Morgunblaðið - 13.02.1990, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1990
39
Morgunblaðið/Sverrir
Hús Rannsóknarlögreglu
ríkisins við Auðbrekku í Kópa-
vogi. A innfelldu myndinni til
vinstri er Bjarnþór Aðalsteins-
son rannsóknarlögreglumað-
ur, trúnaðarmaður starfs-
manna RLR. Til hægri er Bogi
Nilsson rannsóknarlögreglu-
stjóri.
gáfa sem nú hafi verið ákveðið að
taka upp. Hann segir að rannsóknar-
lögréglumenn hafi vitað að þessi
vinna væri í gangi og að þáverandi
trúnaðarmaður lögreglumanna hafi
gengið á sinn fund. í viðræðum
þeirra hafi ekki farið á milli mála
að skilningur beggja væri sá að hér
væri um að ræða stjórnunaratriði
sem alfarið væri í verkahring rann-
sóknarlögreglustjóra. Trúnaðarmað-
urinn hafi óskað eftir að haft yrði
samráð við starfsmenn. Hann hafi
svarað því að starfsmönnum yrði
kynnt niðurstaðan en að í starfi sínu
sem rannsóknarlögreglustjóra fælist
það að taka ákvarðanir um málefni
stofnunarinnar, þar á meðal þessi
mál. „Ég tók þessa ákvörðun að
höfðu samráði við nánustu sam-
starfsmenn mína, en ég ber ábyrgð
á henni og þótt ég leiti til samstarfs-
manna, get ég hvorki afsalað mér
valdi til að taka ákvarðanir né ábyrgð
minni á þeim,“ sagði Bogi Nilsson.
Hann segir að þessum breytingum
þurfi ekki fylgja nein skerðing á kjör-
um lögreglumanna, heldur sé ein-
göngu um tilflutning að ræða í þá
átt að aukavinna sé ekki innbyggð
í varðskrá. Hér sé ekki um að ræða
niðurskurð eða aðlögun að þröngum
ramma fjárlaga enda hafi Rannsókn-
arlögregla ríkisins ekki verið eitt
þeirra embætta þar sem launa-
greiðslur hafi farið fram úr heimild-
um fjárlaga.
15% skerðing- á aukavinnu,
segja lögreglumenn
Bjarnþór Aðalsteinsson. trúnaðar-
maður segir að það skipulag sem
gilt hefur í þessum málum frá 1982
hafi verið sett á í samráði starfs-
manna og þáverandi rannsóknarlög-
reglustjóra. Gefin hefði verið út skrá
yfir bakvaktir og símavaktir sex
mánuði fram í tímann. Það hafi vak-
ið undrun starfsmanna þegar bak-
vaktaskrá fyrir tvo næstu mánuði
hafi verið gefin út í október og þeg-
ar skýringa hafi verið leitað hafi
rannsóknarlögreglustjóri sagt að
skipulagi yrði breytt frá áramótum
án þess að útskýra það nánar. í nóv-
ember hafi ófangreindar breytingar
svo verið kynntar.
Bjarnþór sagði að rannsóknarlög-
regiumenn vefengdu ekki heimild
rannsóknarlögreglustjóra til að gera
þessar breytingar, „en við teljum að
vinnuskipulag varði starfsmenn tals-
vert og við viljum fá að vera þátttak-
endur í breytingum og koma okkar
sjónarmiðum á framfæri enda héld-
um við að þessar stjórnunaraðferðir
heyrðu fortíðinni til; að stjóma með
tilskipunum," sagði hann. Hann seg-
ir lögreglumenn ekki geta sætt sig
við að greiðslur til þeirra vegna út-
kallsvakta séu með þessum hætti
skertar um 58%, sem samsvari 15%
skerðingu heildaryfirvinnu, ekki síst
þegar litið sé til þess að undanfarin
þrjú ár hafí samdráttur í yfírvinnu
starfsmanna orðið 15%. Rannsóknar-
lögreglumenn hafí 59-77 þúsund
krónur í mánaðarlaun og yfírvinna
skipti afkomu þeirra miklu máli.
Aðspurður staðfesti hann að þegar
rætt væri um skerðingu vegna breyt-
inganna væri ekki tekið tillit til þeirra
greiðslna sem kynnu að falla til
vegna útkalla sem bærust milli
klukkan 16 og 19. Hann sagði rann-
sóknarlögreglumenn einnig telja
mikilvægt að þeir sinntu símavörslu
hjá embættinu á þeim tímum sem
nú stæði til að láta vaktmenn húss-
ins um það starf, enda gerðu þeir
lítið annað þegar útköll bærust en
að vísa á þá sem væru á útkalls-
vakt. Reyndin sé sú að talsverðar
annir séu á þessum tíma dagsins, frá
klukkan 16-22, við móttöku kæra
og veita þyrfti ýmis svör og taka ■
ákvarðanir sem ekki væru á færi
vaktmannanna. Hann vísaði til þess
að hjá öðrum lögregluembættum
þætti sjálfgefið að lögreglumenn
sæju um símavörslu.
