Morgunblaðið - 09.03.1990, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990
Stúdentaráð Háskóla íslands:
Nafli alheimsins eða
venjulegt nemendafélag
eftir Guðna Niels
Aðalsteinsson
Þann 13. mars næstkomandi fara
fram kosningar til Stúdenta- og
háskólaráðs. Síðastliðin tvö ár hafa
tvær fylkingar boðið fram, Vaka,
félag lýðræðissinnaðra stúdenta, og
Röskva, samtök félagshyggjufólks.
Vökumenn hafa haldið um stjómar-
taumana í Stúdentaráði þessi tvö
ár. Menn gætu haldið að stúdentar
væru nú sammála um sín mál og
því skipti engu máli hveijir sæu um
stjórn Stúdentaráðs. Þeir • hinir
sömu benda á að markmiðin sem
stefna beri að séu hin sömu hjá
fylkingunum svo sem hækkun
námslána, öflug húsnæðismiðlun og
þar fram eftir götum. Þetta má til
sanns vegar færa, en það sem grein-
ir fylkingamar aðallega í sundur
em leiðimar að þessum markmiðum
og þá sérstaklega mismunandi af-
staða til Stúdentaráðs, og þar ber
mikið á milli.
Ólík viðhorf
Það er stefna Röskvu að í Stúd-
entaráði sé „lifandi umræða" og það
láti sig varða þau mál sem era að
gerast í þjóðfélaginu og úti í þjóð-
félaginu og úti í hinum stóra heimi.
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúd-
enta, hefur hins vegar lengi haft
þá afstöðu að Stúdentaráð sinni
einvörðungu hagsmunamálum
stúdenta og sé ekki vettvangur
slíkrar almennrar pólitískrar um-
ræðu. Stúdentaráð er þannig nokk-
urs konar stéttar- og nemendafélag
stúdenta þar sem pólitísk þrætumál
eiga ekki heima. I ljósi þessa hafa
Vökumenn hafnað hugmyndum
Röskvu að stúdentar taki afstöðu í
vinnudeilum og verkföllum, álykti
um ástandið i Suður-Afríku eða
fagni lýðræðisþróun í Tékkóslóv-
akíu svo nýlegt dæmi um tillögu
Röskvu sé nefnt.
Ópólitískt stúdentaráð
Ástæður þess að Vaka leggur á
það þunga áherslu að Stúdentaráð
láti landsmálin vera, eru í raun fjöl-
margar. Fyrst ber að geta að það
er skylduaðild að Stúdentaráði fyrir
stúdenta í Háskólanum. Þegar
Stúdentaráð er að vasast í al-
mennri stjórnmálaumræðu og er
sífellt að taka afstöðu til pólitískra
mála, þá verður ráðið auðvitað ekk-
ert annað en pólitískt félag. Að
skylda svo stúdenta að vera í
pólitísku félagi er argasta óvirðing
við skoðanafrelsi þeirra.
Heims- og þjóðmálin snerta auð-
vitað stúdenta eins og alla aðra en
Vökuliðar teija Stúdentaráð ekki
hafa umboð til að álykta um þau
fyrir hönd allra stúdenta. Stúdentar
geta haft jafnmargar skoðanir á
heims- og þjóðmálunum og þeir eru
margir, því telja Vökumenn það
óeðlilegt að Stúdentaráð sé álykt-
andi holt og bolt í pólitískum dæg-
U.rmálum.
Það hefur komið á daginn að
stúdentar eru sammála Vöku og
vilja að Stúdentaráð fyalli ekki um
pólitísk málefni, heldur helgi sig
óskipt að hagsmunamálum nem-
enda. Könnun sem gerð var í fyrra
af SKÁÍS leiddi þetta bersýnilega
í ljós, en niðurstaðan varð sú að
81% stúdenta lögðust gegn því að
utanríkismálum og þjóðmálum yrði
blandað inn í stjórn Stúdentaráðs.
