Morgunblaðið - 28.01.1990, Síða 1

Morgunblaðið - 28.01.1990, Síða 1
88 SIÐUR B/C 23. tbl. 77. árg. SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1990 PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS Pólland: Flokkur komm- únista kveður Varsjá. Reuter. UM 1.600 fulltrúar á landsfundi pólska kommúnistaflokksins komu saman í gær til að leggja flokkinn niður og stofiia nýjan á rústunum. Þeir fylgja þar í kjöl- far ungverskra skoðanabræðra sinna en þar i landi var rekunum kastað á síðasta ári. Upplausn hefur ríkt í pólska flokknum frá því fijálsu verkalýðssamtökin Sam- staða tóku ríkisstjórnarvöldin í september síðastliðnum. Stefiit er að því að engin merki um kommúnisma og stalínisma verði í stefhuskrá nýja flokksins en hún verður mótuð um helgina. Miller vill styrki til leikhúsanna London. Daily Telegraph. BANDARÍSKA leikskáldið Arthur Miller varar við því að ríkisstyrkir til breskra leikhúsa verði aflagðir. Mill- er, sem er 74 ára gamall, sagði á fundi í hinu forn- fræga Old Vic-leik- húsi í London að bandarísk leikhús og leikskáld hefðu lotið í lægra haldi fyrir kvikmyndunum og peningamönnunum og legðu nú áherslu á „yfirborðslega spennu" en ekki grundvallarsannindi. Spurt var úr salnutn hvers vegna ekki væri jafh sjálf- sagt að veita skósmiðum ríkisstyrk. „Get- urðu nefnt mér einn, sígildan skósmið í Grikklandi til forna?" svaraði Miller. Frjálsar ástir í frumskóginum Rio de Janeiro. Daily Telegraph. KOMIÐ hefur í ljós að lítill ættflokkur indiána í Brasilíu hefur öldum saman litið á samkyn- hneigð, homosexu- alisma, sem eðli- lega kynhegðun og hjónabönd karla eru talin sjálfsögð. Ættflokkurinn er nefndur Fulni-O. Hefðir hans takmarka auk þess á engan hátt kynferðissambönd milli gagnstæðra kynja, hvorki með tilliti til aldurs, fjölskyldutengsla eða fjölda rekkjunauta. Einkum virðist fi'elsi kvenna í þessum efitum vera hömlulaust. Mann- fræðingar telja að karlasamböndin eigi oft rætur að rekja til þriggja mánaða, reglubundinna trúarhátíða, þar sem kon- um er bannaður aðgangur. Hringborðsviðræður um íyrirkomulag kosninga í Rúmeníu: Þjóðarráðið sakað um að stefiia að alræðissljórn Búkarest. Reuter. BÆNDAFLOKKURINN í Rúmeníu hefur sakað Þjóðarráðið, sem farið hefur með völd í landinu siðan Nicolae Ceausescu var steyþt af stóli, um að „stefiia að nýju að alræðisstjórn marxista í Rúmeníu". Þjóðarráðið gaf á föstudagskvöld út til- kynningu um að þung viðurlög væru við því að veitast að lögreglu eða öryggis- sveitum landsins. Þykir orðalag tilskipun- arinnar minna óþyrmilega á valdatíð Ceausescus. iðurlögin við því að óhlýðnast þessari ákvörðun Þjóðarráðsins eru allt að tíu ára fangelsi „í þeim tilgangi að standa vörð um virðingu og styrkja völd manna sem treyst er fyrir því hlutverki að veija ávinn- inga byltingar fólksins 22. desember". Fyrr í vikunni hafði Þjóðarráðið sett hömlur við fjöldafundum. Það bann var brotið á föstu- dagskvöld með mótmælum mörg hundruð namsmanna í Bukarest sem hrópuðu vígorð gegn stjórnvöldum. Lögregla lét námsmenn- ina óáreitta. í gær hófust réttarhöld, sem sjónvarpað er beint, yfir fjórum háttsettum aðstoðar- mönnum. Ceausescus, Tudor Postelnicu, fyrrum innanríkisráðherra, Ion Dinca, Emil Bobu og Manea Manescu, sem allir voru háttsettir í kommúnistaflokknum. Talið er mögulegt að mennirnir játi strax í upphafi hlutdeild í fjöldamorðum og réttarhöldunum ljúki á nokkrum dögum. Síðar verða synir og dóttir Ceausescus dregin fyrir rétt. í gær hófust einnig viðræður bráða- birgðastjórnar landsins og stjórnarandstöðu um fyrirkomulag kosninganna 20. maí næstkomandi. Bændaflokkurinn, sem talinn er eiga hvað mesta möguleika í kosningun- um, hefur hótað að hunsa viðræður við bráðabirgðastjórn Þjóðarráðsins vegna ein- ræðislegra tilburða hennar. Mikil reiði ríkir meðal stjórnarandstæðinga yfir þeirri ákvörðun Þjóðarráðsins að bjóða fram í kosningunum. Dumitru Mazilu, varaforseti Rúmeníu, sagði af sér á föstudag og sagðist ekki geta sætt sig lengur við stalínskar aðferðir Þjóðarráðsins. Nicolae M. Nicolae, ráðherra utanríkisviðskipta, sagði einnig af sér og er talið að hann hafði verið neyddur til þess vegna kvartana frá undirmönnum hans yfir nánum tengslum hans við Ceausescu. Skýrt hefur verið frá því í Rúmeníu að Ceausescu-hjónin hafi verið jarðsett í Búk- arest. Var það gert með leynd að sögn stjórn- valda til að fyrirbyggja að fólk réðist á graf- irnar og tætti líkin í sundur. Upphaflega sögðust Þjóðarráðsmenn vera að hugsa um að henda jarðneskum leifum þeirrá hjóna í Svartahafið. MAFIAN ERHÉR LÍKA Kristján Jóhannsson óperus'öngvari 10 KONUR MUNU í KONUM Helga Thorberg hef- ur ásamt hópi kvenna kannað möguleika á aðild að alþjóðlegri banka- starfsemi kvenna 12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.