Morgunblaðið - 25.03.1990, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.03.1990, Blaðsíða 31
MÖRGUNBLÁÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMÁ HIA */ MARZ 1990 31 ATVINNUAÍ / YSINGAR Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa við ung- barnaeftirlit, heimahjúkrun o.fl. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 656066 kl. 12.00-13.00 alla daga. Ráðskona óskast á gott sveitaheimili á Norðurlandi. Ráðningartími er út sumarið og lengur ef um semst. Æskilegur aldur 40-60 ára. Upplýsingar sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 15. apríl merktar: „ XKG - 8948“. Sölu- og markaðsverkefni Þaulvanur sölu- og markaðsmaður tekur að sér að skipuleggja og vinna ýmis konar sjálf- stæð sölu- og kynningarverkefni. Upplýsingar í síma 621911. Útflutningur Allstórt útflutningsfyrirtæki staðsett á höfuð- borgarsvæðinu óskar eftir að ráða sölustjóra til starfa sem fyrst. Fyrirtækið er sérhæft á sviði fiskafurða. Umsækjendur skulu hafa reynslu af erlend- um viðskiptum og vera vel mæltir á ensku og helst eitt norðurlandamál auk íslensku. Starfið felur í sér skipulagningu markaðs- mála fyrirtækisins og því er krafist að viðkom- andi geti starfað sjálfstætt og skipulega. Umsóknum skal skilað á auglýsingadeild Mbl. í síðasta lagi 30. mars nk. merktum: „Fiskur 1990“. LANDSPITALINN Sérfræðingar Stöður tveggja sérfræðinga á krabbameins- lækningadeild eru lausartil umsóknar. Stöð- urnar veitast frá 1. ágúst nk. Annar sérfræð- ingurinn mun starfa að hluta við frumu- flæðisjá og er því krafist sérþekkingar á því sviði. Upplýsingar veitir Þórarinn Sveinsson, yfir- læknir krabbameinslækningadeildar. Umsóknir, er greini náms- og rannsóknar- feril og fyrri störf, skulu sendar stjórnarnefnd Ríkisspítala, Rauðarárstíg 31, fyrir 1. júní nk. Aðstoðarlæknir Staða reynds aðstoðarlæknis við svæfinga- og gjörgæsludeild er laus til umsóknar. Staðan veitist til eins árs frá 1. júlí nk. eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 26. apríl 1990. Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Ólafsson, forstöðulæknir deildarinnar, í síma 601375. Umsóknir á umsóknareyðublaði lækna, ásamt prófskírteini, upplýsingum um starfs- feril og meðmælum, sendist yfirlæknir. Líffræðingur Staða líffræðings við taugalækningadeild (klínísk taugalífeðlisfræði) er laus til umsókn- ar. Staðan veitist frá 1. maí nk. Nánari upplýsingar gefur Guðjón Jóhannes- son, sérfræðingur, í síma 601674. Umsóknir sendist próf. Gunnar Guðmunds- syni, yfirlækni deildarinnar. Reykjavík, 25. mars 1990. Hafnarfjörður - skrifstofustarf Karl eða kona óskast til skrifstofustarfa í Hafnarfirði hálfan eða allan daginn. Einhver kunnátta á tölvu æskileg. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. merkt- ar: „Hafnarfjörður - 12016“ fyrir 30. mars. Flugvirki Flugtak hf. óskar eftir að ráða flugvirkja til starfa. Skriflegar umsóknir, er greini frá aldri, menntun og reynslu sendist til Flug- taks, Gamla flugturninum, fyrir 1. apríl nk. Uppl. ekki gefnar í síma. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Álfabakka 12, 109 Reykjavík, sími 74544 fjölskyldudeild Tilsjónarmaður Tilsjónarmaður óskast til stuðnings fyrir 4ra ára dreng og fjölskyldu hans. