Morgunblaðið - 09.03.1990, Qupperneq 44
Kringlan 5
Sími
692500
SJOVAi
M.MENNAR
I
EINKAREIKNINGUR Þ/NN
ILANDSBANKANUM «
_________________MÁ
FOSTUDAGUR 9. MARZ 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Islenskt
vallarfox-
~gras selt
í Kanada
NÝLEGA var hafin sala á íslensk-
um stofni af vallarfoxgrasi hjá fræ-
framleiðandanum Oseco í Ontario
í Kanada. Er um að ræða svo-
nefndan Korpu-stofh, sem dr.
Sturla Friðriksson hjá Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins kynbætti
og ræktaði. Stofninn er tekinn til
sölu í Kanada vegna þess að hann
er sérstaklega harðgerður og gef-
ur meira fi-æ en ílestir aðrir stofh-
ar sem þar eru ræktaðir.
^ Sturla sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þetta væri glöggt dæmi
þess hve tímafrekar plöntukynbætur
væru og hve lengi þyrfti að vinna
að því að koma vöru á markað, en
hann hóf söfnun á vallarfoxgrasi
árið 1952 og valdi úr því sérstakan
stofn, sem nefndur var Korpa, og
er fyrst nú til sölu fyrir ræktendur
í Kanada.
„Það er ánægjulegt að hafa stuðl-
að að umbótum í ræktun sem kemur
mörgum að gagni, auk þess sem um
getur verið að ræða nokkrar tekjur
'-ÍÉi.'rir einkaleyfið verði góð sala á
þessu fræi þar vestra,“ sagði Sturla.
Flugvél fann
ekki Island
KANADÍSK Twin Otter-flugvél, á
leið frá Evrópu til íslands, lenti i
vandræðum í gær þegar siglinga-
tæki biluðu. Fann flugmaðurinn
ekki ísland og var kominn suðvest-
ur fyrir land þegar Fokker-flugvél
Landhelgisgæslunnar fann hana.
Flugvél Landhelgisgæslunnar
var kölluð út um klukkan 17.30 í
gær til að aðstoða kanadísku vél-
—ina. Eftir að flugvélin fannst var
henni snúið við, og náðist þá á rad-
ar hjá Fjarskiptastöðinni í Gufunesi
sem leiðbeindi henni til Reykjavík-
ur.
Morgunblaðið/RAX
Höfrungur á strandstað við innsiglinguna til Grindavíkur. Á
minni myndinni sjást skipin þrjú undirbúa björgun Höfrungs.
Höfrungur GK náðist af strandstað við Grindavík:
Allt botnstykkið talið ónýtt
TALIÐ er að öll áhöfnin á Höfr-
ungi GK 27 hafi verið í fasta-
svefini þegar skipið strandaði
skammt sunnan innsiglingar-
innar í Grindavík í gærmorgun.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hafði svokallaður
vökustaur, tæki sem ætlað er
að vekja áhöfnina, ekki verið
gangsettur. Skemmdir reynd-
ust meiri en virtist í fyrstu.
Höfrungur, sem er 179 tonna
stálbátur, var að koma úr róðri
þegar hann strandaði um klukkan
8 í gærmorgun. Tíu manna áhöfn
var um borð en engan sakaði.
Þijú skip drógu Höfrung á flot
laust eftir hádegið í gær og sigldi
báturinn fyrir eigin vélarafli til
Njarðvíkur þar sem hann var tek-
inn í slipp í gærkvöldi.
Að sögn Oddbergs Eiríkssonar
verkstjóra hjá Skipasmíðastöð
Njarðvíkur er Höfrungur talsvert
skemmdur. Allt botnstykki skips-
ins er talið ónýtt, kjölurinn er
mikið skemmdur og skrúfan er
skemmd.
Sjópróf vegna strandsins hefj-
ast hjá bæjarfógetanum í Keflavík
í dag klukkan 14.
Sjá frétt á miðopnu.
Svala Lind KÓ 13 í Sandgerðishöfn í desember sl
Maður fórst með
trdlu frá Sandgerði
VELBATURINN Svala Lind KO,
sem gerður var út frá Sandgerði,
sökk um klukkan sex í gærkvöldi
skammt vestur af Garðskaga.
