Morgunblaðið - 13.02.1990, Síða 40

Morgunblaðið - 13.02.1990, Síða 40
Samningur Stéttarfélags verkfræðinga: Getur ekki orð- ið með friði - segir Þórarinn V. Þórarinsson ALÞYÐUSAMBAND íslands og Vinnuveitendasambands íslands hyggj- ast ekki taka með þögninni samningi Stéttarfélags verkfræðinga við vinnuveitendur sína, Félag ráðgjafarverkfræðinga, sem undirritaður var 29. janúar síðastliðinn. Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmda- stjóri VSÍ sagði að það myndi ekki gerast með friði að verkfræðingar eða einhverjir aðrir hópar, sem seldu þjónustu sína, ákvæðu sér aðra launaþróun en almennt gerðist og sendu reikninginn fyrir henni út í þjóðfélagið. „Um það verður ekki friður, hvorki af hálfu atvinnurek- enda né launþegasamtakanna," sagði Þórarinn. Stéttarfélag verk- fræðinga samþykkti samninginn ^ekki að fá staðfestar upplýsingar Félag ráðgjafarverkfræðinga er ekki í Vinnuveitendasambandinu. Pétur Stefánsson, formaður félags- ins, sagði í samtali við blaðið að þar sem samningurinn við Stéttarfélag verkfræðinga hefði verið gerður á undan „stóra samningnum" væri hann ef til vill ekki í fullu samræmi við síðamefnda samninginn. „Við lentum í því að semja á undan þeim og gátum ekki séð það fyrir í smá- atriðum hvernig samningur yrði _^erður. Okkar samningur er til skamms tíma, gildir aðeins til 31. júlí,“ sagði Pétur. „Athygli okkar hefur verið vakin á því að verkfræðingar kunni að hafa gert samning, sem sé ekki í samræmi við þá almennu niðurstöðu, sem orðið hefur en við höfum ekki haft af því sannar spurnir ennþá,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. „Það er ljóst að við fömm ekki fram gagnvart í gærkvöldi. Morgunblaðinu tókst um efiiisatriði hans. láglaunahópunum í þessu landi með ósk og boðskap um það að okkur vegni öllum í sameiningu betur ef við sættum okkur við mjög lága prósentuhækkun launa, ef hálauna- hóparnir eiga að ákvarða sér ein- hveija allt aðra launaþróun." Hann sagði að efni og forsendur ASÍ-samninganna hefðu legið fyrir síðustu vikur janúarmánaðar. „Það mega bæði hafa verið blindir menn og heymarlausir, sem ekki tóku eft- ir hvað var þar að gerast. Það er sama hveijar dagsetningar á pappír- um eru, það breytir engu í þessu efni,“ sagði Þórarinn. Ari Skúlason, hagfræðingur ASÍ, sagði að Alþýðusambandsmönnum hefði borizt til eyrna að hækkanir í samningum verkfræðinga væra miklu meiri en í ASÍ-samningunum. Hann sagði að málið yrði hugsanlega til umræðu á miðstjórnarfundi ASÍ, sem verður haldinn á morgun. Morgunblaðið/Sigurgeir Stúlkur í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja við loðnufrystingu í gærmorgun. Vestmannaeyjar; Loðnuft*ystinaf hafin Vestmannaeyjum. ^ LOÐNUVEIÐAR hafa gengið vel síðustu dagana og hefúr verið landað stíft í Eyjum meðan pláss hefúr verið hjá fiskimjölsverk- smiðjunum. I gærmorgun barst fyrsta frystingarhæfa loðnan á þessari vertíð til Eyja og hófst þá loðnufrysting í öllum fjórum frystihúsunum sem ætla að frysta á þessari vertíð. Kap VE kom í gærmorgun með Að sögn loðnusjómanna er 450 tonn af loðnu, sem þeir fengu loðnan frekar smá og útlitið því austan við Portlandið. Loðnan var frekar smá og mikið úrkast úr henni í vinnslunni. frekar dapurt með frystingu á stórri loðnu. Nú er búið að gera sölusamning á 500 tonnum af loðnu í smærri flokki og 2.000 tonnum af stærri loðnu og líkur til að hægt sé að selja meira magn af stóra loðnunni. Frá áramótum hefur verið land- að 48.500 tonnum af loðnu í Eyj- um, 20.000 tonnum í FES og 28.500 tonnum í FIVE. Grímur Tveirsigrar á Rúmenum íslendingar sigraðu Rúmena tvívegis í vináttulandsleikjum í handknattleik í Laugardalshöll, 24:20 á sunnudagskvöldið og 23:20 í gærkvöld. Hér er Jakob Sigurðsson kominn í gegnum rúmensku vörnina og í þann mund að gera eitt af þremur mörkum sínum í leiknum í gær. í miðopnu íþróttabiaðsins í dag er viðtal við einn frægasta handknattleiksmann Rúmeníu, Vasile Stinga, þar sem hann lýsir ástandinu í Rúmeníu, fyrir og eftir byltinguna. Þar kemur m.a. fram að fyrir nokkrum árum var hann látinn sitja heima, er landsliðið