Morgunblaðið - 13.02.1990, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1990
5
Sjálfstæðisflokkurinn í Borgarnesi:
Sigrún Símonar-
dóttir í 1. sæti
SIGRÚN Símonardóttir fulltrúi fékk flest atkvæði í 1. sæti í próf-
kjöri Sjálfstæðisfélaganna í Borgarnesi fyrir sveitarstjórnakosning-
arnar í vor. í öðru sæti varð Skúli Bjarnason héraðslæknir og í 3.
sæti Guðlaugur Þór Þórðarson háskólanemi.
Sigrún fékk 53 atkvæði í 1. sæt-
ið og 113 atkvæði í allt, af alls 118
gildum atkvæðum. Skúli fékk 52
atkvæði í 1. og 38 í 2. sæti, 90
atkvæði samtals og 109 atkvæði
alls. Guðlaugur fékk 80 atkvæði í
1-3. sæti og 99 atkvæði alls.
í 4. sæti varð Ósk Bergþórs-
dóttir með 47 atkvæði í fyrstu fjög-
ur sætin og 88 atkvæði alls. Guð-
mundur Ingi Waage varð 5., fékk
40 aikvæði í fyrstu 5 sætin og 58
atkvæði alls. íris Grönfelt fékk 61
atkvæði í fyrstu 6 sætin og 74 at-
kvæði alls. Óskar Þór Óskarsson
fékk 58 atkvæði í fyrstu 7 sætin
en merkt var við sjö nöfn í prófkjör-
inu.
í næstu sætum urðu Bjarki Þor-
steinsson með 58 atkvæði, Björn
Jóhannsson með 50 atkvæði, Ari
Björnsson með 42 atkvæði, Háífdán
Þórisson með 40 atkvæði og Ingi-
björg Hargrave með 39 atkvæði.
Sjálfstæðisflokkurinn á nú einn
mann í bæjarstjórn Borgarness,
Gísla Kjartansson, en Gísli og vara-
maður hans, Jóhann Kjartansson,
gáfu ekki kost á sér í prófkjörinu.
Undirbúningur prófkjörsins hófst
með því að kjörnefnd sendi öllum
íbúum Borgarness bréf og óskaði
eftir tilnefningum fólks til fram-
boðs. 83 sendu inn tillögur og voru
45 einstaklingar nefndir. 21 þeirra
Andri hefiir
kolavinnslu
„OKKUR er öllum óskaplegur
léttir að því að geta nú loks
haflzt handa við vinnsluna. Við
erum að taka olíu og vistir,
búnir að gera allt klárt á
vinnsludekkinu og fáum skipti-
menn í áhöfnina á miðvikudags-
kvöld. Á fimmtudag er svo ætl-
unin að láta úr höfii og á miðin
verðum við komnir tveimur sól-
arhringum síðar. Nú eru menn
hressir,“ sagði Sævar Björns-
son, skipstjóri á Andra BA, sem
er nú að hefja fiskvinnslu eftir
langa bið.
Fyrir helgina náðist samkomu-
lag milli eigenda Andra BA og
lánadrottna þeirra í PK-Finans
bankanum um að skipið yrði gert
út á kolavinnslu fyrst um sinn og
var endanleg ákvörðun um það
tekin á stjórnarfundi íslenzka út-
hafsútgerðarfélagsins á laugar-
-dag. Sævar Björnsson, skipstjóri,
segir að síðustu dagar hafi verið
notaðir til að gera klárt fyrir kola-
vinnsluna. Pólveijarnir sé þúsund
þjala smiðir og öll vinna við vélar
og slíka hluti leiki í höndunum á
þeim. Því sé allt til reiðu og von-
andi gangi dæmið svo upp.
Gunnar Þórhallsson, vélstjóri,
hefur unnið við útgerðina frá því
í júlí í sumar. Hann er nýkominn
heim og sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að sér litist vel á þessa
vinnslu. Skipið væri vel til hennar
búið, bæði væri um borð vél, sem
hentaði kolavinnslunni svo og vél-
ar til vinnslu á þorski, sem með
kolanum fylgdi. Hann segir að
þrátt fyrir langa bið án verkefna
hafi andinn um borð verið góður,
enda sé sjómönnum það ekki endi-
lega nýlunda að þurfa að bíða
milli verkefna. Sjómenn á stór-
flutningskipum svokölluðum séu
löngum biðum að minnsta kosti
flestir kunnugir.
gaf kost á sér í forvai þar sem
valdir voru tólf frambjóðendur í
prófkjör og tók 131 þátt í forval-
inu. Prófkjörið fór síðan fram um
helgina. 126 manns tóku þátt í
því, en 9 atkvæði voru dæmd ógild.
Hagkaup:
Flytja inn „íslenzka“ fískrétti
HAGKAUP hafa nú hafið sölu á íslenzkum fiski innfluttum frá Bret-
landi. Um er að ræða tilbúna fiskrétti af ýmsu tagi, sem unnir eru
úr íslenzkum fiski í verksmiðju Icelandic Freezing Plants Ltd., dóttur-
fyrirtækis SH í Grimsby. Mun þessi leið íslenzk fiskmetis á disk Is-
lendinga vera einsdæmi.
Íslenzkir fiskréttir innfluttir frá
Bretlandi fást nú í verzlunum
Hagkaupa.
SH og IFPL kynntu ýmis konar
fiskrétti undir vörumerkinu Marico
hér á landi í fyrra. Samkvæmt upp-
lýsingum Össurar Kristinssonar hjá
SH, vakti sú kynning mikla eftir-
tekt og viðbrögð. Komu þá fram
óskir hér heima um að fiskréttirnir
yrðu fáanlegir hér.
Jóhannes Rúnar Jóhannesson,
innkaupastjóri hjá Hapkaupum,
segir að IFPL hafi kynnt verzlun-
inni þessa fiskrétti í fyrra og í fram-
haldi þess hafi verið ákveðið að
bjóða vir'skiptavinum verzlana Hag-
kaupa upp á fiskinn. Um sé að
ræða ýmsar gerðir fiskrétta með
fjölbreyttum bragðtegundum og
fyllingum. Réttirnir séu bæði gerðir
fyrir örbygljuofna og venjulega
ofna salan gangi mjög vel, enda séu
þessir réttir mjög vel samkeppnis-
færir í verði við innlenda fiskrétti
svo og gæðum og fjölbreytni enda
séu þeir í mörgu frábrugðnir því,
sem hér sé framleitt.
Engir innflutningstollar eru á
fiski eða réttum unnum úr honum.
BM
Vinsælasti ameríski bíllinn á íslandi undanfarin ár er
Dodge Aries Framhjóladrifinn og einstaklega
þægilegur fjölskyldubfll meö öllum helstu þægind-
um. Búnaður m.a.; 2,2 lítra vél með beinni innspýt-
ingu, sjálfskipting, vökvastýri, útvarp með fjórum
hátölurum o.fl.
Við hjá Jöfurhf. rýmum nú til fyrirnýrri árgerð. Par
sem við eigum enn örfáa bíla afárgerð 1989 höfum
við ákveðio að bjóða valda bílaástórlækkuðu verði.
Þessa viku leggjum við áherslu á
Chrysler
Itið bjóðum 250.000 króna afslátt eða nýjan Dodge Aries á kr. 997.000
Við bjóðum
340.000 króna afslátt
eðanýjanbíl
frákr. 1.390.000
Chrysler Le Baron GTS. Einn með öllu
Við erum að sjálfsöaðu reiðubúnir tilað taka
þinn bíl sem greioslu upp í þann nýja og
getum lánað þér mismuninn í allt að 30
mánuði.