Morgunblaðið - 25.03.1990, Síða 29
01' i M QRGUNBLAÐIÐ
ATVINIMA/RAÐ/SMA ^tMföfkGUR-as: .maukí w9o
8$9
ATVINNU AI JGI YSINGAR
m
DAGVI8T BAHIMA
Umsjónarfóstra
óskast
Dagvist barna óskar að ráða umsjónarfóstru,
með daggæslu á einkaheimilum, til starfa
nú þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur deildarstjóri fagdeildar í
síma 27277.
I I HAGVIBKI HF
SfMI 53999
Verkstæðismenn
Hagvirki hf. óskar að ráða vana vélvirkja eða
menn vana þungavinnuvélaviðgerðum til
vinnu við Blönduvirkjun í sumar.
Upplýsingar í síma 53999.
Lögfræðingur
Staða lögfræðings í skattadeild ríkisskatt-
stjóra er laus til umsóknar.
Meðal helstu verkefna er afgreiðsla ýmissa
skatterinda, kröfugerð fyrir ríkisskattanefnd,
ritun lögfræðilegra álitsgerða, úrskurða um
skattskyldu o. fl.
Nánari upplýsingar veitir Steinþór Haralds-
son, yfirlögfræðingur, í síma 623300.
Umsóknir er greini aldur, fyrri störf og annað
er máli skiptir, berist ríkisskattstjóra, Skúla-
götu 57, 150 Reykjavík, fyrir 10. apríl nk.
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI
Vélvirki óskast
Óskum að ráða vélvirkja til starfa í fóðurverk-
smiðju okkar í Sundahöfn. Starfið felst í al-
mennri vélgæslu við framleiðslu á fiskafóðri.
Umsóknir sendist fyrirtækinu fyrir 1. apríl
nk. Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Ewoshf.,
Korngarði 12,
124 Reykjavík.
Skipstjórnarmenn
Þróunarsamvinnustofnun íslands
áformar að taka að sér rekstur hafrann-
sóknaskips fyrir stjórnvöld í Namibíu. Skipið
er á stærð við r/s Árna Friðriksson, með
tvær 800 ha vélar.
Stofnunin auglýsir hér með eftir skipstjóra,
tveimur stýrimönnum og tveimur vélstjórum
á þetta skip. Umsækjendur verða að hafa
full alþjóðleg réttindi til starfanna og reynslu
af fiskveiðum á stærri fiskiskipum. Góð
enskukunnátta nauðsynleg. Laun og ráðn-
ingarkjör eru skv. launakerfi Sameinuðu þjóð-
anna. Æskilegur ráðningartími ertvö ár, með
þriggja mánaða reynslutíma. Miðað er við
að starfið hefjist í júní nk. að undangengnu
þriggja til fjögurra vikna undirbúningsnám-
skeiði.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sé skilað fyrir 15. apríl á skrif-
stofu Þróunarsamvinnustofnunar íslands,
Rauðarárstíg 25, Reykjavík, sími 622000.
Kokkur
Ertu góð eldabuska? Hefurðu gaman af börn-
um?
Okkur vantar ábyrgðarmann í eldhús á for-
eldrarekið dagheimili í Hafnarfirði.
Upplýsingar gefur Kristín í síma 53910.
Smiðir
framtfðarstarf
Vantar smið sem fyrst í vinnu á verkstæði
og við uppsetningu. Góð vinnuaðstaða.
Gluggar og garðhús hf.,
Smiðsbúð 8, Garðabæ, sími 44300.
Kringlan
Starfskraftur óskast í tískuvöruverslun í
Kringlunni frá kl. 9.30-13.00.
Upplýsingar í síma 689225.
Aðstoðarmaður
Vélasalur
Stórt framleiðslufyrirtæki í borginni vill ráða
reglusaman og duglegan aðstoðarmann við
þrif á vélum o.fl. Vaktavinna. Starfið er að-
eins laust frá 1. apríl - 30. sept. nk.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
kl. 17.00 þriðjudag, merktar: „M - 7675“.
