Morgunblaðið - 28.01.1990, Síða 8
8
mt-x xv jí'jöaii
MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1990
T TY A C' er sunnu<^a&ur 28. janúar, sem er 4. sd. eftir
■1 JLIAvFþrettánda. 28. dagur ársins 1990. Árdegisflóð
í Reykjavík kl. 7.27 og síðdegisflóð kl. 19.45. Sólarupprás
íRvíkkl. 10.20 og sólarlag kl. 17.02. Myrkurkl. 18.01.
Sólin er í hádegisstað í Reykjavík kl. 13.41 ogtungliðerí
suðri kl. 15.09. (Almanak Háskóla íslands.)
Þá kom til hans líkþrár maður, laut honum og sagði:
„Herra, efþú vilt, getur þú hreinsað mig.“
FRÉTTIR/MANNAMÓT
SVÆÐISSKIPULAG Eyja-
fjarðar. í tilk. í Lögbirtinga-
blaðinu frá samvinnunefnd
um svæðisskipulag Eyjafjarð-
ar og skipulagsstjóra ríkisins
segir að gerð hafi verið skipu-
lagstillaga að svæðisskipu-
lagi Eyjafjarðar 1989-2009.
Með augl. er lýst eftir athuga-
semdum við þessa tillögu,
sem nær yfir alla núverandi
og fyrirhugaða byggð á
skipulagstímabilinu í þeim
sveitarfélögum við Eyjafjörð
sem eiga aðild að þessari sam-
vinnunefnd, en þó ekki til
Glæsibæjarhrepps, enda er
hann ekki aðili að þessari
nefnd. Skipulagstillagan
verður sýnd almenningi á 14
stÖðum Við Eyjafjörð á tíma-
bilinu 24. janúar til 7. mars
nk. Oddvitar veita uppl. um
opnunartíma. Hugsanlegar
athugasemdir eiga að vera
komnar fram fyrir 21. mars
nk., segir í þessari tilkynn-
ingu.
MÁLSTOFA í guðfræði.
Næstkomandi þriðjudag, 30.
ja'núar, verður haldin mál-
stofa í guðfræði. Þá mun sr.
Kolbeinn Þorleifsson flytja
fyrirlestur sem hann nefnir:
Nýplatonsk guðfræði síra
Jóns Magnússonar í Lauf-
ási, í ljósi kveðskapar hans.
Málstofan verður haldin í
Skólabæ, Suðurgötu 26, og
hefst kl. 16.
ÁRBÆJARKIRKJA. í
kvöld, sunnudag kl. 20, er
æskulýðsfundur.
FELLA- og Hólakirkja.
Annað kvöld, mánudag kl.
20.30, verður æskulýðsfund-
ur.
NESKIRKJA. Bamastarf 12
ára, annað kvöld, mánudag
kl. 17.30. Æskulýðsstarf 13
ára og eldri verður kl. 19.30.
Ræðumaður á kvöldvökunni
verður Benedikt Arnkelsson
guðfræðingur.
KVENFÉL. Hreyfíls heldur
félagsfund í Hreyfíslhúsinu
nk. þriðjudagskvöld kl. 20
fyrir félagsmenn og gesti
þeirra. Spilað verður bingó.
KRISTILEG samtök
kvenna, Aglow, halda fund á
morgun, mánudag, í Kristal-
sal Hótels Loftleiða, og hefst
hann kl. 20. Gestur samtak-
anna verður Helena Leifs-
dóttir. Hún ætlar að ræða um
bænina. Fundurinn er opinn
öllum konum. Ennfremur
verður á fundinum kynnt
starf samtakanna.
FATAÚTHLUTUN. Næst-
komandi miðvikudag og
fímmtudag, 31. janúar og 1.
febrúar, fer fram fataúthlut-
un á vegum Mæðrastyrks-
nefhdar á Hringbraut 116,
um kjallaradyr Vesturvalla-
götumegin. Fatnaðurinn sem
úthlutað verður er fyrir börn
og fullorðna.
JÓLAKORTA-happdrætti
Styrktarfél. vangefínna. í því
voru vinningarnir málverk.
Þau komu á þessi númer:
1037- 1200-2459 og 4792.