Eftir að breytt skipulag hafði ver-
ið kynnt leituðu rannsóknarlögreglu-
menn til dómsmálaráðherra og
síðasta vinnudag ársins barst bréf
úr ráðuneytinu þar sem boðin er
frestun á breytingum. Bogi Nilsson
segir að þetta bréf hafí komið sér
mjög á óvart. Hann hafí áður átt
fund með Þorsteini Geirssyni, ráðu-
neytisstjóra, Hjalta Zóphaníassyni,
skrifstofustjóra, og Sigurði Jónssyni,
aðstoðarmanni dómsmálaráðherra,
og farið af fundi þeirra fullviss um
að þama væru á ferðinni hlutir sem
rannsóknarlögreglustjóri bæri einn
ábyrgð á.
Telja ekki skylt að
standa útkallsvaktir
Frá áramótum hefur ráðuneytið
boðað rannsóknarlögreglustjóra og
fulltrúa rannsóknarlögreglumanna
til tveggja funda til að heyra viðhorf
manna. Bogi segir ljóst að ekki hafi
verið um samningafundi að ræða og
sér sé ekki kunnugt um annað en
að afstaða ráðuneytisins sé sú að
þessi ákvörðun sé í verkahring rann-
sóknarlögreglustjóra. Sú ákvörðun
sé óbreytt að nýtt skipulag taki gildi
1. maí og frekari fundir með starfs-
mönnum séu ekki fyrirhugaðir.
Bjarnþór Aðalsteinsson segir rann-
sóknarlögreglumenn hafa mætt til
fundarins í von um að samkomulag
tækist. Á fundi með ráðuneytismönn-
um hafí þeir lagt fram ýmsar mála-
miðlunartillögur sem gera hafi átt
mögulegt að leysa ágreininginn inn-
anhúss „þannig að allir héldu sæmd
sinni“, eins og Bjarnþór orðaði það.
„Á fundinum spurðum við um mark-
mið með þessum breytingum og Bogi
sagði það vera að rjúfa sjálfvirkniy'
aukavinnu og ná fram hagræðingu.
Það kom okkur undarlega fyrir sjón-
ir þar sem nýlega hefur verið samið
um það að yfirlögregluþjónar fái
fasta 80 yfírvinnutíma á mánuði án
tillits til hve miklu þeir skila. Það
teljum við vera sjálfvirkni."
Bjarnþór segir rannsóknarlög-
reglumenn enn binda vonir við að
breytingar þessar nái ekki fram að
ganga. Hins vegar hafí endanlegar
ákvarðanir ekki verið teknar um við-
brögð þeirra. Þó hafi þeir leitað álits
hjá lögfræðingi sem telji þeim ekki
skylt að standa útkallsvaktirnar þar
sem skylda til þess felist ekki í skyldu
rikisstarfsmanna til að vinna yfír-
vinnu sem ákveðið hlutfall af dag-
vinnutíma.
í viðræðum við Morgunblaðið
höfnuðu Bogi Nilsson og Bjarnþór
Aðalsteinsson því báðir sem haldið
hefur verið fram í fréttum DV og
Stöðvar 2 af deilum innan stofnunar-
innar að þær hafí spillt árangri af
rannsóknum brotamála. Þá segist
Bogi Nilsson ekki hafa heyrt það
annárs staðar en í fyrrgreindum fjöl-
miðlum að deilumar snúist að veru-
legu leyti um stjórnunaraðferðir hans
og persónu. Slíkt hafi ekki verið sett
fram í viðræðum hans við rannsókn-
arlögreglumenn. Bjarnþór segir að
rannsóknarlögreglumenn hafí orðið
fyrir vonbrigðum með afstöðu rann-
sóknarlögreglustjóra. „Við erum
mjög undrandi á einstrengingslegri
afstöðu Boga Nilssonar því við töld-
um unnt að leysa þetta mál á frið-
samlegan hátt innanhúss eins og
annan þann ágreining sem hér hefur
komið upp í gegnum tíðina." Bjarn-
þór segir starfsanda hafa hrakað en
segir þá staðreynd ekki hafa rýrt
árangur rannsókna.
Skipulag endurskoðist
gefistþað illa
Bogi Nilsson hefur lagt áherslu á
að nýtt starfsskipulag hafí verið
ákveðið að höfðu nánu samráði við
nánustu samstarfsmenn hans. Undir
það tóku Þórir Oddsson, vararann-
sóknarlögreglustjóri, og Helgi Daní-
elsson, yfirlögregluþjónn. Þeir segj-
ast báðir fylgjandi því að breyting-
amar taki gildi en segja að ekki sé
verið að binda hendur manna til
frambúðar, gefist nýtt kerfí illa megi
taka það til endurskoðunar. „Ég tel
þetta vera spor í rétta átt til að auka
hagræðingu í rekstri stofnunarinn-
ar,“ sagði Þórir Oddsson. „Stjómend-
ur þessarar stofnunar þurfa líkt og
stjórnendur annarra fyrirtækja og
stofnana að leita leiða til að nýta sem
best það fé sem menn hafa úr að
spila.“ Hann sagði að líkt og aðrar
breytingar yrðu þessar sjálfsagt
teknar til skoðunar þegar reynsla
væiý af þeim fengin.