Blaðamaður
Blaðamaður óskast nú þegar til starfa á
bæjar- og héraðsfréttablaðinu Bæjarins
besta, ísafirði. Um er að ræða fjölbreytt og
skemmtilegt starf.
Nánari upplýsingar veitir Sigurjón í símum
94-4560 frá kl. 9.00-17.00 og 94-4277 á
kvöldin.
Fiskvinnslufólk!
Óskum eftir að ráða starfsfólk í snyrtingu
og pökkun, auk vinnu við flökunarvélar. Unnið
eftir hópbónuskerfi. Mikil vinna framundan.
Upplýsingar hjá verkstjórum í síma 52727.
Sjóiastöðin hf.,
Óseyrarbraut 5-7,
Hafnarfirði.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Vestmannaeyja vill ráða hjúkrunar-
fræðinga til sumarafleysinga frá 15. júní -
15. september á allar vaktir. Ennfremur næt-
urvaktir, 60% starf, á deildarstjóralaunum.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
98-11955.
Sjúkrahús Vestmannaeyja.
HREINN
Kynningarstörf
Okkur vantar kraftmikið og duglegt starfs-
fólk til kynningarstarfa. Um er að ræða kynn-
ingar á framleiðsluvörum okkar í matvöru-
verslunum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlegast leggið
inn umsókn með viðeigandi upplýsingum á
auglýsingadeild Mbl., merktar: „NSH -
7671“, fyrir fimmtud. 29. mars nk.
| g HAGVIRKI HF
S(MI 53999
Tækjamenn
Hagvirki hf. óskar að ráða vana tækjamenn
til vinnu við Blönduvirkjun í sumar.
Upplýsingar í síma 95-24085 eða 91-53999.
HOTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA S HÓTEL
Störf f Lóninu
Óskum að ráða röskt fólk til framreiðslu-
starfa í veitingasalnum Lóninu. Vaktavinna.
Nánari upplýsingar um störfin veittar mánu-
daginn 26. mars í síma 690199.
Reykjavík
Aðstoðar-
deildarstjóri
hjúkrunarfræðingar
og hjúkrunarnemar
Aðstoðardeildarstjóri óskast í fullt starf frá
15. maí á heilsugæslu Hrafnistu. Sérnám í
heilsugæslu eða öldrunarhjúkrun æskilegt
og góð starfsreynsla. Aðstoðardeildarstjóri
óskast í 80-100% starf frá 1. júní á hlýlega
hjúkrunardeild með 30 vistmönnum.
Hjúkrunarfræðingar eða hjúkrunarnemar
óskast til sumarafleysinga. Ýmsar vaktir
koma til greina.
Læknafulltrúi
Læknafulttrúi óskast til starfa í 100% vinnu
frá maí nk. Nauðsynlegt er að læknafulltrúi
hafi réttindi til starfa sem læknaritari. Starfið
felur í sér ritun, skýrslugerð og umsjón með
gögnum er varða vistmenn á Hrafnistu auk
annarrar ritaravinnu. Æskilegt er að lækna-
fulltrúi sé vanur vinnu á Machintosh tölvu.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, ída
Atladóttir, og Jónína Níelsen, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 35262 eða 689500.
Innkaup
Hagkaup vill ráða starfsmann í innkaupa-
deild sérvöru til starfa við innkaup á fatnaði.
Æskilegt er að væntanlegir umsækjendur
hafi reynslu af vinnu við innkaup og af versl-
un eða menntun sem tengist fatnaði.
Stærstur hluti innkaupanna fer fram erlendis
og því er góð enskukunnátta nauðsynleg.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist starfsmanna-
stjóra á skrifstofu Hagkaups, Skeifuni 15,
108 Reykjavík, fyrir 3. apríl nk.
Fyrirspurnum um starfið ekki svarað í síma.
HAGKAUP