Morgunblaðið - 09.03.1990, Qupperneq 15
MORGUNBtAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990
15
Yfirheyrslur skipbrots-
manna tóku ekki
óeðlilega langan tíma
- segir rannsóknarlögreglumaður á Isafirði
Bókagjafir til
Háskólabókasaftis
Háskólabókasafni hafa fyrr og
síðar borist ágætar bókagjafir frá
ýmsum aðilum, innlendum og
erlendum, stofnunum, fyrirtækjum,
forlögum og — síðast en ekki síst
— einstaklingum. Bókum úr eigu
hinna síðast nefndu hefur ýmist
verið ráðstafað til safnsins af
eigendunum sjálfum eða erfingjum
þeirra. Lesendur munu kannast við
marga þessara gefenda, en hér
verða nokkrir þeirra nefndir, og þá
í þeirri röð sem bækur þeirra bárust
safninu:
• Finnur Jónsson prófessor
• Benedikt S. Þórarinsson
kaupmaður
• Einar Benediktsson skáld
• Sigfús Blöndal bókavörður
• Þorsteinn Sch. Thorsteinsson
lyfsali
• Þorsteinn Konráðsson bóndi í
Vatnsdal
• Skúli Hansen tannlæknir
(hljómplötusafn)
• Stefán Einarsson prófessor
• Jón Steffensen prófessor
(bókasafn og húseign)
• Ásgeir Bl. Magnússon
orðabókarstjóri
Nú á afmælisárinu og
næstliðnum árum hafa safninu
borist ágætar bókagjafir. Þeirra
verður minnst síðar á árinu en
nokkurra skal þó getið stuttlega
hér:
• Hinn danskættaði forstjóri
Blackwell-útgáfunnar í Oxford,
Per Saugman, ákvað að minnast
heimsóknar forseta íslands til
Oxford 1982 með því að gefa
Háskólabókasafni útgáfurit
forlagsins það ár og hin næstu.
Gjöfin nemur nú orðið nokkrum
þúsundum binda og tímarita.
Þessarar gjafar verður minnst
með sérstakri sýningu á ritunum
í júní nk.
• Erfíngjar Gunnars
Böðvarssonar,
jarðeðlisfræðings, sem um
áratuga skeið var
háskólakennari í
Bandarikjunum, hafa gefið
Háskólabókasafni eftirlátin rit
hans og verða þau formlega
afhent síðar á árinu.
• Háskólaforlagið í Ósló minnist
50 ára afmælis Háskóla Islands
1961 með veglegri gjöf
útgáfurita sinna og hét
framhaldi gjafar næstu tíu árin.
Úr því gjafatímabili hefur þó
teygst svo, að því lýkur fyrst
nú á þessu 50 ára afmælisári
Háskólabókasafns.
• Dr. Robert Cook, sem kunnur
er fyrir rannóknir sínar á
norrænum fombókmenntum,
tók við prófessorsembætti í
ensku við Háskóla íslands í
byrjun þessa árs. I
þakklætisskyni við háskólann
og tii að minnast afmælis
Háskólabókasafns hefur hann
ákveðið að gefa safninu um 500
bindi ágætra rita á fræðisviðum
sínum.
séð fyrir hver þörfin á þessari þjón-
ustu verður í framtíðinni, til þess að
hægt sé að gera ráðstafanir fyrir-
fram, ef veigamiklar breytingar eru
í vændum.
Undanfarin ár hafa elliglöp mikið
verið rannsökuð, m.a. hér á landi.
Fjöldi sjúklinga með þennan sjúkdóm
er mjög mismunandi eftir aldri eins
og línurit 1 ber með sér. Líkurnar á
því að fá sjúkdóminn aukast hratt
með aldrinum.
A grundvelli margra rannsókna
víða um lönd hefur vísindamönnum
í Ástralíu nú tekist að fínna aðferð
til að spá fyrir um fjölda sjúklinga
með elliglöp. Þegar þessi aðferð er
notuð til að segja fyrir um fjöldann
á íslandi (sjá línurit 2), kemur í ljós
að öldruðum (65 ára og eldri) mun
fjölga mikið á næstu áratugum og
sjúklingum með elliglöp mun fjölga
nokkurn veginn samhliða.
Línurit 2 er vísbending um það
hvernig haga verður þjónustu við
sjúklinga með elliglöp á næstu ára-
tugum. Ef ekkert er gert þýðir það
einfaldlega lélega þjónustu við þenn-
an fjölmenna sjúklingahóp, eftir því
sem árin líða.
