Morgunblaðið - 25.03.1990, Side 27
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
Sendikennari í Kiel
Auglýst er staða sendikennara (lektors) í íslensku við
háskólann í Kiel í Vestur-Þýskalandi. Staðan er laus 1.
október næstkomandi og er veitt til 3-4 ára. Kennarum
er ætlað að kenna íslenskt mál á öllum stigum, en auk
þess getur verjð um valfijálsa bókmenntakennslu að
ræða. Nokkur kunnátta í þýsku er nauðsynleg.
Áhöfti til Namibíu
Þróunarsamvinnustofnun Islands auglýsir eftir skip-
stjóra, tveimur stýrimönnum og tveimur vélstjórum á
hafrannsóknarskip fyrir stjórnvöld í Namibíu. Þróunars-
amvinnustofnun áformar að taka að sér rekstur skipsins.
Umsækjendur þurfa að hafa full alþjóðleg réttindi og
reynslu af fiskveiðum á stærri fiskiskipum.
Sérfræðingar
Krabbameinsdeild Landsspítalans auglýsir eftir tveimur
sérfræðingum frá og með 1. ágúst næstkomandi. Þá er
staða aðstoðarlæknins við svæfinga- og gjörgæsludeild
laus til umsókna. Einnig leitar Landsspítalinn eftir líffræð-
ingi til starfa á taugalækningadeild.
Framkvæmdasljóri
Nýstofnað útgerðarfyrirtæki út á landi leitar eftir manni
í stöðu framkvæmdastjóra. Leitað er eftir einstaklingi
sem hefui; menntun og starfsreynslu í þessari atvinnu-
grein. Góð laun er sögð í boði.
FramleiðsluslJ óri
Iðnfyrirtæki í Reykjavík leitar að framleiðslustjóra, sem
á að hafa yfirumsjón með allri framleiðslu og framleiðslu-
tækjum fyrirtækisins, þ.m.t. áætlanagerð, eftirlit, vöru-
þróun og starfsmannahald. Óskað er eftir menntun í
matvælafræði, efnafræði, verkfræði, tæknifræði eða öðr-
um fræðum á sviði matvæla- og/eða framleiðslu.
Landakot leitar eftir
hjúkrunaríræðingi
Staða hjúkrunarfræðings við lyflæ'.ningadeild St. Jó-
sefsspítala, Landakoti, er laus til umsóknar. Þá er óskar
sjúkrahúsið einnig eftir sjúkraliða á sömu deild. Einnig
er laus staða röntgentæknis.
Útboð í Blönduvirkjun
Landsvirkjun leitar eftir tilboðum í byggingu starfs-
mannahúsa við Blönduvirkjun. Um er að ræða smíði
húss með herbergjum fyrir starfsfólk, mötuneyti, tóm-
stundaaðstöðu og geymslum svo og smíði húss fyrir stöðv-
arstjóra auk annars.
Þroskaþjálfaskólinn
Umsóknarfrestur fyrir skólavist í Þroskaþjálfaskóla
íslands er til 30. apríl næstkomandi. Verðandi nemendur
verða að hafa lokið stúdentsprófi eða stundað hliðstætt
nám.
Útboð fyrir Perluna
Innkaupastofnun Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í
lampabúnað, ljósgjafa og annan fylgibúnað í útsýnishús
Hitaveitu Reykjavíkur á Öskjuhlíð. Tilboð verða opnúð á
skrifstofu Innkaupastofnunar þriðjudaginn 24. apríl nk.
Ferðir um landið
Ferðafélag íslands auglýsir nokkrar ferðir um landið,
þar á meðal árshátíðarferð í Viðey. Auk þess gengst
félagið fyrir kvöldvöku næstkomandi miðvikudag í Sókn-
arsalnum. Útivist auglýsir meðal annars afmælisgöngu
á Keili.
Morgunblaðið/Þorkell
Einar Páll Svavarsson hjá Ábendi, en hann ásamt Ágústu Gunnarsdóttur hefur
gefið út handbók til leiðbeiningar þeim sem hyggjast sækja um vinnu.
Atvinnuumsóknin
geturskipt sköpum
Ábendi gefur út handbók fyrir þá sem eru í atvinnuleit
RÁÐNINGASTOFAN Ábendi sf. hefur gefið
út handbók fyrir þá sem vilja styrkja stöðu
sína á vinnumarkaðinum, til dæmis námsfólk
sem er á leið út á vinnumarkaðinn, fólk sem
er atvinnulaust og þá sem vilja skipta um
starf. Höfimdar bókarinnar eru eigendur
Ábendis Ágústa Gunnarsdóttir og Einar Páll
Svavarsson. Einar Páll segir að hugmyndin
hafi kviknað þegar þeim varð ljóst, hversu
misjafnlega almenningi gengur að útbúa at-
vinnuumsóknir. Fólk skili þeim inn á alls
kyns blöðum, jafnvel sneplum. Áberandi sé
að þeir sem hafi verið í námi í Bandaríkjunum
séu meðvitaðri um að senda frá sér vandaðar
umsóknir.
Bókin skiptist í fimm kafla. í
fyrsta kafla er vísir að prófí,
sem hjálpar fólki til að taka ákvörð-
un um hvaða framtíðarstarf henti
hveijum fyrir sig. Annar kafli fj'all-
ar um að setja saman góða atvinnu-
umsókn, sá þriðji um hvernig vinnu-
stað sóst er eftir t.d. fámennum eða
fjölmennum, ríkisstofnun, einka-
rekstri o.s.fi’v. Fjórði kaflinn ijallar
um að koma sér á framfæri og
fimmti kaflinn að meta starfstilboð.
