Morgunblaðið - 25.03.1990, Qupperneq 37
Kveðjuorð.
MOMUNBLAÐIÐ MIIXIINIINGAR SUNNUDAGUR 25. MAHZ 1990
37
Valdimar Jónsson,
Kolþernumýri
Fæddur 5. febrúar 1900
Dáinn 12. janúar 1990
Nú er hann Valdi frá Mýri dáinn.
Okkur bræðrum langar að minnast
hans með fáeinum orðum. Hann lést
12. janúar á sjúkrahúsinu á Hvamm-
stanga. Á unga aldri fór hann í fóst-
ur til afa síns og ömmu, þeirra Árna
Bergþórssonar og Guðríðar Jóns-
dóttur, sem bjuggu á Kolþernumýri
í Vesturhópi. Þegar afi var 25 ára
tók hann við búskapnum og giftist
ári seinna Rannveigu S. Þórðardóttir
frá Vogum við ísafjarðardjúp en hún
lést árið 1960. Afi og amma eignuð-
ust fjögur börn, þau eru Ólöf, Guð-
jóna Ragna, Kristjana Alda og Þórð-
ur Kristján. Dóu Kristjana og Þórður
ung. Afi var bóndi í 45 ár á Kol-
þernumýri. Og þar er okkar besta
minning um afa, þegr við vorum sem
strákar í sveitinni hjá honum. Bú-
skapurinn var stundaður án nútíma
vélvæðingar að mestu leyti. Afi var
bóndi með sauðfé, hesta og kýr, þeg-
ar ekki þurfti að hugsa um kvóta,
kjötfjöll og aðra offramleiðslu. Enda
skipaði landbúnaður hærri sess og
meira máli fyrir þjóðarbúið áður fyrr
og hefur mikið breyst frá því afi
tekur við búskap 1925.
Það var mjög gaman hjá okkur
bræðrunum að vera í sveitinni, mikið
var að gerast og margt hægt að
gera og erum við þakklátir að hafa
fengið að vera hjá honum þessi
síðustu ár sem hann stundaði búskap.
Afi var gestrisinn og hafði gaman
af öllum sem komu í heimsókn.
Smalamennskan er okkur minnis-
stæð þegar afi fór á Bleik að smala
heimalöndin eða fór í göngur. Var
hann gangnastjóri í Þverárfjalli og
afréttum í mörg ár. 1970 hætti afi
búskap og fluttist suður til dóttur
sinnar, Ólafar, og bjó hjá henni.
Þegar við hittumst eftir að afi kom
suður barst talið alltaf að sveitinni,
hvernig veiðin var síðast í vatninu,
síðustu ferð norður. Árið 1980 fór
hann norður og lagðist inn á sjúkra-
húsið á Hvammstanga heilsunnar
vegna. Þar dvaldi hann síðustu ævi-
árin. Við minnumst hans með hlýju
og þakklæti fyrir að hafa fengið að
vera á sumrin með honum í sveit-
inni. Við biðjum Guð að annast hann
í sinni sveit.
Valdimar Hilmarsson,
Höskuldur Hilmarsson,
Þór Ingi Hilmarsson.
Guðrún Jónsdóttir
Staðarbakka — Kveðja
Fædd 13. nóvember 1935
Dáin 6. marz 1990
Fyrstu kynnin mín af Guðrúnu
voru er við lágum saman á sæng á
sjúkrahúsinu á Hvammstanga í mars
1958. Við eignuðumst báðar yndis-
lega vel skapaða drengi ég 5. marz
en hin 6. marz.
Við vorum alsælar með litlu dreng-
ina okkar, vorum báðar búnar að
eignast heilbrigðar dætur. Við þökk-
uðum Guði fyrir að eignast heilbrigð
böm því að það er ekkert sjálfsagt
að eignast rétt sköpuð börn. Við
ræddum mikið um uppeldi barnanna,
hvað þeim væri fyrir beztu. Kom
okkur saman um að kenna þeim til-
litssemi, allar þær bænir sem við
kunnum, gefa þeim notalegt heimili
og reyna að vernda þau frá því illa.
Eins og við vitum þá eru það tvö öfl
sem að togast á, og var það okkar
heitasta ósk að það góða hefði yfir-
höndina. Það sem mér kom fyrst í
hug er ég frétti andlát kunningja-
konu minnar Guðrúnar, Guð er góður
að láta hana ekki kveljast lengur.
Hún fékk banvænan sjúkdóm sem
uppgötvaðist í janúar og mannlegur
máttur réði ekki við að lækna.
En svona er lífið. Guð gaf og Guð
tók, þetta er lífsins saga og áreiðan-
lega það eina örugga í lífinu. Við
óttuðumst ekki dauðann, en þó áttum
við sameiginlega eina stóra ósk og
hún var sú að við gætum komið okk-
ar börnum til manns áður en við
færum úr efnislíkamanum yfir í et-
erlíkamann.
Guðrún giftist ágætis manni
Magnúsi Guðmundssyni bónda Stað-
arbakka Miðfirði Vestur-Húnavatns-
sýslu. Eignuðust þau 7 börn, eina
dóttur átti hún áður. Eru þau öll
duglegir þjóðfélagsþegnar.
Eg vona að góður Guð verði þeim
og Magnúsi styrkur í þeirra miklu
sorg og ég veit að börnin eiga eftir
að vera pabba sínum hjálpleg í bú-
skaj)num.
Eg kom einu sinni í heimsókn að
Staðarbakka. Það var farið að
hausta, en veðrið var yndislegt,
glampandi sól en smá andvari. Við
fengum okkur göngutúr út á tún og
niður í rófugarð. Það var gott að
anda að sér hreinu sveitaloftinu.
