Morgunblaðið - 26.01.1990, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990
9
ÞATTTAKA
TRYGGINGASTOFNUNAR RÍKISINS
í KOSTNAÐIVIÐ
TANNRÉTTINGAMEÐFERÐ
Vegna nýrra laga um greiöslur Trygginga-
stofnunar ríkisins fyrir tannréttingar vill
stofnunin hvetja forráðamenn barna og
unglinga til þess aö fresta því aö leggja
út í kostnað viö nýja tannréttinga-
meðferö þar til nýjar endurgreiðslureglur
hafa veriö auglýstar. Aö því loknu skal
fólki bent á aö afla sér úrskurðar
Tryggingastofnunar um mögulega
greiðsluþátttöku stofnunarinnar áður en
meðferð hefst. Tekið skal fram, að tann-
réttingameðferð, sem sannanlega hófst
fyrir 1. nóvember 1989 verður áfram
endurgreidd samkvæmt eldri reglum.
S%| TRYGGINGASTOFN U N
m RÍKISINS
Ljósagangur
Fyrir ári hófii formenn
Alþýðubandalags og Al-
þýðuflokks fiindaherferð
víða um land undir kjör-
orðinu „Á rauðu \jósi“.
Það gerðu þeir án sam-
ráðs við samstarfsmcnn
sína i eigin flokkum, en
svo mikið lá við, að það
varð bara að hafa það.
Enda var höfuðviðfangs-
efiiið hvorki meira né
minna en að sameina alla
íslenzka jafiiaðarmenn í
einum stórum flokki.
Verkefiiið var svo mikil-
vægt, að því yrði að
hrinda í framkvæmd,
jaftivel þótt það kostaði
klofning og óánægju í
flokkum formannanna.
Eftir nokkra fiindi
slokknaði á rauða ljósinu
og það án þess að örlaði
á áhuga almennings á að
fylkja sér á bak við þá
Olaf Ragnar og Jón Bald-
vin í nýja, stóra flokkn-
um. Nú leið og beið. For-
mennirnir voru upptekn-
ir við að finna upp nýjar
skattaleiðir til að fylla
upp í ört stækkandi Qár-
lagagat, deila um áfeng-
iskaup á sérverði og með
haustinu beindi Jón Bald-
vin öllum sinum kröftum
að samnmgum EB og
EFTA. Ólafur Ragnar
undirbjó hins vegar
landsfimd Alþýðubanda-
lagsins. Þar varð hug-
mynd hans um samein-
ingu við Alþýðuflokkhm
undir, yaraformanns-
kandidat Ólafs var felld-
ur en fiilltrúi gamla
flokkseigendafélagsins
kjörinn í hans stað. Þetta
varð niðurstaðan þótt
BirtingarLiðið berðist
með kjaili og klóm á
landsfimdinum.
Nú á nýju ári var
ákveðið að hefia ljósa-
gang formaimamia
tveggja á ný og Birting
efiidi til fúndarins „A
nýju ljósi“. Enda ekki
lítið í húfi, þvi framundan
eru sveitai-stjórnarkosn-
ingar og Alþingiskosn-
ingar að ári.
Ólafur Ragnar Ceausescu Jón Baldvin
Villuljós
alþýðuforingjanna
Leiðtogar Alþýðubandalags og Alþýðuflokks
komu fram á fundi á Hótel Sögu sl. þriðju-
dagskvöld undir kjörorðinu „Á nýju Ijósi".
Fundarboðandi var Birting, persónulegar
stuðningssveitir Ólafs Ragnars á vinstri væng
stjórnmálanna, sem hafa það hlutverk að
styðja hann til forustuhlutverks í stórum og
öflugum jafnaðarmannaflokki.
Samfylking
Það er því ekki seinna
vænna að blása til sam-
fylkingar jafiiaðarmanna
í öllum flokkum, sem og
óflokksbundinna, og láta
reyna á hana í vor. Það
yrði eins konar aðalæfing
fyrir þingkosningarnar,
þegar staða sjálfra for-
mannanna er í veði.
Vandamálið er bara það,
að flokkseigendafélagið í
Alþýðubandalaginu vill
ekki samfylkingu með
krötum, þrátt fyrir há-
værar kröfúr Birtingar-
liðsins. Alþýðuflokknum
er því beitt í málinu og
hann hefúr boðað sam-
fylkingu með öllum hugs-
anlegum flokkum og
flokksbrotum gegn Sjálf-
stæðisflokknum. Meira
að segja á að fara fram
opið próflqör, þar sem
allir mega greiða at-
kvæði um irambjóðendur
nema stuðningsmenn
borgarstjórnarmeirihlut-
I ans.
