Morgunblaðið - 25.03.1990, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. MARZ 1990
ERLENT
Mannkynssaga er ekki
bara safii ólíkra skoðana
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞRÍR breskir lávarðar og nokkrir háskólakennarar í sagnfræði hófu
nýlega herferð fyrir því, að sögukennsla í breskum skóluni byggðist á
staðreyndum fyrst og fremst.
BNNLENT
Fimni björg-
uðust af Sjö-
stjörnunni
Fimm skipveijar
björguðust en
eins er saknað
eftir að Sjöstjam-
an VE 92 fórst
skammt austur
af Heimaey
klukkan rúmlega
10 á þriðjudags-
morgun. Skipverjamir fimm kom-
ust naumlega af Sjöstjömunni og
hröktust í aftakaveðri í þijár
klukkustundir í gúmmíbjörgxmar-
bát áður en þeim var bjargað um
borð í hafnsögubátinn Lóðsinn VE.
Lóðsinn fann björgunarbátinn þeg-
ar staðsetning sendinga neyðar-
sendis hans hafði verið miðuð út
með aðstoð gervihnatta og flug-
véla.
Björgun áhaíhar
Hjördísar tók 7 mínútur
Mannbjörg varð er Hjördís KE
133 sökk vestur af Stafnesi rétt
fyrir klukkan 8 á föstudagsmorg-
un. Aðeins sjö mínútur iiðu frá því
skipstjórinn sendi út neyðarkall og
þar til skipveijamir íjórir höfðu
náðst um borð í Hafnarberg RE.
Skömmu eftir að neyðarkallið var
sent út lagðist Hjördís á hliðina en
áhöfnin komst upp á síðuna og
þegar bátnum hvolfdi alveg náðu
mennimir að halda sér í skrokkinn.
Þeir vom um hálfa mínútu í köldum
sjónum áður en þeim var bjargað.
gRLENT
Hægri flokk-
ar sigruðu
í Austur-
Þýskalandi
Þreifingar um myndun nýrrar ríkis-
stjórnar í Austur-Þýskalandi hafa
gengið treglega. Hægri flokkarnir
þrír vom sigurvegarar fyrstu lýð-
ræðislegu kosninganna þar í landi
sl. sunnudag og féllust þrír flokkar
fijálslyndra á að mynda stjórn með
þeim sl. þriðjudag. Saman hlutu
bandalög hægriflokka og flokka
fijálslyndra þingmeirihluta eða 214
þingsæti af 400. Kristilegi demó-
krataflokkurinn (CDU) hlaut
40,91% atkvæða og 164 þingmenn,
Þýska sósíalsambandið (DSU)
6,32% og 25 sæti og Lýðræðisvakn-
ingin (DA) 0,9% en flokkar í sam-
bandi fijálsra demókrata (BFD),
Fijálslyndi demókrataflokkurinn
(LDP), Fijáisi demókrataflokkur-
inn (FDP) og Þýski vettvangurinn
(DFP), hlutu 5,28% atkvæða og
21 þingmann. Jafnaðarmanna-
flokkurinn, næststærsti flokkurinn
eftir kosningar með 21,84% at-
kvæða og 87 þingmenn, afþakkaði
boð um aðild að stjóm.
Deilur Litháa og
Moskvustj órnarinnar
harðna
Míkhaíl Gorbatsj-
ov, forseti Sov-
étríkjanna, skip-
aði sovésku
stjórninni á
mánudag að
grípa til ráðstaf-
ana vegna sjálf-
stæðisyfirlýsing-
ar Litháens, en
þá rann út þriggja daga frestur sem
hann hgafði gefið Litháum til að
endurskoða sjálfstæðisyfirlýsing-
una. Tollayfirvöldum í Litháen og
öryggislögreglunni, KGB, varfyrir-
skipað að hlýða Moskvustjóminni
en ekki Litháum og í yfirlýsingu
sovétstjórnarinnar var því mótmælt
að leiðtogar Litháens skyldu halda
Gúmmíbjörgunarbátur Hjördísar
blés ekki.upp.
