Morgunblaðið - 22.02.1990, Side 43

Morgunblaðið - 22.02.1990, Side 43
43-~ MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1990 ■ JÚGÓSLA VAR núverandi heimsmeistarar í handknattleik, sem eru með íslendingum í riðli í HM í Tékkóslóvakíu, mættu Ung- verjum í tveimur vináttuleikjum um síðustu helgi. Báðum leikjunum lauk með jafntefli: Þeim fyrri 23:23 á laugardagskvöld í Júgóslavíu, en síðan skelltu liðin sér yfir landa- mærin og mættust aftur á sunnu- deginum í Ungveijalandi. Þá var heldur minna skorað; úrslitin urðu 14:14. ■ VESELIN Vujovic, stórskytt- an frábæra og besti leikmaður Júgóslava meiddist í fyrri leiknum gegn Ungverjum. Tognaði illa á fæti. Leikmaðurinn hefur ekki æft síðan og vafasamt er hvort hann verður með Júgóslavíu í leiknum gegn Spáni, á fyrsta degi HM, á miðvikudag eftir tæpa viku. Veselin Vujovic. ■ VUJOVIC, sem hefur leikið frá- bærlega með félagi sínu Barcelona á Spáni í vetur, ætti þó, skv. upplýs- ingum sem Morgunblaðið aflaði sér í Júgóslavíu í gær, að verða tilbú- inn til leiks þegar Júgóslavar leika gegn íslendingum í riðlakeppni HM — viðureign liðanna fer fram laugardaginn 3. mars. ■ MÍLE Isakovic, hornamaður- inn snjalli, lék í hvorugt skiptið gegn Ungvetjum. Hann var að spila bikarleik með liði sínu í Frakklandi. ■ JÚGÓSLA VAR léku síðan í fyrrakvöld gegn liði Austurríkis- manna og sigruðu 28:20. Þjóðimar áttu að mætast aftur í gærkvöldi, og var það síðasti undirbúningsleik- ur heimsmeistaranna fyrir HM. ■ EINAR Þorvarðarson er far- inn að æfa á fullu með landsliðinu á ný. Hann fékk nýmasteinakast á dögunum sem kunnugt er. Félagar hans tóku á móti Einari með því að uppnefna hann. Markvörðurinn er nú helst ekki kallaður annað en Steinar! HANDKNATTLEIKUR Norsku meistaram- ir bera víumar í Gunnar Einarsson Gunnar Einarsson. Forráðamenn Stavanger 1F, sem varð norskur meistari í handknattleik á dögunum, liafa áhuga á því að fá Gunnar Einars- son, þjálfara Stjömunnar, til að taka að sér þjálfun liðsins fyrir næsta keppnistímabil. Gunnar tel- ur liins vegar engar líkur á því að hann fari utan. „Ég lét að því liggja að svar mitt yrði sennilega nei,“ sagði Gunnar um það er forráðamenn norska liðsins höfðu samband við hann. „Ég sagði að ég gæti ekki svarað þeim á þeirri stundu, þeir ætluðu að hafa samband við mig aftur eftir viku, en sá tími er reyndar liðinn,“ sagði Gunnar í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann lék á sínum tíma í V-Þýskalandi um fimm ára skeið og var síðan hjá Fredensborg SKI í Noregi í þtjú ár, fvrst sem leik- maður og síðan þjálfari, og varð liðið bikarmeistari undir hans stjóm. Norsku deildarkeppninni í vetur er nýlokið. Þjálfari Stavanger IF var Júgóslavi, en hann er hættur. Fingur á vinstrí hendi Alfreðs úr lið ALFREÐ Gíslason varð fyrir því óhappi á landsliðsæfingu í gærmorgun að vísifingur vinstri handar fór úr lið. Eftir meðferð á slysavarðstofu tók Alfreð þátt í síðari æfing- unni í gær, en Iék þó ekki með. „Þetta var bara þrekæfing fyrir mig, hlaup og læti,“ sagði hann í gærkvöldi. Alfreð sagði enn ekki ljóst hvort hann yrði með í leikjunum gegn Hollandi, sem fram fara á morgun og laugardag, „en ég vonast þó til að geta spilað seinni leikinn," sagði hann. Alfreð Gíslason. HANDKNATTLEIKUR Ufárn FOLK ■ GREG Foster, grindahlaupari frá Bandarikjunum, sigraði heims- meistarann Roger Kingdom í 60 metra hlaupi á fijálsíþróttamóti í San Sebastian á Spáni á þriðju- dagskvöld. Þetta var í þriðja sinn á tæpum mánuði sem Foster sigrar Kingdom. Foster hljóp á 7,47 sek en Kingdom á 7,54 sek. Danny Harris átti góðan endasprett er hann sigraði í 400 metra hlaupi á 45,89 sek. ■ AUSTUR-þýska knattspyrnu- liðið Dynamo Berlín hefur skipt um nafn og heitir héðan í frá FC