Önnur rök og ekki síður mikilvæg
era þau að Stúdentaráði er ætlað
að vera sameiningartákn allra stúd-
enta. Til þess að svo megi verða
verður að ríkja eining um ráðið
meðal stúdentanna, þ.e.a.s. sjálfra
félagsmannanna. Því meira sem
Stúdentaráð víkur frá hinum eigin-
legu hagsmuna- og félagsmálum
stúdenta, því meiri líkur era á
sundrungu og óánægju meðal stúd-
enta.
Ein sterkasta stoðin undir hug-
myndir Vöku er sú reynsla sem
hefur fengist í gegnum árin í Stúd-
entaráði af pólitískri umræðu. Þar
tók dægurþras stjórnmálanna lung-
an af tíma ráðsins, t.d. fóru tveir
heilir fundir í þras um útvarpsstöð-
ina Rót, áður en það kom í Ijós að
Guðni Niels Aðalsteinsson
„Það hefur komið á
daginn að stúdentar
eru sammála Vöku og
vilja að Stúdentaráð
fjalli ekki um pólitísk
málefiii, heldur helgi
sig óskipt hagsmuna-
málum nemenda."
meira en helmingur stúdenta hafði
aldrei hlustað á útvarpsstöðina.
Með þessu féllu mikilvæg mál, s.s.
lánamálin, menntamálin og hús-
næðismál, í skuggann fyrir
pólitískri hagsmunagæslu. Þegar
Vökuliðar komust til valda í Stúd-
entaráði, tók hagsmunabaráttan
kipp og hefur sjaldan eða aldrei
verið í annarri eins uppsveiflu.
Árangurinn er augljós, bætt ein-
kunnaraskil kennara, aukið framlag
til félagslífs nemenda, gæðakönnun
á kennslu, öflug atvinnu- og hús-
næðismiðlun, svo eitthvað sé nefnt.
Forsendan fyrir þessum mikla
árangri er að pólitíkinni hefur loks-
ins verið úthýst úr Stúdentaráði.
Þessar breytingar á starfsháttum
ráðsins hefur svo skilað sér í aukn-
um áhuga stúdenta á starfinu í
Stúdentaráði. Til marks um það er
hin aukna kjörsókn, en síðastliðin
þijú ár hefur kjörsókn aukist um
20%.
Verður Stúdentaráð aftur að
pólitískum sandkassa?
Á meðan Vaka vinnur að auknum
stuðningi við deildar- og skorarfé-
lög þá hafa Röskvuliðar viljað að
Stúdentaráð hverfi aftur upp í fíla-
beinstum pólitískrar hagsmuna-
gæslu. Greinilegt er að hugur fylg-
ir ekki máli þegar Röskva lofar að
styðja við félagslíf stúdenta. Þetta
kemur bersýnilega í ljós þegar þátt-
ur Röskvu í aðstöðumálum deildar-
og skorarfélaga er skoðaður. Um
leið og Röskva komst í meirihluta
í stjórn Félagsstofnunar stúdenta
þá breyttu þau forgangsröðinni við
úthlutun á leiguhúsnæði til félaga,
á þann veg að nú voru „pólitísk
félög“ sett fremst í forgangsröðina,
á undan deildar- og skorarfélögum.
Dæmi nú hver fyrir sig þegar
Röskva úttalar sig um að pólitísk
hagsmunagæsla skuli hverfa brott
úr Stúdentaráði.
Hér erum við komin að merg
málsins, viljum við leggja hönd á
plóginn við að halda pólitíkinni fyr-
ir utan Stúdentaráð og sjá ráðið
vinna að málum okkar stúdentanna
eða viljum við falla aftur í far póli-
tískrar hagsmunagæslu? Um þetta
snúast kosningarnar.
Höfundur er hngfræðinemi og
efstur á framboðslista Vöku til
Stúdentaráðs.
Morgunblaðið/Anders Hansen
Silíúrblesa frá Svaðastöðum, sem sigraði á vetrarmóti Geysis
um helgina. Knapi er Leifúr Helgason, en eigendur eru Anders
og Lars Hansen á Árbakka.
