Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.01.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1990 28 WIMINIU^/ ir^l 'Y'^lfK lt^~' A P m ■ T O// N/G_^7/-\rC Sjúkraliðar Sjúkrahús Vestmannaeyja vill ráða sjúkraliða til starfa frá 1. mars eða eftir nánara sam- komulagi. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 98-11955. Sjúkrahús Vestmannaeyja. Starfsmaður - hagdeild Þjónustufyrirtæki í borginni vill ráða við- skiptafræðing eða rekstrarfræðing til starfa í hagdeild. Starfið er laust strax. Starfssvið: Almenn hagfræðistörf, áætlana- gerð, tölfræðileg vinna (statistik) og skyld verkefni. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu okkar. Umsóknarfrestur er til 4. febrúar. GtJÐNT ÍÓNSSON RÁÐCJÓF &RÁÐNINCARMÓNUSTA TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 JjgRÍKISSPÍTALAR Meinatæknir/ líffræðingur Meinatæknir/líffræðingur óskast til starfa við blóðónæmisfræðideild Blóðbankans. Um er áð ræða fullt starf frá kl. 9.00-17.00. í starfinu felst vinna við blóðflokkun, sam- ræmingapróf, blóðhlutavinnsla, afgreiðsla blóðs, smitvarnarpróf og vaktastörf. Reynsla við rannsóknastörf æskileg. Umsóknarfrest- ur er til 28. febrúar nk. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Jensson, yfir- læknir, og Björn Harðarspn, deildarstjóri. Umsóknir sendist skrifstofu Blóðbankans v/Barónsstíg. Reykjavík, 28. janúar 1990. LANDSPÍTALINN Sérfræðingur Á krabbameinslækningadeild (geislameð- ferðareiningu), er laus til umsóknar ein staða sérfræðings. Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Sveins- son, yfirlæknir, í síma 601444. Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna sendist stjórn- arnefnd Ríkisspítala, Rauðarárstíg 31 fyrir 15. mars nk. Sérfræðingur Afleysingastöður tveggja sérfræðinga í geislagreiningu eru lausar til umsóknar við röntgendeild. Umsækjendur skulu hafa al- hliða menntun í geislagreiningu og æskileg er reynsla í stafrænni myndgreiningu og segulómun. Ætlast er til þátttöku í kennslu- og rannsóknastörfum, ásamt öðrum störfum við deildina. Allar frekari upplýsingar veitir forstöðulækn- ir röntgendeildar, Ásmundur Brekkan, próf- essor. Umsóknir er greini náms- og rann- sóknaferil og fyrri störf, skulu sendar stjórn- arnefnd Ríkisspítala, Rauðarárstíg 31, fyrir 1. mars nk. Reykjavík, 28. janúar 1990. Sölumenn Óska eftir að ráða harðduglega sölumenn til starfa strax. Um er að ræða mjög spenn- andi verkefni. Dag-, kvöid- og helgarvinna. Laun eftir afköstum. Aðeins þeir, sem eru tilbúnir til að leggja á sig ómælda vinnu, koma til greina. Miklir tekjumöguleikar. Umboðs- og bóksala Guðmundar, sími 641072. Skjalavörður/ bókavörður Opinbert fyrirtæki vill ráða skjalavörð til starfa. Auk skjalavörslu er umsjón með fag- bókasafni. Þá er umsjón og flokkun mynda og muna. Leitað er að starfsmanni með góða þekkingu á ofanrituðu, t.d. bókasafnsfræðingi eða starfsmanni með menntun og reynslu í skjalavörslu. Umsækjandi þarf helst að hafa reynslu í vinnu á tölvu. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu okkar til 3. febrúar nk. Gupniíónsson RÁÐCJÖF & RÁÐN I NCARPJÖN LISTA TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22 G! Leikvellir - starf Staða starfsmanns við leikvelli bæjarins er laus til umsóknar. Um er að ræða 60% starf. Umsóknarfrestur er til 7. febrúar nk. Upplýsingar gefur umsjónarfóstra í síma 45700. