Morgunblaðið - 07.01.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JANUAR 1990
C 5
SÓLRÚN
BRflGADÓTTIR
■■1SÓPRAN
SÓLRÚN BRAGADÓTTIR fædd-
ist í Reykjavík 1959 og ólst þar
upp. Hún gekk í Álllaniýrarskóla
og síðar Réttarholtsskóla og lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um við Sund árið 1979. Hún hafði
þá sungið í Bústaðakirkjukórn-
um, Pólýfónkórnum og Lang-
holtskórnum og var ákveðin í að
fara út í söngnám.
að er eiginlega Elísabetu Erl-
ingsdóttur að þakka að ég fór
út í þetta, en hún kenndi mér
fyrstu árin, fyrst í Tónlistarskólan-
um í Kópavogi og síðan í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík. Ég ætlaði
mér aldrei að verða söngkona, mér
datt það ekki í hug. Þetta gerðist
allt eiginlega óvart,“ segir Sólrún.
„Ég hef haft áhuga á klassískri
tónlist frá barnsaldri og ég var
f imm ára þegar ég fór í Barna-
músíkskólann. Upp úr því fór ég í
píanónáni, fyrst í Barnamúsíkskó-
lanum til 12 ára aldurs og síðan í
einkatímum og hélt því við talsvert
lengi fram eftir aldri. í fyrsta skipti
sem ég steig á svið var í Meyjar-
skemmunni í Þjóðleikhúsinu vorið
1982. Svo um sumarið fór ég til
náms í Tónlistarháskólanum í Indi-
ana í Bandaríkjunum og var þar í
fimm ár. Aðalkennarar mínir þar
voru prófessor Roy Samuelsen og
Virginia Zeani.“
Að loknu námi fór Sólrún beint
til Þýskalands og var komin í vinnu
tveimur dögum síðar. „Halldór
Hansen hvatti mig til að prufu-
syngja í Þýskalandi og það gekk
ótrúlega vel. Ég söng á mánudegi
og var komin í vinnu hér við óper-
una í Kaiserslautern á þriðjudegi.
Þetta hefur gengið mjög vel og það
hefur verið mikið að gera hjá mér
að undanförnu og má segja að ég
hafi verið að syngja í hverri stórrull-
unni af annarri. Ég hef verið að
syngja í Rigoletto og nú er ég að
syngja greifynjuna í Brúðkaupi
Fígarós og framundan eru stór-
hlutverk svo sem María í Seldu
brúðinni, Angelica í Systir Angelica
auk ýmissa tónleika,“ sagði Sólrún.
Auk söngsins kveðst Sólrijn lesa
mikið, einkum um dulræn og andleg
efni auk þess sem hún stundar jóga
að staðaldri. Hún er ógift, en á
átta ára dreng með fyrrverandi eig-
inmanni sínum, Bergþóri Pálssyni
söngvara.
SIGRÓN
HJÁLMTÝSDÓTTIR
IsópranI
SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR
fæddist árið 1955 og ólst upp í
Vesturbænum í Reykjavík. Hún
gekk í Melaskólann og Hagaskól-
ann og hóf síðan nám við Mennta-
skólann í Reykjavík, en hvarf frá
námi. „Ég fór í fylu út í Guðna
rektor og var með smá uppsteyt
og hætti.Þá fór ég að læra leik-
list hjá'SÁL, sem síðar varð Leik-
listarskóli ríkisins,“ segir hún.
Síðan fór hún að syngja með
Spilverki þjóðanna og þar með
var leiðin rudd út á söngbraut-
ina.
Þetta varð til þess að ég hóf
söngnám við Guildhall School
of Music and Drama í London
árið 1979 og ég lauk prófi þaðan
1985. Aðalkennarinn minn í London
Hann er nú nýkominn heim úr ferð
um Evrópu þar sem hann söng fyr-
ir umboðsmenn auk þess sem hann
hélt tónleika í Kaupmannahöfn,
Osló og Óðinsvéum. „Það má segja
að þessir tónleikar séu mestu við-
burðir á ferli mínum til þessa. Þetta
voru geysilega velheppnaðir tón-
leikar og ég fékk mjög góða gagn-
rýni, sem er mér mikils virði,“ sagði
Sigurður.
