Morgunblaðið - 22.02.1990, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1990
AKUREYRI
Vetraríþróttahátíð ÍSÍ;
Ólafsfjörður:
Milljón hf.:
Vill gera bílabraut
MILLJÓN hf., nýstofiiað hlutafélag á Akureyri, ætlar að koma upp
bílabraut fyrir litla bcnsínknúna bíla, svokallaða Go-cart bíla, og er
ætlunin að brautin verði tilbúin í byijun sumars.
Sigurpáll Björnsson, einn þeirra
sem að félaginu standa, sagði að
framkvæmdir myndu hefjast um leið
og veður leyfði. Ætlunin er að steypa
upp braut sem er um 250 metra
löng og 3 metra breið. Félagið ætlar
að kaupa nokkra bíla af þessari gerð.
„Við höfum lengi gengið með
þessa hugmynd í maganum, en ák-
váðum að láta verða af framkvæmd-
um nú,“ sagði Sigurpáll. Hann sagði
kostnað um eina milljón króna, en
hluthafar myndu vinna við gerð
brautarinnar sjálfir.
Auk þess sem fólki gefst kostur
á að bruna með bílum þessum um
bílabrautina er fyrirhugað að bjóða
skólakrökkum upp á lifandi um-
ferðarfræðslu.
Sigurpáll sagði að félagið hefði
haft augastað á svæði í námunda
við Höfnersbryggju undir starfsem-
ina, en það svæði erekki til úthlutun-
ar undir slíka starfsemi. Bygginga-
nefnd hefur vísað erindi þessu til
skipulagsnefndar.
Kvenfélagið Hlíf afhenti barnadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri tæki til að mæla súrefnis-
og kolsýrlingsþrýsting í blóði. Barnadeildin heí'ur
ekki áður átt svo fullkomið tæki, en á tækinu er
síriti þannig að hægiega er hægt að fylgjast með
súrefnis- og kolsýrlingsþrýstingi í blóði. Kvenfélagið
Hlíf hefur styrkt deildina mjög með tækjagjöfum á
undanförnum árum og mun halda því áfram. Minn-
ingarsjóður innan Hlífar hefur einnig gefið deildinni
mikið af leikföngum og bókum. A myndinni eru
læknar á bamadeiidinni og fulltrúar frá Kvenfélag-
inu Hlíf við hluta af þeim tækjum sem félagið hef-
ur gefið deildinni.
Að leik ísnjónum
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kvenfélagið Hlífgefur barnadeild FSA tæki
Snj ómyndakeppni
o g vetrarþríþraut
Undirbúningur fyrir vetraríþróttahátíð ÍSÍ, sem hefst eftir um það
bil mánuð, er nú í fulium gangi. Auk hefðbundinna keppnisgreina á
skíðum verða fjölmargir dagskrárliðir í boði, sem almenningi* gefst
kostur á að taka þátt í. Hátíðin hefst 23. mars og henni lýkur 1. apríl.
Á hátíðinni verður efnt til vetrar-
þríþrautar, þar sem keppt verður í
skíðagöngu, hlaupi og sundi, en
þeir sem ekki vilja keppa við klukk-
una geta einnig verið með því í
boði verður sérstök vetrarþríþraut
í trimmformi.
Skátar í skátafélaginu Klakki
munu leggja fram sinn skerf til
hátíðarinnar. Þeir halda dróttskáta-
mót í Glerárdal og halda snjó-
myndakeppni fyrir almenning, þar
sem fólk getur mótað myndir úr
snjó eða ísmolum í húsagörðum
sínum. Þá verða farnar gönguferðir
og sleða- og þotukeppni verður
haldin í brekkum bæjarhverfanna.
Á lóninu við Drottningarbraut
munu hestamenn hleypa hestum
sínum á ís, svæðið verður upplýst
og aðstæður fyrir þá sem horfa vilja
á eru góðar.
Vélsleðamót verður haldið í
Hlíðarfjalli og keppt verður í
íshokkí. Von er á liði frá Reykjavík
til keppninnar og einnig frá Sví])jóð,
skipað eldri leikmönnum. Þá munu
heimsmeistarar unglinga í listhlaupi
á skautum sína listir sínar.
Þrotabú Vinkils sf.:
Bræðslan hef-
ur varla undan
Fiskimjölsverksmiðja Hraðfrysti-
húss Ólafsíjarðar hefur tekið á
móti um 3600 tonnum af loðnu frá
áramótum.
Þorsteinn Ásgeirsson hjá HÓ
sagði að loðnuskipið Guðmundur
Ólafur ÓF hefði farið 6 túra frá
áramótum og alltaf komið með full-
fermi. Skipið landaði hluta af afla
sínum á laugardaginn var og síðan
var aftur landað úr skipinu á þriðju-
dag, þar sem ekki náðist að vinna
aflann. Von er á Guðmundi Ólafi inn
aftur fljótlega.„Það er alveg nóg að
gera í fiskvinnslunni hérna í firðinum
og bræðslan hefur vart undan,"
sagði Þorsteinn.