„Ég veit ekki til að neinn geti
dregið í efa vald rannsóknarlögreglu-
stjóra til að taka þessa ákvörðun,"
sagði Helgi Daníelsson yfirlögreglu-
þjónn hjá RLR. „Það er alls ekki
verið að draga úr vinnu hér, en þetta
er stjórnunaratriði sem horfir til ha-
græðingar. Það hlýtur að vera eðli-
legt að aukavinnu sé skilað á þeim
tíma sem hennar er mest þörf og
það er verið að breyta áherslum en
ekki rýra kjör. Menn hafa að sjálf-
sögðu leyfi til að vera ósammála en
einhver verður að taka ákvarðanir
og það er mat stjómenda hér að það
sé þess virði að gera þessa tilraun
sem ég tel að muni skila betra og
skilvirkara starfi en verið hefur. En
hér er ekki verið að setja á fót eitt-
hvert óumbreytanlegt kerfi sem gilda
á um alla framtíð án tillits til þess
hvernig það reynist,“ sagði Helgi
Daníelsson.
HLJÓÐKÚTAR
FRÁ USA
NÝ SENDING I
FLESTAR GERÐIR
AMERlSKRA BÍLA
Einnig
TURBO-KÚTAR
með -2"- 22 XA"
stútum
Gæðavara - gott verð
Opið laugardaga kl. 10-13.
Póstsendum
Bílavörubúóin
FJÖDRIN
Skeifan 2 simi 82944
Loftpressur
margar gerðir
Hagstætt verð
Olíufélagið hf
681100
Hvaðer
Armaflex
Það er heimsviðurkennd
pípueinangrun í hólkum,
plötum og límrúllum frá
(A)rnstrong
& Ávallt tilá lager.
Þ. ÞORGRÍMSSON &C0
Ármúla 29 - Múlatorgi - Sími 38640
Fjármálaráðuneytið:
Bréfið var sent þing-
mönnum fyrir mistök
Fjármálaráðuneytið hefúr sent alþingismönnum afsökunarbeiðni
vegna bréfs sem ráðuneytið sendi þeim og greindi firá því að í sam-
ræmi við heimildir í fjárlögum til kaupa á dagblöðum fyrir stofnan-
ir ríkisins og skóla, sjúkraús og aðrar þjónustustofnanir ríkisins,
hefði ráðuneytið óskað þess að eitt eintak yrði sent „stofnun" þeirra
til afnota.
Eftir að hafa borist umrætt bréf
fjármálaráðuneytisins sendi Geir
H. Haarde alþingismaður ráðuneyt-
inu svar, þar sem hann upplýsti að
á heimili hans, þangað sem erindið
var sent, sé ekki starfrækt nein af
„stofnunum ríkisins" og að hann
telji ráðuneytinu algerlega óheimilt
að ráðstafa áskriftum að dagblöð-
um samkvæmt heimildum í fjárlög-
um til alþingismanna eða annarra
einstaklinga með þeim hætti sem
ráðgert sé í bréfinu. Hann bendir
ennfremur á að Alþingi greiði þegar
áskriftir að dagblöðum fyrir al-
þingismenn, og biðjist „stofnun
hans“ undan frekari biaðakosti á
kostnað almennings.
Að sögn Marðar Árnasonar, upp-
lysingafulltrúa í fjármálaráðuneyt-
inu, hefur ráðuneytið sent öllum
þingmönnum bréf þar sem skýrt
er fyrir þeim að umrætt bréf hafi
verið sent þeim vegna mistaka og
þeir beðnir afsökunar á því.
„Um áskriftir að dagblöðum til
þingmanna gilda nákvæmlega
sömu reglur og áður, en þeir fá
hver um sig sent eitt eintak af
hverju dagblaði í landinu á kostnað
ríkissjóðs. Fjármálaráðuneytið
harmar að vegna handvammar þar
innanhúss hafi þingmenn verið
truflaðir með þéssu bréfi, sem aug-
ljóslega á ekkert við þá,“ sagði
Mörður.
BÍLSKÚRSHURÐIR
Við smíðum allar gerðir af bílskúrslmrðum,
þ. á m. hinar hentugu felli-
hurðir. Þær henta sér-
staklega vel þar sem nota
á sjálfvirkan opnara og
hætt er við að snjór setjist
að hurðum.
Sýningarhurð á staðnum.
fSLENSKT GLUGGA-
OG HUROAEFTIRLIT
TRÉSMIDJA
BJÖRNS ÓLAFSSONAR hf.
V/REYKJANESBRAUT, HAFNARFIRÐI.
SlMAR. 54444, 54495
ÁRATUGA REYNSLA í HURÐASMÍÐI