Jarðskjálftahrina í
höfuðborginni
Ellefu jarðskjálftar fundust í
skjálftahrinu sem gekk yfir Suð-
vesturland um og eftir síðustu
helgi. Um hundrað minni skjálftar
mældust. Skjálftamir áttu upptök
í Sveifluhálsi vestan við Kleifar-
vatn. Öflugasti jarðskjálftinn varð
á mánudagsmorgni og mældist
hann 4,7 stig á Richterkvarða.
Skók hann höfuðborgarsvæðið en
ekki er vitað um teljandi tjón af
hans völdum.
Lá við árekstri breiðþotna
Það lá við árekstri tveggja Bo-
eing 747-breiðþotna um 37 mílur
vestur af Grindavík um miðjan
síðasta mánuð. Flugmálastjóm hef-
ur atvikið til rannsóknar. Þotu frá
ísraelska flugfélaginu E1 A1 var
flogið í veg fyrir þotu breska fé-
lagsins British Airways. Nokkur
hundruð metrar skildu vélarnar að
þegar leiðir þeirra skárust í 33
þúsund feta hæð. Um borð í bresku
þotunni voru 223 menn en óljóst
er hve margir vom í þeirri ísraelsku
sem ber um það bil 300 farþega.
Flugstjóri ísraelsku þotunnar hefur
verið lækkaður í tign og gerður að
aðstoðarflugmanni.
Verkfall boðað í álverinu
Verkalýðsfélög starfsmanna ís-
lenska álfélagsins hafa boðað verk-
fall í álverinu í Straumsvík frá og
með 31. mars næstkomandi. Samn-
ingar hafa ekki náðst um framleng-
ingu kjarasamnings, starfsmenn
vilja hafa sama framleiðslubónus
og í síðasta samningi en vinnuveit-
endur vilja breyta viðmiðun vegna
breyttra aðstæðna.
því fram að þeir réðu nú yfir so-
véskum eignum í landinu. Einnig
fyrirskipaði Moskvustjórnin íbúum
Litháens á miðvikudag að afhenda
öll skotvopn, þ.m.t. veiðivopn. Sov-
éski herinn hélt miklar æfingar í
Litháen á sunnudag og vakti það
ótta hjá íbúum. Þá var hervörður
við ýms mikilvæg mannvirki efldur
og hafa sovéskir hermenn verið
áberandi á götum bæja og borga
í vikunni. Á þriðjudag hófu stjóm-
völd í Litháen að skrá sjálfboðaliða
á aldrinumn 19-40 ára til þess að
taka við landamæravörslu og gæslu
í fangelsum af sovéska hernum.
Sjálfstæðishreyfingar
vinna sigur í Lettlandi og
Eistlandi
Þjóðfylkingar Eystrasaltsríkj-
anna unnu mikinn sigur í þing-
kosningnum í Lettlandi og Eistl-
andi, sem haldnar voru á sunnu-
dag. Hlutu þær meirihluta í báðum
ríkjunum; 120 þingsæti af 201 í
Lettlandi. Gætu þær enn bætt við
sig þar sem í mörgum kjördæmum
verður að kjósa aftur þar sem eng-
inn frambjóðandi fékk hreinan
meirihluta. Þá fengu frambjóðend-
ur hóps sem kallast „Lýðræði í
Rússlandi“ hreinan meirihluta í
borgarstjómarkosningum í Moskvu
á sunnudag. Í Leníngrad fengu
umbótasinnar 54% sæta í borgar-
stjórn og 80% af sætum borgarinn-
ar á rússneska þinginu.
Hörð átök milli Rúmena
og Ungverja
Til átaka kom á þriðjudag milli
Rúmena og Ungveija í rúmenska
bænum Tirgu Mures í Transyl-
vaníu. Vaxandi úlfúðar hefur gætt
milli Rúmena og Ungveija í Tran-
sylvaníu frá því í byltingunni í des-
ember. Ungveijar krefjast aukinn-
ar sjálfstjómar héraðsins en rúm-
enskir þjóðernissinnar taka það
ekki í mál.
Namibía öðlast sjálfstæði
Tugþúsundir manna söfnuðust
saman á götum Windhoek, höfuð-
borgar Namibíu, á miðvikudag til
að fagna sjálfstæði sem tók gildi
á miðnætti á þriðjudagskvöld. Sam
Nujoma sór embættiseið sem fyrsti
forseti landsins við sjálfstæðisat-
höfn á íþróttaleikvangi borgarinn-
ar.
