Morgunblaðið - 07.01.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.01.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR .7. JANÚAR 1990 ' C 23 ■ FRIÐRIK Þór Friðríks- son kvikmyndaleikstjóri og Einar Már Guðmundsson rithöfundur hafa nýlega lokið við kvikmyndahandrif, sem heitir Börn náttúrunnar. Handritið hefur verið í undir- búningi sl. þtjú ár en liggur nú hjá Kvikmyndasjóði. Það fjallar „um gamalt fólk“ eins og Friðrik Þór sagði í síma- spjalli. ■ ÞRIÐJA National Lampoon- gamanmyndin með Chevy Chase og Bev- erly D’Angelo var jólamynd í Bandaríkjunum og heitir auðvitað Jólafrí. ■ WILLEM Dafoe og Ed- ward James Olmos leika saman í myndinni „Triumph of the Spirit“ um fanga í útrýmingarbúðum nasista sem heldur lífi með því að vinna í hnefaleikakeppnum innan búðanna. Leikstjóri er Robert M. Young en þetta er fyrsta bíómyndin sem tek- in er í raunverulegum útrým- ingarbúðum. UJOIIN Travolta hefur ekki verið í neinum smellum frá því í „Saturday Night Fever“ og „Grease" í gamla daga. Það breyttist með gamanmyndinni „Look Who’s Talking" þar sem hann leikur á móti smábarni en myndin var mjög vinsæl vestra fyrirjólin og halaði inn dollarana. Amerísk sjónvarpsfrægð: ,Twin Peaks’ íslendingar í amerískum þáttum Eitt af þvi, sem Propag- anda Films Sigurjóns Sig- hvatssonar í Los Angeles hefúr unnið að í samvinnu við framleiðslufyrirtæki leikstjórans Davíd Lynch, eru sjónvai-psþættir sem Lynch hefur verið að gera undanfarið og heita „Twin Peaks“. eir gerast í amerískum smábæ með sama nafni en Siguijón virðist hafa tekist að vekja svo áhuga Lynch á íslendingum að leikstjórinn hefur skrifað talsvert af þeim inní fimmta þátt. Þannig er að ein hliðar- sagan í þáttunum fjallar um fólk sem á mikið af land- flæmi sem það breytir í sumarbústaðarland er á að höfða sérstaklega til skandínava og þangað koma m.a. íslendingar að skoða sig um. Þetta er sennilega í fyrsta skipti sem 10 eða 15 heimamenn koma fram í amerískum sjón- varpsþáttum. Þættirnir eru gerðir fyrir risastöðina ABC og verða því sýndir um öll Banda- ríkin en Stöð 2 hefur keypt sýningarréttinn á þeim hér á íslandi og sýnir þá ein- hvenitímann eftir norðan við eitt ár. Cimino endurgerir Bogart-mynd Árið 1955 leikstýrði William Wyler sakamálamynd- inni„The Desperate Hours“ með Humphrey Bogart í hlutverki strokufanga sem ryðst með félögum sínum inná heimili fjölskyldu nokkurrar og tekur að ógna henni. Dino De Laurentiis framleiðir og leitaði til Mickey Rourke til að fara með Bogart-hlutverkið. Rourke sagðist hvorki hrifinn af endurgerðum almennt né þessari sérstaklega og vildi ekki leika nema vinur hans Michael Cimino fengi að leikstýra. Til að gera langa sögu stutta fékk Cimino verkefnið og nýlega lauk tökum á myndinni. Aðrir leikarar í henni eru Anthony Hopkins, Mimi Rogers og Kelly Lynch. „Eg horfði ekki á gömlu myndina,“ sagði Rourke. „Ég vildi það ekki.“ Hann lét Cimino um allt það mál, treysti honum algerlega fyrir myndinni. Ro- Rourke; eins og Bogart? Neeeeee ... urke vann með Cimino við Ár drekans og „The Desperate Hours“ segir hann uppáhaldsleik- verður frumsýnd í Banda- stjórann sinn. „Hann er rikjunum einhverntimann á soddan fullkomnunar næsta ári. sinni.“ í BÍÓ • • Orverpismarkaður er orðið sem kunnur kvikmyndagerðarmaður viðhafði í stuttu sima- spjalli um þann áhorf- endamarkað sem ísl- enskar bíómyndir hafa á að róa til að hafa upp í kostnað. Viðmiðunin er þessi: Amerísk metsölu- mynd er tíu mínútur að selja 250.000 miða. Sagt hefur verið að ef kvik- myndagerð á að geta þrif- ist á heimsmælikvarða eins og krafan er á meðal íslenskra áhorfenda þyrftu að búa hér ekki færri en 50.000.000 manns. íslensk kvik- myndagerð er alltaf rekin með gjaldþrot í huga enda leita leikstjórar okkar í æ ríkari mæli eftir erlendu fjármagni og samstarfi við erlenda aðila. Útflutning- ur á íslenska kvikmynda- ævintýrinu virðist óum- flýjanleg þróun. En mælir eitthvað gegn því? KVIKMYNDIR Hvemig var í bíó 1989f Góð byrjun en slappur ettdir Lífið er ekki þeir dagar sem þú hefur lifað held- ur þeir dagar sem þú manst stendur einhvers