Morgunblaðið - 13.02.1990, Side 37

Morgunblaðið - 13.02.1990, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1990 37 Láglaunafólk á íslandi Til Velvakanda. í kvöld hlustaði ég á Bylgjuna þar sem rætt var um kjötútflutning til Rúmeníu. Kona nokkur hringdi og sagði frá því, að hún hafði lifað á brauði og kaffl í heila viku og væri orðin máttlaus og rúmliggj- andi. Ég er sjálf örorkuþegi, en sonur minn er í fullri vinnu (láglaunamað- ur). Við hvorki reykjum né stundum við dansleiki, en í mörg ár höfum við ekki haft heitan mat á hverjum degi, kannski svona einu sinni eða tvisvar í viku. Við lifum aðallega á jógúrt, mjólk, eggjum, brauði, musli og kiwi. Þegar ég kaupi kjöt eru það annaðhvort pylsur eða háls- ar á 198.00 kr. kílóið. Aðeins á jóladag, á páskum og á afmælis- degi fáum við okkur Iambahrygg og vín með. Já, hérna er til fólk, og hefur i lengi verið, sem hefur ekki heitan mat á hveijum degi, af því að það hefur hreinlega ekki efni á því. Rétt fyrir jólin kom þetta neyðar- kall ekkjunnar í DV: „Ég er einstæð móðir með 4 ung börn og hef leitað að vinnu, en fæ hvergi vinnu og þarf að halda bömunum mínum jól, en hef enga peninga." Hvað var gert i þessu máli? Hér eru til stórmarkaðir núna eins og í Banda- ríkjunum, en þegar ég fer þarna inn líður mér eins og barni í Afríku sem er sýnt allt góðgætið en bann- að að snerta það. Ég fer þaðan út með mína hálsa, mjólk og kiwi. Tíu ár eftir stríðið í Þýzkalandi lifði fólk betur þar á þætum frá ríkinu en við hérna á íslandi 1990 með mann í fullri vinnu. Hvað segir Biblían um þetta ástand hér? „Málefni munaðarleys- ingjans, það taka þeir ekki að sér, til þess að bera það fram til sigurs, og þeir reka ekki réttar fátækling- anna. Með lygi, en eigi með sann- leika, hafa þeir náð völdum í landinu; því að frá einni vonzkunni ganga þeir til annarrar. Tunga þeirra er deyðandi ör, svik tala þeir einungis. Með munninum tala þeir vingjamlega við náunga sinn, en í hjarta sínu sitja þeir á svikráðum við hann. Vei þeim, sem byggir hús sitt með ranglæti og veggsvalir sínar með rangindum, sem lætur náunga sinn vinna fýrir ekki neitt 0g greiðir honum ekki mannsæm- andi laun. Augu hans og hjarta stefna eingöngu að eigin ávinning og að beita kúgun og undirokun við náunga sinn. Óttalegt og hrylli- legt er það, sem við ber í landinu!“ Og margt annað í þessum dúr má lesar þar, Jeremía 5:23-31, 4:22, 2:8, 1:16, 6:13-15, 22:13-17, o.s. frv. Örorkuþegi n Lækninnn sug&L cxb U komar hjó- pér v<seu 50 ci mótl 50 ■" Herbergi með baði Þetta gengur ekki lengur, riddari góður. Víkveiji skrifar að verður tæpast sagt, að mikið sé um gott efni í sjón- varpsstöðvunum tveimur. Þó vill Víkverji vekja athygli á tveimur þáttum. Annar er viðskiptaþáttur frá Financial Times, sem Stöð 2 hefur hafið útsendingar á síðdegis á sunnudögum. Þetta eru mjög góðir þættir, eins og við er að búast frá þessu merka blaði og gefa nokkuð glögga mynd af sumu því, sem er að gerast í hverri viku í efnahags- og viðskiptamálum í Evrópu. Það er því ánægjulegt, að við fáum tækifæri til að sjá þessa þætti hér. í ríkissjónvarpinu í fyrradag var sýndur vel gerður þáttur frá Kanada um geðklofa, sem er ein erfiðasta tegund geðsjúkdóma. Raunar var sagt í þessari mynd, að hugsanlega væri það, sem við þekkjum undir heitinu geðklofi, margir sjúkdómar. Fólk, sem á við geðsjúkdóma að stríða á líka við að etja erfiða fordóma samfélags- ins gagnvart þessum sjúkdómum. Þáttur, sem þessi, sem gaf glögga mynd af sjúkdómsstríði geðsjúkra skv. þeirra eigin frásögn getur áreiðanlega átt þátt í að draga úr þessum fordómum og gera geð- sjúkum lífið bærilegra - ekki sízt í fámennu samfélagi eins og hér. xxx Skattstofur landsins þurfa að gera ráðstafanir til þess að bæta þjónustu við framteljendur síðustu dagana áður en skila á framtali. Víkverji átti erindi við Skattstofu Reykjanesumdæmis í síðustu viku og hringdi í marga daga í það eina númer, sem gefið er upp í símaskránni. Sá sími var á tali að því er virtist í marga daga frá morgni til lokunartíma skattstofu. XXX Annars er það mjög til bóta, hvað skattaframtölin hafa verið einfölduð mikið. Búið er að fækka frádráttarliðum verulega og framtalseyðublöðin að öðru leyti svo skýr svo og þær leið- beiningar, sem fylgja, að það er í sjálfu sér til fyrirmyndar. xxx Söngvakeppni sjónvarpsins er ekki merkileg en m.a.o. hvað með þátttöku íslands í klassískri tónlistarkeppni, sem kom til um- ræðu í fyrra, þegar hrakfarir okk- ar í Evrópusöngvakeppninni lágu fyrir? t HÖGNI HREKKVlSI „ HAMN HBFUf? LÍ>CLE<3A UMM)E> l'LOTTÓIMU.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.