Morgunblaðið - 09.03.1990, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990
2$
og fluttu þau þá til okkar í
Garðabæ. Beinteinn lést árið 1981,
en Díu fengum við að hafa hjá
okkur þar til hún varð bráðkvödd-
á heimili okkar þ. 1. mars sl. Og
nú ríkir mikill söknuður hjá fjöl-
skyldu okkar. Día var einstaklega
skemmtileg kona, glaðlynd, glettin
og stundum stutt í stríðnina. Hún
var mjög nægjusöm, hógvær og
hlédræg, svo okkur þótti stundum
nóg um. Aldrei sá ég hana reiðast
þessi þrettán sambýlisár.
Nú á skilnaðarstund bið ég Guð
að blessa minningu þeirra heiðurs-
hjóna Sigríðar og Beinteins, sem
ég vona og trúi að hafi hist á ný.
Erlingur Helgason
Ég var sex ára þegar amma og
afi fluttu til okkar og ég man enn,
hvað mér fannst skemmtilegt að
ganga að þeim vísum í stofunni
þeirra þegar ég kom fram á morgn-
ana og alltaf átti ég frátekið horn
í sófanum hjá afa. Hann var alltaf
tilbúinn að lesa, leika og syngja.
Fjórum árum seinna dó hann, 83
ára.
Og núna þegar amma mín góða
er dáin myndast aftur tómarúm.
Hún vildi allt fyrir alla gera. Ég
naut góðs af því að við vorum oft
ein heima. Hún var alltaf tilbúin
að útbúa fyrir mig eitthvað gott
að borða þótt ekki væri endilega
matartími. Og aldrei kom ég að
' tómum kofunum hjá henni ef mig
vantaði orð í enska, danska eða
þýska stíla.
Ég mun aldrei gleyma ömmu og
afa og öllum góðu stundunum, sem
við áttum saman.
Deyr fé,
deyja fi'ændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Hávamál)
Gunnar Orn
Sú harmafregn barst okkur til
eyrna að amma Día væri látin. Rifj-
aðist þá ýmislegt upp frá þeim 3
vetrum sem við fjölskyldan bjugg-
um í Garðabænum hjá tengdafor-
eldrum mínum og Díu. Þarna
bjuggu saman 4 ættliðir í sátt og
samlyndi, og þar bar aldrei skugga
á. Það var mikils virði fyrir Tinnu
litlu dóttur okkar að vera í svo
nánu sambandi við langömmu sína,
oft voru þær einar saman hálfu
dagana. Ég kynntist Díu ekki fyrr
en hún var orðin áttræð, en hún
var eins og ung kona að tala við,
glettin, skemmtileg en hæglát og
einhver tíguleiki yfir henni. Þótt
hún væri orðin 86 ára fannst okkur
hún aldrei gömul. Yndislegar minn-
ingar um hana munu verða okkur
huggun í söknuði okkar.
Óskar Svavarsson
Maríanna Valtýs-
dóttír - Minning
Fædd 8. október 1920
Dáin 2. mars 1990
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast mágkonu minnar, Marí-
önnu eða Mæju eins og hún var
oftast kölluð. Hún andaðist í sjúkra-
húsi Akureyrar 2. mars sl. eftir
langt sjúkdómsstríð. Maríanna
fæddist á Stærra Árskógi, Árskógs-
strönd, 8. október 1920. Foreldrar
hennar voru Rakel Jóhanna Jó-
hannsdóttir og Valtýr Jónsson, sem
síðar fluttust að Selárbakka í sömu
sveit og þar ólst hún upp. Hún var
elst fjögurra systkina en þau eru
Óskar Kató, Katrín og Margrét.
Maríanna giftist 13. júlí 1941
Ármanni Tryggva Magnússyni,
húsgagnasmið frá Akureyri, mikl-
um ágætis manni. Hann lést 25.
apríl 1963, aðeins 43 ára gamall.
Þá reyndi mikið á Maríönnu. Hún
var aðeins 42 ára gömul en hún
var dugleg og lét ekki bugast. Þau
eignuðust tvö börn. Þau eru Sigur-
björg sem gift er Þórarni Hrólfs-
syni, múrarameistara, og eiga þau
þijá syni. Þeir heita Tryggvi, Hrólf-
ur og Sigþór. Ragnar Valtýr sem
kvæntur var Maríu Guðmundsdótt-
ur og eignuðust þau eina dóttur sem
Maríanna heitir. Ragnar fetaði í
fótspor föður síns og lærði hús-
gagnasmíði. Ragnar lést 1978, að-
eins 28 ára gamall, og var það
mikið áfali fyrir fjölskylduna alla.
Rétt eftir fæðingu Ragnars kom
í ljós að hann var með alvarlegan
hjartasjúkdóm og að sjálfsögðu
voru þetta miklir erfiðleikar fyrir
foreldrana. Á þeim árum þurfti að
leita út fyrir iandsteinana eftir
læknishjálp. Maríanna var ákaflega
dugleg og drífandi kona. Það sýndi
sig best þegar hún fór ein með son-
inn 9 ára gamlan til Kaupmanna-
hafnar til að leita lækninga.
Leiðir okkar Mæju lágu fyrst
saman fyrir rúmum fjórum áratug-
um. Þá voru þau hjónin nýbúin að
byggja sér stórt og myndarlegt
tveggja hæða íbúðarhús við Norður-
götu 51, Akureyri, í félagi við elsta
bróður hans. Áttu þau efri hæðina.
Á heimili þeirra var oft gestkvæmt
og öllum tekið vel. Við og fjölskylda
okkar vorum alltaf kærkomnir gest-
ir þar.
Maríanna giftist aftur 28. maí
1978 eftirlifandi manni sínum,
Magnúsi Sumarliðasyni. Það var
henni mikil gæfa því hann hefur
reynst henni afburðavel.