TRY GGIN G AEFTIRLITIÐ
tilk. í Lögbirtingablaðinu og
birtir skrá yfír þau félög í
landinu sem hafa heimild til
að reka vátryggingastarf-
semi. Eru 19 tryggingafélög
á sviði skaðatrygginga. Sjö
eru á sviði líftrygginga og
annarra persónutrygginga og
eitt félag á sviði endurtrygg-
inga.
SELJAKIRKJA. Á morgun,
mánudag, er barna- og æsku-
lýðsstarf yngri’ stúlkna kl.
17.30 og eldri kl. 18.30.
Fundur verður í Æskulýðs-
félaginu Sela kl. 20.
SELTJARNARNES-
KIRKJA. Annað kvöld kl.
20.30, verður æskulýðsfund-
ur.
FÉL. eldri borgara. í dag,
sunnudag, er opið hús í Goð-
heimum við Sigtún kl. 14.
Fijáls spilamennska og tafl.
Dansað verður kl. 20. Á
þriðjudaginn hefst á ný
skáldakynning, á Hótel Lind
við Rauðarárstíg kl. 15-17.
Verður þá lesið úr verkum
Davíðs Stefánssonar. Hinn 7.
næsta man. hefst tölvunám-
skeið á ný. í skrifstofu félags-
ins er nánari uppl. að fá. Loks
er þess að geta að þorrablót
félagsins verður dagana 7.
og 23. febr. nk. og um það
veitir skrifstofan uppl.
ORÐABÓKIN
Augnablik —
andartak
Ekki alls fyrir löngu var
ég spurður, hvort ekki
mætti segja víð þann, sem
hringir og spyr um e-n, sem
þarfa að ná í: andartak í
stað orðsins augnablik, sem
svo margir segja. Ég svar-
aði þessu á þann veg, að
no. andartak væri ekki síðra
en hið danskættaða orð,
a.m.k. í þessari merkingu.
Skömmu seinna heyrði ég
svo á Rás 2 sagt eitthvað á
þessa leið: Hvar svo sem
hann er staddur á þessu
augnabliki. Hér hefði ekki
farið verr að segja: á þessu
andartaki eða þó öllu heldur
á þessari stundu. Hér er
vitanlega um að ræða tvö
orð, sem hafa ekki sömu
frummerkingu. Augnablik
merkir samkv. ísl. orðabók-
um annars vegar auga-
bragð, þ.e. að depla augum,
eða augnaráð, sem er sama
og augnatillit, en svo hins
vegar andartak, örstutta
stund. Það er sú merking,
sem mun almennust í mæltu
máli og margir hafa horn í
síðu, þar sem hún er töku-
merking úr dönsku, og álíta
því, að no. andartak sé
vandaðra mál og fari oftast
betur í íslenzku en no.
augnablik. Þessu orði héfur
samt skolað upp á strönd
Islands fyrir mörgum öldum
og verður tæplega sent á
haf út úr þessu.
í næsta pistli verður rætt
nánar um þessi orð.
—J.A.J.
Nautnir
Kaffið eflir kynlífíð
Vísindamenn í Bandaríkjunum
hafa nú komist a8 þvf a8 hóneg
kafíidrykkja eykur þrótt eldra
fólks til kynlífsiSkunar. ,
Uss. Þetta gagnar ekkert. Þér verður bara mál að pissa,
HAFNARFJÖRÐUR. Fé-
lagsstarf aldraðra. í dag er
opið hús í íþróttahúsinu við
Strandgötu kl. 14. Þar ætlar
Kiwanisklúbburinn Eldborg
að annast um dagskrána.
AFLAGRANDI 40. Félags-
og þjónustumiðstöð. Félags-
starf aldraðra. Spilað verður
á spil á morgun, mánudag,
kl. 13, en kl. 15 er kaffítími.
S AMKTÖK um sorg og sorg-
arviðbrögð hafa opið hús í
safnaðarheimili Laugames-
kirkju nk. þriðjudagskvöld kl.
20.30.
HAFNARFJÖRÐUR. Kvöld-
vaka hjá aðaldeild KFUM í
Hafnarfirði verður næstkom-
andi þriðjudagskvöld kl.
20.30 í húsi félaganna á
Hverfísgötu 115.
ÁHEIT OG GJAFIR
Árnad. 1.000, Þóra Helgad.
1.000, FÞ 1.000, , V.E.K.