staðar og það sama má segja um bíó- myndirnar; þótt þú munir þær ekki frá upphafi til enda standa ákveðin at- riði uppúr. Ekki endi- lega heilar senur, það þarf ekki að vera nema hreyfing myndavélarinnar eða lýsing eða svipbrigði leikara: Glenn Close þar sem hún situr eyði- lögð í lok Hættulegra sam- banda. Myrkurdrunginn í Tvíburum Davids Cronen- bergs. Undirspilið í Tucker. eftir Arnald Indríðason Þannig líður 1989 í ein- staka minnisstæðum brot- um. Það skar sig 'ekki úr á neinn hátt. Meirihluti mynd- anna kom frá Bandaríkjun- um eins og alltaf, meirihlut- inn var miðlungsmyndir og verri eins og alltaf og eins og alltaf stóðu nokkrar langt uppúr. Það var líka kvik- myndahátíðarár en það hefði verið svo auðvelt að pikka út tíu bestu myndir ársins á þeim tíu dögum sem hún stóð að við höldum okkur við hversdagssýningarnar. Hollywoodárið einkennd- ist af framhaldsmyndafári og Batmanæði, sem við fór- um auðvitað ekki varhluta af. Fyrra fárið reyndist skila af sér betri myndum en maður þorði að vona, ein þeirra kemst meira að segja á lista yfir tíu bestu mynd- irnar. Batman, ein af fáum frumútgáfunum vestra í sumar og megasmellur í miðasölu, reyndist engin sér- stök metsölumynd í Evrópu enda var ísinn betri en mynd- in. Árið byrjaði mjög vel og hélt dampi lengi framefir þar til kom að heldur slöppum lokamánuðum. Fyrri hluti ársins einkenndist mjög af fyrirbærinu fullorðinsmyndir en hugtakið tvíburamyndir varð einnig til. Markaðs- fræðingarnir í Hollywood höfðu reiknað fullorðið fólk inní dæmið mjög á kostnað unglinganna og afraksturinn varð helmingi betri myndir. Á vormánuðum voru sýndar óvenju margar slíkar myndir á sama tíma í bíóunum. Og þær eiga stóran hluta í 10 bestu listanum, myndir eins og í ljósum logum, Regn- 10 BESTU MYNDIRNAR 1. Pelli sigurvegari („Pelle erobreren" e. Bille August). 2. Regnmaðurinn („Rain Man“ e. Barry Levinson). 3. í ljósum logum („Mississippi Burning” e. Alan Parker). 4. Járngresið („Ironweed" e. Hector Babenco). 5. Hættuleg sambönd („Dangerous Liaisons” e. Stephen Frears). 6. Tucker (e. Francis Ford Coppola). 7. Bamabrek („Parenthood” e. Ron Howard). 8. Fiskurinn Wanda („A Fish Called Wanda e. Charles Crichton). 9. Tvíburarnir („Dead Ringers" e. David Cronenberg). 10. Móðir fyrir rétti („A Cry in the Dark“ e. Fred Schepisi). Sæbjörn Valdiniarsson Sú besta 1989; Pelli sigursæli eftir Bille August. 10 BESTU MYNDIRNAR 1. Pelli sigui-vegari („Pelle erobreren” e. Bille August). 2. Hættuleg sambönd („Dangerous Liaisons“ e. Stephen Frears). 3. í ljósum logum („Mississippi Burning" e. Alan Parker). 4. Tvíburarnir'(„Dead Ringers“ e. David Cronenberg). 5. Aftur til framtíðar II („Back to the Future 11“ e. Ro- bert Zemeckis). 6. Tucker (e. Francis Ford Coppola). 7. Regnmaðurinn („Rain Man“ e. Barry Levinson). 8. Járngresið („Ironweed“ e. Hector Babenco). 9. Á faraldsfæti („The Accidental Tourist” e. Lawrence Kasdan), 10. Hinir ákærðu („The Accused e. Jonathan Kaplan). Arnaldur Indriðason maðurinn, Á faraldsfæti og Hættuleg sambönd. Fjórar tvíburamyndir voru sýndar um svipað leiti fyrri hluta ársins en sú besta var hrollvekja David Cronen- bergs, „Dead Ringers" eða Tvíburarnir, sem enginn skyldi rugla saman við „Twins“ eða Tvíbura, gam- anmynd með Danny De Vito og Árnold Schwarzenegger. Seinni hluti ársins var daufasti hlutinn. Aðeins tvær myndir frá þessum tíma, Barnabrek og Áftur til framtíðar II, teljast til bestu myndanna. Annars var ósköp ómerkilegt léttmeti á ferðinni fram til jóla. En þrátt fyrir flæði Holly- woodmynda hingað eins og venjulega var það ekki Hollywoodmynd sem stóð uppúr á árinu. Pelli sigur- sæli eftir Bille August var besta mynd ársins. Hinar veita góða samkeppni en ein- hvern veginn stóð Pelli næst manni, snerti mann þar sem hinar náðu ekki til í frábær- lega manneskjulegri en líka hrottalegri lýsingu á lífi og aðbúnaði verkamanna á dönskum herragarði og ást og vináttu Pella og föður hans, sem Max von Sydow lék stórkostlega vel. Þar fór mynd sem ekki gleymist svo auðveldlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.