Morgunblaðið - 09.03.1990, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.03.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990 41 HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN Hvað sögðu þeir: „Kom aldrei til greina að gefast upp“ „ÞÓ að staðan hafi verið slæm kom aldrei til greina að gefast upp. Við vorum ákveðnir í að leika á fullu allan tfmann, sama hvernig staðan væri og það færði okkur sigur í þessum leik,“ sagði Alferð Gíslason eft- ir leikinn. Við reyndum að tefja í lokin, tíminn vann með okkur og sem betur fer small þetta saman. Einar varði eins og brjálaður maður og vömin var góð og það hefur gífur- Logi Bergmann lega mikið að segja,“ Eiösson sagði Alfreð. skrilarlrá „Þetta var frábært Bratislava 0g ánægjulegt að ná loksins að sigra. Þetta er sko alls ekki komið, við eigum enn eftir leikinn við Frakka og það má segja að við höfum framlengt möguleikana," sagði Kristj- án Arason. Hann sagðist hafa tekið eftir því fyrir leikinn hve einbeitingin var mikil í hópnum. „Menn hugsuðu aðeins um sigur og ekkert annað kom til greina. Við eigum eftir erfíðan leik gegn Frökkum en ég hef trú á því að þetta sé að koma hjá okkur,“ sagði Kristján. MILLIRIÐILL í BRATISLAVA SPÁNN - SOVÉTRÍKIN...........28: 37 JÚGÓSLAVÍA- PÓLLAND..........33:20 ÍSLAND- A-ÞÝSKALAND .........19:17 Lokastaöan: Fj. leikja U J T Mörk Stig SOVÉTRÍKIN 5 5 0 0 148: 109 10 JÚGÓSL. 5 3 O 2 120: 102 6 SPÁNN 5 3 0 2 109: 114 6 A-ÞÝSKAL. 5 2 0 3 106: 111 4 ÍSLAND 5 1 0 4 101: 117 2 PÓLLAND 5 1 0 4 102: 133 2 MILLIRIÐILL í OSTRAVA FRAKKLAND- S-KÓREA .........31:24 UNGVERJALAND - TÉKKÓSLÓVAKÍA .20: 20 SVÍÞJÓÐ- RÚMENÍA............19:20 Lokastaðan: Fj.leikja u j T Mörk Stig SVÍÞJÓÐ 5 4 0 1 129: 101 8 RÚMENÍA 5 4 0 1 117:105 8 UNGVERJAL. 5 3 1 1 110: 108 7 TÉKKÓSL. 5 1 2 2 107: 116 4 FRAKKLAND 5 1 1 3 109: 114 3 S-KÓREA 5 0 0 5 119: 147 0 Of spenntir I byrjun Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði íslenska landsliðsins, sagði að liðið hafí verið og spennt í byijun. „Við vorum of æstir og það var ekki fyrr en í hálfleik að menn róuðust og náðu meiri jafnvægi. Það var gífurleg bar- átta í liðinu og það náði mjög vel sam- an,“ sagði Þorgils Óttar. Hann sagðist lítið geta gefíð út á breytingar á liðinu. „Bogdan velur lið- ið og þá er ekkert rætt meira um það. Eg geri ráð fyrir að hann hafí viljað fá fríska menn inn og bæði Óskar og Valdimar stóðu fyrir sínu,“ sagði Þorgils. Hann sagði einnig að liðið hefði fundið fyrir miklum stuðn- ingi að heiman, þrátt fyrir að illa hafí gengið og það hafí haft mikið að segja fyrir leikinn í gær. AA duga eða drepast Júlíus Jónasson sagðist vera mjög ánægður með sigurinn en hann hefði ekki komið sér á óvart. „Við vorum ákveðnir og blátt áfram brjálaðir í sig- ur. Það var að duga eða drepast og það var einnig gott að svara fyrir tap- ið í Seoul," sagði Júlíus. Hann sagði að leikurinn við Frakka yrði erfíður. „Þeir eru með gott lið, góðan markvörð og sterka vörn. Mér fínnst betra að mæta þeim en Suður- Kóreumönnum en þetta verður mjög erfíður leikur," sagði Júlíus. Gott að standa undir traustinu Einar Þorvarðarson lék allan leikinn í gær og varði mjög vel í síðari hálf- leik. Hann sagði að sér hefði þótt gott að standa undir því trausti sem Bogdan hefði sýnt sér og sagðist vera mjög ánægður með síðari hálfleikinn. „Þetta var sigur liðsheildarinnar og við gáfumst