Morgunblaðið - 13.02.1990, Síða 11
MORGUNBLABIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. PEBRUAR 1990
11
Vatnslitamyndir
________IVIyndlist____________
Bragi Ásgeirsson
Þeir eru ekki margir íslenzku
málaramir, sem vinna í vatnslita-
tækninni, og á ég þá við þá einu og
sígildu, en ekki þær mörgu tegundir
annarra lita, sem blandast vatni.
Alþjóðlega orðið yfir tæknina er -
„aquarelle" (gagnsær vatnslitur) eða
einfaldlega akvarella og mætti jafn-
vel festast í málinu sem sérheiti til
aðgreiningar, vegna þess hve margar
nýjar tegundir lita, sem blandast
vatni, hafa komið á markaðinn á
öldinni, en hins vegar er akvarellan
langsamlega elst og var t.d. kunn í
Egyptalandi á annarri öld fyrir
Kristsburð, svo sem sést af hinum
svonefndu dauðabókum. Tæknin
gekk í gegnum ýmsa þróun bóka-
skreytinga og bréfamálunar og
Albrecht Diirer var hér brautryðjandi
í röðum málara, er hann tók hana
til handargagns á 16. öld, en al-
mennt tóku málarar ekki að nota
hana fyrr en löngu seinna. Hún var
og um tíma, og er raunar enn, mikið
notuð við handmálun tréristumynda
(einþrykk).
Hin hreina akvarellu- eða vatns-
litatækni er erfið, því að liturinn vill
missa ferskleika sinn, sé ekki hámá-
kvæmum vinnubrögðum beitt og út-
heimtir því mikla leikni í meðhöndlun
pentskúfsins og blöndun lita.
Hinn kunni abstraktmálari Haf-
steinn Austmann er einn af fáum
hérlendis, sem haldið hafa tryggð
við tæknina um langt árabil og gefið
henni tíma sinn reglulega, þótt hann
vinni ekki í henni einvörðungu og
samfellt. Tekur sér hlé frá olíumál-
verkinu og helgar sig vatnslitum.
Hafsteinn opnaði sýningu á 28
vatnslitamyndum í FÍM-salnum í
Garðastræti 6 sl. laugardag og stend-
ur sýningin til 18. febrúar.
Listamanninn þarf ekki að kynna,
því hann hefur fyrir löngu áunnið
sér sess sem einn traustasti málari
sinnar kynslóðar, er haldið hefur sínu
striki með litlum breytingum, frá því
hann kom fyrst fram fyrir nær hálf-
um fjórða áratug. Myndir hans eru
t.d. auðþekkjanlegar frá myndum
annarra í langri fjarlægð á samsýn-
ingum.
I þessum myndum eru og kunnug-
leg form, um sumt ættuð frá hinni
fomu austurlenzku táknskrift kalli-
grafíunni, en helsta breytingin er
vafalífið, að Hafsteinn sækir meira
en áður til beinna hughrifa frá náttú-
runni við gerð mynda sinna svo sem
greinilega kemur fram í nafngiftun-
um í sýningarskrá.
Maður kennir líka vissulega
sterkra hughrifa frá náttúrunni í
ýmsum verkanna og þá einkum í
myndunum „Sólskinssumar" (6),
„Kólga" (10), „Haust í skógi" (23)
og „Haustsinfónía“ (23).
Það er fyrst og fremst sjálf með-
höndlun litanna og lit- og blæbrigð-
in, sem tengja þessar myndir nátt-
úrulifun, en hins vegar mun minna
formin í sjálfu sér, sem lítið breytast
mynd frá mynd.
Þetta er háttur Hafsteins Aust-
manns í málaralistinni og hún ber
kennimark hans og þannig séð er
hann sjálfum sér trúr út í fingurgóma
á þessari sýningu ekki síður en fyrri
daginn.
Leiðrétting
í grein minni um sýningu verka
Kjarvals að Kjarvalsstöðum sl.
Fasteign með tekjum
Til sölu góð fasteign sem gefur góðar leigutekj-
ur og greiðir sig sjálf niður á örfáum árum. Trygg-
ir áhyggjulausar tekjur í framtíðinni.
Upþlýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASAlAIM
SUDURVE R I
SIMAR 82040 OG 84755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Bílasala
Það þarf ekkert háskólapróf til að selja bíla.