•1.000, Óskar Ólafsson
1.000, H.L.J. 1.000, Ingi-
björg 1.000, AÞ 1.000, Guð-
björg 1.000, ómerkt 1.000,
NN 1.000, Móðir 1.000,
ÁÁÁ 1.000, K. Rúna 1.000.
SKIPIN_____________
REYKJAVÍKURHÖFN:
í fyrrakvöld hélt togarinn
Rauðinúpur til veiða. Þá fór
Sagaland á ströndina og tog-
arinn Ögri kom úr söluferð.
í gær kom Kyndill af strönd-
inni. í dag er danska eftirlits-
skipið Beskytteren væntan-
legt. Á morgun, mánudag,
eru togaramir Ottó N. Þor-
láksson og Freri væntanleg-
ir inn af veiðum til löndunar.
Þá kemur Mánafoss af
ströndinni og Brúarfoss er
væntanlegur að utan.
ÁHEIT á Strandarkirkju.
Afhent Morgunblaðinu:
Guðni 10.000, Þ.V. 5.000,
NN 5.000, NN 4.000, .L.S.
4.000, AV 3.000, ÍS 3.000,
KM 2.000, S.J.G. 2.000, Á.Ó.
2.000, Á.G. 2.000, S.H.
2.000, Eygló og Haraldur
2.000, Auður 2.000, ÓM
2.000, G.Ó. 2.000, Gömul
áheit 1.500, Bryndís 1.500,
Erla 1.000, Á.S.Ó. 1.000,
G.D.Ó. 1.000. Margrét
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN: Í dag, sunnudag, er
frystitogarinn Sjoli væntan-
legur inn til löndunar, svo og
togarinn Skúmur. Þá fer tog-
arinn Oddeyrin til veiða í
dag. Japanskt flutningaskip,
Phonex er væntanlegt. Það
lestar sjávarafurðir og norsk-
ur togari, Isfjord, er væntan-
legur til viðgerðar. í gær'kom
grænlenskur togari, Nator-
aliq, inn til löndunar.
Þetta baráttuglaða lið efndi fyrir allnokkru til hluta-
veltu til styrktar Hjálparstoftiun kirkjunnar. Þar söfnuð-
ust 3.400 krónur til lq'álparstarfsins á vegum kirkjunn-
ar. Krakkarnir heita: Auður Jónsdóttir, Ragnheiður Rut
Reynisdóttir, Helena María Agnarsdóttir og Fjóla Dröfh
Friðriksdóttir.
ÞETTA GERÐIST
28. janúar
ERLENDIS:
814: Karlamagnús keisari lát-
inn.
1547: Hinrik VIII Englands-
konungur látinn.
1725: Pétur mikli Rússakeis-
ari látinn.
1871: París gefst upp fyrir
þýzka hernum í fransk-
prússneska stríðinu.
1848: Friðrik VII Danakon-
ungur boðar afnám einvalds-
stjórnar.
1816: Ormsta Breta og Sikha
við Aliwal á Indlandi í fyrra
Sikha-stríðinu.
1521: Worms-þingið kemur
saman til að dæma Martein
Lúther.
HÉRLENDIS:
1321: Auðunn biskup rauði
Þorbergsson á Hólum látinn.
1815: Innsigli fyrir Reykjavík
tekið upp.
1824: Hilmar Finsen fæddur.
1831: Fjallvegafélag stofnað.
1837: Stofnfundur félags til
eflingar búskap í Suðuramti.
1851: Ólafur Briem alþm.
fæddur.
1912: ÍSÍ stofnað.
1935: Hæstiréttur sýknar
Hermann Jónasson í Kollu-
málinu.
1949: Helgi Pjeturss látinn.
1968: Gunnar S. Tryggvason
leigubílstjóri myrtur við
Rauðalæk.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 hældi, 5 málmi, 8 úlfur, 9 þumal, 11 rafts,
14 yst, 15 elfur, 16 aurar, 17 tin, 19 mána, 21 kíma,.22
ungunum, 25 lem, 26 ára, 27 aki.
LÖÐRÉTT: — 2 æm, 3 dúa, 4 illyrt, 5 murtan, 6 ára, 7
met, 9 þvermál, 10 máfinum, 12 farsíma, 13 surgaði, 18
iður, 20 an, 21 ku, 23 gá, 24 Na.