Morgunblaðið - 25.03.1990, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ VEROLD/HLAÐVARPINN SUNNUDAGUR 25. MARZ 1990
Svona sér teiknari skopblaðsins Krókódíls stöðuna í Sovétríkjunum.
FELAGI FORSETi
Séð og heyrt á 5. fufiltrúaþingi Scvétríkjanna
SÁU það ekki örugglega allir: Félagi Míkaíl Sergeievítsj hrærður, með
hönd á stjórnarskrá Sovétríkjanna og fána þess mikla ríkis sér á vinstri
hönd að sverja embætiseið sem fyrsti forseti Sambands sósíalískra sovét-
lýðvelda?
Fyrir þá sem voru viðstaddir var stemmningin kannski blendin. 2.000
þingmenn fulltrúaþingsins niðri í salnum, í þinghúsinu stóra í Kreml
(fjórðungur þeirra hafði kvöldið áður greitt atkvæði gegn Gorbatsjof),
slangur af sovéskum blaðamönnum (sem þrátt fyrir allt eru allir starfs-
menn flokksmálgagna) og loks nokkrir vestrænir blaðamenn sem áttu
bágt með að leyna því að þeim fannst þeir vera að horfa á eitthvað
sögulegt.
etta var lokaatriðið í þinghaldi
sem Gorbatsjof var búinn að
skipuleggja fyrirfram og fór í hinu
smæsta eftir áætlun hans. Fyrst voru
umræður um þær greinar stjómar-
skrárinnar sem Iutu að forystuhlut-
verki flokksins og þvínæst um nýtt
embætti forseta landsins. Þegar
samþykkt hafði verið að felia úr gildi
greinar 6 og 7, að taka upp forseta-
embætti og síðast en ekki síst að
frysta forsetann skyldi þingið velja
en ekki þjóðin, var gengið til tillagna
um frambjóðendur og loks atkvæða-
greiðslu. Þegar þar var komið sögu
var aðeins einn eftir í framboði: Fé-
lagi Míkaíl Sergeievítsj Gorbatsjof
að tillögu miðstjómar kommúnista-
flokksins.
Auðvitað vom umræðu oft harðar
og einstaka maður lét ýmislegt fjúka
úr ræðustól, svo sem Júrí Afanasjef
sem sagði mönnum að Sovétríkin
þyrftu alveg að segja skilið við
kommúnisma. Það fór heldur fyrir
brjóstið á fundarmönnum, enda ekki
við öðru að búast; 86 prósent þeirra
eru þrátt fyrir allt félagar í kommúni-
staflokknum. Hinsvegar var aldrei
nein hætta á því að áætlun Gorbatsj-
ofs yrði stöðvuð. Landið þarfnast
forseta skrifuðu blöðin feitu letri
yfir þverar forsíður og sama viðhorf
endurspeglaðist í ræðum þingmanna
velflestra. Það var raunar ekki ein-
ungis að menn teldu að landið þarfn-
aðist forsetans, það þurfti hann eins
og skot.
Stemmningin á fulltrúaþinginu
markaðist einkum af þessu, öllum
var ljóst að það voru síðustu forvöð
að gera eitthvað róttækt, að ríkið
rambaði á barmi hyldýpis, jafnvel
borgarastríðs. Og það sem Gorb-
atsjof hafði lagt til í þessum efnum
var að búa til embætti sem fylgdu
svo mikil völd að á óvissutímum
væri hægt að lýsa yfir neyðarástandi
og stjórna landinu með forsetatilskip-
unum.
Margir þingmenn hikuðu ekki við
að halda því fram að „sterk hönd“
væri eina bjargræði landsins á þess-
um erfiðu tímum. Og lái þeim hvers
sem vill. Mér er einkum minnisstætt
viðtal sem Fjodoroff þingmaður átti
við hóp blaðamann i einu fundarhléi
þingsins. „Forseti," sagði hann,
„verður að vera frjálsasti maður
landsins. Hann er fyrst og fremst
bundinn af eigin samvisku." Það sem
Fjodoroff átti líklega við er að í sum-
um tilfellum getur forsetinn gripið
fram fyrir hendur hinna hefðbundu
valdastofnana. Og það var einmitt
slíkt vald sem einstaka þingmaður
reyndi veikum rómi að andmæla úr
ræðustóli.
En það var verið að ræða grund-
vallarspurningar og stundum fannst
manni ræðumenn fremur vera að
leggja línurnar fyrir nýtt ríki en að
endurbæta það gamla. Þetta var til
dæmis skoðun Stankevítsj sem er í
hópi þeirra fijálslyndustu á fulltrúa-
þinginu. Hann lýsti oft þeirri skoðun
sinni við blaðamenn að Sovétrikin
ættu ekki framtíð fyrir sér sem ríki
í eiginlegum jjtilningi. Það yrði að
breyta þeim í Samband sjálfstæðra
ríkja sem tengdust með samningum
í eitt stórt bandalag.