Berlín. Öryggislögreglan, Stasi, stóð á bak við liðið meðan hún var og hét. Með þessu breytta nafni vilja stjórnarmenn sýna að liðið er ekki lengur háð öryggislögreglunni og peningarnir komi annarstaðar frá. Liðið hefur tíu sinnum orðið deildarmeistari, síðast 1988. Deild- arkeppnin hefst aftur eftir vetrar- fríið á laugardaginn og þá verður hið nýja lið, FC Berlín, í nýjum alhvítum búningum, en áður hefur liðið leikið í fjólubláum búningum. í kvöld TVEIR leikir verða í úrvals- deildinni í körfuknattleik í kvöld. ÍBK og Reynir eigast við í Keflavík og KR og Þór á Seltjarnarnesi. í 1. deild karla leika ÍS og Víkveiji í Kennaraháskólanum og Laugdælir og Léttir að Laug- arvatni. í Hagaskóla leika KR og Grindavík í 1. deild kvenna. Allir leikimir hefjast kl. 20.00. BLAK Sannfærandi hjá Þrótti ÞRÓTTARAR fýlgja Stúdentum eftir í baráttunni í úrslitakeppninni í 1. deild karla í blaki. Þeir unnu sannfærandi sigur á HK í gær, 3:1 (15:10, 15:10, 12:15, 15:4.) Þróttarar eru nú með jafn mörg stig og Stúd- entar en liðin mætast á laugardaginn í 3. umferð. Breiðablik sigraði Víking í gær, 3:2 (15:10, 11:15,10:15, Guömundur 4:15, 7:15). Víkingar komust yfir 2:1 en náðu ekki að Þorsteinsson fylgja því eftir og Blikar unnu tvær síðustu hrinurnar skrifar auðveldlega. Hildur Grétarsdóttir átti góðan leik í liði Breiðabliks en Víkingsliðið var heldur slakt. BADMINTON Broddi mætir Morten Frost Karlalandsliðið komið í 16-liða úrslit í HM og mætir Dönum. ÍSLENSKA karlalandsliðið tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum HM í badminton ígær er það sigraði Norður-Kóru, 5:0, í undankeppninni. Islendingar hafa unnið alia þrjá leiki sína og mæta Dönum, Sovétmönnum og Finnum í úrslitum. Fyrsti leikurinn er í dag gegn Dönum en þar mætir Broddi Kristjáns- son engum öðrum en Morten Frost, einum frægasta badmin- tonleikara heims. Sigur íslands á Norður-Kóreu var mjög öruggur. Broddi sigraði Li Nam Chol í fyrsta leik, 15:8,15:6, Þorsteinn Páll Hængs- son sigraði Li Yong Hwan 15:9 og 15:3, Guðmundur Adolfsson sigraði Park Song Yung 15:7 og 15:0, Þorsteinn og Broddi sigruðu Hwan og Chol 15:9 og 15:8 _og Árni Þór Hallgrímsson og Ár- mann Þorvaldsson sigruðu Yung og Chon Yong 11 15:2 og 15:6. „Árangur okkar hefur komið á óvart. Flestir áttu von á að Norð- ur-Kórea kæmist áfram enda talin sterkasta þjóðin í riðlinum," sagði Friðrik Þór Halldórsson, farar- stjóri íslenska liðsins. „En þetta verður mjög erfitt á morgun. Danir eru ein sterkasta þjóð heims og allar þjóðirnar sem við mætum eru aðeins með atvinnumenn. Það Frost. Broddi. er raunhæft að segja að við eigum enga möguleika gegn Dönum og Sovétmönnum en við gerum okkur vonir gegn Finnum,“ sagði Frið- rik. Kvennaliðið úr leik íslenska kvennalandsliðið er úr leik, þrátt fyrir sigur á Belgum, 3:2, í spennandi leik. Liðið byijaði illa, Þórdís Edwald tapaði í fyrsta leiknum, 11:7, 5:11 og 6:11, og Guðrún Júlíusdóttir beið einnig lægri hlut, 11:1, 7:11 og 4:11. Bima Petersen minnkaði muninn er hún sigraði 11:8 og 12:10 og Elísabet Þórðardóttir og Þórdís jöfnuðu með sigri, 15:9 og 15:2. Guðrún Júlíusdóttir og Inga Kjai-tansdóttir tryggðu svo íslend- ingum sigur í síðasta leiknum, 15:6 og 15:0. íslenska liðið lenti í 2. sæti í riðlinum, sigraði Belgíu og Ítalíu en tapaði fyrir Rúmeníu sem sigr- aði í riðlinum. ÚRSLIT Handknattleikur BIKARKEPPNI KVENNA: Þróttur — Haukar............ 19:20 (eftir framlengingu) 2. DEILD KARLA: Fram — Haukar.................2B:24 UMFN-ÍBK......................16:22 Valur-b — Selfoss........... 