Morgunblaðið - 09.03.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990
19
Karólína Lárusdótt-
ir sýnir í Nýhöfn
KARÓLÍNA Lárusdóttir opnar
sýningu í Listasalnum Nýhöfn,
Haftiarstræti 18, laugardaginn
10. mars kl. 14-16. A sýningunni
verða vatnslitamyndir og dúk-
ristur.
Karólína fæddist í Reykjavík árið
1944. Hún nam við Ruskin School
of Art í Oxford 1965-67 og Barking
College of Art 1980 undir hand-
leiðslu Harry Eccleston. Hún kenndi
myndlist um fimm ára skeið en
vinnur nú alfarið að list sinni. Kar-
ólínu var boðin aðild að Royal Soci-
ety of Painter-Etchers and Engrav-
ers árið 1980 og kosin meðlimur
1984. í september 1989 fékk hún
Dicks and Greenburyverðlaunin fyr-
ir mynd sína „Bið“ á haustsýningu
Painter-Etchers í Bankside Gallery
í London.
Þetta er þrettánda einkasýning
Karólínu en hún hefur einnig tekið
þátt í fjölda samsýninga erlendis.
Sýningin, sem er sölusýning, er
opin virka daga frá kl. 10-18 og
frá kl. 14-18 um helgar. Henni lýk-
ur 28. mars.
(Fréttatilkynning)
Nonaginta í
Hafinarborg
LAUGARDAGINN 3. mars
síðastliðinn var opnuð í Haftiar-
borg, menningar- og listastoftiun
Hafnarfjarðar, sýningin Nonag-
inta.
Þátttakendur eru: Björn Roth,
Daði Guðbjörnsson, Eiríkur Smith,
Kjartan Guðjónsson og Ómar Stef-
ánsson.
Sýningin er opin frá kl. 14—19
alla daga nema þriðjudaga og
stendur yfir til 19. mars næstkom-
andi.
Þ.ÞORGRlMSSON&CO
mm RUTLAND
mm ÞÉTTIEFNI
Á ÞÖK - VEGGI - GÓLF
ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Karólina Lárusdóttir opnar sýn-
ingu á verkum sinum í Nýhöfti á
laugardag.
aquadrive
METALAStljC
®
Vissir þú að bátur með innanborðsvél þarf ekki að titra meira en bíll með samsvarandi vél?
AQUADRIVE losar skrúfuöxulinn
frá vélinni og kemur þannig
í veg fyrir að hann leiði hávaða
og titring í bátskrokkinn.
METALASTIK mótorpúðarnir
losa vélina frá bátskrokknum,
svo titringur hennar verður í
lágmarki.
Leitið nánari upplýsinga
hjá sölumönnum okkar.
VELASALAN H.F.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122
Uwe G. Eschner gítarleikari
Gítartónleikar í
Hallgrímskirkju
LISTVINAFÉLAG Hallgríms-
kirkju heldur aukatónleika i kap-
ellu kirkjunnar laugardaginn 10.
mars, og heQast þeir kl. 17. Þar
leikur Uwe G. Eschner, gítarleik-
ari, verk eftir Narvaes, Dowland,
Giuliani, Sor, Castelnuovo-
Tedesco og Britten. Verkin eru
öll tilbrigði en þó mjög ólík að
gerð.
Uwe G. Eschner fæddist í Ham-
borg í Vestur-Þýskalandi. Hann
stundaði nám í Hamburger Konser-
vatorium og í tónlistarháskólanum
í Freiburg, hjá próf. Sonju Prunn-
bauer. Auk þess hefur hann sótt
námskeið hjá D. Russel, E. Fisk,
R. Aussel og fleirum.
Uwe kennir nú við tónlistarskól-
ann í Garði á Suðurnesjum. Hann
hefur haldið nokkra tónleika á ís-
landi áður, síðast lék hann á Há-
skólatónleikum nú í vetur.
Kjarob ó taveisla
í Veitingahöllinni
Við í Veitingahöllinrti höldum áfram að starfa í anda kjarasamninganna
og leggjum okkar lóð á vogarskálarnar með því aó bjóða glæsilegan
helgarmatseðíl á stórlækkuðu verói í hádegi og á kvöldin.
Okkar vinsæla fiskgrafín...........kr. 690 Lambapiparsteik m/koníakspiparsosu.kr. 1.090
Djúpsteikt ýsuflök Orly m/tartarsósu...........kr. 610 Reyktur lax m/eggjahræru..............kr. 450
Pönnusteikt raudsprettuflök m/hnetusmjörssósu Skelfisksalat m/hvítlauksbrauði ...............kr. 450
og léttsoðnum blaðlauk.........................kr. 790 Fylltar tartalettur m/grænmeti og sveppum
Karrý- og hvítlauksristaður steinbítur m/hrísgrjónum .kr. 790 og rækjuni ....................kr. 450
Gufusoðnar fylltar fiskirúllur m/bernaissósu.kr. 710 Hamborgarar eða samlokur fyrir börnin.kr. 150
Grisasnitzel m/skinku, osti og rjómasósu.......kr. 980 Rjómalöguð súpa og eftirréttur fylgir með öllum réttum.
Kaffihlaðborðið á sunnudögum er girnilegra og Qölbreyttara en
nokkru sinni fyrr með hnallþórum og brauðtertum.
Kaffihlaðborð sem seint gleymist.
Veitingohollarveisla fyrir allo
fjoískylduna er Ijúf og
ódýr tilbreyting.
C^itii
Húsi verslunarmiiar - símar: 33272-30400
Metsölublað á hvetjum degi!