Morgunblaðið - 28.01.1990, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 28.01.1990, Qupperneq 22
■22 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMÁ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1990 m 1 Félagsráðgjafar Á Félagsmálastofnun Kópavogs eru lausar til umsóknar tvær stöður félagsráðgjafa í afleysingar: 100% starf frá 1. apríl nk. til ágústloka 1991. 2. 50% starf frá 1. maí nk. til janúarloka 1991. Umsóknarfrestur er til 12. febrúar nk. Upplýsingar veitir deildarfulltrúi fjölskyldu- deildar í síma 45700. Félagsmálastofnun Kópavogs. ALAFOSS) Útsaumur Álafoss hf. býður nú í fyrsta skipti vélprjónaðar peysur með útsaumuðu „bróderuðu" mynstri. Þessi nýjung hefur hlotið afar góðar viðtökur viðskiptavina innanlands og erlendis. Við leitum því að vandvirku og samviskusömu fólki, sem getur tekið að sér að „bródera" peysurnar á tímabilinu febrúar - apríl nk. Hér er um að ræða tilvalið verkefni fyrir ein- staklinga eða félagasamtök hvar sem er á landinu. Nánari upplýsingar veitir Ása Gunnarsdóttir í síma 96-21900 frá kl. 13.00-16.00 frá og með þriðjudeginum 30. janúar. Laus störf Landsbyggðin Byggingatækni- fræðingur (437) Óskum að ráða byggingatæknifræðing eða mann með sambærilega menntun í starf framkvæmdastjóra hjá byggingafyrirtæki á Austurlandi. Starfssvið: Dagleg stjórnun framkvæmda. Tilboðsgerð. Gerð áætlana vegna fram- kvæmda og efniskaupa. Fjármálastýring, framleiðslustjórnun og eftirlit. Við leitum að manni sem vill vinna við fjöl- breytt störf hjá litlu fyrirtæki. Næg verkefni framundan. Húsnæði á staðnum. Laust strax. Skrifstofumaður (30) Óskum að ráða skrifstofumann (aðalbókara) til starfa hjá útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki á Austurlandi. Starfssvið: Merking fylgiskjala, skráning og færsla tölvubókhalds, afstemmingar og upp- gjör. Bókhaldskerfi: ALVÍS. Tölva: IBM S/36. Ýmis önnur tilfallandi skrifstofustörf. Við leitum að manni með haldgóða bók- haldsþekkingu og reynslu af störfum við bókhald og skrifstofustörfum. Laust strax. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar númeri viðkomandi starfs. Hagvangur hf Grensásvegi 13 Reykjavík Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöt Skoðanakannanir AUGLYSINGAR Kranamaður óskast Byggingafyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir kranamanni frá og með 1. febrúar nk. Stundvísi og reglusemi áskilin. Upplýsingar veittar í síma 651761. Menntamálaráðuneytið Laus staða Dósentsstaða (37%) í sýklafræði við lækna- deild Háskóla íslands er laus til umsóknar. Gert er ráð fyir að staðan verði veitt frá 1. júlí 1990. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rann- sóknir, svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis- götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 23. febrúar nk. Menntamálaráðuneytið, 28. janúar 1990. Starfsfólk óskast Óskum eftir duglegum og ábyggilegum starfskröftum í eftirtalin störf: 1. Sölumanni í húsgagnadeild. Vinnutími frá kl. 13.00-18.30. 2. Sölumanni í smávörudeild. Vinnutími frá kl. 9.00-18.30. 3. Starfsmanni á kassa. Vinnutími frá kl. 9.00-18.30. Framtíðarstörf. Æskilegur aldur 18-50 ára. Upplýsingar gefur verslunarstjóri á staðnum mánudaginn 29. janúar 1990 milli kl. 14-18. Iðntœknistofnun vinnur að tœkniþróun og aukinni fram- leiðni í íslensku atvinnulifi. Á stofnuninni eru stundaðar hagnýtar rannsóknir, þróun, rúðgjöf gceðaeftirlit, þjón- usta, frœðsla og stöðlun. Áhersla er lögð á hœft starfsfólk til að tryggja gceði þeirrar þjónustu sem veitt er. Efnaverkfræðingur - plasttækni Plasttæknideild Iðntæknistofnunar óskar að ráða efnaverkfræðing eða starfsmann með hliðstæða menntun. Starfið: Starfið felst í rannsóknum, vöruþróun og starfsmenntun. Starfsmanninum er ætlað að vinna að verkefnum sem tengjast plast-, málningar- og gúmmíiðnaði. Unnið er í nán- um tengslum við fyrirtæki á þessum sviðum. Umsækjandinn Óskað er eftir starfsmanni, karli/konu, með þekkingu og reynslu á sviði fjölliðutækni. Umsækjandinn þarf að geta starfað sjálf- stætt og haft frumkvæði í starfi. Nánari upplýsingar veitir Páll Árnason, deild- arstjóri plasttæknideildar. M Iðntæknistofnun 11 IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS Keldnaholl, 112 Reykjavík Sími (91) 68 7000 Bókhald Viljum ráða starfskraft vanan bókhaldi og tölvuvinnslu til starfa hjá litlu þjónustufyrir- tæki. Vinnutími fyrir hádegi. Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu okkar. Guðnt Tónsson RÁÐCJÓF 8 RÁÐNI NCARMÓN LlSTA TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 Bílstjóri - afgreiðslumaður Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða í eftirtalin störf sem fyrst: 1. Bílstjóra á sendiferðabíl í útkeyrslu. 2. Afgreiðslumann í söludeild sem jafnframt getur leyst af sem bílstjóri. Upplýsingar um störfin eru veittar hjá starfs- mannahaldi á Frakkastíg 1, Reykjavík. Forstöðumaður - fóstrur ísafjarðarkaupstaður starfrækir þrjár dagvlstarstofnanir ( bænum, þar af er einn leikskóli í Hnífsdal. Skóladagheimili og gæsluvellir fyrir börn eru einnig starfræktir á vegum bæjarfélagsins. Við leitum nú fanga í fóstrustétt og auglýsum eftir forstöðumanni að Bakkaskjóli, 32 barna leikskóla í Hnífsdal. Heimilið var byggt árið 1981 og er vistlegt og vel búið í alla staði. Á ísafirði starfa um þessar mundir fjórar fóstrur. Það nægir okkur ekki og því getum við boðið fleirum gott starf í bænum. í boði er flutningsstyrkur, aðstoð við útvegun húsnæðis á aðgengilegum kjörum og áhuga- samur samstarfshópur bæði lærðra og leikra. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar gefur félagsmálastjórinn á Isafirði í síma 94-3722. BORGARSPÍTALINN Hjúkrunarfræðingar - sjúkraliðar Áhugasamt fagfólk vantar til að hjúkra sjúkl- ingum á deild A-3 þar sem stundaðar eru heila-, tauga-, slysa- og bæklunarskurðlækn- ingar. Um er að ræða fjölbreytt og áhuga- vert starf. Ýmiskonar vaktafyrirkomulag er í boði, s.s. fastar næturvaktir. Nánári upplýsingar gefur Herdís Herberts- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 696364 og Erna Einarsdóttir, hjúkrunarfram- kvæmdastjóri starfsmannaþjónustu, í síma 696356. Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á öldr- unardeildum Borgarspítalans í B-álmu. Skipulagður aðlögunartími. Vinnutími og starfshlutfall samkomulagsatriði. Nánari upplýsingar gefur Anna Birna Jens- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 696358.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.