22:23 3. DEILD: UBK-b — Fyikir................19:27 Haukar-b — V!kingur-b.........27:27 ÍH — Ármann-b.................20:21 VINÁTTULEIKUR: Stjarnan — Bandaríkin.........27:22 Knattspyrna VINÁTTULANDSLEIKIR: Kolombía — Sovétríkin...........4:2 Mendoza, Guerrero, Rincon og Higuita - Oleg Protasov og Sergej Rodínov. Holland — ftalía................0:0 Áhorfendur: 20.000. Belgia — Svíþjóð................0:0 Áhorfendur: 5.500. Spánn — Tékkóslóvakía...........1:0 Manolo Sanches (42.) Áhorfendur: 34.000. EVRÓPUKEPPNILANDSLIÐA, U-21 ÁRS: ttalía — Spánn..................3:1 Stroppa (2), Casiraghi - Hierro FRAKKLAND 1. DEILD: Brest — Bordeaux................2:0 Cabanas (17.), Ferrer (60.) Áhorf.: 12.000. Caen — Auxerre..................1:0 Divert (50.) Áhorfendur: 10.000. Lille — Nice.......................1:1 Sauvaget (30.) - Bocande (84.) Áhorf.: 5.000. Metz — Toulouse.................3:0 Benedet (8.), Vucicevic (27.), Kastendeuch (73., víti) Áhorfendur: 7.000. Mónakó — Cannes.................0:0 Áhorfendur 4.000. Montpellier — Nantes............2:1 Julio Cesar (48.), Ferhaoui (57.) - Ferri (15.) Áhorfendur: 8.000. Racing Paris — Lyon.............0:1 - Bouafia (47.) Áhorfendur: 5.000. St. Etienne — Mulhouse..........3:0 Foumier (48.), Gros (50.), Tibeuf (60.) Áhorfendur: 7.000. Toulon — París SG...............0:3 - Susic (56.), Vujovic 2 (70. og 72.). Áhorf- endur: 8.000. Leik Sochaux og Marseille var frestað vegna þess hve völlurinn var blautur eftir rigning- ar. Efistu lið: ' Bordeaux 26 17 5 4 40:14 39 Marseille 25 15 6 4 52:23 36 Mónakó .26 10 11 5 23:16 31 Sochaux .25 13 4 8 36:27 30 ParísStGermain 26 12 5 9 31:28 29 England 1. DEILD: Aston Villa — Tottenþam.............2:0 Ian Ormondroyd, David Platt. Aston Villa komst þar með á topp 1. deildar i fyrsta skipti síðan 1981, er liðið varð meistari. Liðið hefur 52 stig, tveimur meira en Liverpool, og á einn leik til góða. 2. DEILD: WBA — Leicester.....................0:1 - David Oldfield. BIKARKEPPNIN, 5. UMFERÐ: Bamsley — Sheffield United.........0:0 (Liðin mætast þriðja sinni. Sigurvegaripn fær heimaleik gegn Manchester United) Cambridge United — Bristol City.....1:1 Dublin - Bob Taylor. (0:0 eftir 90 minútur. Liðin mætast þriðjsi^ sinni. Sigurvegarinn fær heimaleik gegn Crystal Palace) Everton — Oldham...................1:1 Kevin Sheedy (114., víti) - Ian Marshall (101.) (0:0 eftir 90 mínútur. Liðin mætast þriðja sinni og fær sigurvegarinn heimaleik gegn Aston Villa í 6. umferð) Queen’s Park Rangers — Blackpool ....0:0 (Liðin mætast þriðja sinni. Sigurvegarinn fær heimaleik gegn Liverpool) Körfuknattleikur NBA-DEILDIN Þriðjudagur: Seattle Supersonics — Orlando.117:102 Portland — Charlotte Homets ..104:94 Washington Bullets — Atlanta.110:107 LALakers —SanAntonio.........115:114 (Eftir framlengdan leika) Minnesota — Houston Rockets ...97:92 Milwaukee — New Jersey Devils.110:10 Phoenix Suns — Boston Celtics.120: 99 Sacramento — Los Angeles Clippers... 99:90 Bikarmót SKÍ FYRSTA bikarmót Skíðasambands ís- lands í skíðagöngu fór fram á Ísafírði fyrri skömmu. Keppt var i flokkum 20 ára og eldri og piltá 17-19 ára. Auk þess var punktamót fyrir unglinga. Úrslti urðu sem hér segin Karlar 20 ára og eldri, 15 km: min Haukur Eiríksson, Akureyri..........46,23 Sigurður Aðalsteinsson, Ákureyri...52,00 Þröstur Jóhannesson, ísafirði.......56,09 Piltar 17-19 ára, 10 km: Sölvi Sölvason, Siglufirði..............37,07 - Daniel Jakobsson, ísafirði.........37,30 Óskar J akobsson, ísafirði.........41,00 Drengir 15-16 ára, 7,5 km: Kristján Ólafsson, Akureyri.........25,24 Gísli Ámason, ísafirði..............26,30 Kári Jóhannesson, Akureyri.........27,22 Drengir 13-14 ára, 5 km: Arnar Pálsson, ísafirði............13,54 Hlynur Guðmundsson, ísafirði.......14,35 Eyjólfur Þráinsson, ísafirði.......30,52. Stúlkur 13-15 ára, 3,5 lon: '*** Guðbjörg Sigurðardóttir, tsafirði..17,46

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.