Morgunblaðið - 07.01.1990, Page 19

Morgunblaðið - 07.01.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1990 C 19 Auglýsingar vindla bannaðar Fyrirhugað er að banna að aug- lýsa vindla og píputóbak í sjón- varpi í Bretlandi — eina landi Evr- ópu þar sem slíkar auglýsingar eru enn leyfðar. Bannið á rætur að rekja tii tilskipunar Evrópubandalagsins um útvarpsmál. Því verður komið á í áföngum og verður algert eftir tvö ár. FURÐUHEIMAR FJÖLMIÐLAIMNA (Véfréttadeild) Ásthildur skrifar: Kona ein lán- aði Azmílkennslubækur og spól- ur í ítölsku. Ég man ekki hverjum en þetta er merkt, henni. Nánari upplýsingar gef ég í síma 51525. DV, lesendasíða Eg hef saknað starfsfélaganna - segir Jón Birgir Pétursson, sem tekur við starf i fréttastjóra Alþýðublaðsins um miðjan mánuðinn eft- ir áratugar fjarveru frá fréttaslagnum „Ég hef verið í frekar ein- manalegu starfi undanfarin 11 ár og hef saknað starfsfélag- ánna úr blaðamannastétt. Svo var mig farið að langa til að komast aftur í fréttaslaginn. Þetta blundar alltaf í manni,“ sagði Jón Birgir Pétursson blaðamaður, sem tekur við starfi fréttastjóra Alþýðublaðs- ins um miðjan þennan mánuð. Jón Birgir hefur starfað sjálf- stætt við eigið fyrii’tæki, Blaða- og fréttaþjónustuna, frá því hann lét af störfum sem frétta- stjóri Dagblaðsins árið 1979. Jón Birgir hóf störf við blaða- mennsku árið 1962, sem íþróttafréttaritari á Vísi, og var þá í hlutastarfi og starfaði jafn- framt hjáFlugfélagi íslands. Síðar hóf hann störf hjá Hafskip jafn- framt íþróttafréttamennskunni. „Ég var staddur í Englandi vegna heimsmeistarakeppninnar í knatt- spyrnu 1966 þegar mér barst hraðbréf frá stjórnendum Vísis þar sem mér var boðið starf frétta-^ stjóra. Það kom ákaf lega f latt upp á mig og ég hugsaði mig talsvert um áður en ég þáði boðið því ég var í ágætu starfi hjá Hafskip, sem þá var vaxandi skipafélag sem lofaði góðu. En það varð úr að ég tók við fréttastjórastarfinu og ég var á Vísi þar til klofningur- inn kom upp í ágúst 1975, en þá varð ég fréttastjóri Dagblaðsins og var það fram á árið 1979 þeg- ar ég ákvað að hætta í frétta- mennskunni. Það hafði alltaf blundað í mér löngun til að skrifa bækur og ég lét verða af því og skrifaði þá tvær sakamálasögur.“ Jón Birgir sagðist hafa haft það ágætt í Blaða- og fréttaþjón- ustunni, þar sem hann hefur með- al annars tekið að sér að gefa út blöð og bæklinga fyrir ýmsa aðila. Aðspurður um hvernig það væri að fara yfir á pólitískt málgagn eftir að hafa starfað svo lengi við svonefnda frjálsa fjölmiðla kvaðst Jón Birgir engu kvíða. „Ég hef áður unnið við blaðaútgáfu fyrir stjórnmálaflokka og kann því vel. Þeir hjá Alþýðublaðinu vita að ég hef verið flokksbundinn Sjálf- stæðismaður on beir vita líka að Jón Birgir Pétursson:„Ég mun sem fréttastjóri verða algjörlega óháð- ur stjórnmálaflokkum..." ég hef aldrei látið stjórnast af pólitík í mínu starfi. Þeir hafa heldur ekki verið með nokkurn pólitískan þrýsting í minn garð enda mun ég sem fréttastjóri verða algjörlega óháður öllum stjórnmálaflokkum." 'Jón Birgir kvaðst hafa í hyggju að brydda upp á ýmsum nýjungum varðandi fréttaflutning Alþýðu- blaðsins, en of snemmt væri að tjá sig um þær á þessu stigi. „Ég er svona að móta þetta með mér og það verður bara að koma í ljós. Alþýðublaðið er mjög lítið blað, ætli allir starfsmenn séu ekki álíka margir og á íþróttaritstjórn Morg- unblaðsins, þannig að svigrúmið til stórstígra breytinga er auðvitað ekki mikið. En ég hef samt trú á að við eigum eftir að gera ýmsa góða hluti,“ sagði Jón Birgir Pét- ursson. SKRANING ER HAFIN. TAKMARKAÐUR ÞÁTTTAKENDAFJÖIDI. INNRITUN í SÍMUM 621066 OG 10004. Málaskólinn Mímir Ánanaustum 15 Sijómuiwrfélag islands er eigandi Móloskólans Mintis. Þó samskipti fólks af ólíku þjóðerni aukist dag frá degi dugir svona fjölþjóða hrærigrautur skammt þeg- ar á hólminn er komið. Vilt þú auka samskiptahæfileika þína við fólk af ólíku þjóðemi, geta talað, lesið og hugsað á öðru tungumáli? Hvort sem þú ætlar að leggjast I ferðalög, fara utan (við- skiptaerindum eða einfaldlega njóta ávaxta heimsmenning- arinnar er kunnátta (erlendu tungumáli fjársjóður sem veit- ir þér aukna möguleika og ánægju. Til þess að tungumálanám beri sem mestan árangur leggjum við áherslu á að kenna málið yfir lengri t(ma. ( upphafi námskeiðs færðu stöðu- mat sem gefur mynd af kunnáttu þinni. þannig leitumst við að tryggja að þú takir upp þráðinn ( náminu þar sem kunnáttunni sleppir. S(ðan mætir þú tvisvar ( viku, tvo tíma f senn í 12 vikur og færö svo nýtt stöðumat ( nám- skeiðslok. Þú munt komast að raun um að tungumálanámið hjá M(mi er fræðandi, spennandi og skemmtilegt nám. Málaskólinn Mímir býr að 40 ára reynslu (tungumálakennslu. Við tryggjum hagnýtt nám og vandaða kennslu, með áherslu á að þú lærir það sem máli skiptir og náir árangri. Námið hefst 22. og 23. janúar. Enska Enska fyrir börn Vidskiptaenska Þýska Dansku Franska Spænska ítalsko Spænska íslensk réttritun íslenska fyrir útlendinga Tungumálanúm erlendis

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.