vegna þess hvað sjónin var
farin að gefa sig og síðasta árið
var sjónin alveg búin og þá reyndi
ég að stytta honum stundirnar með
því að lesa blöðin fyrir hann, því
alltaf fylgdist hann með öllu því sem
var að gerast. Síðan fékk hann líka
snældur hjá Blindrafélaginu með
sögum og öðru efni sem honum
fannst gaman að hlusta á part úr
deginum.
Það er sárt að sjá á eftir svona
góðum manneskjum en allir hverfa
nú víst einhvern tímann og ekki
síst þegar aldur færist yfir og sjón-
in er farin að gefa sig, þá er það
farið að þrá hvíldina.
Ég vil að lokum þakka þeim fyr-
ir samveruna í Lækjarseli 7 og sendi
ég börnum þeirra, tengdabörnum,
barnabörnum og öllum ástvinum
þeirra innilegar samúðarkveðjur.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Jóhannsdóttir
Steinbjöm Jónsson
Elínborg Jónsdóttir
háskólanáms. Segja má að Þorbjörn
léti sér ekkert mannlegt óviðkom-
andi, enda var hann einstaklega
fjölhæfur menntamaður. Um árabil
var hann kanslari Winnipeg-háskól-
ans og formaður stjórnskipaðrar
nefndar sem gerði drög að endur-
skipulagi skólakerfisins í Manitóba.
Fjölmargar menntastofnanir
urðu til þess að heiðra Þorbjörn á
langri starfsævi hans. Þess skal
aðeins getið hér að læknadeild Há-
skóla Islands kjöri hann heiðurs-
doktor árið 1961. Einnig sótti hann
ellefu alda afmæli íslandsbyggðar
sumarið 1974 sem sérstakur fulltrúi
Kanadamanna.
Þorbjörn var stakur hirðumaður
um alla hluti og kom sér meðal
annars upp gríðarmiklu skjalasafni
sem hann gaf Manitobaháskóla fyr-
ir tveimur árum. Efndi háskólinn
þá til stórhátíðar honum til heiðurs.
I veislu sem ættingjar og vinir
héldu Þorbirni níræðum mælti syst-
ir hans, frú Margrét (Margrethe)
Sigmar, fyrir minni afmælisbarns-
ins. Við lok ræðu sinnar söng frú
Margrét fáein lög við enska, norska
og íslenska texta. Sagðist hún hafa
áður sungið þessi lög fyrir Þor-
björn, en þá hefði hann verið korna-
barn í vöggu. Fannst viðstöddum
mikið til um níræðan söngferil frú
Margrétar. Hún lifir nú ein barna
séra Steingríms og frú Eriku.
Með Þorbirni lækni er horfínn
af sjónarsviðinu gagnmerkur maður
sem var þrekmikill í starfi og jafn-
framt frumkvöðull því nær óteljandi
verka sem öll horfðu til nokkurrar
gagnsemdar. Hann bar íslenska
arfleifð mjög fyrir bijósti, heimsótti
Island einum fímm sinnum og lét
þá aldrei undir höfuð .leggjast að
fara norður að Stóru-Tjörnum, þar
sem faðir hans var borinn og barn-
fæddur. Fyrir nokkrum árum
hengdi hanri upp málverk af þeim
bæ í stofunni heima hjá sér. í hárri
elli varð hann einhvern veginn ná-
komnari Ljósavatnsskarði heldur en
öðrum stöðum. Þar lágu rætur
þessa stórbrotna manns líklega
hvað dýpst.
Þorbjarnar læknis á Winnipeg
Clinic verður lengi minnst víða um
lönd. Við hér heima sem kynntumst
honum geymum það helst í minni
að ávallt var litið á hann sem íslend-
ing, enda fullvíst að með lífi sínu
og starfi treysti hann mjög þá merk-
ingaþætti sem við helst viljum að
sú nafngift varðveiti.
Haraldur Bessason
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐNI SÆVALDUR JÓNSSON,
Fögrukinn 26,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði,
15. nóvember kl. 13.30.
miðvikudaginn
Þóra Eyjólfsdóttir,
Eyjólfur Þ. Kristjánsson, Regína Hansdóttir,
Sigríður Á. Sævaldsdóttir, Kjartan Hreinsson,
Sigurborg H. Sævaldsdóttir, Gunnar Þ. Geirsson,
Eiríkur V. Sævaldsson, Hafdís Baldursdóttir,
Kristinn J. Sævaldsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar,
GUÐBJARTUR HÓLM GUÐBJARTSSON,
Króki, Kjalarnesi,
verður jarðsunginn frá Brautarholtskirkju á Kjalarnesi miðvikudag-
inn 15. nóvember kl. 14.00.
Guðjón Hólm Guðbjartsson,
Ólafur Hólm Guðbjartsson,
Anna Margrét Hólm Guðbjartsdóttir,
Hólmfríður Hólm Guðbjartsdóttir,
Guðbjartur Hólm Guðbjartsson,
Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ARNÓR JÓHANNES HALLDÓRSSON,
Hvassaleiti 1,
Reykjavík,
sem lést þann 4. nóvember sl. verður jarðsunginn í Hallgríms-
kirkju miðvikudaginn 15. nóvember nk. kl. 15.00.
Selma Ásmundsdóttir,
Halldór Arnórsson, Marion Arnórsson,
Þórarinn Arnórsson, Rannveig Þorvarðardóttir,
Sjöfn Arnórsdóttir, Kristinn Bergsson
og barnabörn.
+
Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
ÁGÚSTU JÓNSDÓTTUR,
Suðurgötu 83,
Hafnarfirði,
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, þriðjudaginn 14. nóvem-
ber, kl. 13.30.
Skarphéðinn Heigason,
Árni Rosenkjær, Guðríður Karlsdóttir,
Karl Rosenkjær, Selma Guðnadóttir,
Guðrún Hildur Rosenkjær,
Ágústa Ýr Rosenkjær, Jóhann Viðarsson,
Guðný Birna Rosenkjær, Sigurjón Einarsson
og barnabarnabörn.
+
Við þökkum hjartanlega öllum þeim sem heiðruðu minningu
SIGRÚNAR SVEINSDÓTTUR,
Skúlaskeiði 20,
Hafnarfirði,
Sveinn Frímannsson, Elisabet Kristjánsdóttir,
Sigrún Sveinsdóttir,
Böðvar Sveinsson,
Frímann Sveinsson,
Kjartan Sveinsson.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
bróður okkar og frænda,
KARLS HALLDÓRSSONAR,
Lokastig 8.
Guðríður Halldórsdóttir,
Jósep Halldórsson,
og frændsystkini.
+
Hjartans þakkir fyrir alla þá samúð og vináttu er okkur var sýnd
við fráfall móður minnar,
SVANÞRÚÐAR VILHJÁLMSDÓTTUR.
Svanbjörg og fjölskylda,
Hánefsstöðum.
+
Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vináttu
við andlát og útför eiginmanns míns, sonar, föður, tengdaföður
og stjúpföður,
STEFÁNS G. SIGURMUNDSSONAR.
Halla Steingrímsdóttir,
Sæunn Friðjónsdóttir,
Gunnar Freyr Stefánsson, Kristín Vogfjörð,
Stefán G. Stefánsson, Guðmunda Egilsdóttir,
Gisli Stefánsson, Hafdís Dóra Sigurðardóttir,
Kristjana Stefánsdóttir,
Steingrímur Gautur Pétursson,Guðríður Birgisdóttir,
Gunnhildur Pétursdóttir,
Brynhildur Pétursdóttir,
Gylfi Gautur Pétursson, Sólveig Einarsdóttir.