Morgunblaðið - 26.01.1990, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1990
fclk í
fréttum
Burt, Quinton og Loni.
FJÖLSKYLDUMYNDIR
Ekki hlaupið að því hjá
Burt og fjölskyldu hans
Það er töluvert hlegið að því fyr-
ir vestan haf um þessar mund
ir, umstangið allt í kring um Burt
Reynolds og fjölskyldu hans, en eíg
in kona hans er hin munnstóra
Loni Anderson og saman eiga þau
hinn ættleidda Quinton. Fyrir
nokkru átti að slá tvær flugur í
einu höggi, taka fjölskyldumyndir
og einnig myndir fyrir viðtal við
víðlesið slúðurblað, „Hello“ að
nafni. Viðtalið er langt og mikið,
en fjallar að mestu um hversu ham-
ingjusöm þau eru saman og er það
gott og blessað eins og nærri má
geta. En myndatökurnar, þær voru
skrautlegar.
Þegar þau Burt, Loni og Quinton
komu til myndatökunnar, komu þau
ekki ein. Hver bfllinn af öðrum rann
í hlað og inn í húsið með þeim gekk
átta manna lið. Tveir öryggisverðir,
þrír förðunarmeistarar og þrír bún-
ingasérfræðingar. Mátti ljósmynd-
arinn bíða á aðra klukkustund með-
an að fagfólkið gerði fjölskylduna
klára og þegar þau loks gengu í
stúdíóið ætlaði umstanginu samt
aldrei að linna, því það þurfti hvað
eftir annað að laga þetta, flikka
upp á hitt og svo framvegis. Loks
var erfiður dagur að kveldi kominn
og geta lesendur séð hér einn af-
raksturinn.
K
Dags. 26.01.1990
VÁKORT
Númer eftirlýstra korta
4507 4200 0002 9009
4507 4400 0001 7234
4507 4500 0006 7063
4507 4500 0010 3074
4507 4500 0009 3267
4548 9000 0027 8186
4548 9000 0028 0984
Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort
úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta.kort og vísa á vágest.
GLIMA
Keppt um
Geirfinns-
bikarinní
síðasta skipti
Fyrir skömmu var keppt um
hinn svokallaða Geirfinns
bikar í glímu í 25. skipti. Var
keppnin háð í Skjólbrekku í Mý-
vatnssveit, einu helsta vígi
íslenskrar glímu, sem átt hefur
undir högg að sækja seinni árin.
Samkvæmt reglugerð frá árinu
1944 var nú keppt um gripinn í
síðasta skipti. Eyþór Pétursson
hlaut fyrstu verðlaun að þessu
sinni og hlaut þar með nafnbótina
Glímukappi Mývetninga. í öðru
sæti varð Kristján Yngvason og
þriðji varð Lárus Björnsson. Aðrir
sem kepptu voru Hilmar Ágústs-
son, Sigurður Kjartansson,
Tryggvi Héðinsson og Sigurður
Starri Hauksson.
Að átökum loknum voru þeim
Keppendur, f.h.: Eyþór, Kristján, Lárus, Hilmar, Tryggvi, Sigurð-
ur og Sigurður Starri.
Vinningshafar frá upphafi og aðstandendur þeirra.
Morgunblaðið/KÞ
sem unnið hafa bikarinn frá upp-
hafi keppninnar afhent innrömm-
uð mynd af bikamum. Tóku við-
staddir vinningshafar eða að-
standendur þeirra við myndinni.
Þess má geta, að á árunum 1948
til 1969 var eigi keppt um Geirf-
innsbikarinn. Voru ýmsar ástæður
fyrir því.sem verða ekki raktar
hér. Ingi Yngvason hefur unnið
gripinn níu sinnum frá upphafi
og fær hann því til eignar. Pétur
Yngvason hefur fjórum sinnum
unnið gripinn og þeir Hermann
Þórhallsson og Eyþór Pétursson
þrisvar hvor, en aðrir sjaldnar.
DETTU I
LUKKUPOTTINN!
SKYNDISALA VEGNA
AGSTÆDRA SAMNINGA
- ALLT AD
50% AFSLÁTTUR Á
VATNSRÚMUM!
Vegna hagstæðra samninga verður
stórkostleg skyndisala - meðan birgðir
endast.
Þetta ereinstakt tækifæri, sem býðst
vart aftur í bráð, til að eignast vatnsrúm
fyrir litið. Eingöngu rúm með hitastillan-
legum dýnum - og gott úrval af þeim.
Dæml um verð og afslættl:
Verð áður:
118.770,-
72.695,-
99.500,-
(
Verð nú:
59.395,-
58.160,-
49.750,-
Það er vissara að hafa hraðann á .
Fyrstir koma - fyrstir fá.
Vatnsrum hf
SKEIFUNNI 11 • SlMI 688466
(