Morgunblaðið - 13.02.1990, Síða 18

Morgunblaðið - 13.02.1990, Síða 18
er 18 <•<’<:! ílA’JflaH'í fI fllIOAdUI.OlíUt dídAJitMUDHOM MORGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR T99IT Utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Rúmeníu: Lýðræðisumbætur skilyrði aðstoðar Búkarest. Reuter. JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá því í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, á sunnudag að stjórnvöld vestra hygð- ust senda matvæli að andvirði 80 milljóna Bandarikjadala, (um 4.800 millj. ísl. kr.) til landsins. Baker hvatti rúmenska ráðamenn til að tryggja að fyrirhugaðar kosningar í Iandinu, sem boðað hefúr verið til í maimánuði, yrðu frjálsar og lýðræðislegar. Áður höfðu bandarísk stjórnvöld lýst yfir áhyggjum sínum vegna þróunar mála í Rúmeniu og látið að því liggja að hinir nýju ráðamenn landsins væru sekir um valdniðslu. Baker hafði um fjögurra klukku- stunda viðdvöl í Búkarest en áður hafði hann átt fundi með ráðamönn- um og stjómarandstæðingum í Búlgaríu. Þar, líkt og í Rúmeníu, lagði bandaríski utanríkisráðherr- ann áherslu á að Bandaríkjamenn hygðust ekki aðstoða stjórnvöld í þeim ríkjum Austur-Evrópu sem bersýnilega hygðust hundsa kröfur almennings um lýðræði og frelsi. Áður hafði Baker látið að því liggja að þetta gilti um stjórnvöld í Aust- ur-Þýskalandi og Rúmeníu. Petre Roman, forsætisráðherra Rúmeníu, sagði heimsókn banda- ríska utanríkisráðherrans sýna að stjómvöld í Bandaríkjunum hygðust taka fullan þátt i uppbyggingar- starfinu í Rúmeníu. Hefðu ráða- menn fullvissað Baker um að þeir hygðust ekki víkja frá þeirri lýðræð- islegu umbótastefnu sem ákvörðuð hefði verið og því markaði heim- sóknin þáttaskil í samskiptum ríkjanna. Baker sagði hins vegar að skil- yrði fyrir því að Rúmenar nytu hagstæðustu kjara sem Bandaríkja- menn bjóða í milliríkjaviðskiptum væri það að hinir nýju valdhafar hvikuðu hvergi frá því yfirlýsta markmiði sínu að innleiða lýðræði og frelsi í landinu. Leiðtogar stjómarandstöðunnar í Rúmeníu kváðust fagna því að bandarísk stjómvöld hygðust fylgj- ast grannt með þróun mála í landinu en létu jafnframt í ljós efasemdir um að heimsókn Bakers kæmi til með að breyta miklu. Stjórnarand- stöðunni hefur ekki verið leyft að koma sjónarmiðum sínum á fram- færi í fjölmiðlum og þykir ýmsum sem fyrirhugaðar kosningar geti tæpast talist lýðræðislegar verði ekki breyting þar á. Á laugardag fóm fulltrúar Bændaflokksins fram Bretland; Slæmt veður veldur enn búsifjum St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðs- ins. MIKILL vindur og úrfelli á sunnudag juku enn á flóðin í suðvesturhluta Bretlands. Hvas- sviðri með vindhviðum, sem fóru allt upp í 160 km, gekk yfir suð- ur- og vesturhluta Englands á sunnudag. Vindinum fylgdi úr- hellisrigning. Lögreglan hvatti alla vegfarend- ur til að halda sig heima, nema brýna nauðsyn bæri til að fara út. Tveir létust af völdum veðursins. 