Morgunblaðið - 22.02.1990, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.02.1990, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR Í990 ATVIN N MMAUGL YSINGAR Fóstrur/ aðstoðarfólk Dagheimilið Brekkukot við Landakotsspítala óskar að ráða fóstru eða aðstoðarfólk nú þegar. Á dagheimilinu eru 17 börn á aldrinum 2ja-6 ára. Athugið, breytilegur vinnutími. Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 604359. Innheimtumaður Óskum eftir harðduglegum, liprum og já- kvæðum starfskrafti til að annast innheimtu og skuldbreytingar vanskilakrafna. Umsækj- andi þarf að hafa bifreið til afnota og geta unnið jafnt úti á landsbyggðinni sem í Reykjavík. Laun eru miðuð við afköst. Umsóknareyðublöð liggja frammi á auglýs- ingadeild Mbl. og skal skilað þangað hand- skrifuðum fyrir 25. þ.m. merkt: „K-100%“. Starfskraftur óskast í sal og uppvask. Vaktavinna. Upplýsingar aðeins gefnar á staðnum, ekki í síma, milli kl. 13.00 og 15.00 virka daga. Hallarmúla. Staða læknafulltrúa við Heilsugæslustöðina í Hveragerði er laus til umsóknar. Um er að ræða hálft starf. Góð vélritunarkunnátta áskilin. Stúdentspróf eða próf af heilsugæslubraut er æskileg. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur og menntun, sendist formanni Heilsugæslu- stöðvar Hveragerðis, pósthólf 110, 810 Hveragerði, fyrir 1. mars 1990. Stjórnin. KURANT Sölustörf Óskum eftir dugmiklu fólki með jákvæð lífsviðhorf til að markaðssetja nauðsynlega vöru inn á heimilin í landinu. Laun skv. afköstum. Upplýsingar í síma 688872. RADGJOF OG FAÐNINGAR Móttaka/afgreiðsla Forvarna- og endurhæfingarstöð Við leitum nú að nokkrum einstaklingum í móttöku og afgreiðslu hjá nýrri forvarna- og endurhæfingarstöð. Um er að ræða vakta- vinnu í eftirmiðdag og á kvöldin. Æskilegur aldur 25 til 40 ára. Upplýsingar veitir Einar Páll Svavarsson hjá ráðningaþjónustu Ábendis. Ábendi, Engjateigi 9, sími 689099. Opiðfrákl. 9.00-16.00. Starfsmaður óskast Léttur saumaskapur og umsjón með líni og fatnaði. Vinnutími frá kl. 8.00 til 16.00. Upplýsingar í síma 688500. HS AUGL YSINGAR HÚSNÆÐIÓSKAST Laugavegur Verslunarhúsnæði ca 50-100 fm óskast til leigu eða kaups nú þegar. Upplýsingar í síma 82930 milli kl. 9.00 og 12.00 næstu daga. Rif, Snæfellsnesi 127 fm einbýlishús til sölu. Upplýsingar gefur Haukur í síma 91-25099, og á kvöldin í síma 46607. TILBOÐ - ÚTBOÐ m* Veiðihús Stangaveiðifélag Reykjavíkur hyggst láta reisa 40-50 fm veiðihús fyrir komandi veiði- tímabil. Tilboð ásamt hugmyndum um útlit og fyrir- komulag sendist skrifstofu SVFR á Háaleitis- braut 68, 103 Reykjavík. Stanga veiðifélag Reykja víkur. FUNDIR - MANNFA GNAÐUR Aðalfundur íþróttafélags Reykjavíkur verður haldinn mið- vikudaginn 28. febrúar 1990 kl. 20.00 í safn- aðarheimili Seljasóknar. Stjórnin. Hafnflrðingar TILKYNNINGAR Aðalfundur Styrktarfélags aldraðra í Hafnar- firði verður haldinn fimmtudaginn 1. mars nk. kl. 14.00 í íþróttahúsinu við Strandgötu. Ræðumaður kvöldsins verður Pálmi Jónsson, læknir. Stjórnin. Verkstjórar - verkstjórar Félagsfundur um samningana verður haldinn í félagsheimili verkstjóra í Skipholti 3, fimmtudaginn 22. febrúar kl. 20.00. Stjórn Verkstjórafélags Reykjavíkur. FLUGMÁLASTJÓRN Flugmenn - flugáhugamenn Fundur um flugöryggismál verður haldinn í kvöld í ráðstefnusal Hótels Loftleiða og hefst hann kl. 20. Trúnaðarlæknar flugmálastjórnar verða með fræðsluefni: - Sjón og flug - Forvarnarannsóknir og hjartasjúkdómar - Kvikmyndasýning Allir velkomnir. Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík, Flugmálanefnd íslands, Flugmálastjórn, Öryggisnefnd F.I.A. TILKYNNINGAR Orðsending til bænda á fjárskiptasvæðinu Þeir bændur sem eiga rétt á að taka upp sauðfjárhald að nýju haustið 1990 eftir samn- ingsbundið fjárleysi, þurfa að leggja inn skrif- lega pöntun á líflömbum fyrir 15. mars nk. Aðeins þeir bændur koma til greiria sem lokið hafa fullnaðar sótthreinsun á húsum og umhverfi. Sauðfjársjúkdómanefnd ákveður hvaðan líffé verður tekið. Reykjavík, 19 febrúar 1990. Sauðfjárveikivarnir, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík. LÖGTÖK Lögtök Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að und- angengnum úrskurði verða lögtök látin fram fara án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en á ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftir- töldum gjöldum: Söluskatti fyrir nóvember og desember 1989, svo og söluskattshækkunum álögðum 21. desember 1989 til 20. febrúar 1990, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vinnueftir- litsgjaldi, launaskatti, bifreiðagjöldum og þungaskatti, skemmtanaskatti, skipulags- gjaldi, aðflutningsgjöldum, vitagjaldi, skipa- skoðunargjaldi, lestagjaldi, iðgjöldum til at- vinnuleysistryggingasjóðs af lögskráðum sjó- mönnum, ásamt lögskráningargjöldum. Reykjavík 20. febrúar 1990. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.