Morgunblaðið - 09.03.1990, Síða 1
64 SIÐUR B/C
57. tbl. 78. árg.
FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
KGB ætlar
að halda
uppi vöraum
fyrir sósíal-
ismann
Ottast klofning í
flokki kommúnista
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA öryggislögreglan,
KGB, hefur varað fulltrúa þá
sem sitja í Æðsta ráði Sovétríkj-
anna við því að stofnunin hygg-
ist verja sósíalismann geri nú-
verandi ráðamenn það ekki. Ný
og óháð sovésk fréttastofa,
Postfactum, skýrði frá þessu í
gær.
Fréttastofan hafði það eftir
Anatolíj Sobtsjak, umbótasinna er
situr í Æðsta ráðinu, að KGB hefði
dreift orðsendingu til þingfulltrú-
anna þess efnis að hart yrði brugð-
ist við til að „vernda hagsmuni
alþýðunnar“.
Að sögn Sobtsjaks var því hald-
ið fram í orðsendingunni, að ör-
yggis hins sósíalíska kerfis yrði
gætt í hvívetna og KGB myndi
standa vörð um réttindi og frelsi
sérhvers Sovétborgara sem og hið
sósíalíska lýðræði. Öryggislög-
reglan teldi hættu á því að flokkur
sovéskra kommúnista klofnaði og
þar með myndu áhrif hans og ítök
fara dvínandi.
Morgnnblaðið/Júlíus Siguijónsson
MÖGULEIKIÁ ÓL. OG HMSÆTI
Landsliðsmenn íslands í handknattleik fagna hér sigri á Austur-Þjóðveijum, 19:17, í síðasta leik milliriðils heimsmeistarakeppninnar í
Tékkóslóvakíu í gærkvöldi. íslenska liðið leikur um 9. sæti á mótinu í fyrramálið gegn Frökkum og gefur sigur í þeim leik sæti á
Ólympíuleikunum í Barcelona 1992 og næstu heimsmeistarakeppni, sem fram fer í Svíþjóð 1993.
Sjá nánar á íþróttasíðum á bls. 40-43
Orðsendingu þessa túlkaði
Æeuters-fréttastofan á þá leið að
svo virtist sem harðlínumenn væru
ráðandi afl innan KGB. Þeir gætu
ekki fellt sig við þær breytingar
sem þegar hefðu átt sér stað og
væru sýnilega staðráðnir í að
koma í veg fyrir frekari röskun á
sovésku samfélagi.
Orðsendingin virtist einkum
beinast gegn tveimur þekktum
umbótasinnum, sagnfræðingnum
Júrí Afanasjev og Borís Jeltsín.
Þeir hafa gengið einna lengst í
gagnrýni sinni á valdaeinokun sov-
éska kommúnistaflokksins og
umbótastefnu Míkhaíls S. Gorb-
atsjovs Sovétleiðtoga.
Litháar munu lýsa yfir
sjálfstæði um helgina
Moskvu. Reuter.
MEIRIHLUTI nýkjörins þings Lit-
háens hefúr tekið þá ákvörðun
að endurvekja sjálfstæðisyfirlýs-
ingu lýðveldisins fi-á 1918 nú um
helgina en þar með öðlast Litháen
sjálfstæði á ný, að sögn Ritu Dapk-
us, talsmanns sjálfstæðishreyfing-
ar Litháa, Sajudis. Með þeirri
samþykkt telja Ieiðtogar samtak-
anna að fengnar séu lagalegar
forsendur til þess að heQa samn-
ingaviðræður við stjórnvöld í
Moskvu um framtíð þjóðarinnar.
Að sögn Dapkus var ákvörðunin
um að lýsa yfir sjálfstæði um helg-
ina samþykkt einróma á fundi stjórn-
ar Sajudis. Ákveðið var að kalla
þingið saman fyrr en ráð hafði verið
fyrir gert og lýsa yfir sjálfstæði fyr-
ir fund sovéska þingsins, sem kallað
Þingið í Bonn lýsir yfír að ekki verði hróflað við landamærum Póllands:
Pólveijar ósáttir við yfírlýsinguna
Brussel. Frá Kristófer Má Kristóferssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter.
WOJCIECH Jaruzelski, forseti Póllands, sagði í gærkvöldi að vestur-
þýska þingið hefði ekki stigið skrefið til fulls er það samþykkti að
sameinað Þýskalands myndi aldrei ógna landamærum Póllands.
