Morgunblaðið - 30.12.1989, Side 11

Morgunblaðið - 30.12.1989, Side 11
®'AUGÖ'Sf MQAPJONUSTAN' SlA MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1989 11 VÖRUR í VIRÐISAUKASKATTI: Samaverð stundum lægra! Nýmjólk, G-mjólk, undanrennaog léttmjólk lækka í verði vegna endurgreiðslunnar. Þessi lækkun á að skilasérbeint í vöruverðinu strax eftir áramótin. Neyslufiskuráað lækka í verði. Endurgreiðslan miðast við ferskan óunninn neyslufisk i heildsölu. Álagningin er frjáls, og er mikilvægt að fisksalar og neytendurtaki höndumsaman til að skattalækkunin skili sér í vöruverðinu. Tegundirnarsem lækkaeru:Ýsa, þorskur, ufsi, steinbítur, karfi, langa, keila, lúða, koli, skata, skötuselur, rauðmagi og grásleppa. Vöruverð á ekki að hækka þegar virðisaukaskattur leysir söluskatt af hólmi nú um áramótin. Vissar vörutegundir lækka veruiega og almennt vöruverð stendur í stað eða þokast niður á við. Með virðisaukaskatti breytist skatthlutfallið úr 25% í 24,5%. Þá hverfa einnig uppsöfnunaráhrif söluskatts í vöruverðinu því að virðisaukaskattur leggst aðeins einu sinni á sömu vöruna, óháð fjölda framleiðslu- og viðskiptastiga. Vöruverð á því alls ekki að hækka vegna kerfisbreytingarinnar. Þvert á móti ætti breytingin að leiða til lækkunar á almennu vöruverði. Vegna sérstakrar endurgreiðslu hefur skattbreytingin þau áhrif að neyslumjólk, ferskfiskur, kindakjöt og ferskt innlent grænmeti bera ígildi 14% skatts í stað24,5% á öðrum vörum. Ef aðrir þættir, til dæmis álagningin, haldast óbreyttir getá skattaumbæturnar haft í för með sér að þessi matvæli lækka um allt að 7-9% strax eftir áramótin. y/sk&O FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ Kindakjöt í heilum og hálfum skrokkum lækkar í verði frá afurðastöðvunum nú strax eftir áramótin vegna endurgreiðslunnar. Verðlækkun á til dæmis lambalærum, lærissneiðum, hrygg, kótilettumog súpukjöti er háð aðgæslu kjötkaupmanna og aðhaldi neytenda því frjáls álagning er áunninnikjötvöru. Allt innlent f grænmeti lækkar í verði.tildæmis kartöflur, sveppir, baunaspírur, gulrófur og gulrætur. Álagning er frjáls á þessari matvöru. Þess vegna er það ekki síst-komið undir árvekni neytenda og aðgæslu verslunarmanna að endurgreiðslan skili séraðfullu í vöruverðinu. FYLGJUMST MEÐ - VEITUM AÐHALD Það er mikilvægt að almenningur veiti aðhald og beri saman verðlag fyrir og eftir áramót. VERÐLAGSSTOFNUN fylgist með því af fremsta megni að skattbreytingin um áramót leiði ekki til verðlagshækkunar, og að endurgreiðsian skili sér í lækkuðu verði þeirra innlendu matvæla sem hún tekur til. Ef þú verður var/vör við óeðlilegar verðhækkanir eftir áramótin, og ekki fást fullnægjandi skýringar hjá kaupmanninum, skaltu hafa samband við VERÐLAGSSTOFNUN. Hún kannar hvert tilvik og hefur sérstakt eftirlit með verðlagsbreytingum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.