Lávarðarnir, sem allir eru vel
þekktir sagnfræðingar, hófu
herferð fyrir því að aukin áherzla
verði í framtíðinni lögð á staðreynd-
ir og ártöl í sögukennslu í brezkum
grunnskólum. Það hefur verið mikil
tízka í sögukennslu í Bretlandi, að
kenna með því að láta nemendur
lifa sig inn í liðna atburði og reyna
að lýsa þeim frá sjónarhóli þátttak-
enda þeirra og hirða lítt um rétta
notkun staðreynda og ártala.
Ýmsir kunnir háskólakennarar í
sagnfræði styðja baráttu lávarð-
anna. Þeir segja þá hættu fylgja
nýjum kennsluháttum í sögu, að
nemendur fari að trúa því að saga
sé ekkert annað en safn ólíkra skoð-
ana án allra tengsla við staðreyndir.
Þessum ágreiningi fylgir annar
um áherzlur í sögukennslu. Tals-
menn hefðbundinna kennsluhátta
vilja kenna venjulega þjóðarsögu,
eins og tíðkazt hefur lengi. Tals-
menn breyttra kennsluhátta vilja
hins vegar láta fylgja með í enskri
sögu sérstaka sögu kvenna, svartra
og átthagasögu, svo að dæmi sé
tekið.
Ungveijaland:
Áhugaleysi á fyrstu,
firjálsu kosningunum
Ungverskar konur kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni síðastliðið
haust. Þær eru í búningi síns héraðs, BoIIogs í norðurhluta lands-
ins.
FJÓRÐUNGUR ungverskra
kjósenda vissi ekki fyrir rúmri
viku hvaða flokk hann ætlaði
að kjósa í dag, sunnudag, í
fyrstu frjálsu kosningum Ung-
verjalands í 45 ár. Um 50 flokk-
ar eru starfandi í landinu en
12 bjóða fram á landsvísu.
Frjálsum demókrötum, Lýð-
ræðishreyfingunni, smábænd-
um, ungum demókrötum og
Sósíalistaflokknum var spáð
mestu fylgi í síðustu skoðana-
könnuninni fyrir kosningar eða
21,4%, 20,9%, 15,4%, 11,2% og
10,7%. Flokkarnir þurfa minnst
4% fylgi til að komast á þing.
Nú er talið að blóðug átök milli
Rúmena og ungverska minni-
hlutans í Rúmeníu undanfarið
muni auka fylgi Lýðræðishreyf-
ingarinnar og hún sigri í kosn-
ingunum.
Flokkamir hafa verið stofnaðir
á síðustu tveimur árum eða
eftir að Kommúnistaflokkurinn
losaði um tökin á þjóðinni. Sósíali-
staflokkurinn er* yngstur fimm
stærstu flokkanna. Kjarninn í
honum eru umbótasinnaðir
kommúnistar sem stofnuðu hann
á síðasta flokksþingi gamla
Kommúnistaflokksins í október.
Fyrrvera’ndi andófsmenn og
hljóðlátir andstæðingar gömlu
stjórnarinnar standa að Lýðræðis-
hreyfingunni og Flokki fijálsra
demókrata. Menntamenn í Búda-
pest setja svip
á hinn síðar-
nefnda. Hann
og ungir demó-
kratar sigruðu
í þjóðarat-
kvæðagreiðslu
um forsetakjörið í landinu fyrr í
vetur og vinsældir þeirra jukust
eftir að þeir komu upp um njósn-
ir öryggislögreglunnar á starf-
semi stjórnarandstöðuflokkanna
og stuðluðu þar með að afsögn
innanríkisráðherrans í janúar.
Lýðræðishreyfingin höfðar til
þjóðerniskenndar fólks og á sam-
leið með íhaldsflokkum á Vestur-
löndum. Líklegt þykir að formað-
ur hennar, Jozsef Antall, verði
næsti forsætisráðherra landsins.
