Morgunblaðið - 09.03.1990, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990
39
I
VELAAKANDI
SVARiR í SÍMA
691282KL. 10-12
FRÁ NÁNUDEGI
TIL FCSTUDAGS
y\p i/wii gw
BRIDS
AÐ KVELJA DYR
- svar til Gísla Konráðssonar
Til Velvakanda.
Ekki hélt ég að ég ætti eftir að
sjá nokkurn íslending réttlæta
undir nafni og því síður á prenti
notkun lásboga við veiðar á dýrum
hérlendis, eða bara hvar sem er.
En svo er ekki annað að sjá hér í
Velvakanda 24. febrúar sl. en að
slíkt hjartakrumpað fólk sé til. Því
þar sendir Gísli nokkur Konráðsson
mér tóninn á sinn alkunna hógværa
og lítilláta hátt. Helst var á honum
að skilja að veiða ætti frekar mig
í lásboga ef eitthvað væri vegna
þessa nöldurs míns. Slíkt meindýr
væri ég fyrir skoðanir mínar.
Hér á myndunum má sjá ná-
kvæmlega hvernig þessir bogar eru
hannaðir og hversu smekklega í
reynd þeir veiða þessi skynlausu
grey sem óvart á þá stíga. Mér er
alveg sama þótt þú Gísli eða ein-
hverjir aðrir eigið eitthvað sökótt
við refi eða minka. Þessi framkoma
er samt á engan hátt réttlætanleg.
Ekki með nokkru móti. Eða vildir
þú kæri Gísli verða veiddur í svona
gildru og vera kraminn fastur í
henni uns hungurdauði biði þín
hægt og sígandi?
Æði eru það annars fátækleg
rök í réttlætingu þinni á notkun
lásboganna að ég sé meðlimur í
Sea Shepherd-samtökunum góðu.
Eg sé alls ekki hvað það kemur
málinu við. Ekki stendur á mér hins
vegar að ræða það. Öðru nær. En
ég hafði ekki hugsað mér að eyða
mengandi prentsvertu og dýru
plássi hér í Blaðinu hjá skáldinu
og húmanistanum Matthíasi Jo-
hannessen, ritstjóra Málgagnsins,
undir slíkar augljósar staðreyndir
um vin minn Paul Watson og sam-
tökin okkar góðu Sea Shepherd.
Enda eru þær röksemdir marg-
tuggnar af minni hálfú.
Fátt hefur hins vegar glatt mig
meira síðustu árin en að til skuli
vera í þessum harða og miskunnar-
lausa heimi okkar fólk sem gefur
skít í ráðstefnur á ráðstefnur ofan
og bjargar smælingjum heimsins
milliliðalaust og orðalaust. Ég veit
vel að það er erfitt að koma þessu
heim og saman við friðhelgi eignar-
réttarins gagnvart þolendunum. En
einhvers staðar verða mörk lífs og
dauða og útrýmingar að liggja.
Mér fmnst líka að frelsa eigi refí
og minka út úr þessum andstyggð-
ar búrum sem þeir eru ræktaðir í
eins og hveijar aðrar plöntur. Fyrst
skal samt reyna allar aðrar leiðir
til hins ýtrasta til að uppræta þenn-
an óþverra. Gangi það ekki þá skal
líka hver sem betur getur bretta
upp ermarnar og láta verkin og
mannúðina tala. Láta guðlegu taug-
ina í sér ráða ferðinni fremur en
að hafa þessa bænafroðu á vörun-
um sýknt og heilagt og meina svo
nákvæmlega ekkert með henni
Heba heldur
við
heilsunni
Dans-
leikfimi,
megrunar-
leikfimi,
Trimmform.
Ný námskeið
12. mars
Heilsurœktin Heba
Auðbrckku 14. Kópavogl.
Simi 642209.
þegar neyð annarra hrópar á mann.
En varðandi lásbogana sem þú
kýst að sveipa sakleysisdulu með
því að kalla dýraboga (sem er
reyndar aðalatriði gagnrýni þinnar
á mig svo undarlegt sem það ann-
ars er) þá skiptir það bara alls engu
máli í umræðunni um virðingu fyrir
dýrunum hvað þessi kvalatæki þín
og annarra eru kölluð, né hvaða
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag kvenna
SI. mánudag hófst parakeppni fé-
lagsins. 36 pör mættu til leiks. Spilað
er í þremur 12 para riðlum. Urslit
fyrsta kvöldið:
A-riðill:
Sigrún Pétursdóttir - Sveinn Sigurgeirsson 203
GuðrúnHinriksd.-HaukurHannesson 203
Sæbjörg Jónasd. - Þorsteinn Erlingsson 183
lovísa Eyþórsdóttir — Óskar Karlsson 177
B-riðill:
Guðný Guðjónsdóttir - Jón Hjaltason 202
Véný Viðarsdóttir Jónas Elíasson 200
DúaÓlafsdóttir-JörundurÞórðarson 188
Júlíanaísebam-Ömísebam 179
C-riðill:
María Ásmundsdóttir - Steindór Ingimundars. 209
Þorgerður Þórarinsdóttir — Steinþór 200
Halla Bergþórsdóttir - Hannes Jónsson 182
Gunnþórunn Erlingsd. - Sigmundur Stefánss. 179
Meðalskor 165.
