Morgunblaðið - 25.03.1990, Side 43
OGGI SHAM .32 Hi
MORGUNBLAÐIÐ
ai
tftflAVTU 110/
SUNNUDAGUR 25.
W
43
21.30 Útvarpssagan: „Ljósið góða" eftir Karl Bjarn-
hof. Arnhildur Jónsdóttir les (7).
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni.
(Endurtekinn frá sama degi.)
22.15 Veðurfregnir. Dagskrá morgundagsins.
22.20 Lestur Passiusálma. Ingólfur Möller les 36.
sálm.
22.30 Samantekt um viðskiptabandalög i Evrópu.
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. (Einnig útvarpað á
miðvikudag kl. 15.03.) •
23.10 Kvöldstund í dur og moll með Knúti R. Magn-
ússyni.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur. Umsjón: Sigríður Ásta Árna-
dóttir. (Endurtekinn frá morgni.)
1.00 Veðurfregnir.
1.10 Naeturútvarp á báðum rásum til morguns.
RÁS2FM 90,1
7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn i Ijósið.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson hefja
daginn með hlustendum.
8.00 Morgunfréttir — Morgunútvarpið heldur
áfram.
9.03 Morgunsyrpa. Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir.
11.03 Gagn og gaman meðJóhönnu Harðardóttur.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir — Gagn og gaman Jóhönnu
Harðardótturhelduráfram. Þarfaþing kl. 13.15.
14(03 Brot úr degi. Eva Ásrún Albertsdóttir. Róleg
miðdegisstund með Evu, afslöppun í erli dagsins.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. Sigurður G.
Tómasson, Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Katrín
Baldursdóttir. - Kaffispjall og innlit upp úr kl.
16.00. - Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfundur í beinní útsend-
ingu, sími 91-686090.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Zikk-Zakk. Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir og
Sigriður Arnardóttir. Nafnið segir allt sem þarf —
krassandi þáttur sem þorir.
20.30 Gullskifan: „Travel-log" með J.J. Cale.
21.00 Bláar nótur. Pétur Grétarsson kynnir djass
og blús. (Úrvali útvarpað aðfaranótt miðvikudags
að loknum fréttum kl. 5.00.)
22.07 „Blítt og létt...“ Gyða Dröfn Tryggvadóttir
rabbar við sjómenn og leikur óskalög. (Einnig
útvarpað kl. 3.00 næstu nótt á nýrri vakt.)
23.10 Fyrirmyndarfólk litur inn til Lísu Páls i kvöld-
spjall.
00.10 í háttinn. Ólafur Þórðarson leikur miðnætur
lög.
1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00, 10.00,
11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00, 18.00, 19.00, 22.00 og 24,00.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Áfram ísland.
2.00 Fréttir.
2.05 Eftirlætislögin. Svanhildur Jakobsdóttir spjall-
ar við Hjördisi Geirsdóttur söngkonu sem velur
eftirlætislögin sin. (Endurtekinn þáttur frá þriðju-
degi á Rás 1.)
3.00 „Blitt og létt. ..“ Endurtekinn sjómannaþátt-
ur Gyðu Drafnar Tryggvadóttur frá liðnu kvöldi.
4.00 Fréttir.
4.05 Glefsur. Úrdægurmálaútvarpi mánudagsins.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Á vettvangi, Umsjón: Páll Heiðar Jónsson
og Bjarni Sigtryggsson. (Endurtekinn þáttur frá
deginum áður á Rás 1.)
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.01 Sveitasæla. Meðal annars verða nýjustu lög-
in leikin, fréttir sagðar úr sveitinni, sveitamaður
vikunnar kynntur, óskalög leikin og fleira. Um-
sjón: Magnús R. Einarsson. (Endurtekið ún/al frá
föstudagskvöldi á Rás 2.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Á gallabuxum og gúmmiskóm. Leikin lög frá
sjötta og sjöunda áratugnum.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2
kl. 8.10-8.30 og 18.03-19.00. Útvarp Norðurland
BYLGJAN FM 98,9
7.00 Morgunstund gefu'r gull i mund. Rósa Guð-
bjartsdóttir og Haraldur Gíslason. Kíkt í morgun-
blöðin og fréttatengd viðtöl.
9.00 Páll Þorsteinsson á morgunvaktinni. Vinir og
vandamenn kl. 9.30. Veðurfréttir frá útlöndum.
Uppskri.. dagsins valin rétt um 11.30.
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Valdis Gunriarsdóttir. Rc-cola afmæliskveðj-
ur milli 13.30-14.
15.00 Ágúst Héðinsson. Maður vikunnar vaffhn i
gegnum 611111.
17.00 Reykjavík síðdegis. Sigursteinn Másson.
Vettvangur hlustenda, Siminn er 611111. Laufey
Steingrímsdóttir: mánudagspistill um heilsu og
mataræði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.15 íslenskir tónar.
19.00 Snjólfur Teitsson.
20.00 „Fullorðni vinsældalistinn í Bandaríkjunum".
Ágúst Héðinsson.
