Morgunblaðið - 13.02.1990, Síða 33

Morgunblaðið - 13.02.1990, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1990 félk í fréttum ahrSmSSrsmaþjoða Kpsið verður til neðri deildar japanska þingsins þann 18. þessa mánaðar og þykja vestræn áhrif hafa einkennt baráttuna að þessu sinni. Stjórnarflokknum, Frjálslynda lýðræðisflokknum, er spáð naumum meiri hluta þrátt fyrir að margir þekktustu leiðtogar flokksins hafi verið bendlaðir við spillingu og hneykslismál og verið vændir um siðblindu. Líkt og á Vesturlöndum hefur kosningabaráttan einkum snúist um að ná athygli ijölmiðla og þykir ýmsum það miður. Þannig ráku margir upp stór augu er Takako Doi, leiðtogi Sósíalistaflokksins, kom fram á kosningafundi klædd Batman-búningi! Ekki fylgir sög- unni hver var í hlutverki undra- bamsins berleggjaða, Robbens. Svo virðist sem forsætisráðherra landsins og leiðtogi stjórnarflokks- ins, Toshiki Kaifu, sé bæði áskrif- andi að íslenska Þjóðviljanum og Alþýðublaðinu, því hann virðist sækja áróðurstækni sína í smiðju til tveggja íslenskra ráðherra. Kaifu hefur sumsé haldið kosningaræður sínar „á rauðu ljósi“ í miðborg Tókíó og náð óskiptri athygli veg- farenda. Hann ekur um á sendi- ferðabíl, snarar sér upp á þak bif- reiðarinnar á gatnamótun og hefur lesturinn er rauða ljósið logar. TRÚARSTRÍÐ Rushdie ver út- gáfii bókar sinnar St. Andrews, írá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Salman Rushdie, höfundur Söngva Satans, varði bók sína í fyrsta skipti opinberlega frá því að hann fór í felur fyrir ári í langri grein, sem út kom sl. sunnudag. Leiðtogar brezkra múhameðstrúarmanna hafa hafnað tilmælum um skilning og sættir í greininni. Rushdie biður alla óbreytta, heið- arlega og sanngjarna múhameðstrú- armenn að skoða bók sína á ný í ró og næði í 7 þúsund orða grein i 2. tölublaði nýs sunnudagsblaðs, The Independent on Sunday. Greinin ber heitið „í góðri trú“. Rushdie ver samningu bókar sinnar og vísar því til að mynda algerlega á bug, að hann hafí getað séð fýrir afleiðingar útkomu hennar, eins og margir hafa haldið fram. Hann skýr- ir nákvæmlega frá þeirri vitneskju, sem bókin er reist á um sögu spá- mannsins Múhameðs og sögu mú- hameðstrúar. Rushdie kvartar einnig yfir því, að sú bók, sem mótmælt sé um víða veröld, sé ekki til. Bókin, sem hann hafi skrifað, sé alls ekki sett saman úr óþverra, móðgunum og níði. Hann segir einnig, að það sé sársaukafullt áfall rithöfundi, að hans eigin per- sónur hafni honum, en bókin fjallar einmitt um reynslu, líf og sögu fólks af sama bergi brotið og harðast hefur mótmælt henni. Rushdie túlkar síðan nákvæmlega efni og uppistöðu bókarinnar og skýrir fjöldamargt, sem orðið hefur mönnum deiluefni. Hann biðst hins vegar ekki afsökunar á neinu. Blake Morrison, bókmenntarit- stjóri blaðsins, segir Rushdie hafa litið vel út, en hann ræddi við höfund- inn í tilefni af birtingu ritgerðarinn- ar. Rushdie segist vonast eftir því að hann geti lifað eðlilegu lífi í fram- tíðinni. Rushdie neitar því ekki, að ein- angrunin hafi breytt sér. Hann segir til dæmis, að viðhorf sitt til brezka ríkisins hafi breytzt. Hann segir það líka hafa stuðlað að þessari breyt- ingu, að Verkamannaflokkurinn, sem hann hafi stutt allt sitt líf, hafi ráðizt harkalega að sér, þótt innan raða hans séu margir, sem hafi varið hann. „Kannski mundi ég nota öðruvísi tungutak núna til að tala um íhalds- menn, og ég biðst engrar velvirðing- ar á því. Ég hef meira álit á íhalds- mönnum af smávægilegri ástæðu: Þeir björguðu lífí mínu,“ segir Rush- die í viðtalinu. Lokaorð höfundarins við bók- menntaritstjórann voru: „Ég get varið uppbyggingu sögunnar, mynd- imar, sem beitt er, og tungutakið, sem þar er notað. Það er tiltölulega Salman Rushdie auðvelt. Það, sem er erfitt, er að verja líf mitt.“ Leiðtogi múhameðstrúarmanna í Bradford, þar sem bókin var fyrst brennd opinberlega, hafnaði tilmæl- um Rushdies algerlega á sunnudag og sagði blaðagreinina einungis auka á sárindi múhameðstrúarmanna og sýna skilningsleysi höfundarins. COSPER HA HA HA \\ m Hk -'í ■11124 FRÆÐSLUFUNDUR verður í félagsheimili Fáks fimmtudaginn 15. febrúar kl. 20.30. Óiafur B. Schram fjallar um ferðalög á hestum. Helgi Sigurðsson, dýralæknir, ræðir um meiðsli og meðferð hrossa á ferðalögum. Fræðslunefnd. Flugferðin. Morgunblaðið/Einar Falur FLUGHRÆÐSLA Flug er flughræddum fært! Jafnvel flughræddustu menn þurfa stundum að harka af sér af illri nauðsyn. Einn þeirra er Eyjólfur Bergþórsson formaður meistara- flokksráðs Fram sem varð fertugur fyrir skömmu. Þann sama dag gerði knattspymulið félagsins sér lítið fyrir og varð íslandsmeistari í innan- hússknattspymu. Sigurgleðin var mikil, en mitt í henni gleymdu menn ekki afmælisbaminu og það fékk ærlega flugferð, skítt með flug- hræðsluna... Klippisett Til sölu JVC Hi-Band U-Matic klippi- samstæóa, lítið notuð - 2 stk. PR900E Hi-Band U-Matic. - 1 stk. RMG850 stjórntölva PR900. - 1 stk. aukatæki PR900E JVC Hi-Band. Upplýsingar í Hljóðrita, sími 680733. 6. leikvika -10. feb. 1990 Vinningsröðin: 121-X2X-22X:121 1.010.134- kr. 1 voru með 12 rétta - og fær hver: 707.099- kr. á röð 20 voru með 11 rétta - og fær hver: 15.151 - kr. á röð Munið hópleikinn - allar upplýsingar í síma 91-688322. K Dags. 13.02.1990 VÁKORT Númer eftirlýstra korta ' 'VS ' , 4507 4200 0002 9009 4507 4300 0007 4376 4507 4400 0001 7234 4507 4500 0010 3074 , 4548 9000 0023 4376 4548 9000 0027 8186 4548 9000 0028 0984 Afgreiðslufólk -vinsamlegast takið ofangreind ko úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir að klófesta kort og vísa á vágest. 'VISA ISLAND

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.