Yetrarmót Geysis:
Silfiirblesa vann
gnllverðlaunin
HRYSSAN Silíúrblesa frá Svaðastöðum sigraði í tölti á öðru vetr-
armóti hestamannafélagsins Geysis, sem haldið var á Hellu á laug-
ardaginn. Knapi á Silfúrblesu var Leifur Helgason, en eigendur
hryssunnar eru Anders og Lars Hansen á Árbakka.
I öðru sæti varð Gustur frá Vind-
ási, knapi Jón Jónsson, eigandi Jón
Þorvarðarson, Vindási. Nasi frá
Hala varð þriðji, knapi Kristinn
Guðnason, eigandi Markús Ársæls-
son, Hákoti. í fjórða sæti varð
Sverta frá Stokkhólma. Knapi í
forkeppni var Leifur Helgason, en
Þórður Stefánsson í úrslitakeppn-
inni. Eigendur eru Lars og Anders
Hansen á Árbakka. Galsi frá Skarði
varð fimmti, knapi Borghildur
Kristinsdóttir, eigandi Guðni Krist-
insson. Jörp frá Heiðarbæ varð
sjötta, eigandi og knapi Guðmund-
ur Guðmundsson, Hellu. Sjöundi
varð Blakkur frá Varmadal, knapi
Kristjón Kristjánsson, eigandi
Kristján Jónsson. Áttundi varð
Fengur frá Bakkakoti, knapi og
eigandi Ársæll Jónsson, Bakkakoti.
Gustur frá Skíðbakka varð níundi,
knapi Rútur Pálsson, eigandi Guð-
björg Albertsdóttir, Skíðbakka.
Tíundi í röðinni varð svo Þráinn frá
Gunnarsholti, eigandi og knapi
Rúna Einarsdóttir, Gunnarsholti.
Töltkeppnin á vetrarmótum
Geysis er stigakeppni, og eru Silf-
urblesa frá Svaðastöðum og Gustur
frá Vindási jöfn og efst eftir tvö
mót, bæði hrossin með 18 stig, en
eigendur stigahæsta hrossins á öll-
um fimm vetrarmótum Geysis fá
folald af Svaðastaðastofni frá Ár-
bakka á Landi í verðlaun.
Á Geysismótinu var einnig keppt
í tölti bama. Þar sigraði Sigríður
Theódóra Kristinsdóttir á Syrpu,
Erlendur Ingvarsson varð annar á
Stjama og Helgi og Haukur Guð-
mundssynir urðu í 3. og 4. sæti á
Berki og Hraunari.
í 150 m skeiði sigraði Fáni á
15,8 sek., Blakkur varð annar á
16,2 sek. og á sama tíma varð
Þjótandi frá Ármóti.
Næsta vetrarmót Geysis verður
haldið laugardaginn'24. mars.
Af staðreyndum
eftir Arnar Jónsson
Senn ganga stúdentar við Há-
skóla íslands inní kjörklefa og gera
upp við sig hver á skilið að fá at-
kvæði þeirra. Inn í valið koma
ýmsir þættir, þar á meðal tilfinn-
ingalegir, ígrandaðir, fyrirfram
ákveðnir og svo val byggt á mati
á staðreyndum. Erfitt er að segja
til um það í hvaða hlutföllum þess-
ir þættir ákvarða valið en skynsam-
legt er að ætla staðreyndum þar
stóran hlut.
Við skulum nú setja fram nokkr-
ar staðreyndir og vega þær og
meta. Sérlegt hlutverk Stúdenta-
ráðs samkvæmt lögum þess er að
styrkja og efla félagslíf innan há-
skólans. Á þeim síðastliðnum tveim
árum sem Vaka, félag lýðræðissinn-
aðra stúdenta, hefur haldið í stjórn-
artaumana þá hafa styrkir til fé-
lagslífs tvöfaldast og gott betur.
Þetta hefur tekist vegna þess að
stjórnirnar hafa gætt aðhalds við
rekstur skrifstofu, í útgáfumálum,
gert raunhæfar áætlanir og fylgt
þeim eftir. Þetta era staðreyndir
sem enginn dregur í efa, hvorki
Vaka né aðrir. En þá má spyija
hvort meiri peningar þýði óhjá-
kvæmilega betra félagslíf. Svarið
er já, vegna þess að með auknum
styrkjum eykst bolmagn félaga til
þess að standa að metnaðarfullum
verkefnum í útgáfu og skemmtan.