Einn maður var um borð og fórst
hann. Svala Lind var handfæra-
bátur af gerðinni Sómi 800.
Ekki var í gærkvöldi vitað um
orsakir slyssins. Neyðarkall heyrðist
frá Svölu Lind og síðar var blysi
skotið upp. Nærstaddir bátar héldu
’^regar á vettvang og kom Þrándur
KE 67, sem einnig er Sómi 800,
fyrstur á slysstað. Einn inaður var
á Þrándi og þegar honum tókst að
ná bátsveija Svölu Lindar um borð
var hann meðvitundarlaus.
Menn frá björgunarsveitinni Sig-
urvon í Sandgerði héldu þegar í átt
að slysstað með vélbátnum Skarfa-
kletti RE og fór einn þeirra um borð
í Þránd til að reyna að lífga mann-
inn, en án árangurs. Þegar bátamir
fóru af slysstað stóð stefni Svölu
Lindar enn upp úr sjónum og voru
björgunarsveitarmenn á báti sveitar-
innar, Sæbjörgu, að leita flaksins
þegar síðast fréttist í gærkvöldi.
Englandsbanki setur viðskiptabönkum nýjar reglur:
Kjör Landsvirkj-
unar gætu versnað
LANDSVIRKJUN var með í undirbúningi lánsQárútboð á markaði
í London á vegum Scandinavian Bank, að upphæð 55 milljónir
Bandaríkjadala, (um 3,3 milljarðar króna) en nýjar bankareglur
í Bretlandi gera það hugsanlega að verkum að ábyrgð eigenda
Landsvirkjunar verði ekki metin til jains við ríkisábyrgð. Því
kunna kjörin á lánsfjárútboðinu að verða lakari en þau lánskjör
sem Landsvirkjun hefúr hingað til búið við. Halldór Jónatansson,
forstjóri Landsvirkjunar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær
að Englandsbanki hefði gefíð viðskiptabönkum fyrirmæli um að
meta með öðrum hætti en áður eigendaábyrgð á lántökum. Hann
kvað þó ekki útilokað að niðurstaða þessa máls yrði Landsvirkjun
í hag, en það myndi ekki skýrast fyrr en síðar.
„Það er um ábyrgð ríkisins,
Reykjavíkurborgar og Akureyrar
sem eigenda Landsvirkjunar sem
hér er um ræðir og hvernig eigi
að meta hana gagnvart nýjum
kröfum sem Englandsbanki gerir
til skuldbindinga og lánveitinga
breskra viðskiptabanka,“ sagði
Halldór. Hann sagði að spurningin
væri um það hvort viðkomandi
bankar, sem tækju þátt í lánveit-
ingunni, þyrftu að meta lánveit-
inguna á þann hátt að um meiri
áhættu væri að ræða en áður, og
þyrftu þar af leiðandi að skerða
lánveitingar sínar og áskilja sér
hærri vexti.
„Lánskjör okkar hingað til hafa
nánast jafngilt því að við værum
með skilyrðislausa og beina ríkis-
ábyrgð. Verði niðurstaðan sú að
ábyrgð eigendanna verði ekki
metin til jafns við ríkisábyrgð,
geta lánskjör okkar versnað,“
sagði Halldór, „en hversu mikið
kjörin myndu versna er ekki hægt
að segja til um, þar sem engin
reynsla er komin á þessar nýju
reglur."
Dr. Jóhannes Nordal, seðla-
bankastjóri og formaður stjórnar
Landsvirkjunar, er staddur í Lon-
don vegna þessa máls. Hann mun
eiga fund með fulltrúum Eng-
landsbanka í dag. Hann sagði i
samtali við Morgunblaðið í gær-
kveldi að upp hefði komið óvissa
um í hvaða áhættuflokk svona lán
myndi falla, en hann sagði að
ómögulegt væri að fullyrða um
hver niðurstaða þessa máls yrði.
„Það er mjög óheppilegt að ganga
frá þessum lánssamningi án þess
að niðurstaða liggi fyrir,“ sagði
Jóhannes.