Höfundur er læknir á
Grundarfirði.
HLYNUR Snorrason rannsókn-
arlögreglumaður á Isafirði hafði
sambaud við Morgunblaðið
vegna ummæla þess um að skip-
brotsmenn af mb. Guðmundi B.
Þorlákssyni ÍS 62 hafi verið á
lögreglustöðinni á Isafirði í fimm
klukkustundir eftir að þeir komu
til hafiiar.
Hlynur kvað skipbrotsmennina
hafa átt samúð hans alla er þeir
komu að landi eftir slysið. Þess
vegna hafi hann pantað lög-
reglubíl, vel upphitaðan, til að fara
með þá á sjúkrahús til aðhlynningar
þegar þeir komu að. En skipbrots-
mennirnir hafi reynst vera búnir
að ná sér eftir volkið, að þeirra eig-
in sögn. Hann hafi, eins og skyldan
bauð, sagt þeim að hann þyrfti að
taka af þeim skýrslu um málið en
segist hafa sagt þeim að það mætti
bíða og þeir gætu því farið heim
áður en yfirheyrslur hæfust. Þeir
hafi hins vegar óskað eftir að mega
ljúka þessu af strax.
Skýrslutakan af skipstjóranum
hafi tekið tvær klukkustundir, en á
meðan hafi hinir skipverjamir beðið
á meðan á kaffistofu lögreglustöðv-
arinnar, en ekki .á ganginum eins
og kom fram í fréttinni, og var
þeim borinn matur á meðan. Hafi
allt verið gert í fullu samráði og
með vilja skipverjanna og að yfir-
heyrslur hafi ekki tekið lerigri tíma
en ætla mætti við rannsókn á
slíkum atburði sem þessum. Þá vildi
hann að lokum minna á mikilvægi
lögreglurannsóknar varðandi sjó-
slys sem þetta sem sé grundvöllur
að sjóprófum. Hingað til hefði sam-
starf hans við sjómenn við álíka
aðstæður verið mjög gott og því
mikilvægt að misskilningur yrði
ekki til áð rýra það mikilvæga starf
sem þannig væri unnið.
Timman steinlá með
hvítu gegn Karpov
Skák
Margeir Pétursson
ANATOLY Karpov, fyrrum
heimsmeistari, gat ekki fengið
betri byijun í einvíginu við Hol-
lendinginn Jan Timman um ásko-
runarréttinn á Kasparov, heims-
meistara. Hann vann fýrstu
skákina nokkuð auðveldlega með
svörtu í 36 leikjum. Karpov, sem
er næststigahæsti skákmaður
heims, með 2.725 stig, var fyrir-
fram talinn sigurstranglegri í
einvíginu en Timman, sem er
þriðji á alheimsstigalistanum,
með 2.680 stig. Timman hefur
þó verið í mikilli uppsveiflu
••síðustu mánuði, en Karpov hins
vegar ekki teflt nærri eins sann-
færandi og oft áður. Þessi óska-
byijun Karpovs bendir þó til þess
að í haust fari fram fimmta
heimsmeistaraeinvígi hans og
Kasparovs.
Karpov kom alls ekki á óvart
í byijuninni, hann beitti afbrigði
því af spánska leiknum sem
kennt er við hann sjálfan og
Zaitsev aðstoðarmann hans, rétt
eins og í einvíginu við Jóhann
Hjartarson fyrir ári. Timman
hefur því haft öll færi á að und-
irbúa sig, en eftir að hafa teflt
byijunina hratt urðu honum á
mistök strax í 18. leik, er hann
gaf andstæðingi sínum kost á
að vinna peð. Þetta kom Karpov
greinilega á óvart, því hann
hugsaði sig um í hálftíma áður
en hann tók það. Það kom síðan
strax í ljós að um handvömm
hafði verið að ræða hjá Timman,
því hann hafði ekkert svar á reið-
um höndum og hugsaði sig um
í hálfa klukkustund eftir peðs-
ránið.
I 26. leik lék Hollendingurinn
aftur af sér og eftir það átti
hann sér ekki viðreisnar von.
Hann gafst síðan upp eftir að
hafa misst annað peð.
Það kom nokkuð á óvart að
Timman skyldi beita kóngspeðs-
byijun, því það gafst Jóhanni
Hjartarsyni heldur ekki sérlega
vel gegn Karpov í fyrra. Heims-
meistarinn fyrrverandi heldur sig
við hinn trausta spánska leik í
einvígjum, sem hann gjörþekkir.