Bridsfélag Akureyrar
Ilafin er fjögurra kvölda sveita-
keppni, Halldórsmótið. Tólf sveitir taka
þátt í keppninni sem er spiiuð með
Board-A-Match fyrirkomulagi. Spilaðir
eru þrír 8 spila leikir á kvöldi.
Staðarí eftir fyrsta kvöld:
Hermann Tómasson 72
Stefán Vilhjálmsson 55
Ragnhildur Gunnarsdóttir 51
Grettir Frímannsson 49
Öm Einarsson 48
GissurJónasson 46
Sigfús Hreiðarsson 42
dýr eru veidd í þau; refír, minkar,
eða bara fólk, eins og er víst all
algengt erlendis þar sem þessum
óþverra er dreift sem mest. Sak-
lausir vegfarendur hafa ósjaldan
stigið í þessa lásboga, bæði tennta
og ótennta, einkum þó börn að því
hermt er t.d. í Bretlandi.
í öðru lagi nær það ekki nokk-
urri átt að kvelja dýr (eða menn)
hér í heimi i þessum mæli sem
þessi verkfæri eða önnur svipuð
gera. Og það þrátt fyrir að við
köllum einhvern tiltekinn flokk dýra
„meindýr" vegna samkeppni eða
annarra hagsmuna okkar gagnvart
þeim og líferni þeirra.
Það sem menn verða að fara að
gera sér ljóst er að fólk er víðast
um hinn menntaða heim farið að
hafna þessari helstefnu Gísla allra
landa og því hætt að neyta dýra-
afurða eða klæðast þeim, þar með
töldum loðfeldunum illa fengnu úr
loðdýraiðnaðinum andstyggilega,
þar sem lágkúra menningarinnar
er hvað mest.
Ég tel að besta lífsregla hvers
manns og boðorð allra boðorða sé
að gera öðrum aldrei það sem
maður sjálfur vill ekki að sér sé
gert. Og á það við allar lífverur
sem minnsti lífsneisti er í. Þeir sem
halda öðru fram eru a.m.k. ekki
sannkristnir, en það snertir þig
kannski lítið. En sem heiðvirðan
einstakling með þroskaða siðgæðis-
vitund hlýtur hún samt að gera það.
Ég skora á þig Gísli að svara
því heiðarlega og í einlægni hvort
þú gætir hugsað þér hlutskipti
títtnefpdu blárefslæðunnar sem 01-
afur bóndi Jónsson á Fjöllum í
Kelduhverfi var sem stoltastur af
að hafa veitt í lásbogann sinn í lok
janúar sl. og þú varðir hér af
kappi. Ef svo er þá tel ég að þú
þyrftir að fara á alllangt eintal við
Guð þinn um málið og lífssýn þína
í heild.
Magnús H. Skarphéðinsson
Meðalárangur 42
Næstu þijár umferðir verða spilaðar
í Félagsborg nk. þriðjudagskvöld kl.
19,30.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 5. marz sl. hófst Butl-
er-tvímenningur félagsins og er spilað
í tveimur 10 para riðlum. Urslit kvölds-
ins urðu eftirfarandi:
A-riðill:
Ólafurlngimundarson-SverrirJónsson 43
ÞórarinnZófusson-HalldórEinarsson 37
Ólafur Torfason - Daníel Hálfdanarson 35
Karl Bjamason - Sigurberg Elentínusson 32
Guðlaugur Ellertsson - Guðmundur Hansson 32
B-riðill:
Guðbrandur Sigurbergss. - Kristófer Magnúss. 50
Ólafur Gíslason - Sigurður Aðalsteinsson 49
Albert Þorsteinsson - Sigurður Emilsson 45
Erla Sigurjónsdóttir - Þorfinnur Karlsson 38
Norsku Stil ullarnærfötin
Híý
og notaleg
hvenær
sem er.
Dæmi um verð:
Buxur
elnf. fóðr.*
Bolir
einf. fóðr.*
1698- 1785- 2122- 2298-
Stuttermabolir kr. 1857-
* fóðruð með mjúku Dacron efni.
aickaaosaa
Grandagarði 2, Rvík., sími 28855
S?
REYKVIKINGAR!
Ásgeir Hannes Eiriksson,
þingmaður Borgaraflokksins
og fulltrúi Reykvíkinga í
fjárveitinganefnd Alþingis,
veröur á Café Hressó í Austur-
stræti í dag, föstudaginn
9. mars, kl. 12.00—14.00.
UR HUGARHEIMI
Sýning á verkum fatlaðra
verður opnuð í Listasafni ASÍ laugardaginn 10. mars kl. 15.00.
Dagskrá opnunar:
★ Inngangsorð: Ásta B. Þorsteinsdóttir, formaður Landssamtakanna
Þroskahjálpar.
★ Ávarp: Svavar Gestsson, menntamálaráðherra.
★ Setning: Ólöf Ríkarðsdóttir, varaformaður Öryrkjabandalags íslands.
★ Einsöngur: Dúfa Sylvía Einarsdóttir við undirleik Guðbjargar Sigurjónsdóttur.
★ Leikhópurinn Perlan.
&BÍ
Öryrkjabandalag íslands
Hátúni 10, 105 Reykjavík
Sími 91-26700
JLioskahjálp
Landssamtökin Þroskahjálp
Nóatúni 17, 105 Reykjavík
Sími 91-29901
Opið frá kl. 16.00-20.00 virka daga og frá kl. 14.00-20.00 um helgar.