Mjölskip kom til Ólafsfjarðar í
gær og tók 500 tonn af mjöli, sem
flytja á út.
Þorskhaus-
ar til Nígeríu
FYRSTA sendingin af þurrkuðum
þorskhausum frá Fiskmiðlun
Norðurlands á Dalvík fór utan til
Nígeríu í gær.
Hilmar Daníelsson framkvæmda-
stjóri Fiskmiðlunarinnar sagði mark-
aði í Nígeríu vera að opnast aftur
eftir tímabundið stopp á innflutning
til landsins. Fyrsta sending fór af
stað í gær, 4.400 pakkar af þurrkuð-
um hausum. Hilmar reiknaði með
að um 4.000 pakkar til viðbótar og
tæplega 2.000 pakkar af skreið færu
utan í næstu viku.
Heildarkröfiir nema um
60 milljónum króna
HEILDARKRÖFUR í þrotabú
Vinkils sf. nema um 60 milljónum
króna. Fyrsti skiptafúndur í bú-
inu var haldinn í gær og þar
komu fram mótmæli nokkurra
kröfúhafa, en búsljóri hafði hafh-
að talsvert mörgum kröfum sem
gerðar voru í búið.
Lýstar kröfur utan skuldaraðar
nema tæpum 19 milljónum króna,
en Ásgeir Björnsson bústjóri sagði
að þær væru talsvert hærri, eða
allt að 30 milljónum króna. For-
gangskröfur nema tæplega 6 millj-
ónum króna og almennar kröfur
nema 24,3 milljónum króna. Heild-
arkröfur í búið nema rösklega 60
milljónum króna. Ásgeir taldi nokk-
uð víst að almennar kröfur myndu
lækka nokkuð frá því sem nú er
og forgangskröfur gætu einnig átt
eftir að lækka, en ekki verulega.
Stærstu kröfuhafar eru Byggða-
stofnun, lífeyrissjóðir Iðju, Tré-
smiðafélagsins og rafiðnaðar-
manna, Alþýðubankinn, Fram-
kvæmdasjóður Akureyrar og Bún-
aðarfélag Eyjafjarðar.
Eignir búsins, um 900 fermetra
húsnæði, vélar og tæki til innrétt-
ingasmíði hafa verið auglýst til sölu
öðru sinni. Hluti veðhafa er tilbúinn
að skuldbreyta gjaldföllnum af-
borgunum, fella niður hluta vaxta
eða kostnaðar og eða breyta hluta
skulda í hlutafjárframlag. Bruna-
bótamat hússins er um 44,7 milljón-
ir, tryggingamat véla er 8,4 milljón-
ir. Á húsnæðinu hvíla skuldir að
upphæð um 25 milljónir króna.
Bæjarstjórn Akureyrar:
Samþykkt að leggja 2
millj. hlutafé í Lindu
BÆJARSTJÓRN Akureyrar samþykkti á fúndi í fyrradag að atvinnu-
málanefnd leggi lram hlutafé að upphæð tvær milljónir króna í Súkk-
ulaðiverksmiðjuna Lindu hf.
í bókun atvinnumálanefndar
kemur fram að hlutaféð verði lagt
fram að því tilskildu að heildar-
hlutafjáraukning í fyrirtækinu verði
Lögreglan
leitar að bíl
Bifreið af gerðinni Mitsubis-
hi Colt var stolið þar sem hún
stóð fyrir framan Hrafnagils-
skóla í Eyjafirði aðfaranótt 16.
febrúar síðastliðins. Bíllinn er
rauður að lit og ber skráningar-
númerið Þ 4609. Rannsóknar-
lögreglan á Akureyri biður þá
sem kynnu að hafa orðið bílsins
varir eftir þennan tíma að gefa
upplýsingar.
allt að tuttugu milljónir króna og
gagngerar breytingar verði gerðar
á markaðs- og sölumálum fyrirtæk-
isins. Á fundi bæjarstjórnar var
bókuninni breytt þannig að orðin
allt að voru felld út og samþykkti
bæjarstjóm því að leggja fram tvær
milljónir króna í hlutafé í fyrirtæk-
ið verði hlutafé þess aukið um tutt-
ugu milljónir.
Sigurður Arnórsson fram-
kvæmdastjóri Lindu hf. sagði að
viðræður væru í gangi við fleiri
aðila varðandi hlutaljáraukning-
una, bæði einstaklinga og fyrirtæki
og væri svars að vænta frá þessum
aðijum innan skamms.
í máli Heimis Ingimarssonar
bæjarfulltrúa og fulltrúa í atvinnu-
málanefnd kom fram að vilji væri
fyrir því innan þess stéttarfélags
sem ætti fólk við störf hjá verk-
smiðjunni að leggja málinu lið.