Morgunblaðið - 22.02.1990, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.02.1990, Blaðsíða 34
ii6ÍR!G&Mi!ÁSfe) íáíffiúE' h9iSéiWíi[ iiféö' 34 t Faðir okkar, EINAR GESTSSON, Norðurkoti, Miðnesi, lést í Sjúkrahúsi Keflavíkur 20. þ.m. Útförin auglýst síðar. Margrét Einarsdóttir, Gestur Einarsson. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, sonur og bróðir, MAGNÚS FRIÐRIK ÓSKARSSON, lést 18. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Magnús Jón Magnússon, Guðrún S. Guðmundsdóttir, Héðinn Magnússon, Óskar Jacobsen, Hafþór Magnússon, Guðrún Magnúsdóttir og systkini. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRG EINARSDÓTTIR frá Hafranesi, síðasttil heimilisá Hrafnistu, Reykjavík, lést miðvikudaginn 21. febrúar í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði. Guðný Jensdóttir Brennan, Helga Jensdóttir, Rafn Jensson, Einar V. Jensson, Sigurður Jensson, Guðbjörn Jensson, Óskar Halldórsson, Lúísa Bjarnadóttir, Edda Hjaltested, Martýna Jensson, Guðrún Pálsdóttir, Valfriður Jensdóttir Powers, Philip Powers, barnabörn og barnabarnabörn. Pétur Pétursson, Malarrifí - Minning Fæddur 22. febrúar 1916 Dáinn 13. desember 1989 Bibbi, eins og hann var oftast kallaður af vinum og kunningjum, andaðist á heimili sínu 13. desem- ber síðastliðinn. Varð hann bráð- kvaddur. Bibbi var fæddur og upp- alinn á Malarrifi og hóf búskap árið 1952. Hann tók við búi og vita- varðarstöðu af föður sínum. Systk- inin voru 5 og eru tvö þeirra á lífi. Öll voru þau mesta myndar- og dugnaðarfólk. Bibbi var ókvæntur er hann hóf búskap á Malarrifi en giftist Huldísi Ingadóttur. Hún átti þijú börn frá fyrra hjónabandi og var Bibbi þeim sem hinn besti fað- ir. Bibbi og Huldís eignuðust soninn Pétur. Hann tók við búi og vitavarð- arstöðu á Malarrifi fyrir þremur árum. Kona hans er Lovísa Sævars- dóttir frá Ólafsvík. Eiga þau tvö böm, Pétur og Selmu. Bibbi, sem hér er minnst, var jarðaður frá Hellnakirkju 18. des- ember að viðstöddu fjölmenni. Sr. Rögnvaldur Finnbogason jarðsöng. Allan sinn búskap á Malarrifi var hann jafnframt vitavörður og rækti það starf af mikilli trúmennsku og skyldurækni, eins og reyndar öll þau störf sem hann innti af hendi. Hann var snyrtimenni í hvívetna og velvirkur svo af bar. Mikill dýra- vinur var hann og lét sér mjög annt um líðan þeirra, en hann hafði kýr, kindur og hesta. Ég var forða- gæslumaður alla hans búskapartíð og kynntist snyrtimennsku hans vel t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR SIGURJÓNSSON, Austurbrún 25, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 23. febrúar kl. 13.30. Guðrún Pétursdóttir, Ingibjörg Ólafsdóttir Wilson, Perry G. Wilson, Sigurjón Á. Ólafsson, Hildur Sigurðardóttir, Hafdís Ólafsdóttir, Guðjón Guðnason, Theódóra Ólafsdóttir, Þórir Ingvarsson, Óli Rúnar Ólafsson og barnabörn. t Minningarathöfn um móður okkar, MARÍU ÞÓRUNNI FRIÐRIKSDÓTTUR frá Súgandafirði, fer fram í Fossvogskapellu, föstudaginn 23. febrúar, kl. 10.30. Börn hinnar látnu. t Útför móður minnar og ömmu, RÓSU KEMP KONRÁÐSDÓTTUR, verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 22. febrúar kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda. Ida Jensen, Rósa ísaksdóttir. t Móðir okkar, SIGRÍÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR, Eikjuvogi 8, verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn 23. febrúar kl. 1 5.00. Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, Björg Sveinbjörnsdóttir Dranitzke. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, MAGNÚS ÞÓR MEKKINÓSSON kaupmaður Melási 12, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. febrúar kl. 15.00. Guðrún Sigurðardóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNÍNU ÞORBJARGAR GUNNARSDÓTTUR, verður gerð frá Hafnarfjarðarkapellu föstudaginn 23. febrúar kl. 15.00. Gunnar Þorbergsson, Sigurjón Þorbergsson, Þórunn Gunnþórsdóttir, Bragi Þorbergsson, Edda Þráinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför móðir minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐBJÖRGU BJÖRNSDÓTTUR, Suðurgötu 25, Sandgerði, er lést 13. þ.m. verður gerð frá Hvalsneskirkju laugardaginn 24. feþrúar kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna. Haraldur Sveinsson, Sigurbjörg Guðmundsdóttir. t Bálför föður okkar og bróður, GÚSTAFS SKÚLASONAR, Aðalgötu 4, Keflavík, fer fram í Fossvogskapellu í dag, fimmtudaginn 22. febrúar, kl. 15.00. Michiko Gústafsdóttir, Silvía Gústafsdóttir, Willem Metzelaar, John Metzelaar. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, sonur og bróðir, VALGEIR KRISTÓFER HAUKSSON, Spóarima 15, Selfossi, verður jarðsunginn laugardaginn 24. febrúar kl. 13.30 frá Selfoss- kirkju. Sigríður Herdfs Leósdóttir, Haukur Kristófersson, Katrín Ingibjörg Kristófersdóttir, Leó Kristófersson, Brynja Gunnarsdóttir, Haildóra Jónsdóttir, Haukur Kristófersson, Margrét Hauksdóttir, Bragi Kr. Guðmundsson, Guðrún Helga, Jóhannes Bjarni. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall mannsins míns, bróður, föður, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR MAGNÚSSONAR. Sérstakar þakkir færum við þeim sem veittu honum umönnun í langvarandi veikindum. Guð blessi ykkur öll. Svava Bernaharðsdóttir, Unnur Magnúsdóttir, Bernharður Guðmundsson, Rannveig Sigurbjörnsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Eyvindur Eiriksson, Kristján Guðmundsson, Margrét Hjaltadóttir, Þórhallur Guðmundsson, Herdis Pálsdóttir og barnabörn. er ég kom í gripahús hans. Um- hyggja hans fyrir annarra skepnum var einstök. Austan við Malarrif er vík við sjóinn sem heitir Flæðivík. í þessa vík sótti sauðfé mjög því þar var oft þari og söl og auðvelt fyrir fénaðinn að komast niður í víkina, en veigraði sér við að fara upp aftur. Var þarna hætta á að fé myndi fara í sjóinn. Lagði hann sig fram við að fylgjast með ferðum kindanna og skipti ekki máli hver átti þær og hvort heldur það var á nóttu sem degi. Þær kindur eru ótaldar sem hann bjargaði úr Flæðivíkinni. Hann taldi ekki eftir sér sporin og gladdist jafnan þegar vel tókst tii við björgunina. Bibbi ljómaði af gleði þegar ég ræddi við hann um skepnurnar. Þær voru hans líf og yndi. Ég gerði mikið af því að hjálpa skepnum í sveitinni í veikindatilfellum. Oft fór ég til Bibba í þeim erindum. Tók hann mér ætíð tveim höndum og var mér mjög þakklátur. Alltaf var gott að koma á heimili þeirra hjóna. Huldís og Bibbi voru mjög gestrisin og glaðvær, enda mikill gestagang- ur á heimilinu. Yfir því var reisn. Þau voru vakandi yfir öllu sem laut að störfunum á heimili sínu. Ætíð reiðubúin að hjálpa öðrum og gera greiða. Voru fljót til ef nágrannar áttu í erfiðleikum. Heimili þeirra stóð öllum opið hvort heldur var á degi eða nóttu. Það var mikið áfall fyrir Bibba er Huldís féll frá árið 1986. Hún var sólskinið í lífi hans og þau studdu hvort annað. Bibbi starfaði með mér í sóknar- nefnd í 27 ár og var í nefndinni er hann lést. Það var ánægjulegt að starfa með honum. Hann lagði jafn- an gott til málanna og var mjög samstarfsgóður og unni kirkjunni sinni af alhug. Aldrei bar nokkurn skugga á samstarfið. Mörg seinustu árin héldum við sóknarnefndarfundi á Malarrifi, en Bibbi átti erfitt vegna sjúkleika að koma til mín á þá fundi. Alltaf tók hann okkur vel með gleðibros á vör. Hann átti lengi við vanheilsu að stríða, en aldrei kvartaði hann né æðraðist. Ég kom til hans daginn áður en hann lést. Var hann þá sem endranær glaður og það hvarflaði ekki að mér að þetta yrði í síðasta skipti sem ég sæi hann lifandi. En dauðinn gerir oft ekki boð á undan sér. Það er táknrænt fyrir hann að hans síðustu spor lágu út í fjárhúsin til að hlynna að skepnunum, þegar kallið kom, skepnunum sem hann hafði allt sitt líf sinnt með svo mikilli gleði. Nú er minn góði vinur Bibbi horf- inn sjónum okkar til sóllanda. Ég þakka honum langa og elskulega samleið í þessum heimi og lofa Guð fyrir að hafa átt hann að nágranna og vini. Eins og vitinn á Malarrifi, sem Bibbi gætti svo skynsamlega og lýsir sjófarendum eins mun ljósrík minningin um Bibba ylja mér og vinum hans öllum og vanda- mönnum allt til æviloka. Ég bið Guð að blessa og styrkja Pétur son hans og fjölskyldu á Malarrifi, svo og systkini hans og aðra aðstandendur. Guð blessi minninguna um góðan dreng. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Finnbogi G. Lárusson, Laugarbrekku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.