Morgunblaðið - 25.03.1990, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 25. MARZ 1990
GÓÐ ÍMYND - NAUÐSYN
EÐA ÞARFLAUS?
Ráðstefna um ímynd og almenningsálit
Hótel Sögu, þriðjudaginn 27. mars 1990
Kynning Og Markaður - KOM hf. gengst fyrir áhugavekjandi
ráðstefnu sem ber yfirskriftina „GÓÐ ÍMYND - NAUÐSYN EÐA
ÞARFLAUS" þriðjudaginn27. marsnk.áHótelSögu.Aðalræðumaður
er Terry Tyrrell, stjómarformaður Sampson Tyrrell Ldt. í London,
sem er leiðandi fyrirtæki í hönnunar- og útlitsstjómun í Bretlandi og
vinnur fyrir fjölda stórra fyrirtækja og banka í V-Evrópu. Aðrir
frummælendur em Lýður Friðjónsson, framkvæmdastjóri Vífilfells
hf., Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri Granda hf., Hallur A.
Baldursson, framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Yddu hf., Jónas
Kristjánsson, ritstjóri DV, Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri
Mjólkursamsölunnar, Sigmundur Guðbjarnason, rektor Háskóla
íslands og Valur Valsson, bankastjóri íslandsbankahf. Ráðstefnustjóri
er Ólafur B. Thors, framkvæmdastjóri Sjóvá-Almennra hf.
Ráðstefnunni er ætlað að gefa nútímastjómandanum tækifæri til að
hlýða á reynda menn fjalla um hvers vegna það er svo mikilvægt að
skapa og viðhalda góðri ímynd og ásjónu og hvemig það er gert.
Ráðstefnan er ætluð forráðamönnum fyrirtækja, stoffiana og samtaka,
talsmönnum þeirra og öllum þeim er taka virkan þátt í að skapa og
viðhalda ímynd í daglegu starfi.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku tímanlega til Guðlaugar eða Áslaugar
hjáKOMhf. í síma91 - 622411 eðameð telefaxi 91 - 623411. Nánari
upplýsingar á sama stað. Ráðstefnugjald með hádegisverði, kaffi,
veitingum í ráðstefnulok og fundargögnum er kr. 12.000 auk vsk. sem
erfrádráttarbær hjá virðisaukaskattskyldum aðila. Litiðerábókun sem
staðfestingu.
Kynning Og Markaður hf.
Aðalstræti 7,101 Reykjavfk, síml (91) 62 2411, telefax (91) 62 3411
Guðmundur Daníels-
son rithöfundur
Sá sem hér setur á blað fá og
fátækleg orð um Guðmund Daní-
elsson sagði stundum að þar færi
höfuðskáld Rangæinga, Holtamað-
ur. En hann var meira, skáld þjóð-
arinnar. Rithöfundarferill hans
meir en hálf öld, fyrsta bókin 1933
(ljóð) og sú síðasta 1989, 50 bæk-
ur. Afköst með ólíkindum og fjöl-
hæfnin. Væri ærið ævistarf.
Kennsla og skólastjórn mun þó
talið vera það eiginlega lífsstarf,
1934-68, og síðan kennari í Gagn-
fræðaskóla Selfoss 1968-73. Og
enn í hjáverkum ritstjóri blaðsins
Suðurlands í 20 ár. Víðsýnn rit-
stjóri og einarður í besta lagi, svo
sumum þótti um of. Var eiginlega
ekkert óviðkomandi, svo sem úti-
gangshross í vetrarhörkum, ljóða-
brask eða kúgaðar þjóðir úti í
heimi. Þegar raddir heyrðust um
ritskoðun var svar Guðmundar eins
stutt og verið gat en hitti beint í
mark: Orðið er fijálst.
Æviþættir sem Guðmundur
skráði fylla nokkrar bækur og er
merkilegt safn persónusögu og
þjóðhátta. Skopskyn hans var
kannski ekki óbrigðult fremur en
annara húmorista, en Tólftóna-
fuglinn, Landshornamenn og
Spítalasaga eru hreint afbragð.
Jafnvel bækur hans um ár, vötn
og veiðar eru skemmtilegar, en
skrifari er illa að sér í þeirri grein
sem fleirum.
