Morgunblaðið - 26.01.1990, Page 13

Morgunblaðið - 26.01.1990, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANUAR 1990 13 þjónustu. Hann áttaði sig á því að slík samhæfing kemur öllum til góða, meðal annars á endurhæfing- arstofnun eins og Reykjalundi. Við réttar aðstæður nýtist starfsorka flestra sem eru öryrkjar vegna geð- sjúkdóma vel, þeim sjálfum til endur- hæfingar og uppbyggingar og öðrum til gagns. Þetta vissi Oddur og fór því snemma að taka geðsjúklinga til endurhæfíngar að Reykjalundi, löngu áður en geðdeildir komu við sjúkrahúsin í Reykjavík. Orðstír Reykjalundar undir for- ystu Odds og eftirmanna hans hefur verið mikill og vaxandi. Því hafa allir viljað komast þangað sem þurfa á endurhæfingu að halda. Oddur gerði sér þetta ljóst og einnig að geðsjúklingar gætu átt í vök að veij- ast ef aðstaða þeirra yrði ekki tryggð með einhveijum hætti. Þess vegna stuðlaði hann að því að Geðverndar- félag íslands eignaðist 22 vistrými á Reykjalundi. Fyrir þetta ber hon- um sérstakar þakkir allra sem vilja stuðla að bættu geðheilbrigði. Allir þekkja stórbyggingar Ör- yrkjabandalags íslands við Hátún í Reykjavík. Færri vita um Fannborg í Kópavogi. Á þessum stöðum hafa verið byggðar 250 íbúðir, sérhann- aðar fyrir örykja. Ef ekki hefði kom- ið til þor og vit Odds Ólafssonar, er óvíst hvort þessar byggingar væru til og hvort húsnæðismál ör- yrkja væru komin í það horf sem þau nú eru í. Oft var svart í álinn meðan á byggingu þessara húsa stóð og hefur Oddur vafalaust haft veru- legar áhyggjur af hvemig ganga myndi. En hann íþyngdi samstarfs- mönnum sínum í hússtjórn Öryrkja- bandalags íslands lítt með þessum áhyggjum fyrr en hann vissi hvernig mætti leysa vandann. „Þetta bjarg- ast allt saman, elskan mín,“ var við- kvæðið þegar við, sem hann hafði valið sér til meðstjómar, vomm að vandræðast. Og það bjargaðist, hús- in komust upp, öryrkjum til ómetan- legs gagns. Þau standa sem óbrot- gjarn minnisvarði um elju og fórn- fysi forystumannsins. En hann, eins og margir sem best láta af sér leiða, hugsaði ekki um minnisvarða. Hon- um var nóg að vita að hann hafði gert einhveijum gott. Það var Oddi mikið gleðiefni þeg- ar Öryrkjabandalagið fékk aðild að íslenskri getspá og hlutdeild í Lottó- hagnaðinum. Og fyrir okkur, sem með honum höfum unnið, var gott að vita !að fjárhagsáhyggjur hans vegna íbúðabygginga fyrir öryrkja voru að baki. A þeim tíma sem lið- inn er síðan Lottópeningarnir fóru að koma, hefur hússtjórn Öryrkja- bandalags íslands byggt eða keypt 70 íbúðir. En betur má ef duga skal. Minning Odds verður best í heiðri höfð með því að halda þessu starfi áfram þar til biðlistinn er horfmn og íbúðaþörf öryrkja fullnægt. Það hefur verið sagt, að aðeins góður maður getur verið góður læknir. Þetta sannaðist enn einu sinni á Oddi Ólafssyni. Fyrir hönd hússtjórnar Öryrkja- bandalags íslands og stjórnar Geð- verndarfélags íslands votta ég frú Ragnheiði og afkomendum þeirra hjóna dýpstu samúð. Tómas Helgason Genginn er heiðursmaðurinn Odd- ur Ólafsson læknir. Eins og alþjóð er kunnugt kom Oddur Ólafsson víða við á langri starfsævi og lagði gjörva hönd á ýmis framfara- og líknarmál. Munu aðrir og fróðari menn eflaust rekja ítarlega á síðum blaðsins æviferil hans og ættir og því verður það ekki gert í þessum fáu kveðjuorðum. Hér verður aðeins vikið stuttlega að störfum hans í þágu Vöruhapp- drættis