11 ára stúlku skolaði út með öldu í bænum Seaburn á norðaustur- strönd Englands. Maður á fímm- tugsaidri lézt, er hann sigldi á húð- keip niður Conwy-ána í Wales. Sex manns var bjargað, þegar hús grófst I aurskriðu á Comwall- skaga, en sl. sunnudag hafði rignt þar í tíu daga samfleytt. Áin Lavant í Sussex á suður- strönd Englands þornaði upp fyrir rúmu ári vegna þurrka. Á sunnudag tók áin að renna á ný eftir langvar- andi vatnsveður. á leyfí til að hefja rekstur eigin sjón- varpsstöðvar en því var hafnað. James Baker kvaðst telja það mikilvægt að rödd stjómarandstöð- unnar fengi einnig að heyrast en vildi ekki tjá sig um hvort hann vantreysti hinum nýju valdhöfum í landinu. Kvað hann rúmensku full- trúana hafa lagt á það ríka áherslu að lýðræði yrði innleitt í landinu. Sjálfur sagðist Baker hafa ítrekað að samskipti Bandaríkjanna og Rúmeníu myndu í framtíðinni mót- ast af því hvort stjórnvöld þar í landi hefðu í heiðri leikreglur lýð- ræðisins, virtu mannréttindi og stæðu vörð um hagsmuni minni- hlutahópa. Reuter Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti og Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, ræðast við áður en fúnd- ur þeirra í Kreml hófst á laugardag. Kohl ræðir framtíð þýsku ríkjanna í heimsókn til Moskvu: Segir Gorbatsjov hafa lagt blessun sína yfir samemingu Moskvu, Bonn. Reuter, Daily Telegraph. HELMUT Kohl, kanslari Vest- ur-Þýskalands, kom til Bonn frá Moskvu á sunnudag með þann boðskap að sovésk stjórnvöld hefðu lagt blessun sína yfir sam- einingu þýsku rikjanna. Aust- ur-þýskir embættismenn vísuðu hins vegar á bug fréttum um að viðræður kanslarans og Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétfor- seta mörkuðu tímamót og ryddu brautina fyrir sameiningu. „Leiðin til sameiningar er opin,“ sagði Kohl í viðtali við vestur- þýska útvarpsstöð við heimkom- una. „Það er vel hugsanlegt að ráðist verði samhliða í pólitíska og efnahagslega sameiningu," bætti hann við. „Við Gorbatsjov aðalritari erum sammála um að þýska þjóðin ein hafi rétt til þess að ákveða hvort hún búi sameinuð í einu ríki.“ í staðinn lofaði Kohl Sovétforsetanum að sameinað Þýskaland myndi eiga samvinnu við fjónældi11 sem börðust gegn þýskum nasistum í heimsstyrjöld- inni síðari um skipan öryggismála í Evrópu. Kohl flýtti blaðamannafundi sínum til að hægt yrði að skýra frá árangri Moskvu-ferðarinnar í kvöldfréttatímum vestur-þýskra sjónvarpsstöðva. Hann sagði að samþykki Sovétstjórnarinnar hefði mikið sálfræðiiegt gildi fyrir Aust- ur-Þjóðverja, sem flúið hafa í þús- undatali til Vestur-Þýskalands. „Viðbrögð stjómarinnar í Moskvu verða til þess að allir Austur- Þjóðverjar sannfærast um að sam- eining þýsku ríkjanna verður að veruleika." Kohl sagði að góð samskipti Sovétríkjanna og sameinaðs Þýskalands myndu stuðla að stöð- ugleika í Evrópu og Þýskaland yrði sem brú á milli austurs og vesturs. Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vestur-Þýska- lands, sagði hins vegar að spum- ingunni um öryggismál Evrópu eftir sameininguna hefði ekki ver- ið fullsvarað. Vestur-Þjóðverjar og bandamenn þeirra í Atlantshafs- bandalaginu (NATO) hafa þegar hafnað tillögu Hans Modrows, for- sætisráðherra Austur-Þýskalands, og Sovétmanna um hlutlaust Þýskaland. Genscher telur að slíkt myndi valda óstöðugleika í Evr- ópu. Hann vill að sameinað Þýska- land eigi aðild að Atiantshafs- bandalaginu, sem hafr hins vegar engar hersveitir á þýskri jörð. Austur-þýskur embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns get- ið, vísaði því á bug að viðræður leiðtoganna hefðu markað tíma- mót og sagði að ekkert nýtt hefði komið þar fram. Hans Modrow ræðir