fór í keppn- isferð vestur fyrir járntjald, vegna þess að stjórnvöld töldu sig hafa hlerað að hann hygðist flýja land. Afaám sóknarmarksins: Eyjaflotimi verður af 10.000 tonna afla af ýsu og ufsa - verðmæti hans miðað við heimalöndun allt að 400 milljónir króna, segir Hilmar Rósmundsson, formaður Útvegsbændafélags Vestmannaeyja NIÐURFELLING sóknarmarks eins og ráð er fyrir gert í drögum að frumvarpi til laga um stjórnun fiskveiða, skerðir verulega möguleika margra útgerða hvað varðar veiðar á ýsu og ufsa, sem eru án takmark- ana í sóknarmarkinu. Hilmar Rósmundsson, formaður Utvegsbændafé-, lags Vestmannaeyja, segir að Eyjamenn reikni með að tapa 8.000 til 10.000 tonna afla vegna þessa og muni vafalaust einhveijir fara á hausinn í kjölfarið. Aætlað verðmæti þessa afla upp úr sjó til heima- löndunar er 300 til 400 milljónir króna. Samkvæmt þeim reglum, sem nú gilda um veiðar samkvæmt sóknar- marki, eru aðeins takmarkanir á afla af þorski, karfa og grálúðu en veiðar á ufsa og ýsu era án annarra takmarkana en þeirra sem er leyfi- legur dagafjöldi á sjó. Ýsu- og ufsa- afli hjá togurum Vestmanneyinga hefur verið töluverður, milli 4.000 og 5.000 tonn, og að mestu komið til vinnslu heima. Þá hefur bátaflot- inn skilað miklu af þessum tegund- um á land og til útflutnings, en um 57% Eyjaflotans era á sóknarmarki á móti um 33% sé miðað við landið allt. Um þessar mundir eru greiddar um og yfir 30 krónur fyrir hvert kíló af ufsa og allt að 50 krónur fyrir ýsuna. Samkvæmt því er verð- mæti þess afla, sem Eyjamenn telja sig missa 320 til 400 milljónir króna og er þá miðað við heimalöndun. Hilmar Rósmundsson segir menn í Eyjum ákaflega óhressa með þá stefnu, sem tekin sé i frumvarps- drögunum. Þar sé reyndar að litlu leyti gert ráð fyrir einhverri afla- reynslu, en við úthlutun aflamarks tjl núverandi sóknarmarksskipa verði að venju miðað við eitthvert meðaltal fyrir hvern og einn skipa- flokk og skerði það hlut Eyjaflotans veralega. „Ráðamenn bæjarins, fisk- verkafólk auk sjómanna og útgerð- armanna hljóta að grípa til einhvers andófs vegna þessa," segir Hilmar. „Það tapast afli sem nemur ársvinnu í frystihúsi af stærra taginu og við það una menn tæpast. Það eru held- ur engin fiskifræðileg rök, sem rétt- læta þessa aflaskerðingu. Nú leggja fiskifræðingarnir til óbreyttan afla af ýsu og 10.000 tonna viðbót af ufsanum. Það bendir tæpast til að þessar fiskitegundir séu taldar í hættu. Samtog rekur þijá togara og reiknar með að tapa um 2.500 tonn- um. Bergur-Huginn missir líklega af um 2.000 tonnum og þá er allur bátaflotinn eftir. Þetta bitnar mest á þeim, sem hafa á síðustu árum verið að kaupa báta, bæði nýja og gamla, og ætlað sér að vinna innan sóknarmarksins með áherzlu á veið- ar á þessum tegundum. Ákvörðun þeirra hefur byggzt á þessum mögu- leika, sem nú er að engu gerður og kippir það fótunum gjörsamlega undan rekstrinum. Það fara vafa- laust einhveijir á hausinn vegna þessa," segir Hilmar Rósmundsson. Bankamenn með verk- fallsheimild STJÓRN Sambands íslenzkra bankamanna hefur fengið heimild til verkfallsboðunar. Heimildin var samþykkt í gær a fundi formanna aðildarfélaga SÍB, stjórnar og samninganefndar sambandsins. Sleipnismenn felldu SAMNINGAR, sem tókust í gærmorgun í kjaradeilu Sleipnis, félags langferðabílsljóra, og viðsemjenda þeirra eftir næturlangan firnd hjá ríkissáttasemjara, voru felldir á félagsfúndi í gærkvöldi. 33 voru á móti, en 15 með. Landleiðabílstjórar samþykktu hins vegar samning- inn fyrir sitt leyti; sjö voru honum fylgjandi en fimm greiddu atkvæði á móti. Á fúndinum var jafnframt ákveðið að afboða verkfall að sinni. Samningurinn, sem Sleipnismenn felldu, er samhljóða þeim samningi sem Alþýðusamband íslands gerði við vinnuveitendur fyrir tíu dögum. Auk þess fylgja honum tvær yfirlýs- ingar, annars vegar um að vinnuveit- endur muni gera sitt til að ekki verði höfðuð skaðabótamál á hendur fé- laginu vegna aðgerða í verkfallinu og hins vegar um stofun sérdeildar Landleiðabílstjóra innan félagsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.