22.00 Stjörnuspeki. Gunnlaugur Guðmundsson og
Pétur Steinn Guðmundsson taka hrútinn fyrir.
Góður gestur lítur inn.
24.00 Freymóður T. Sigurðsson á næturvappi.
Fréttir á klukkutímafresti frá 8-18.
STJARNAN FM 102/104
7.00 Dýragarðurinn. Sigurður Helgi Hlöðversson.
10.00 Snorri Sturluson. Gauks-leikurinn á sinum
stað,
13.00 Kristófer Helgason. Tónlist við vinnuna.
Iþróttafréttir kl. 16.00.
17.00 Á bakinu með Bjarna. Nýr þáttur. Milli kl.
17-18 eru upplýsingar um hvað er að gerast í
bænum. Milli kl. 18 og 19 er opnuð hlustendalin-
an sem er 679102. Tekin eru fyrir málefni liðandi
stundar. Bjarni Haukur Þórsson.
19.00 Darri Ólason á útopnu. Rokk-tónlist i bland
við danstónlist.
22.00 Ástarjátningin! Kristófer Helgason.
1.00 Björn Sigurðsson. Næturvakt. Veðurfréttir
og góð tónlist.
ÚTRÁS FM 104,8
16.00 Einar Águstsson.
17.00 Guðrún Árnadóttir.
18.00 Smithereens. Umsjónarmenn eru Kristján K
og Guðný M.
20.00 Allt sem framhaldsskólunum kemur við.
22.00 MS.
1.00 Dagskrárlok.
AÐALSTÖÐIN FM 90,9
7.00 Nýr dagur. Eiríkur Jónsson. Frétta- og viðtals-
þáttur með fréttatengdu efni. 7.30 Morgunand
akt með sr. Cecil Haraldssyni.
9.00 Árdegi Aðalstöövarinnar. Anna Björk Birgis-
dóttir. Ljúfir tónar i dagsins önn með fróðleiks-
molum um færð veður og flug.
12.00 Dagbókin. Innlendar og erlendar fréttir. Frétt-
ir af fólki, færð, flugi og samgöngum, Umsjónar-
menn Ásgeir Tómasson, Þorgeir Ástvaldsson,
Eiríkur Jónsson og Margrét Hrafns. .
13.00 Lögin við vinnuna. Rifjuð upp lög fjórða,
fimmta og sjötta áratugsins með aðstoð hlust-
enda i sima 626060. Umsjón Þorgeir Ástvalds-
son.
16.00 i dag í kvöld með Ásgeiri Tómassyni. Fréttir
og frétlatengt efni um málefni.liðandi stundar.
18.00 Á rökstólum. i þessum þætti er rætt um þau
málefni sem efst eru á baugi hverju sinni. Við-
mælendur eru oft boðaðir með stuttum fyrirvara
til þess að á rökstólum séu ætið rædd þau mál
sem brenna á vörum fólks i landinu. Hlustendur
geta tekið virkan þátt i umræðunni í gegnum
síma 626060. Umsjón Bjarni Dagur Jónsson.
19.00 Tónar úr hjarta borgarinnar.
22.00 Draumasmiðjan. Draumar hlustenda ráðnir
í beinni útsendingu. Siminn 626060. Umsjón
Kristján Frimann.
24.00 Næturtónar Aðalstöðvarinnar. Randver Jens-
EFFEMMFM95.7
7.00 Arnar Bjarnason.
10.00 ivar Guðmundsson.
13.00 Sigurður Ragnarsson.
16.00 Jóhann Jóhannsson.
19.00 Ragnar Vilhjálmsson.
22.00 Valgeir Vilhjálmsson. Sex lög vinsæl eða
líkleg til vinsælda spiluð.
1.00 Næturdagskrá.
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
*
Imynd gæða-
umhverfis
Nefnd skipuð af forsætisráð-
herra til að kynna ísland á
erlendum vettvangi og efla já-
kvæða ímynd þess, stóð í frétt í
Morgunblaðinu á laugardags-
morgun. Og fyrstu liðir á verk-
efnalista hennar: 1. Að kanna
hvort ísland geti orðið ímynd
gæða, hreinleika og heilbrigðs
umhverfis og mannlífs. 2. Að at-
huga hvaða svið hérlendis geti
helst þjónað ofangreindri ímynd
hjá erlendum aðilum. Nefndin
gerir tillögur um hvernig þróa
megi nauðsynlega aðstöðu hér-
lendis og af hverjum.