SÍBS. Oddur bar mjög fyrir bijósti frá fyrstu tíð velgengni happdrættisins, sem nú er liðlega 40 ára gamalt. Hann tók virkan þátt í uppbyggingu þess og rekstri og fylgdist ætíð mjög náið með afkomu þess, uns dauðinn knúði á dyr. Starfsemi happdrættis- ins er háð leyfi Alþingis, sem veitt hefur verið til 10 ára í senn með lagasetningu, en eins og kunnugt er rennur allur ágóði af rekstri þess til endurhæfingar og líknarmála. Þegar að því kom hveiju sinni að fá framlengingu starfsleyfisins, var Oddur þar ævinlega í fararbroddi og mun alþingismönnum sem og öðrum ráðamönnum aldrei hafa blandasta hugur um hugsjónir Odds og einlægni. Var málaleitan hans því ávallt vel tekið. Frá árinu 1988 sat Oddur í fram- kvæmdastjórn happdrættisins, jafn- framt því að gegna formennsku í aðalstjóm SÍBS. Öll einkenndust störf hans þar sem og annars staðar af ósérhlífni, ljúfmennsku og fijórri hugsun. Er persónuleiki hans öllum ógleymanlegur. Hinsta embættisverk Odds á veg- um SÍBS, og stofnana þess var að sitja fund í framkvæmdastjóm happ- drættisins 28. desmber sl., en þrem- ur dögum síðar veiktist hann og var lagður inn á sjúkrahús. Frá sjúkra- beði sínu fyigdist hann með fram- vindu mála á nýbyijuðu happdrætt- isári. Af samstarfi við Odd spmttu iðu- lega náin persónuleg kynni og vin- átta. Þegar vanda bar að höndum var gott að leita til Odds sem og á gleðistundum. Á öllu kunni hann skil, og við hveijum vanda átti hann góð ráð. í öllu starfi var eiginkona Odds, Ragnheiður Jóhannesdóttir, virkur þátttakandi og sýndi þeim hlýhug og þolinmæði, sem leituðu til Odds á ýmsum tímum sólarhringsins. Að leiðarlokum færa vinir og sam- starfsmenn hjá happdrætti SIBS, fram alúðarþakkir fyrir áratuga samstarf og vináttu og senda Rag- heiði konu hans og fjölskyldu dýpstu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Odds Ólafs- sonar. F.h. framkvæmdastjórnar og starfsfólks Vöruhappdrættis SÍBS, Björn Ólafur Hallgrímsson. líjt l/jt lljt lljt l/jt l$t lit lí. Ijt lí ÓU3USJÓ A SÖGU ÖLL LAUGARDAGSKVÖLD li(i IíS) l/Si IrSi IíS> h l/Si l/Si IíS/ l/Si l/Si IíSi i l/St l/Si fa l/Si l/Si l/Si l/S> l/Si l/Si l/(i 1/Si l/S/ í) l/Si liSi l/S/ l/Si i/Si i'S/ 'i l/'S> J4 Þeim sem vilja skemmta sér ærlega er boðið í ógleymanlega „sjóferð“ með MS Sögu. Landgangurinn er opnaður kl. 19. Kvöldsiglingin hefst með þríréttaðri veislumáltíð (vai á réttum). Síðan bregða skipstjórinn Halli og skemmtilegustu menn landsins, Laddi og Ómar, sér í allra sjókvikinda líki. UPPSELT 271. EINSDÆMI leikur frá kl. 23.30-03. Gestur: RAGNAR BJARNASON Miðaverð eftir kl. 23.30 750 kr. Miðaverð (skemmtun + veislumatur) 3.900 kr. Tilboð á gistingu. Nánari upplýsingar í síma 91-29900. MÍMISBAR opinn frá kl. 19. Stefán og Hildur skemmta. I4 14 li(i líi I/! lijn lí() \ljl l^) lí() li() lí) lí) l/(i I/! l/() l/() l/() l/() l/Si A 14 l& \í emum Við höldum glæsilega sýningu á RANK XEROX Ijósritunarvélum og telefaxtækjgm fimmtudaginn 25/1 og föstudaginn 26/1 í verslun okkar að Nýbýlavegi 16, Kópavogi kl. 9°0-18°0 báða daga. Auk tækja frá XEROX sýnum við einnig úrval Ijósritunarvéla og telefaxtækja frá KONICA. Við vonum að þið sjáið ykkur fært að líta ihn nýjasta og fullkomnasta á markaðnum. ÁUt á Á medan sýningin stendur yfir verða telefaxtæk seld með allt að 50% afslætti. SKRIFSTOFUVÉLAR GÍSLI J. J0HNSEN HF.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.