Svo mikið er því talið
liggja við að ná samfylk-
ingunni, að Alþýðuflokk-
uriim tekur þá áhættu
að fá engan fúlltrúa í
öruggu sæti á lista sam-
fylkingarmanna. Þetta er
splunkunýtt afbrigði í
langri og sorglegri
reynslu Alþýðuflokksins
af breiðfylkingu með
kommúnistum og öðrum
róttæklingum, sem ætíð
hefur leitt til klofnings
flokksins og haldið hon-
umí smáflokkastærð.
Þetta kemur núver-
andi formanni Alþýðu-
flokksins ekkert við,
enda hefúr hann sam-
fylkt í tveimur eða þrem-
ur flokkum áður ásamt
Ólafi Ragnari. Það hefúr
lialdið þeim báðum á floti
í pólitíkinni og framund-
an er sætrsta verkefnið
— sameining allra jafiiað-
armaiuia í einum, stórum
flokki.
Það mátti því sjá for-
mann Alþýðuflokksins í
nýju ljósi á fúndi storm-
sveita Ólafs Ragnars á
Hótel Sögu. Þar baðaði
Ólafur Ragnar sig í Ijósi
atburðanna í Austur-
Evrópu og taldi þá boða
nýja tíma í islenzkvi
pólitik og reyndar í heim-
inum öllum. Ekki væri
lengur þörf fyrir varnar-
liðið né NATO. Austur-
blokkin væri i uppnámi.
Varsjárbandalagið að lið-
ast í sundur og kommún-
istar hefðu ekki lengur
efiii á að ráðst gegn lýð-
ræðisríkjunum.
Þarna var Jón Baldvin
að vísu ekki sammála og
taldi NATO eiga fi-amtíð
fyrir sér og á íslandi yrði
varnar- og eftirlitsstöð
áfiam.
Samlíking
En formennimir voru
samtaka í þvi að hvetja
til samfylkingar allra
gegn mestu hættunni,
sem nú steðjar að þeim
og flokkum þeirra — sigri
meirihluta sjálfstæðis-
manna í borgarstjóm
Reykjavíkur.
Ölafur Ragnar líkti
Ixirgarstjómarmeirihlut-
anum og tjorgarstjóran-
um við hið blóðuga kúg-
unarkerfi kommúnista í
Austur-Evrópu, þar sem
fijálsar kosningar hafa
aldrei farið fram. Það er
því ljóst, að samfylking-
arpostulinn leggur að
jöfnu lýðræðislega lqör-
inn meirihluta og kúgun-
arstjómir austur-evr-
ópskra kommúnista.
Hápunktur þessara
öfga birtist í því, að for-
inaður Alþýðubandalags-
ins og Qármálaráðherra
lýðveldisins líkti
Reykjavík, undir stjórn
meirihluta sjálfstæðis-
manna, við Rúmeniu og
Davíð Oddssyni, borgar-
stjóra, við hinn morðóða
Ceausescu.
Reykvíkingar munu
vafidaust minnast þess-
ara ummæla alþýðufor-
ingjans og sýna samfylk-
ingarpostulunum í verki,
að þeir em ekki „á nýju
Ijósi“ heldur á villuljósi.
SOLARKAFFI
ÍSFIRÐINGA-
FÉLAGSINS
Hið árlega SÓLARKAFFI ísfirð-
ingafélagsins í Reykjavík verður í
kvöld, föstudaginn 26. janúar,
í SÚLNASAL HÓTEL SÖGU.
Hófið hefst kl. 20.30 með kaffi og
rjómapönnukökum.
Vönduð dagskrá.
Brottfluttir ísfirðingar og gestir á
ferð fjölmenni!
Aðgangseyrir kr. 1.200 -
STJÓRNIN
WIKA
Allar stæröir og geröir
Ir_L
SftwnrösnLQgjiuiir cj)éini©s®(ni <& bt
Vesturgðtu 16 - Símar 14680-132»
@5 Ármúla 29 simar 38640 - 686100
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Armstrong LDFTAPLDTUR
KOPKQ FSOOJTT GÓLFFLlSAR
^llRBUPLHT EINANGRUN
íj|p VINKLARÁTRÉ