Morgunblaðið - 09.03.1990, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990
fclk í
fréttum
TONLIST
Sykurmolarnir í Time
Sykurmolarnir íslensku eru nú
á tónleikaferð um þver
Bandaríkin og leika þar í 23
borgum fyrir um 60—70.000
manns. Uppselt er á alla tónleika
hljómsveitarinnar og gengur ferðin
að óskum, utan leiðindaatviks í
Tmie
Myndin sem
birtist
Denver fyrir stuttu, sem sagt
var frá í Morgunblaðinu fyrir
skemmstu. I nýjasta hefti
vikuritsins Time er sagt frá
tónleikaferð hljómsveitar-
innar í dálki sem kallast
People, eða einfaldlega
Fólk, oger Sykurmolarnir
þar í samfloti með Syl-
vester Stallone, Orson
Welles heitnum og Jean
Paul Belmondo meðal
annarra. í stuttu spjalli
segjast hljómsveitar-
mcðiimir hafa valið
nafnið Sykurmolarnir
vegna þess að það
var „kjánalegasta
nafn sem okkur datt
í hug“. Þeir segjast
einnig véra fulltrúar
íslands „með því
einfaldlega að vera
við“. í lok greinar-
stúfsins kvartar sá
sem hann skrifar
yfir því hvað
hljómsveitar-
meðlimir heiti
óþjálum nöfn-
um.
STYKKISHOLMUR
• •
Oskudagur
í sól og 10
stiga frosti
Stykkishólmi.
ÞAÐ fór ekki á milli mála hvaða
dagur var á öskudag. Skólinn
' kenndi til hádegis og strax eftir
hádegi mætti stór hópur nem-
enda og kennara tilbúinn að hefja
göngu í alls konar búningum.
Gangan fór um götur bæjarins,
heimsótti verslanir og sjúkrahú-
sið, bæði á hestum og hestum
postulanna.
Hestamennirnir létu ekki á sér
standa að mæta og ef þeir yngstu
gáfust upp í göngunni var þeim
leyft að koma á hestbak og var
það mikil gleði. Búningar voru eins
og alltaf áður margvíslegir og allt
frá Suðurlöndum að Grænlands
köldu klettum. Var ótrúleg hug-
myndaauðgi nemendanna og auð-
vitað lögðu mæðurnar sitt til. Já,
flestir þjóðflokkar voru mættir og
jafnvel álfar og þess konar lýður.
Hópurinn fékk alls staðar mikla
athygli og góðar móttökur.
Veður var hið besta, sól í heiði
og aldan gjálfraði við fjörusteina,
lægjandi vindur en mikið frost.
Komst á tímabili nær 10 stigum
en það þykir mikið miðað við það
sem af er vetrinum.
Svo var annar hópur sem var
að koma sér upp útvarpsstöð í
skólanum því nú er þemavikan
framundan og dagskráin út vikuna
fest upp I skólanum og var hún
eins og hjá útvarpinu mjög fjöl-
breytt en um næturútvarp er ekki
að ræða á þeim bæ.
— Arni
Morgunblaðið/Árni Helgason
Börnin skemmtu sér vel á öskudaginn í Stykkishólmi í miklu frosti.
--
COSPER ---
Svo fáið þið frímiða á frumsýninguna
COSPER
^ ^ Moi-gunblaðið/Pétur Þorsteinsson
„Landshðið" lék á einhleypingakvöldinu.
SKEMMTUN
Kristnir einhleyp-
ingar á kvöldsamveru
SÍÐUSTU helgina í febrúar komu
rúmlega 60 manns saman í hús-
næði Vegarins í Mjódd í Breiðholti.
Voru það einhleypingar úr nokkrum
kristnum samfélögum á Reykjavík-.
ursvæðinu, sem korriu til samfélag-
seflingar. Var byijað með pottrétti,
farið í leiki og endað aftur með áti
á rjómatertum og randabrauði, sem
náði fram á rauða nótt.
Hefur oft verið rætt um nauðsyn
þess, að hinir ógiftu í kristnu sam-
trúarhópunum kæmu saman til þess
að kynnast gerr og eiga samfélag
saman, en ekkert verið gert, þar
til þessi hátíð var haldin. Sumir
voru vantrúaðir á, að þetta gengi
upp og fannst tilgangurinn vera
hálf asnalegur, þar sem þetta væri
eins og tilhleypingar um fengitím-
ann hjá kindum, og komu þess
vegna ekki, vildu ekki fá á sig ein-
hvern örvæntingarstimpil með því
að mæta.
Þeir sem mættu, töldu þetta hafa
verið ágætis tilraun, og vænta þess,
að eitthvert framhald verði á kvöld-
um sem þessum, hvort sem það
verður í þessu formi eður ei. Hefur
verið rætt um að fara helgarferð í
Landmannalaugar í júlímánuði í
sumar.
Megin markmiðið hjá þeim, sem
stóðu fýrir samfélagsæfingunni var
ekki það, að menn myndu gifta sig
á næstu dögum eftir þetta kvöld,
heldur aðeins það, að skapa aðstöðu
og tækifæri fyrir þetta fólk til að
hittast og kynnast. Sum sé engin
hjónabandsmiðlun.
Þar sem þetta voru kristnir ein-
hleypingar, þá hefur stundum verið
sagt, að lítið gengi hjá þeim að ná
sér í maka, og er það ekki sérstak-
lega nýtt innan kristinna samfé-
laga, þar sem nafnið guðsgeldingur
hefur oft fest við suma þar. Segir
orðabók Menningarsjóðs að merk-
ing orðsins „guðsgeldingur" sé rola.
Það má því með sanni segja, að
hinir réttu guðsgeldingar í þessu
tilviki hafi verið þeir, sem voru það
miklar rolur, að þeir þorðu ekki að
mæta og sátu heima. - pþ
Sameinast
gegn alnæmi
Listamenn í Bandaríkjunum
hafa hleypt af stokkunum
herferð sem miðar að því að
draga úr útbreiðslu alnæmis
þar í landi. Myndin var tekin
er herferðin hófst formlega í
höfuðborg Bandaríkjanna,
Washington. Leikkonan fræga,
Elizabeth Taylor, er formaður
framkvæmdanefndar herferð-
arinnar en maðurinn sem kyss-
ir hönd hennar af sýnilegri
áfergju heitir Robert Rausc-
henberg, formaður samtaka
bandarískra listamanna.