Eftir að þau Magnús kynntust
seldi hún eign sína í Norðurgötu
og keyptu sér íbúð að Víðilundi 2
hér í bæ. Þar hafa þau búið æ síðan.
Nú að leiðarlokum viljum við
hjónin og fjölskylda okkar þakka
Mæju vináttu hennar öll þessi ár.
Við biðjum góðan guð að styrkja
Magnús og fjölskyldu hennar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Guðbjörn Guðjónsson
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og sonur,
SÆMUNDUR ÁGÚSTSSON,
Túngötu 8,
Reyðarfirði,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans þriðjudaginn 7. mars.
Lúvisa Kristinsdóttir,
Sigrún Sæmundsdóttir, Björgvin Pálsson,
Ágúst Sæmundsson, Dísa Mjöll Ásgeirsdóttir,
Kristinn Sæmundsson,
Anna Þ. Sæmundsdóttir.
'AUGL YSINGAR
ÝMISLEGT
Tilkynning frá
Tölvunefnd
Hér með vill Tölvunefnd vekja athygli á
ákvæðum 21. og 22. gr. laga um skráningu
og meðferð persónuupplýsinga nr. 121/1989
varðandi áritanir nafna og heimilisfanga á
útsent efni. Samkvæmt þessum ákvæðum
mega aðeins þeir, sem hafa fengið starfs-
leyfi frá Tölvunefnd afhenda nöfn og heimilis-
föng úr skrám til að nota til áritunar á efni
sem dreifa á. Sömuleiðis skulu þeir, sem
annast fyrir aðra áritun nafna og heimilis-
fanga (svo sem með límmiðaáritun), hafa
starfsleyfi frá nefndinni.
Þá skal það efni, sem sent er út samkvæmt
skrám yfir tiltekna hópa einstaklinga, stofn-
ana, fyrirtækja eða félaga, bera með sér á
áberandi stað nafn þess aðila, sem hefur
skrá þá, sem áritað er eftir. Ennfremur skal
koma fram í útsendu efni, að þeir, sem óska
eftir því að losna undan slíkum sendingum
framvegis, geti skrifað eða hringt til þess
aðila og fengið nöfn sín afmáð af útsending-
arskránni. Er þá skylt að verða þegar við
þeirri beiðni.
Reykjavík, 7. mars 1990.
Tölvunefnd.
Starfsfólkí
veitingahúsum
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu við kjör stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs hjá Félagi starfsfólks í veitinga-
húsum fyrir næsta starfsár.
Listum, ásamt meðmælendum, ber að skila
á skrifstofu FSV, Ingólfsstræti 5, fyrir kl.
12.00 á hádegi, 16. mars 1990.
Kjörstjórn.
TILKYNNINGAR
Upplýsingafundur um
Evrópska efnahagssvæðið
EES
Utanríkisráðuneytið heldur upplýsingafund
um viðræður Fríverslunarsamtaka Evrópu
(EFTA) og Evrópubandalagsins (EB) um
myndun Evrópska efnahagssvæðisins (EES)
á Hótel Stykkishólmi laugardaginn 10. mars
nk. kl. 16.00.
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra,
hefur framsögu og svarar fyrirspurnum.
HÚSNÆÐI í BOÐI
Til leigu
mjög skemmtilegt einbýlishús á einni hæð
ca 150 mz og tvöfaldur bílskúr í Mosfellsbæ.
Allt á einni hæð: Stór stofa, fjögur svefn-
herbergi og setustofa. Gluggatjöld, ísskápur,
sjónvarp og þvottavél fylgja með. Möguleiki
á að húsgögn leigist einnig með. Skemmti-
legur, sólríkur garður. Leigutími 1-2 ár.
Reglusemi áskilin. Leigist frá 1. júní nk. vegna
brottflutnings af landi.
Tilboð merkt: „Paradís - 7652“ sendist aug-
lýsingadeild Mbl.
F É L A G S S T A R F
Egilsstaðir
Fundur hjá sjálfstæðisfélagi Egilsstaða verður i Valaskjálf föstudag-
inn 9. mars kl. 21.00. Fundarefni: Framboðsmál.
Stjórnin.
Stefnismenn,
Hafnarfirði
Laugardaginn 10. mars kl. 9.00 ætla sjálfstæðismenn að fjölmenna
upp í vélsmiðjuna Klett við Helluhraun í tiltektir og undirbúning fyrir
smiðjuballið sem hefst kl. 21.00 laugardaginn 10. mars. Stefnismenn
sem geta 6éð af smá tíma eru hvattir til þess að mæta í undirbún-
inginn og svo auðvitað á ballið. Sjáumst!
Stjórn Stefnis.
Grindavík
Sjálfstæðisfélag Grindavikur heldur al-
mennan félagsfund sunnudaginn 11. mars
kl. 15.00 í Festi.
Dagskrá:
Tekin ákvörðun um framboðslista.
Önnur mál.
Gestur fundarins: Ólafur G. Einarsson, al-
þingismaður.
Kaffiveitingar.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Hafnfirðingar - Smiðjuball
Smiðjuball verður haldið i Vélsmiðjunni Kletti, Helluhrauni 18, laugar-
daginn 10. mars kl. 21.00. Skemmtiatriöi verða í höndum sjálfstæðis-
félaganna Fram, Stefnis, Vorboðans og Þórs. Lúðrasveit Hafnarfjarð-
ar og hljómsveitin Gömlu brýnin leika fyrir dansi. Miðasala í Sjálfstæð-
ishúsinu við Strandgötu og við innganginn.
Ps. Geymið góðu fötin heima.
Sjálfstæðisfélögin i Hafnarfiröi.
fHitorip ja
Áskriftarsíminn er 83033