Öflug þjónustumiðstöð
Önnur staðreynd er, að nú loks-
ins er skrifstofa Stúdentaráðs orðin
öflug þjónustumiðstöð stúdenta. Og
hvað græðum við á því? Jú, þar
getum við Ieitað úrlausna ýmissa
mála. Stúdentar geta átt viðtal við
lánasjóðsfulltrúa sinn, leitað eftir
húsnæði, sótt um vinnu, fengið
upplýsingar um rétt sinn og skyldur
innan Háskólans gagnvart stjórn-
sýslu skólans og þar fram eftir
götunum. Skrifstofa Stúdentaráðs
átti aldrei að vera sem dauðs manns
gröf heldur opin þjónustumiðstöð
og það hefur tekist. Á síðasta ári
fengu tæplega tvöfalt fleiri stúdent-
ar atvinnu í gegnum Atvinnumiðl-
unina en tveim árum áður. Fjöldi
leigusamninga sem náðst hafa í
gegnum Húsnæðismiðlunina var
fyrir tveim árum 35 en í ár era
þeir komnir upp í 230. Það sjá allir
að þessi þróun síðastliðinna ára er
af hinu góða þó svo að sumir vilji
ekki viðurkenna það og kalli skrif-
stofuna stirðbusalegt bákn sem
engu fær áorkað.
Hallalaus útgáfa
Það getur verið gaman að gefa
út blöð en sumir gleyma oft að það
kostar peninga. Þeir sem héldu um
stjórnartaumana á undan Vöku
skiluðu útgáfunni í rétt tæplega
tveggja milljón króna halla í lok
marz 1988 (á núvirði). Horfið var
frá því að gefa út Stúdentablaðið
sem var stopult tímarit og útgáfa
Háskólans/stúdentafrétta hafin.
Með tíðari útgáfu tókst að skapa
virkan miðil sem þjónar stúdentum
sem fréttablað og sem vettvangur
hagnýtra upplýsinga. Það er ekki
bara að stúdentar hafi tekið blaðinu
vel heldur gerðu auglýsendur það
líka þannig að í stað þess að blaðið
sé stúdentum baggi þá bera þeir
nú 5 króna kostnað af hveiju ein-
taki. Nú þegar 8 blöð af 9 eru kom-
in út er hallinn um 200 þúsund
krónur, og á því sést að fjármála-
hlið útgáfunnar hefur staðist með
prýði. Þetta eru staðreyndir sem
ekkert fær hnekkt hvað sem mis-
vísandi dylgjum líður.
Aukinn áhugi stúdenta
Frá herbúðum samtaka innan
háskólans hefur heyrst að áhugi
stúdenta á Stúdentaráði fari minnk-
andi í beinu hlutfalli við lengd
stjórnarsetu Vökumanna. Samtök
þessi telja skýringuna vera þá að
þar sem Stúdentaráð sé ekki vett-
vangur „lifandi umræðu“ þá hafi
stúdentar engan áhuga á sínum
málum. Samkvæmt tölum frá kjör-
stjórn þá hefur þátttaka stúdenta
í kosningum til Stúdenta- og Há-
skólaráðs aukist um 18% á síðast-
Arnar Jónsson
„Viljum við stúdentar
framfarir og breytingar
þá látum við staðreynd-
ir skipa stærstan hluta
í ákvörðun okkar um
það hverjum ber at-
kvæði okkar.“
liðnum fjórum árum. Staðreyndin
er því sú að áhugi stúdenta hefur
farið vaxandi í beinu hlutfalli við
stjórnarsetu Vöku.
Litið til þessara og margra ann-
arra góðra mála sem nú eru í höfn
þá er ljóst að viljum við stúdentar
framfarir og -breytingar þá látum
við staðreyndir skipa stærstan hluta
í ákvörðun okkar um það hveijum
ber atkvæði okkar.
Höfundur situr ístjórn
Stúdentaráðs.