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu- blöðum sem liggja frammi á Félagsmála- stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12. Félagsmálastofnun Kópavogs. Menntamálaráðuneytið Laus staða Samkvæmt ákvæðum 71. greinar laga um breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfé- laga, nr. 87/1989, er hér með auglýst til um- sóknar starf námstjóra í tónlistarfræðslunnar. Samkvæmt áðurgreindum lögum er verksvið námsstjóra tónlistarfræðslunnar yfirstjórn námsskrár- og námsefnagerðar, samræming náms, prófa og réttinda er þau veita, aðstoð varðandi ráðningar kennara, ráðgjöf varðandi starfs- og fjárhagsáætlanir skóla, upplýs- ingamiðlun og erlend samskipti. Jafnframt skal námsstjóri tónlistarfræðslunnar sinnar ráðgjafar- og leiðbeiningarstörfum fyrir kenn- ara og skólastjóra tónlistarskóla. Samkvæmt áðurnefndum lögum er námsstjóri tónlistar- fræðslunnar jafnframt formaður fimm manna samstarfsnefndar tónlistarfræðslunnar svo sem nánar er kveðið á um í lögunum. Ráðið er í starf námsstjóra tónlistarfræðsl- unnar til fjögurra ár í senn. Um er að ræða hálfa stöðu. Umsækjendurskulu hafa lokapróf frá Tónlist- arskólanum í Reykjavík eða sambærilega menntun. Áskilin er menntun í uppeldis- og kennslufræðum og starfsreynsla við kennslu- störf í tónlistarskóla. Umsóknir, ásamt afritum af prófskírteinum og upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu berast menntamálaráðuneytinu fyrir 20. febrúar 1990. Umsækjendur þurfa að geta tekið við starfi sem fyrst. Skrifstofustarf Heildsölufyrirtæki óskar að ráða ritara strax. Góð enskukunnátta og þekking á tölvu- vinnslu nauðsynleg. Hálfsdagsstarf kemur til greina fyrir hádegi. Umsóknir, er greini menntun og fyrri störf, sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 1. febr., merktar: „Frábær - 7616“. Kassastörf Viljum ráða nú þegar nokkra starfsmenn til afgreiðslu á kassa í matvöruverslun Hag- kaups í Kringlunni. Um er að ræða störf allan daginn eða frá hádegi. Lágmarksaldur 20 ára. Nánari upplýsingar hjá verslunarstjóra á staðnum. HAGKAUP Starfsmannahald. Verslunarstjóri Fyrirtækið er þekkt innflutnings- og smá- sölufyrirtæki í Reykjavík. Starfssvið er umsjón með rekstri verslunar, starfsmannahald auk annarra starfa í versl- un. Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með haldbæra þekkingu á rafmagnsvörum og hafi reynslu af verslunarstjórn. Umsóknarfrestur er til og með 2. febrúar nk. Ráðning verður sem fyrst. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00. Skólavorðuslig ia — 101 Fteyk/avik — Sími 621355 Iðntœknistofnun vinnur að tœkniþróun og aukinni fram- leiðni í íslensku atvinnulífi Á stofnuninni eru stundaðar hagnýtar rannsóknir, þróun, ráðgjöf gœðaeftirlit, þjón■ usta, frœðsla og stöðlun. Áhersla er lögð á hœft starfsfólk til að tryggja geeði þeirrar þjónustu sem veitt er. Verkefnisstjóri f vöruþróun Rekstrartæknissvið óskar að ráða verkefnis- stjóra í vöruþróun og önnur hliðstæð verkefni. Starfið: Verkefnisstjórinn þarf í upphafi verkefna að gera markvissar verkáætlanir, tímaáætlanir og kostnaðaráætlanir og fylgjast síðan með framvindu þeirra. Honum er ætlað að gæta hagsmuna fyrirtækjanna í vöruþróunarverk- efnum og leita eftir hæfasta sérfræðingnum til að vinna einstaka verkþætti. Verkefnis- stjórinn þarf einnig að geta tekið að sér ein- stök ráðgjafaverkefni. Umsækjandinn: Umsækjendur þurfa að hafa góða reynslu úr íslensku atvinnulífi og hafa fengist við skipulagningu og stjórnun verkefna. Við leit- um að manni/konu sem hefur menntun á háskólastigi og á auðvelt með að vinna með mörgum aðilum, er ákveðinn og á auðvelt með að taka frumkvæði. Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun og starfsreynslu, ásamt persónulegum upplýs- ingum sendist Iðntæknistofnun merktar: „Rekstrartæknisvið" fyrir 9. febrúar. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. lóntæknistof nun I ■ IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSUNDS Keldnaholt, 112 Reykjavík Simi(91) 68 7000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.