ekki upp eins og við gerð- um í hinum leikjunum. Þetta var líklega mjög mikilvægur sigur fyrir liðið því fyrslitin hafa ekki beint verið eins og við hefðum óskað eftir, sagði Einar. „Það verður erfítt að leika gegn Frökkum, þeir eru með frískt og skemmtilegt lið. Við eigum þó ágæta möguleika og þessi sigur hefur mikið að segja,“ sagði Einar. „Sýndum styrk“ „Við komum til leiks til að spila og vorum ekkert taugaóstyrkir. Vörn Þjóðverjanna hentaði mér vel,“ sagði Óskar Ármannsson. „Þeir voru svo framarlega og því auðveldara að kom- ast í gegn. Við misstum einbeitinguna um tíma en ég vil ekki kalla það slæ- man kafla. Þá nýttum við illa færin, vorum svifaseinir í vörninni, en þetta lagaðist. Við sýndum styrk okkar og nú er bara að reyna að halda settu marki." - , Morgunblaðið/Júlíus Sigur Islendinga var kærkominn og mikill léttir fyrir leikmenn íslenska liðs- ins, sem hafa verið undir miklu álagi. Geir Sveinsson, lengst til hægri, grætur af gleði. Næstur honum er Júlíus Jónasson, þá Kristján Arason, Guðmundur Hrafnkelsson, Óskar Ármannsson, Valdimar Grímsson og Sigurður Sveinsson. ISLAND - A-ÞYSKALAND 19 : 17 Nafn Skot Mörk Varin Yflreða frnmhjá í atöng Fengin vfti Útaf Í2min Knetti glatað Linuscnd. sem gefur mark Skot- nýting Einar Þorvarðarson 10/1 Guömundur Hraf nkelsson Þorgils Óttar Mathiesen 1 1 100% Jakob Sigurösson 1 1 Guðmundur Guömundsson 4 2 1 1 50% Geir Sveinsson 1 Óskar Ármannsson 4 1 3 1 2 2 25% Alfreð Gíslason 8/2 4/1 2 2/1 1 2 50% Júlíus Jónasson 5/5 5/5 100% Siguröur Sveinsson 1 1 Kristján Arason 5 3 2 1 2 1 60% Valdimar Grímsson 5 3 2 3 2 1 60% Úrslitaleikimir Nú er ljóst hvaða lið mætast í viðureignum um 1.-12. sæti í heims- meistarakeppninni. Úrslitaleikimir, sem allir fara fram í Prag, verða sem hér segir: 1. sæti: Sovétríkin — Svíþjóð (Á morgun kl. 15.30) 3. sæti: Júgóslavía — Rúmenía (Á morgun kl. 12.00) 5. sæti: Spánn — Ungveijaland (í kvöld, kl. 19.00) 7. sæti: A-Þýskaland — Tékkóslóvakía (Á morgun kl. 10) 9. sæti: ÍSLAND — Frakkland (Á morgun kl. 8.00) 11. sæti: Pólland — Suður Kórea (í dag kl. 16.30) Bein útsending frá mótinu hefst í ríkissjónvarpinu kl. 8.00 í fyrra- málið með leik Islands og Frakklands, að honum loknum verður tæplega þriggja klukkustunda hlé en þráðurinn tekinn upp að nýju kl. 12.00 er leikur Júgóslava og Rúmena um 3. sætið verður sýndur beint og úrslitaleikurinn verður einnig í beinni útsendingu kl. 15.30, er Sovétmenn og Svíar berjast. „Skemmti- legur kveðju- leikur" - sagði Sigurður Sveinsson Sigurður Sveinsson hélt aft- ur til V-Þýskalands í gær eftir leikinn gegn A-Þjóðverjum, þar sem hann mun leika með WKKHKHtM félögum sínum í Logi Bergmann Dortmund í Eiðsson kvöld - gegn Reinderhausen í mjög þýðingar- miklum leik í v-þýsku 2. deildar- keppninni. Þætti Sigurðar í HM er því lokið. skrifarfrá Bratislava „Ég hef leikið minn síðasta landsleik. Það var skemmtilegt að kveðja eftir þennan leik gegn Austur-Þjóðverjum, en hann vav virkilega spennandi og skemmti- legur,“ sagði Sigurður og bætti við: „Ég hefði viljað leika örlítið meira með liðinu hér í Tékkósló- vakíu. Það er ekki hægt að segja að traustið skíni í minn garð frá þjálfara íslenska liðsins,“ sagði Sigurður. „Ballið erekki búið. Leikurinn gegn Frökkum er eftir og eitt er víst - hann verður mjög erfið- ur.“ Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari drengjalandsliðsins: „Liðið sýndi hvers það er megnugt“ JÓHANN Ingi Gunnarsson, þjálfari KR og drengjalandsliðsins, hefur fylgst grannt með leikjum í heimsmeistarakeppninni hér í Tékkóslóvakíu, en hann hefur verið á öllum heimsmeistaramótum frá 1978. Jóhann Ingi var með væntingar eins og fleiri fyrir keppn- ina, leist ekki á blikuna eftirtapið gegn Pólverjum, en var bjart- sýnn fyrir leikinn gegn Austur-Þjóðverjum. „Upphitunin er góð, þeir einbeita sér og hópast saman. Þetta veit á gott,“ sagði þjálf- arinn fyrir leikinn. „Þetta bjargar andlitinu. Þetta er besti leikur íslands í keppninni, vörnin, sóknin, markvarslan — allt var f lagi. Liðið sýndi loks hvers það er megnugt," sagði hann að leikslok- um. Jóhann Ingi sagði að þessi sigur skipti gríðarlega miklu máli og hann væri ekki hræddur við leikinn gegn Frökkum. „Það er svo mikið í húfi. Við erum að Steindór fara að halda heims- Guðbjartsson meistarakeppni og skrífarfrá við verðum að halda Bratislava 0kkur í hópi þeirra bestu. Það er engin spurning að þar eigum við heima, en þetta er ævin- týraleg keppni og þá er einsdæmi að einn leikur geti ráðið úrslitum, en svona keppni kemur aldrei aftur.“ Sjálfstraustið vantaði Þjálfarinn sagði að sigurinn hefði ekki verið ósanngjarn. „Seinni hálf- leikur var frábær, besti hálfleikur liðsins. Einar fann sitt form og munaði um minna. Vendipunkturinn í leiknum var þegar hann varði víti og staðan 15:14 fyrir Þjóðveija. Bogdan tók áhættu og breytti liðinu, en strákarnir, sem nú fengu tæki- færi, stóðust álagið. Bogdan nýtti mannskapinn, en í fyrri leikjum kom mér á óvart að þegar ekkert gekk upp var lítið um skiptingar. Það er styrkur að taka áhættu, þegar hefð- bundnir hlutir ganga ekki upp, en þjálfarinn verður að veðja á síria menn og stendur og fellur með ákvörðunum sínum. Fyrri leikir skipta nú engu, aðalat- riðið er að sigra Frakka og ná 9. sætinu. Þetta leit ekki vel út í hálf- leik, en það var gott að lægðin kom fyrir hlé. Sigurinn gefur mönnum svakalegan styrk fyrir laugardaginn og nú eiga þeir að hafa fengið sjálf- straustið á ný, en það hefur ekki verið fyrir hendi. Ég var með væntingar fyrir keppnina og byggði þær á rökum. Það hefur allt verið gert, leikmenn hafa lagt mikið á sig, leikið í fremstu víglínu í erfíðum deildum erlendis. Því komu fyrri leikir mér á óvart — að hlutirnir hafa ekki gengið upp. En þegar illa gengur, fer sjálfstraus- tið. Menn lamast af álaginu, vita að með hveijum tapleik verða mögu- leikarnir æ minni. Engir verða fyrir meiri vonbrigðum en leikmennirnir, en þeir eiga ávallt minn stuðning, því þeir gera sitt besta. Ég kaupi ekki þá skýringu að lið- ið sé of gamalt, við sjáum mun eldri menn vera að gera góða hluti með öðrum liðum, þannig að aldurinn hefur ekkert að segja. Leikgleðin kemur með árangrinum og nú ætti sjálfstraustið að vera til staðar." Jóhann Ingi sagði að liðið hefði ekki náð almennilega saman í síðustu leikjum. „Fyrir þennan leik sýndu þeir ekki sitt rétta andlit. Það er engin spuming að þeir geta leikið vel eins og gegn Austur-Þjóðveijum og allir erlendir þjálfarar og sérfræð- ingar telja liðið í hópi þeirra bestu. Andlega hliðin var hins vegar ekki í lagi og sérstaklega var tapið gegn Pólveijum mikið áfall. En þeir rifu sig upp, léku af skynsemi gegn Austur-Þjóðveijum og nú er spurn- ingin um að halda taugastyrknum."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.