Morgunblaðið - 26.01.1990, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANUAR 1990
17
Borgarstjóri um Vatnsendamál:
Sýnist álit Lagastofiiunar
eiga við rök að styðjast
ÉG HEF ekki séð þetta álit Lagastofnunar en fljótt á litið getur mað-
ur ekki gert lögfræðilegan ágreining við þau sjónarmið sem þar koma
fram,“ sagði Davíð Oddsson borgarsíjóri þegar leitað var viðbragða
hans við áliti því sem Lagastofnun Háskólans hefur látið frá sér fafa
um stöðu Kópavogsbæjar gagnvart samningi Reykjavikurborgar og
Magnúsar Hjaltested bónda á Vatnsenda um kaup á landi hans.
„Miðað við þær fréttir sem ég'hef
af þessu heyrt þá hallast ég að því
að þetta álit eigi við rök að styðj-
ast. Þetta mál er dálítið sérstakt
allt saman og af þeim ástæðum setti
borgin í sitt kauptilboð fyrirvara um
10 ára afmæli íslenska
„kvikmyndavorsins“
ARATUGUR er liðinn frá frum-
sýningu fyrstu íslensku kvik-
myndarinnar á hinu svokallaða
„kvikmyndavori", eða frá því að
samfelid kvikmyndagerð hófst í
landinu. í tilefhi þess hyggst Fé-
lag kvikmyndagerðarmanna efha
til ráðstefhu í „Rúgbrauðsgerð-
inni“, Borgartúni 6, í dag, kl. 17.
Á ráðstefnunni verður horft yfir
farinn veg og reynt að meta stöðu
íslensku kvikmyndarinnar í dag. Á
síðasta áratug sáu að meðaltali
260.000 íslendinga íslenska kvik-
mynd á ári hverju. Þriðja hver mynd
sem dreift var erlendis hlaut viður-
kenningu eða verðlaun á alþjóðavett-
vangi og um 260 milljónir vestur-
landabúa sáu íslenskar kvikmyndir
á sama tíma. Samt stendur íslensk
kvikmyndagerð höllum fæti í dag
og svo gæti farið að hún legðist af
með öllu.
Ávörp á ráðstefnunni flytja: Þor-
steinn Jónsson, formaður Félags
kvikmyndagerðarmanna, Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands,
Ágúst Guðmundsson, formaður
Sambands íslenskra kvikmynda-
framleiðenda, Þráinn Bertelsson,
kvikmyndagerðarmaður og Svavar
Gestsson, menntamálaráðherra.
(Fréttatilkynning)
kaupin. Það er seljandans sam-
kvæmt samkomulaginu að gangast
eftir því að þessum fyrirvörum sé
fullnægt og ef það gerist ekki verða
engin kaup,“ sagði borgarstjóri.
„Reyndar held ég að Kópavogur
missi gott tækifæri ef ekki er hugur
hjá því sveitarfélagi að Reykjavíkur-
borg og Kópavogur gangi sameigin-
lega til þesara kaupa með þeim
hætti að landkostir þess hluta jarðar-
innar sem keyptur er nýtist _sem
best báðum sveitarfélögunum. í því
sambandi hefði auðvitað verið hugs-
anlegt að sá hiuti kaupverðs, sem í
slíkum samningum kæmi í hlut
Kópavogs, yrði greiddur mun síðar
en sá, sem kemur í hlut borgarinn-
ar, þar sem landið nýtist borginni
mun fyrr. Sé slíkur vilji ekki fyrir
hendi hjá bæjaryfirvöldum í Kópa-
vogi, einkum vegna þess að fjármál
bæjarins munu vera í erfiðleikum,
ef ekki í einhverjum ólestri, þá er
ekkert við því að segja,“ sagði Davíð
Oddson borgarstjóri.
Fjallahringur, eitt verka Guðnýjar Magnúsdóttur sem nú sýnir á
Kjarvalsstöðum.
Guðný Magnúsdóítir sýn-
ir á Kjarvalsstöðum
GUÐNÝ Magnúsdóttir, myndlistarmaður, opnar sýningu í vesturfor-
sal Kjarvalsstaða laugardaginn 27. janúar kl. 14. A sýningunni verð-
ar skúlptúrar og veggmyndir úr leir.
fjölda einkasýninga á íslandi, Norð-
urlöndunum, í Frakklandi, Japan
og Bandaríkjunum.
Verkin eru unnin á síðasta ári.
Þetta er sjötta einkasýning Guðnýj-
ar og sú fjórða í Reýkjavík, en tvær
einkasýningar hélt hún í Helsinki
þar sem hún starfaði í fjögur ár,
1981-1985. Hún hefur tekið þátt í
Orgeltónleikar í Hall-
grímskirkju á sunnudag
LISTVIN AFEL AG Hallgríms-
■kirlgu gengst fyrir orgeltónleik-
um í Hallgrímskirkju, sunnudag-
mn 28. janúar, kl. 17. Hörður
Áskelsson organisti kirkjunnar
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík:
Þorrablót í Yalhöll
ÞORRABLÓT verður haldið á vegum sjálfstæðisfélaganna Hvat-
ar, Heimdallar, Óðins og Varðar í Valhöll laugardaginn 27. jan-
úar næstkomandi. Blótinu stýrir Þuríður Pálsdóttir, og Davíð
Oddsson borgarstjóri flytur ræðu.
Á dagskrá þorrablótsins er auk höll í dag og á morgun frá kl.
þess vikivakadans blótsgesta og
fjöldasöngur, og mun Jórunn Við-
ar tónskáld annast undirleik.
Miðasala og pantanir verða í Val-
9-17, og er miðaverð 1.500 krón-
ur. Húsið opnar kl. 19 á laugar-
daginnýog verður þorraborðið til-
búið kl. 20.
leikur orgelverk eftir Bach og
Buxtehude, meðal annars
Passacaglíur beggja höfúndanna.
Auk hinnar stórbrotnu
passacaglíu í c-moll eftir J.S. Bach
og passacaglíu í d-moll eftir Buxte-
hude verða prelúdíur, fúgur og sálu-
forleikir beggja höfunda á efnis-
skránni. Hörður leikur á 10 radda
kórorgel kirkjunnar, sem var smíðað
af Frobenius-orgelsmiðjunni í Kaup-
mannahöfn. Þessir tónleikar, sem
eru áskriftartónleikar hjá félaginu,
eru jafnframt haldnir til fjáröflunar
fyrir orgelsjóð Hallgrímskirkju og
rennur aðgangseyrir óskiptur í org-
elsjóð. Seint á síðasta ári var undir-
ritaður kaupsamningur um 70 radda
orgel við Klais-orgelsmiðjuna í Bonn.
Smíðatími er tvö og hálft ár og verð-
ur að greiða orgelið að mestu á þeim
tíma. Verið er að undirbúa átak til
Hörður Áskelsson organisti
Hallgr imskirkj u.
fjáröflunar sem Listvinafélagið á
aðild að. Á tónleikunum á sunnudag
verður til sýnis teikning af hinu
væntanlega Klais-orgeli Hallgríms-
kirkju. (Fréttatilkynning)
áeá tÉbeúu/ keíÉsio!
HIGH-DESERT
BL0MAFRJ0K0RN
HlGH-DESERT
fRESH RAVI GRflMOtfS
WElpHT ' LS.-2270
,.JHE c c PQLIEH COMPftN*
COtTSDALE. ARIZONA 852->
EGGERT KRISTJ,
H/F SIMI 685300
UTSALA - UTSALA
% afsláttur
Allt aö
HAGKAUP
s4C£t í ecmtc ^ená