Flokkur smábænda á rætur að
rekja til samnefnds flokks sem
hlaut 57% í þingkosningum í nóv-
ember 1945. Kommúnistar boluðu
honum frá völdum og fijálsar
kosningar hafa ekki verið haldnar
í Ungveijalandi síðan.
Stærstu flokkarnir stefna allir
að markaðshagkerfi, frelsi og lýð-
ræði í landinu. Hugtök eins og
hægri og vinstri eiga ekki við þá
í sígildri merkingu þótt þau séu
notuð. Fijálsir demókratar eru til
dæmis kallaðir vinstri miðjumenn
en efnahagsstefna þeirra er öflugt
ftjálst framtak og minnir í fljótu
bragði á stefnu Margaret Thatc-
her í Bretlandi þótt þeir segist
eiga samleið með jafnaðarmönn-
um í Vestur-Þýskalandi og Roc-
ard-vængnum innan Sósíalista-
flokks Francois Mitterrands í
Frakklandi. Lýðræðishreyfingin
vill fara hægar
og varlegar í
sakirnar. Hún
reið á vaðið og
afhenti fyrstu
sjálfseignar-
bændum sem
hafa starfað í landinu í rúm 30
ár, land nú í vikunni. Hreyfingin
er talin njóta meiri vinsælda í
dreifbýli en fijálsir demókratar
sem höfða helst til menntaðs fólks
í þéttbýli
Nánari tengsl við
V-Evrópu
Flokkamir vilja allir aukin og
nánari tengsl við Vestur-Evrópu
og brottflutning sovéskra her-
manna, en hann er þegar hafinn.
Fijálsir demókratar vilja að Var-
sjárbandalagið verði lagt niður en
Atlantshafsbandalagið (NATO)
starfi áfram og bandarískir her-
menn verði um kyrrt í Evrópu.
Þeir vilja að Ungveijaland verði
hluti af hlutlausu svæði álfunnar.
Lýðræðishreyfingin vill að þjóðin
verði hlutlaus í framtíðinni en
smábændur vilja að hún segi sig
samstundis úr Varsjárbandalag-
inu. Sósíalistar vilja hins vegar
að hernaðarbandalög austurs og
vesturs verði leyst upp samtímis.
Efnahagsástandið er efst í
huga þjóðarinnar. Hún er stór-
skuldug og verðbólgan í kringum
20%. Fólk þarf að vinna hörðum
höndum til að hafa í sig og á en
ein milljón manna, eða ’/mþjóðar-
innar, býr við verulega fátækt.
Aðeins helmingur hennar var
ákveðinn í að kjósa fyrir rúmri
viku. Ein ástæðan fyrir áhuga-
leysi fólks er sögð vera þreyta og
skortur á tíma til að setja sig inn
í stjórnmálin og flókið kosninga-
kerfi landsins.
Alls 386 þingmenn verða kjörn-
ir, 152 af listum flokkanna sam-
kvæmt fólksfjölda í kjördæmum,
176 einstaklingskosningu og 58 í
uppbótaþingsæti. Það verður að
vera 50% þátttaka í kosningunum
og frambjóðandi verður að fá yfir
helming atkvæða til að ná ein-
staklingskosningu í fyrstu um-
ferð. Þessum skilyrðum verður
varla fullnægt alls staðar í dag
svo að önnur umferð verður 8.
apríl næstkomandi. Endanleg úr-
slit munu liggja fyrir eftir hana
en nýtt þing kemur saman eftir
fyrri umferðina. Það mun velja
átta þingmenn til viðbótar úr
minnihlutahópum svo þingmanna-
fjöldinn verður alls 394.
Kommúnistar hlutu 17% at-
kvæða 1945 og formaður nýja
Sósíalistaflokksins vonast til að
fá 15—18% nú. Það mun koma á
óvart ef þeir fá svo mikið fylgi
eftir 43 ára stjórn. Þjóðin er lang-
þreytt á þeim og tilbúin að kjósa
„hvaða lýðræðisflokk sem er
nema þá sem hafa orðið sósíalismi
í flokksheitinu", eins og einn við-
mælandi Morgunblaðsins komst
að orði.
BAIiSVID
eftir Önnu Bjamadóttur
í Búdaþest