Guðmundur var í heiðurslauna-
flokki skálda sem maklegt var. í
bókmenntasögu Kristins Andrés-
sonar, sem kom út 1949, segir
meðal annars: „Skáldsögur Guð-
mundur Daníelssonar eru á marg-
an hátt skemmtilegt viðfangsefni
og hafa ýmsa góða kosti. Annars
vegar bera þær vitni um lífskraft,
hugkvæmni og mikla frásagnar-
gleði. Ýmsar náttúrulýsingar úr
átthögum höfundar eru góðar.
Hann er nágranni Heklu og tals-
verður funi í skapi hans. Oft er á
það bent, hvernig listin deyr hjá
skáldunum, er þau tilbiðja hana
sjálfrar hennar vegna.“
Kynni okkar Guðmundar frá
Guttormshaga voru ekki mikil, en
þó með þeim hætti, að mér fannst
rétt að minnast hans þar með fáum
Sérfræðingar
orðum. Eitt dæmi um að Guðmund-
ur kunni ekki að sitja hjá þó engin
skylda kallaði hann til atfylgis. —
Árið 1973 gos í Eyjum. Bókasafns-
húsið fallið, fjögur þúsund bækur
í útlánum og tvísýnt um skil, sem
urðu þó miklum mun meiri en
vænta mátti. Þá símar Guðmundur
til undirritaðs og segir eitthvað á
þessa leið: Nú horfir illa með bóka-
safnið ykkar í Eyjum, komdu við
hjá mér þegar þú átt leið um Sel-
foss. Svo var gert og áttum við
hjón góðar stundir með skáldinu
og frú Sigríði. Þetta ár kom út í
Noregi ein stórbrotnasta skáldsaga
Guðmundar, Sonur minn Sinfjötli,
í þýðingu Ásbjörns Hildremyr.
Guðmundur kvaðst nú hafa ákveð-
ið að láta ritlaun sín fyrir þá bók
renna til þessa bókasafns sem
væri á hrakningi undan eldgosi.
Þýðandinn lét heldur ekki sinn hlut
eftir liggja og norskt fyrirtæki gaf
Anna Jónsdóttir fyrrverandi
hjúkrunarkona var í hópi sem í
vetur hefir stundað nám í ensku
og hittist einu sinni i viku.
Okkur brá er við fregnuðum lát
hennar, því hún var alltaf hress í
bragði og bar sig vel á sinn hóg-
væra hátt. Og þrátt fýrir flensu
og kvef sem heija mest í skamm-
deginu lét hún ekkert slíkt á sig
fá og mætti í hvern tíma. Hún
hafði lært dönsku fýrr á árum er
hún nam og starfaði við hjúkrun
í Danmörku. En þegar hún sagði
frá hversu langt var síðan skynjaði
maður að löng saga bjó að baki —
saga fólksins sem átti sínar ungl-
ingsvonir fyrr á öldinni. Hún hafði
ánægju af náminu og sagðist
leggja stund á það til að þjálfa
hugann, og lagði sig fram um
framburð orða svo hún skildi betur
talaða málið. Hún var glöð óg keik
fyrir nokkru er hún bað að afsaka
að hún þyrfti að fara fyrr, því hún
var á leið í afmæli lítils frænda.
Er við kveðjum Önnu minnumst
við sjálfstæðis og dugnaðar hennar
valið safn norskra bóka. Nytur
bókasafnið þess sem kalla mætti
samnorrænan höfðingskap.
Hratt flýgur stund. Skáld safn-
ast til feðra sinna sem aðrir dauð-
legir menn. En minningin lifir í
þeim arfi sem bækur geyma.
Haraldur Guðnason
með virðingu. Ekki var að sjá að
hér færi hálfníræð kona, svo vel
hélt hún reisn sinni.
Enskuhópurinn
Anna Jónsdóttir
hjúkrunarkona
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Skólavörðustíg 12
Hamarshöfða 4 — slmi 681960
á horni Bergstaðastrætis
sími 19090
Blómastofa
Friöfmm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- elnnlg um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
LEGSTEIIMAR
GRANÍT- MARMARI
Helluhrauni 14, 220 Hafnafjörður,
pósthólf 93, símar 54034 og 652707.
Legstelnar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina.
ii S.HELGASONHF STEINSMIÐJA SKSwlMUVEGt 48-SlMI 76677