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og/eða reynslu af vinnu með börnum. Umsækjendur hafi samband við Guðnýju Eydal eða Auði Matthíasdóttur í síma 74544. Félagsmálastofnun Reykjavíkur, Álfabakka 12, Reykjavík. RAÐGARÐUR RÁÐNINGAMIÐLUN Við leitum að fólki til eftirfarandi starfa í Reykjavík: Lögfræðingi til innheimtustarfa og annarra lögfræðistarfa hjá stórri fjármálastofnun. Viðskiptafræðingi/hagfræðingi til starfa við verðbréfadeild í lánastofnun. Viðskiptafræðingi/hagfræðingi með reynslu af stjórnun og/eða ráðgjafa- störfum. Byggingaverkfræðingi/tæknifræðingi til að yfirfara hönnunargögn og hafa eftirlit með frágangi í nýbyggingum hjá eftirlitsaðila með framkvæmdum. Nánari upplýsingar um ofangreind störf veitir Magnús Haraldson eftir kl. 13.00. Skrifstofufólki með stúdentspróf eða sambærilega mennt- un til almennra skrifstofustarfa í lánastofnun. Skrifstofumanni til símavörslu og fleiri starfa í stóru þjónustu- fyrirtæki. Skrifstofumanni til haustsins til að starfa við afgreiðslu láns- umsókna í lánastofnun. Nánari upplýsingar um skrifstofustörfin veitir Sigrún Ólafsdóttir. í öllum tilfellum er um að ræða góða vinnuað- stöðu og trausta vinnuveitendur. Skriflegum umsóknum skal skilað til Ráð- garðs fyrir 5. apríl nk. Umsóknareyðublöð fást á staðnum. RÁEX3AK5UR RÁÐNINGAMIÐLUN NÓATÚNI 17, 105 REYKJAVÍK, SÍMI (91)686688 Hresst fólk Vegna aukinna umsvifa vantar okkur dyra- verði (konur/karlmenn), barþjóna, fólk í sal og ræstitækna. Upplýsingar á staðnum mánud. og þriðjud. frá kl. 17.00-19.00. Tunglið, Lækjargötu 2, 4. hæð. Snyrtivöruverslun vill ráða góðan starfskraft til framtíðarstarfa. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir hádegi þriðjudag, merktar: „S - 7676“. Bókarar Óskum eftir að ráða bókara nú þegar hjá eftirtöldum fyrirtækjum: Innflutnings- og þjónustufyrirtæki í Reykjavík. Um er að ræða 10 mánaða starf, fram í nóvember 1990. Umsækjendur þurfa að hafa þekkingu og reynslu af færslu fjár- hags-, viðskiptamanna- og lagerbókhalds, ásamt merkingu fylgiskjala og innslætti gagna í tölvu. Flutningafyrirtæki á Reykjavíkursvæðinu. Leitað er að manni með starfsreynslu úr sjáv- arútvegi, menntun úr Verzlunar- eða Sam- vinnuskólanum, sem hefur reynslu af tölvu- færðu bókhaldi. Auk þess að annast alfarið bókhald fyrirtækisins, mun viðkomandi verða aðstoðarmaður fjármálastjóra. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. Afleysmga- og ráðnmgaþionusta Lidsauki hf. Skóla'-úrdustig la - 101 Reykiavik - Simi 621355 Matreiðslumaður Við leitum að matreiðslumanni til að sjá um daglegan rekstur lítils matsölustaðar úti á landi nú í sumar. Starfið felst m.a. í gerð matseðils, innkaup- um í samráði við eiganda, eldamennsku, stjórnun starfsmanna og umsjón með við- skiptum við matargesti. Starfið krefst góðrar kunnáttu í ofangreind- um störfum og að auki að viðkomandi: - geti starfað sjálfstætt, - komi vel fyrir og sé lipur í umgengni. Vinnutími er að jafnaði frá kl. 10.00 til kl. 23.00 og frí tvo daga í viku, ekki um helgar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, helst 1. apríl nk. Aðstoðað verður við að útvega húsnæði. Ritari Við leitum að ritara í hálft starf hjá ráðgjafa- fyrirtæki. Starfið felst m.a. í móttöku viðskiptavina, ritvinnslu, bókhaldi (stólpi), reikningsútskrift og innheimtu. Starfið krefst góðrar kunnáttu í ofangreind- um störfum og að auki að viðkomandi: - geti starfað sjálfstætt, - komi vel fyrir og sé lipur í umgengni, - tali góða ensku. Vinnustaðurinn er lítill og starfið því fjöl- breytt og hann er miðsvæðis í Reykjavík. Eingöngu þeir, sem eru að leita að starfi til lengri tíma, koma til greina. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu okkar og er þar svarað frekari fyrirspurnum. Hannarr RÁÐGJAFAÞJÓNUSTA Síðumúla 1 108 Reykjavík Sími 687317 Rekstrarráðgjöf. Fjárfestingamat. - Skipulag vinnustaða. Markaðsráðgjöf. Áætlanagerð. Framleiðslustýrikerfi. Tölvuþjónusta. Láunakerfi. Stjómskipulag o.fl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.