Enginn sagði það en allir vissu
það: Sovétríkin gætu riðlast. Ef það
gerist með ófriði er hætt við að það
hefði hörmulegar afleiðingar, ekki
bara fyrir þegna núverandi Sov-
Frú menntamála-
ráðuneytinu
Fjárveiting
úr íþróttosjóði
Samkvæmt lögum um breytingu á verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga nr. 78/1989 veitirAI-
þingi árlega fé í íþróttasjóð.
Framlög úr íþróttasjóði skal veita til sérstakra-
verkefna á vegum íþróttafélaga eða íþrótta-
samtaka í því skyni að bæta aðstöðu tilíþrótta-
iðkana s.b.r. Reglugerð um íþróttasjóð nr.
609/1989
Tekið skal fram að ekkert liggur fyrir um fjár-
veitingar til sjóðsins 1991, en þær eru ákveðn-
ar í fjárlögum hverju sinni til eins árs í senn.
Felur árleg fjárveiting þannig ekki í sér skuld-
bindingar um frekari styrkveitingar.
Umsókn um stuðning úr íþróttasjóði vegna
fjárveitinga ársins 1991 þurfa að berast fyrir
1. maí nk. íþróttanefnd ríkisins, menntamála-
ráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Með umsóknum þarf að fylgja greinargerð um
fyrirhugað verkefni.
KARLMANNAFÖT, VERÐ 1.990,-
Stakar buxur, ný efni, ný snið.
Mitti frá 79 cm upp í 135 cm.
Jakkar, úlpur, skíða- og æfingagaliar.
Andrés, Skólgvörðustíg 22a, sími 18250.
Austurrískt
kaffihlaðborð
með Svarta-
skógartertu
kr. 700,-
d mann
Barnadiskur
kr.200,-
Hressileg
austurrísk
týrólamúsík
undir borÖum í
kvöld
Brandarakeppnin
Aðgangseyrir
íkvöldkl.22
kr. 100,-
étríkja heldur fyrir alla heimsbyggð-
ina. Það sem fulltrúaþingið sam-
þykkti á endanum hjálpar tæplega
að koma á friði, samþykktir þess búa
til vald sem á að vera svo öflugt að
það geti haldið ríkinu saman,
Verður Sovétríkjunum haldið sam-
an? Hinir fijálslyndari segja nei.
Ekki í núverandi mynd. Þess vegna
verður að taka róttæk skref í þá átt
að veita lýðveldunum fullt sjálfstæði
og semja svo á einhveijum viturleg-
um grundvelli. En þeir sem segja
þetta eru fáir. Langflestir þingmanna
tóku hina afstöðuna: Forsetinn
bjargar þessu. Hvers vegna skyldu
Sovétríkin leysast upp, hver hefur
hag af því? Það eru bara öfgamenn
í einstökum lýðveldum sem eru með
æsingar.
Skugginn af sjálfstæðisyfirlýsingu
Litáens hvfldi allan tímann yfir þessu
þingi, en það var ekki fyrr en undir
íok þess 'að ákveðið var að taka
málið til umræðu. Hún endaði með
því að þingið samþykkti harðorða
ályktun um lögleysu og stjómar-
skrárbrot í Litáen. Og þegar þetta
er skrifað er Gorbatsjof nýbúinn að
skrifa undir tilskipun um herta lög-
gæslu og rúmara starfssvið KGB og
hers í Litáen.
Óvissan er nú meiri en nokkru
sinni fyrr í Sovétríkjunum. Og það
getur svo farið að samþykktir full-
trúaþingsins sem á að vera hið
glæsta tákn umbótanna í Sovétríkj-
unum síðastliðin fimm ár snúist í
höndum þess. Það merkiiega er að
þingið gerði breytingar á stjórnar-
skránni sem undir öllum venjulegum
kringumstæðum hefði þótt mikill sig-
ur umbótanna.
Eina vonin til þess að halda friði
innan landsins er iíklega fólgin í því
að þau lýðveldi sem hvað harðast
hafa krafist sjálfstæðis fallist á þá
málsmeðferð sem nú er verið að
vinna að í Æðsta ráði Sovétríkjanna.
Það eru reglur um hvemig lýðveldi
geti sagt sig úr Sovétríkjunum. En
til þess þurfa þau auðvitað að slá
af kröfunum: Samkvæmt þessum
reglum tæki það lýðveldi 6 til 8 ár
a fá fullt sjálfstæði.
Hvað er að gerast? Enginn veit
það nákvæmlega og margir segja að
þingmenn fulltrúaþings og Æðsta
ráðs viti það síst af öllum. Hvemig
á að koma í veg fyrir borgarastríð
og hvers konar borgarastríð gæti
brotist út? Svarið við þessu er af
hálfu fulltrúaþings og Æðsta ráðs
sterkara vald. Og hvort það er rétta
svarið kemur von bráðar í ljós, ef
að líkum Iætur.
Honda *QO
Civic
3ja dyra
16 ventía
Verð fró 746,- þúsund.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA.
W HONDA
VATNAGÖRÐUM 2<t, RVlK., SÍMI 689900