Framundan er nú óperan Dido
og Aeneas með íslensku hljómsveit-
inni auk þess sem Sigurði hefur
verið boðið að halda tónleika erlend-
is nú á nýja árinu. Eiginkona Sig-
urðar er Guðrún Valdimarsdóttir
verslunarmaður og eiga þau einn
dreng, Valdimar, 11 ára. Auk
söngsins kveðst Sigurður vera
áhugamaður um siglingar, sem
hann stundar á sumrin með bræðr-
um sínum, Guðna og Guðlaugi, á
skútunni Normu.
var Laura Sarti. Síðan lá leiðin
heim að eiga börn og jafnframt
söng ég mikið hér heima við ýmis
tækifæri, m.a. í óratoríunni Judas
Maccabeus eftir Hándel með Sin-
fóníuhljómsveit íslands og söng-
sveitinni Fílharmoníu. Einnig söng
ég í Álfadrottningunni með Islensku
hljómsveitinni og Betlaraóperunni í
útvarpinu, svo nokkuð sé nefnt. En
á þessum árum söng ég ekki í
neinni óperu, það var ekki fyrr en
síðar. Svo var ég tvístígandi með
börnin í tvö ár varðandi Ítalíuferð-
ina. En maðurinn minn dreif mig
svo út árið 1987 og sú ferð varð
vendipunktur á ferli mínum,“ segir
hún þegar við rifjum upp söngnám-
ið og ferilinn.
Sigrún var í einkatímum á Ítalíu,
hjá Rina Malatrasi, í eitt ár og á
meðan dvöl hennar þar stóð var
henni boðið fyrsta óperuhlutverkið
á íslandi sem var dúkkan Olympia
í Ævintýrum Hoffmanns eftir Öff-
enbach. Síðan kom hlutverk Sús-
önnu í Brúðkaupi Fígarós. Auk þess
hefur Sigrún sungið mikið með
kórum og við hin ýmsu tækifæri
víða um land. Hún hefur að undan-
förnu dvalið í London við undirbún-
ing á titilhlutverkinu í óperunni
Luciu Di Lammermoore, sem fyrir-
hugað er að setja í svið í íslensku
óperunni á þessu ári.
Eiginmaður Sigrúnar er Þorkell
Jóelsson hornleikari hjá Sinfóníu-
hljómsveit íslands og eiga þau tvær
dætur, tvíburasysturnar Salome og
Valdísi, sem eru á fjórða ári.
Leiðrétting
í leikdómi um sýningu Leikfélags
Akureyrar á verkinu Eyrnalangir
og annað fólk í blaðinu í fyrradag
var rangt farið með föðurnafn eins
leikarans. Rétt nafn hans er Kristín
Jónsdóttir, ekki Pétursdóttir eins
og sagt var og er beðist velvirðing-
ar á því.
VINKLAR Á TRÉ
Þ.Þ0RGRÍMSS0N&C0
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
Bridsstóinn
Ný námskeid
hef jast 22. og 23. janúar
Boðið er upp á námskeið í
byrjenda- og framhaldsflokki
Hvert námskeið stendur yfir í 11 kvöld, einu sinni í viku.
Kennsla í byrjendaflokki fer fram á mánudagskvöldum
milli kl. 20.00 og 23.00, en í framhaldsflokki er spilað
á þriðjudagskvöldum frá kl. 20.00 til 23.30.
Vönduð námsgögn fylgja.
Námskeiðin fara fram í húsi Sóknar, Skipholti 50a.
Frekari upplýsingar og innritun í síma 27316 milli kl.
15.00 og 18.00 virka daga.
TILBOÐ ÓSKAST
í Jeep Cherokee 4x4 árgerð ’84, ásamt öðrum bifreiðum, er verða sýndar
á Grensásvegi 9, þriðjudaginn 9. janúar kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.00.
Sala varnarliðseigna.
Síðustu innritunardagar
TJÚTT
Suiuí-Amerfsklr
d&ms&r
Kennsla
hefst 8. janúar
REYKJAVI
1
OQ
'ns^
Kennslustoóir:
KR, Frostaskjóli,
lougordogo fyrir
ollo oldurshópo,
Templorohöllin,
Sundlougoveg 34.
Sértimari
tjÚtH'cg
'•okAi
Jyrirtjng,fóik
C00°
L.'-'IÆ £ ’ oa m lnStaklin9a
Þialfunfm «SrtaJ
keppaistíansa og mkiapróf úí
Innritun i sima 611997frá kl. 10-19