við vestur-þýsk stjómvöld í Bonn í dag og á morgun og talið er að hann svari þá tilboði stjómar- innar í Bonn um myntbandalag. Ráðstefna ríkja NATO og Varsjárbandalagsins; TaJið að sameining Þýska- lands verði í brennidepli Ottawa. Reuter RÁÐSTEFNA um opnun lofthelgi hófst í gær í Ottawa í Kanada en utanríkisráðherrar allra 23 aðildarríkja Varsjárbandalagsins og Atlantshafsbandalagsins munu sitja fúndinn fyrstu tvo dagana. Áætlunin um opnun lofthelgi kveður á um að rikjum bandalag- anna tveggja verði heimilt að halda uppi eftirlitsflugi yfir land- svæðum aðildarríkjanna til að fylgjast með hernaðarumsvifúm og til að tryggja að staðið sé við ákvæði afVopnunarsamninga. Tæp- ast er búist við því að NATO-ríkin bregðist með formlegum hætti á ráðstefhunni við nýjustu tillögum Sovétmanna um fækkun her- manna í Evrópu en almennt er talið að sameining þýsku ríkjaiyia verði í brennidepli á fundinum. Utanríkisráðherrar Bretlands, Bandaríkjanna, Frakklands og Vestur-Þýskalands, komu óvænt saman til fundar á sunnudags- kvöld og var umræðuefnið hugsan- leg sameining þýsku ríkjanna tveggja. Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vestur-Þýska- lands, gerði grein fyrir viðræðum sínum við sovéska ráðamenn en hann var í Moskvu um helgina ásamt Helmut Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands. Sovétmenn hafa lýst sig fylgjandi sameining- aráætlun Hans Modrows. forsæt- isráðherra Austur-Þýskalands, en samkvæmt henni mun hið nýja Þýskaland verða hlutlaust ríki og standa utan hemaðarbandalaga. Þessu hafa vestur-þýskir ráða- menn hafnað. Manfred Wömer, framkvæmdastjóri NATO, sagði a fundi með blaðamönnum á sunnu- dag að öll aðildarríki bandalagsins væru andvíg hlutleysi Þýskalands. Almennt er búist við því að sam- eining Þýskalands verði ofarlega á baugi á ráðstefnunni um opnun lofthelgi þó svo tilgangurinn með henni sé einkum sá að ræða hvem- ig haga beri efirlitsflugi óvopnað- ara flugvéla yfir landsvæði aðild- arríkja bandalaganna tveggja. Áætlun þessa kynnti George Bush Bandaríkjaforseti í fyrra en á þennan hátt vonast menn til að unnt verði að sannreyna að af- vopnunarsamningar verði haldnir. Er þá einkum horft til væntanlegs sáttmála um fækkun hermanna og vígtóla í Evrópu en stefnt er að því að ljúka þeim viðræðum á þessu ári. Þá er tilgangurinn einn- ig sá að skapa aukið traust í sam- skiptum ríkja austurs og vesturs. Míkhaíl S. Gorbatsjov, leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins, lagði til í síðustu viku að herafli risaveldanna í Evrópu yrði annað- hvort takmarkaður við 195.000 menn eða 225.000. Áður hafði Bush Bandaríkjaforseti kynnt nýja tillögu er kveður á un að hám- arkstalan skuli vera 195.000. Er þá gert ráð fyrir því að 30.000 manna herafli Bandaríkjanna í nokkrum Evrópuríkjum verði ekki talinn með. Þessari hugmynd hafnaði Gorbatsjov í viðræðum sínum við James Baker, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna. Baker gerði utanríkisráðherrum NATO grein fyrir hugmyndum Gor- batsjovs en ekki er búist við að þeim verði formlega svarað á ráð- stefnunni í Kanada. Utanríkisráð- herrar þátttökuríkjanna munu halda heimleiðis í dag, þriðjudag, en embættismenn munu sitja við samningaborðið næstu tvær vik- umar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.