Til sölu gömul og þekkt bílasala með mikið inni-
pláss. Langbesti sölutíminn framundan. Fæst í
skiptum fyrir bíla eða jafnvel öll á fasteigna-
tryggðum skuldabréfum.
mrriTrTTmEŒHi
SUDURVE R I
SlMAR 82040 OG 84755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
J30ÁRA
FASTEIQNA
MIÐSTOÐIN
SKIPHOLTI 50B
ibAUSI vuuT*
IKAUSl
® 6220 301
HESTHAMRAR
Vorum að fá í sölu glæsil. efri sérh. 160 fm auk ca 50
fm bílsk. Eignin er mjög vel staðsett. Útsýni. Afh. tilb.
u. trév. eftir ca 1 mán. Áhv. lán frá húsnstj. 4,2 millj.
KJARRMÓAR - GARÐABÆ
Nýkomið í sölu fallegt 142 fm raðh. á tveimur hæðum
ásamt innb. bílsk. Ahv. hagst. langtímal. ca 2 millj.
Verð 9,9 millj.
FANNAFOLD
Vorum að fá I sölu giæsil. einb. á einni hæð. Um er
að ræða fullb. eign 130 fm auk 30 fm bílsk. og ca 30
fm sökklum fyrir garðskála. Áhv. veðd. 2 millj.
sunnudag varð mér á í messunni, er
ég sagði að mynd hans, er ber nafn-
ið Heimahagar, væri úr Meðallands-
sveit.
Raunar var ég búinn að heimfæra
hana við Borgarfjörð eystri, sem er
rétt, en mundi svo að hann fæddist
í Meðallandssveit og athugaði það í
heimildum og kom það heim og sam-
an, en svo mun hann hafa alist upp
í Borgarfirðinum og talið þá heima-
haga sína. Taldi ég þá, að ég hefði
gert vitleysu og leiðrétti skrifin, þrátt
fyrir að ég væri í vafa. Gerði svo
það, sem ekki má gera, að láta skrif-
in frá mér fara án þess að vera 100%
viss. Myndin var upprunalega í eigu
Jóns Björnssonar kaupfélagsstjóra,
Borgarfirði eystri.
Og án þess að vera að bera á
bætifláka fyrir fljótfærni mína, vil
ég koma þvi á framfæri að auðveld-
asta lausnin, til að koma í veg fyrir
að slíkt hendi sig, er að jafnan fylgi
greinargóðar upplýsingar um nýjar
myndir, er Kjarvalssafni áskotnast,
þá er þær eru sýndar í fyrsta skipti
og raunar ávallt.
Þorvaldur Þorvaldsson, leigubíl-
stjóri, sá er ók Kjarval um landið og
þekkir betur til margra mynda Kjarv-
als og sögu þeirra en nokkur annar,
kom þessum skilaboðum til mín og
kann ég honum þakkir fyrir — hann
virtist í einu og öllu vita allt um
uppruna þess og sögu.
Vafalítið býr Þorvaldur yfir mikl-
um fróðleik um myndir þjóðlista-
mannsins og hann sjálfan, sem vert
væri að halda til haga og ómetanlegt
fyrir framtíðina ...
IVECO DAILY hefur um árabil verið mest seldi
sendibíliinn í Evrópu. 1990 árgerðin af þessum
vinsæla bíl er nú komin á markaðinn með fjöl-
mörgum nýjungum og breyttu útliti:
* Fást í yfir 50 mismunandi útfærslum: Sem lok-
aðir sendibílar, pallbílar með einföldu, tvöföldu
eða þreföldu húsi eðafólksflutningarbílar, með
eindrifi eða aldrlfi.
* Öflug sjálfstæð grind, yfirbygging að verulegu
leyti úr galvanhúðuöu stáli, 6 ára ryðvarnar-
ábyrgð frá verksmiðju.
* Burðarþol allt að 3 tonnum.
* Léttbyggð, þýðgeng 4 strokka turbodieselvél
103 hö DIN, og 23 kp/m við aðeins 2200 snún-
inga.
* Ríkulegur búnaður: Vængjahurðir (270°) að
aftan, rennihurö á hægri hlið, vandað stillanlegt
ökumannssæti, höfuðpúðar og belti fyrir þrjá,
tvær miðstöðvar, stereoútvarp og kassettutæki
110 A, rafgeymir, halogen aöalljós, upphitaðir
hliðarspeglar og sprautur á aðalljós, vökvasfýri
og margt, margt fleira.
Við eigum til afgreiðslu STRAX lokaða sendibíla
með háþekju, eins og hér sjást á aðeins
Kr. 2. 270. 000 með VSK. (verð án
VSK er Kr. 1.823.000).
Komið, skoðið og kynnist IVECO DAILY af eigin
raun, eða hringið til okkar og fáið sendan litprent-
aðan bækling.
Við veitum öllum viðskiptavinum okkar 1.
flokks persónulega þjónustu!
ÍTSMKMDtSP
Smiðsbúð 2, Garðabæ, S. 65-65-80.
IVECO DAILY TURBO.
ekki betri!!