Yfirlýsing þingsins væri ófullnægjandi þar sem ekki væri afdráttar-
laust tilgreint við hvaða landamæri væri átt og í raun ítrekaður
réttur Þjóðverja til landamæra eins og þau hefðu verið á dögum
Þriðja ríkisins 1937. Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, heim-
sótti í gær höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Brussel
og gerði fastafulltrúum aðildarrikjanna grein fyrir afstöðu vestur-
þýskra stjórnvalda til sameiningar þýsku ríkjanna.
Fastafulltrúarnir lýstu allir yfir
stuðningi ríkisstjórna sinna við
sameininguna en lögðu áherslu á
að hið sameinaða þýska ríki yrði
innan NATO. Kohl sagði eftir fund-
inn að hann hefði verið sögulegur
og stundin áhrifamikil fyrir sig og
alla þýsku þjóðina. Hann sagði að
atburðina í Þýskalandi yrði að
skoða í samhengi við þróunina í
Evrópu, taka tillit til hagsmuna
þýsku þjóðarinnar jafnt og banda-
manna, vina og nágranna hennar
í austri og vestri. Enginn þyrfti að
óttast að Þjóðverjar vildu fara sínar
eigin leiðir. Aðspurður hvort at-
burðarásin í Þýskalandi væri ekki
of hröð benti Kohl á að í nóvember
á síðasta ári hefði hann lagt fram
áætlun um sameiningu Þýskalands
í tíu liðum. í þeim hefði verið gert
ráð fyrir að sameiningin ætti sér
stað á nokkrum árum. Á nokkrum
vikum hefði þróunin í Austur-
Þýskalandi farið langt fram úr
þessari áætlun. Ástandið þar versn-
aði stöðugt. „Ábyrgðin er ekki mín,
sagði Kohl, heldur þeirra sem
stjórnuðu landinu á þann hátt að
slíkar hörmungar leiddi af.“ Máli
sínu til stuðnings minnti Kohl á
að frá 1. janúar á þessu ári fram
til 28. febrúar hefðu 115-116 þús-
und Austur-Þjóðverjar flúið yfir til
Vestur-Þýskalands. Ekkert lát
væri á flóttanum. „Þetta fólk hefur
greitt atkvæði með fótunum," sagði
Kohl. Styrkur Austur-Þýskalands
sem sjálfstæðs ríkis fjaraði óðum
út. Stór hluti þess fólks sem flýði
væri sérhæft vinnuafl, einmitt það
fólk sem væri þess umkomið að
endurreisa Austur-Þýskaland. Á
síðasta ári flúðu rúmlega 200 þús-
und Austur-Þjóðveijar undir
þijátíu ára aldri vestur yfir, að
hans sögn.
Sjá ennfremur fréttir á bls. 20.
hefur verið saman á mánudag. Leið-
togar Sajudis óttuðust að þar yrðu
samþykktar stjórnarskrárbreytingar
er kynnu að stöðva tilraunir Litháa
til að endurheimta sjálfstæði. Líthá-
en varð sjálfstætt ríki árið 1918 en
1940 var það innlimað í Sovétríkin
ásamt Eistlandi og Lettlandi.
Þingið kemur saman síðdegis á
morgun, laugardag, en búist er við
að forseti, forsætisráðherra og aðrir
embættismenn verði kjörnir á sunnu-
dag. Óljóst er hvenær sjálfstæðis-
ákvörðunin verður tekin fyrir. Dapk-
us sagði í gærkvöldi að tæknilega
séð yrði ekki lýst yfir sjálfstæði.
Öllu heldur yrði sjálfstæðisyfirlýs-
ingin frá 1918 endurvakin þar sem
lýðveldið hefði lögformlega aldrei
afsalað sér sjálfstæði. „Við eigum
ekki að þurfa að lýsa sjálfstæði okk-
ar tvisvar,“ sagði hún.
Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sov-
étríkjanna, sagði í fyrradag á fundi
með Algirdas Brazauskas, leiðtoga
kommúnista i Litháen, að hann sam-
þykkti út af fyrir sig sjálfstæði Lit-
háens en gaf í skyn að þeim yrðu
birtar fjárkröfur vegna mikilla fjár-
festinga Sovétstjórnarinnar þar.
Heimildir hermdu í gær, að fuíltrúar
Bandaríkjastjórnar reyni nú að finna
lausn á því hvernig brugðist skuli
við sjálfstæðisyfirlýsingu Litháa.