Guðrún tók upp rófur stórar og fall-
egar og setti í poka sem við bárum
á milli okkar heim í bæ. Hún gaf
mér hluta af þeim í nesti er ég fór
heim um kvöldið. Var ég þá búin að
eiga ánægjulegan dag á heimili henn-
ar. Töluðum við um allt milli himins
og jarðar yfir rjúkandi kaffi og alls-
konar góðgæti er hún bar á borð.
Þessi dagur var allt of fljótur að líða
og ætluðum við svo sannanlega að
endurtaka þetta að eiga svona nota-
lega stund saman heima hjá henni,
en því miður varð aldrei neitt úr
því. En hún stóð sig mun betur í því
að heimsækja mig. Það var alltaf
jafn kærkomið að fá hana í heimsókn
því mér fannst oft eins og sólskin
umlyki hana, svo bjart var yfír henni.
Við skildum vel hvor aðra. Við
vorum m.a. báðar mjög mótfallnar
áfengum drykkjum og báðum einætt
fyrir þeim sem að ánetjuðust því.
Eg veit að Guðrún hefur fengið góða
heimkomu, kveð ég hana með versi
eftir H.P.
Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér.
Vaka láttu eins í þér.
Sálin vaki, þá sofnar lif,
sé hún ætið í þinni hlíf.
Guð blessi minningu Guðrúnar
Jónsdóttur.
Hildur Kristín Jakobsdóttir
Hvoli, Hvammstanga.
t
Systir okkar,
GUÐRÚN JÓNASDÓTTIR
frá Litladal,
til heimilis á Grettisgötu 55c,
Reykjavík,
andaðist föstudaginn 23. mars. F.h. vandamanna, -
Ásta og Sigurbjörg Jónasdætur.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HELGA BOGEY FINNBOGADÓTTIR,
sem lést 8. mars í Gautaborg verður jarðsungin frá litlu Fossvogs-
kapellunni þriðjudaginn 27. mars kl. 15.00.
Petter A. Tafjord, Halla Jóhannsdóttir,
Jóna Valdís Tafjord, Birgir Vilhjálmsson,
Guðmundur R. J. Guðmundsson, Sólveig Þórðardóttir,
Helga Andrea Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför ástkærs föður okkar, tengdaföður og afa,
GUÐBJÖRNS KJARTANSSONAR
bifvélavirkja,
Karlagötu 6,
Reykjavík,
verður gerð frá Fossvogskapellu mánudaginn 26. mars kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hans, er bent á að láta Sjálfsbjörg, félag lamaðra og
fatlaðra, njóta þess.
Auður Guðbjörnsdóttir, Ása Guðbjörnsdóttir,
Þorbjörn Runólfsson, Þorlákur Asgeirsson,
Guðrún, Dagný,
Sævar, Guðbjörg,
Erla, Ásgeir,
Kristin, Vilhjálmur,
Bjarni
og barnabarnabörn.
t
Móðursystir mín,
KRISTÍN EYJÓLFSDÓTTIR
frá Þurá,
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 22. mars.
Hulda Sveinsdóttir.
t
HAUKUR ÞORLEIFSSON,
fyrrverandi aðalbókari,
Rauðalæk 26,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 27. mars kl.
13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Styrktarsjóð
Landakotsspítala og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Ásta Björnsdóttir,
Gunnar Már Hauksson,
Þorleifur Hauksson,
Halla Hauksdóttir,
Nanna Þórunn Hauksdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINBJÖRN K. ÁRNASON,
kaupmaður,
Hávallagötu 35,
Reykjavik,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 27. mars kl.
15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameins-
félagið.
Stefanía Sveinbjörnsdóttir, Karólína B. Sveinbjörnsdóttir,
Erna S. Mathiesen, Einar Þ. Mathiesen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN Ö. ÁGÚSTSSON
skipstjóri
frá Sigurvöllum,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðjudaginn 27. mars kl.
14.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Sjúkrahús Akraness eða
Dvalarheimilið Höfða.
Fyrir hönd vandamanna,
Björnfríður Björnsdóttir, Oddur Gislason,
Ágústa S. Björnsdóttir, Magnús Ingi Hannesson,
-- Ólína Sigþóra Björnsdóttir, Ólafur Jónsson,
Ólöf G. Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSTRÍÐAR ÁRNADÓTTUR,
Suðurgötu 115,
Akranesi,
Ingvar Sigmundsson, Steinunn Kolbeinsdóttir,
Árný Kristjánsdóttir, Helgi Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, syst-
ur, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR ÓSKARSDÓTTUR,
Hringbraut 36,
Hafnarfirði.
Erla Stringer, Gerald Stringer,
Sigriður Sverrisdóttir, Gunnar Hilmarsson,
Lilja Óskarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar hjartans þakkir sendum við öllum
þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur sam-
úð, vinarhug og hjálpsemi við andlát
og útför eiginmanns míns, föður okkar,
sonar, bróður og tengdasonar,
BENEDIKTS RÚNARS
HJÁLMARSSONAR,
Sandabraut 16,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til Jaðarsbakkabræðra, knattspyrnufélags ÍA og
mfl. kvenna ÍA. Þið hafið veitt okkur ómetanlegan styrk.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur góða daga.
Friðgerður Bjarnadóttir, Kolbrún Benediktsdóttir,
Asta Benediktsdóttir, ívar Örn Benediktsson,
foreldrar, systkini,
tengdamóðir og aðrir vandamenn.