Þennan laugardagsmorgun sat
blaðalesandi norður á Húsavík á
ágætri ráðstefnu Húsgulls, sam-
taka um umhverfismál og gróður-
vernd, og hlýddi á
Tryggva Jakobsson lesa
í erindi sínu um „Um-
hverfismál á íslandi í al-
þjóðlegu samhengi" upp
úr fréttabréfi Náttúru-
verndarráðs úr greininni
ísland— fyrirmyndarl-
andið. Þegar greinin sú
birtist hafði forsætisráð-
herra einmitt sl. haust
boðað umhverfisráð-
stefnu á íslandi og að
ísland yrði kynnt sem
fyrirmyndarlandið í um-
hverfismálum. Ráðin sem
þarna voru gefin af góð-
um hug og Tryggvi var
nú að minna á voru: „Ef
einhver ætlar að vera til
fyrirmyndar, þarf hann
að breyta samkvæmt
myndinni sem hann gefur
af sjálfum sér. íslending-
ar verða því að taka á
honum stóra sínum ef
þeir ætla að vera trúverð-
ugir. Við hljótum öll að
gleðjast yfir þessari framtakssemi
ríkisstjórnarinnar að breyta ís-
landi í forystu- og fyrirmyndarríki
í umhverfismálum. Og verða talin
upp nokkur atriði, sem nauðsyn-
legt er að lagfæra áður en við
förum af stað i þessu máli:
1. Ekkert ríki í Evrópu er eins
illa farið af mannavöldum og Is-
land. Gróðureyðing er slík, að
gera verður stórfellt átak í gróð-
urvernd og uppgræðslu. Hér þarf
að koma á beitarstjórnun og
margfalda fjármuni til þessa
máiaflokks.
2. Vestræn ríki hafa sett lög
og reglur um útblástur frá verk-
smiðjum og bifreiðum. Hér gilda
ekki slíkar reglur. Flestar verk-
smiðjur senda reykinn óhreinsað-
an út í andrúmsloftið og sama
má segja um bifreiðar. Ef hreinsi-
búnaður er á innfluttum bifreið-
um, þá er hann fjarlægður. Hér
er mikið verk að vinna.
3. Flest ríki Vesturlanda hafa
sett reglur um hreinsun skolps
og annars frárennslis, nema Is-
lendingar. Hér ríkir sjónarmiðið
„lengi tekur sjórinn við“ og sam-
kvæmt því er allt íbúðarskolp,
verksmiðjuskolp og annað frá-
rennsli sett óhreinsað í sjóinn.
Einnig hafa margar ár verið
mengaðar á seinustu árum með
óhreinsuðu skolpi frá fiskeldi, sem
fengið hefur að starfa án eftirlits
inni í landi. Hér veitir ekki af
átaki.
Nágrannaþjóðir okkar endur-
vinna sitt sorp. Við urðum okkar
sorp. Það sem við teljum okkur
komast lengst í þessu efni er að
bagga sorpið, áður en það er urð-
að. Hvenær getum við farið að
endurvinna sorpið, og taka þannig
þátt í því að varðveita auðlindir
sem endurnýja sig ekki?
Hér hefur aðeins verið drepið
á nokkur atriði sem við þurfum
að lagfæra áður en við getum
orðið forystuland á sviði umhverf-
ismála. Þegar við höfum gert það, '
taka aðrir mark á okkur.“ Sem
ég sat með blaðafréttina og hlust-
aði á þennan upplestur í fullum
sal af fólki, sem skildi þetta
greinilega svo ofur vel og var
þarna til að ræða stefnumörkun
í gróðurvernd, virtust svörin sem
nefnd á að fara að leita að, blasa
við. En það er auðvitað misskiln-
ingur. Þetta er ekki nefnd til að
bregðast við, svo við getum náð
nágrannaþjóðum og farið „að
halda alþjóðlegar umhverfisráð-
stefnur í samráði við erlenda og
innlenda sérfræðinga og stofnanir
á sviði umhverfismála og/eða
umhverfissinna“. Nei, við þurfum
auðvitað að kanna og finna ráð
til þess að ísland geti orðið ímynd
gæða hreinleika og heilbrigðs
umhverfis þrátt fyrir allt og dreg-"
ið að túrhesta með peninga. Það
var snjallt. Fara bara í karne-
valfötin eða nýju fötin keisarans.
Bara að ekki komi barn og bendi!
A-ha, það er ekki í neinu! En það
má reyna það, eins og við aðra
gestakomu, i ljóði Piets Heins í
íslenskum búningi Helga Hálf-
danarsonar:
Allt okkar dót um borð og bekki
skal burtu hrakið, svo sjáist ekki
neitt sem í dagsins indælu önn
er okkur nauðsyn og gleði sönn,
því hér koma gestir að horfa á það
hvernig við búum á þessum stað.
Kannski umhverfisráðuneyti
geti bætt ímyndina? Þótt Alþingi
hafi ekki nema híalín til að klæða
það í. Bárust einmitt af því frétt-
ir á sama tíma að Alþingi ætlaði
enn ekki að hafa kjark til að búa
það út í slaginn til að taka á brýnu
verkefnunum. Dula látin nægja.
Það verður ljóst á ráðstefnu eins
og þessari þarna fýrir norðan að
bændur og ræktunarfólk er búið
að gera það upp við sig að eitt-
hvað verður að gera umfram það
að búa til blæju-ímynd og kosta
nokkru til. „Það eru bara alþingis-
mennirnir sem ekki þora, við erum
tilbúnir til að taka á og gera það
sem gera þarf, lúta eftirliti eins
og aðrir,“ sagði góður bóndi. Enda
vanur að standa föstum fótum í
raunveruleikanum — í hans veru-
leika er víst svo lítið skjól í ímynd-
inni.