„Ég veit ekki til að f>að sé neins
staðar kennt að sækja um atvinnu
og fólk virðist oft ekki gera sér
grein fyrir því að umsóknin skiptir
máli fyrir fyrstu úrvinnslu. Það
kemur fyrir að mjög hæft fólk sæk-
ir um starf, en það kann ekki að
fylla út umsókn, og dettur því strax
út. Oft heyrast þær raddir að fólk
vilji ekki setja of mikið um sjálft
sig í umsóknirnar, því það fái jafn-
vel ekki svar til baka og viti þar
af leiðandi ekki hvar upplýsingarn-
ar eru niður komnar. En það þarf
þekkingu til að setja nógu miklar
upplýsingar inn án þess að segja
frá sínum einkamálum. Þau koma
fram í viðtali síðar,“ segir Einar
Páll.
Hann segir að þau hafi mikinn
áhuga á að koma bókinni inn í
skólana og því séu þau að kynna
námsráðgjöfum og kennurum hana.
Hann sé alveg viss um að bókin
nýtist vel krökkum í framhaldsskól-
um. Atvinnumálanefnd Reykjavíkur
hefur haldið námskeið fyrir at-
vinnulaust fólk og segir Einar Páll
að bókin sé nú notuð sem kennslu-
| efni þar.
Akranes:
Um 150
manns at-
vinnulausir
Atvinnuástandið á Akranesi er
enn erfitt og eru ekki miklar Hkur
á því að það breytist á næstunni.
Nú eru um 150 manns á atvinnu-
leysisskrá og er það svipuð tala
og verið hefur á undaníörnum
mánuðum.
Atvinnuástandið var til umræðu á
bæjarstjómarfundi í síðustu
viku. og lýstu bæjarfulltrúar miklum
áhyggjum. Einn bæjarfulltrúinn
sagði að ástandð væri mun verra en
það liti út fyrir við fyrstu sýn, því
mörg fyrirtæki héldu að sér höndum
við að segja upp fólki, þó lítil atvinna
væri. Því væri töluvert dulbúið at-
vinnuleysi.
Ekki er ástandið þó alslæmt því
smábátarnir fiska mjög vel og sömu-
leiðis togararnir. Þá hafa loðnubát-
arnir veitt vel í vetur og hefur vinna
við fiskvinnslu því verið stöðug og
góð. Að minnsta kosti þijú fyrirtæki
hafa verið lýst gjaldþrota á síðustu
vikum í bænum.
Gísli Gíslason bæjarstjóri sagði að
atvinnuástandið væri mönnum mikið
áhyggjuefni. „Við höfum allar klær
úti til að finna fleiri atvinnutækifæri
fyrir fólk, en því miður virðist ekki
vera ástæða til bjartsýni í þeim efn-
um,“ sagði Gísli. — jg
Raufarhöfii:
Góð atvinna
ATVINNUÁSTAND á Raufar-
höfii hefur verið gott að undan-
lornu. Rauðinúpur fer á veiðar
eftir helgi og Atlanúpur er að
skipta yfir í rækju.
Loðnuvertíð er að ljúka og komu
45 þúsund tonn á land. Veiði
var lítil fyrir áramót, en úr rættist
á nýju ári. Eftir áramót komu nær
43 þúsund tonn á land miðað við
16 þúsund á síðasta ári. Þeir sem
voru í verksmiðjunni eru að tygja
sig á grásleppuveiðar og síðar hand-
færi.
Þrír hafa verið á atvinnuleysis-
skrá í mars en nú aðeins einn. Fast
starfsfólk í frystihúsinu hefur haft
vinnu í allan vetur. — Helgi
Hjúkrun:
Hjúkrunarþjónustan tekur til starfa
HJÚKRUNARÞJÓNUSTAN var nýverið sett
á stofn, og sérhæfir hún sig í heimahjúkrun.
Að henni standa hjúkrunarfræðingar sem
starfa sjálfstætt við hjúkrun í heimahúsum,
og segja aðstandendur hennar að starfsemin
sé stórt skref innan heilbrigðiskerfisins.
Starfseminni var komið á fót í
framhaldi af útgáfu reglugerð-
ar, um starfsemi hjúkrunarfræð-
inga sem starfa sjálfstætt að heima-
hjúkrun. Ingigerður Jónsdóttir, einn
forsvarsmanna Hjúkrunarþjón-
ustunnar, segir hana byggða á þeim
grundvallai-viðhorfuni að allir eigi
-- rétt á bestu heilbrigðisþjónustu sem
völ er á, og að sjúklingar eigi val-
kost innan heilbrigðisþjónustunnar.
„Þjónusta okkar er alfarið greidd
af Tryggingastofnun ríkisins,"
sagði hún aðspurð um kostnað
sjúklinga af þjónustunni. „Við
stefnum að því að aðstoða einstakl-
inga við að takast á við erfiðleika
og verða sem mest sjálfbjarga.
Hjúkrunin felst í því að annast
sjúkling í samvinnu við ljölskyldu
hans, og er reiknað með að fjöl-
skyldan sé virkur meðferðaraðili,"
sagði Ingigerður ennfremur.
Hjúkrunarþjónustunni er skipt í
eftirfarandi sérsvið: Barnahjúkrun,
hand- og lyflæknishjúkrun, heilsu-
gæslu, öldrunarhjúkrun og geð-
hjúkrun.
Hjúkrunarþjónustan er til húsa
að Lágmúla 5.