Artur Jusupov gekk betur gegn
Karpov með drottningarpeðs-
byijunum í London í haust og
það kæmi ekki á óvart þótt
Timman söðli um í næstu skák-
urn.
Alls verða tefldar tólf skákir
og sigrar sá sem fyrr hlýtur 6 'A
v. Önnur skákin verður tefld í
dag, föstudag, en vegna mikils
tímamismunar er úrslita vart að
vænta fyrr en á morgun. Aðal-
dómari einvígisins, sem fram fer
í Kuala Lumpur í Malasíu, er
Guðmundur Amlaugsson og er
honum og íslenskri skákhreyf-
ingu sýndur mikill sómi með því.
Hvítt: Jan Timman
Svart: Anatoly Karpov
Spánski leikurinn
1. e4 — e5 2. Rf3 — Rc6 3. Bb5
- a6 4. Ba4 - RfB 5. 0-0 -
Be7 6. Hel - b5 7. Bb3 - d6
8. c3 - 0-0 9. h3 - Bb7 10. d4
- He8 11. Rbd2 - Bf8 12. a4
- h6 13. Bc2 — exd4 14. cxd4
- Rb4 15. Bbl - bxa4 16.
Hxa4 - a5 17. Ha3 - Ha6 18.
Rh4?
Ótrúlega slakur undirbúningur
hjá Timman, því hann hefði fram-
ar öllu öðru mátt gera ráð fyrir
þessari stöðu. Jóhann Hjartarson
lék hér 18. Rh2 gegn Karpov í
fimmtu einvígisskákinni í Seattle
og Ivanchuk fetaði í fótspor hans
í Linares skömmu síðar. Timman
og aðstoðarmenn hans hafa
greinilega misreiknað næsta leik
Karpovs í mánaðalöngum rann-
sóknum sínum. Svo virðist sem
Ulf Andersson væri betur kominn
hér heima hjá félögum sínum í
Norðurlandaúrvalinu en sem
hjálparkokkur Timmans!
18. - Rxe4! 19. Rxe4 - Bxe4
20. Bxe4 - d5 21. Hae3
21. Bxd5 dugði ekki vegna 21.
— Hxel+ 22. Dxel — Rxd5 og
svo óheppilega vill til fyrir hvít
að bæði Ha3 og Rh4 standa í
uppnámi.
21. - Hae6! 22. Bg6!? - Dxh4
23. Hxe6 - Hxe6 24. Hxe6 -
lxe6 25. Be3 - DfB 26. Dg4?!
Sérfræðingar á staðnum töldu
þetta mistök, betra hefði verið
26. Bbl. Það er þó ljóst að í bisk-
upapari hvíts felast engan veginn
nægar bætur fyrir peðsmissinn.
26. - Bd6 27. h4 - Rc6 28.
Be8 - Re7 29. Bd7 - Rf5 30.
h5 - Kf7 31. Bc8 - Ke7 32. b3?
Flýtir fyrir uppgjöfinni. Nú
fellur annað mikilvægt peð.
32. - c5 33. De2 - cxd4 34.
Bd2 - d3! 35. Ddl - Dh4 36.
g3 — Rxg3 og hvítur gafst upp.
HINN EINIOG SANNI
STÓRÚTSÖLUMARKAÐUR
BÍLDSHÖFÐA 10 6?«i\
Opnunartími
Föstudaga kl. 13-19
Laugardaga .... ....kl. 10-16
Aðra daga kl. 13-18
Fjöldi fyrirtaekja
- gifurlegt vöruúrval
STEINAR- Hljómplötur - kassettur
★ SAUMALIST Alls konor efni
★KARNABÆR - Tískufotnoður herro og dömu
★ SKÆÐI - Skófatnaður
★ BOGART/GARBO - Tískufatnoður
★ BLÓMALIST Blóm og gjafovörur
★ HUMMEL Sportvörur alls konor
★ STÚDÍÓ Fatnoður
★ SAMBANDIÐ Fatnaður ó alla fjölskylduna
★ MÆRA- Snyrtivörur - skartgripir
★ VINNUFATABÚÐIN - Fatnaður
★THEÓDÓRA Kventískufatnaður
★ PARTÝ - Tískuvörur
★ SPARTA- íþróttavörur
★ BOMBEY Barnafatnaður
★ Verzl. KAREN- Barnafatnaður, undirföt o. fl.
★ SMÁSKÓR- Barnaskór
★ XOGZ - Barnaföt
Þú hef ur sko ekki
ef ni á að tapa af
þessum marlcaði!