Morgunblaðið - 08.04.1990, Blaðsíða 16
16 C
C 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1990
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1990
Svava Rán Guðmundsdóttir
býr í Kópavogi. Hún er 19 ára gömul, fædd 2. september
1970. Foreldrar hennar eru Guðmundur Sveinsson endur-
skoðandi og Þórunn Hauksdóttir skrifstofustjóri. Svava
vinnur á Kópavogshæli og á endurskoðunarskrifstofu en
hún tók sér stutt frí frá námi í Fjölbrautaskólanum við
Ármúla. Áhugamálin eru fólk, ljósmyndun, kvikmyndir og
flest það sem fyrir augun ber.
Sigríður Stefánsdóttir
býr í Kópavogi. Hún er 21 árs að aldri, fædd 30. nóvem-
ber 1968. Foreldrar hennar eru Stefán Þór Jónsson flug-
stjóri og Auður Hauksdóttir húsmóðir. Hún vinnur á verk-
fræðistofu Stefáns Ólafssonar. Áhugamál Sigríðar eru fyr-
irsætustörf, tungumál, ferðalög, sund ogtennis á sumrin.
íris Eggertsdóttir
býr í Keflavík. Hún er 17 ára gömul, fædd 27. september
1972. Foreldrar hennar eru Eggert Páll Björnsson rafvirki
og Margrét Sigurðardóttir handmenntakennari. íris stund-
ar nám í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún hefur áhuga á
dansi, hestamennsku, saumum ogteiknun.
Þórdís Steinsdóttir
býr í Reykjavík. Hún er 20 ára, fædd 10. júní 1969. For-
eldrar hennar eru Steinn Þórkarlsson og Edda Hanney
Þorsteinsdóttir. Hún starfar sem afgreiðslustúlka í Nesti
í Fossvogi. Þórdís hefur áhuga á tónlist, dansi, útiveru og
hestamennsku.
Linda Björk Bergsveinsdóttir
er Reykvíkingur. Hún er 22 ára gömul, fædd 23. septem-
ber 1967. Foreldrar hennar eru Bergsveinn Alfonsson og
Þuríður Sölvadóttir. Linda vinnur hjá Skýrsluvélum ríkisins
og Reykjavíkurborgar. Áhugamál hennar eru líkamsrækt,
skíði, golf, ferðalög, lestur og skemmtun í góðra vina hópi.
Sigurrós Jónsdóttir
var kjörin ljósmyndafyrirsæta Reykjavíkur. Ilún er 17 ára
gömul, fædd 22. nóvember 1972. Foreldrar hennar eru Jón
Bragi Bjarnason og Guðrún Stefánsdóttir. Sigurrós er nem-
andi við Menntaskólann við Sund og sýnir einnig með
Módel 79. Áhugamál hennar eru vinir hennar, ferðalög og
fyrirsætustörf.
Ljósmyndir: Bjarni Eiríksson og Árni Sæberg
HER ERU kynntar 11 stúlkur til viðbótar sem keppa til úrslita um titil-
inn Fegurðardrottning Islands 1990 á Hótel Islandi miðvikudagskvöldið
18. apríl. Fyrri 11 stúlkurnar voru kynntar síðastliðinn sunnudag. Stúlk-
urnar eru farðaðar með Elisabeth Arden-snyrtivörum og Dúddi sá um
hárgreiðslu með Redken-snyrtivörum. Stúlkurnar eru í Dance France-
sundbolum.
Ragnhildur Magnúsdóttir
býr í Reykjavík. Hún er 18 ára gömul, fædd 19. október
1971. Foreldrar hennar eru Magnús Sigurðsson ogSelma
Skúladóttir. Ragnhildur er nemandi við Fjölbrautaskólann
í Breiðholti og vinnur einnig á veitingastaðnum J arlinum.
Helsta áhugamál hennar er hestamennska.
Olga Björt Þórðardóttir
er fegurðardrottning Suðurnesja og býr í Ytri-Njarðvík.
Hún er 17 áragömul, fædd 2. júlí 1972, dóttir Þórðar
Bergmanns Þórðarsonar brunavarðar og Helgu Magnús-
dóttur kennara. Olga stundar nám við Menntaskólann í
Reykjavík. Hún hefur áhuga á módelstprfum, myndlist,
skrautskrift, útivist, líkamsrækt og ferðalögum.
Sigrún Eiríksdóttir
er 22 ára Reykvíkingur, fædd 17. júní 1967. Foreldrar
hennar eru Eiríkur Brynjólfsson og Valgerður Björnsdótt-
ir. Hún les spönsku við Háskóla íslands. Helstu áhugamál
Sigrúnar eru tungumál, ferðalög, tónlist og líkamsrækt.
Þorbjörg Bjarnadóttir
býr í Garðabæ. Hún er 21 árs gömul, fædd 26. mars 1969,
dóttir Bjarna Ólafssonar flugvirkja og Guðrúnar Árnadótt-
ur hárgreiðsludömu. Þorbjörg er gjaldkeri hjá Hitaveitu
Reykjavíkur. Hún hefur áhuga á flugustangveiði, ferðalög-
um, tungumálum, fluguhnýtingum og fatasaumi.
Soffia Ólöf Ketilsdóttir
býr í Reykjavík. Hún er 20 ára gömul, fædd 20. janúar
1970, dóttir Ketils Axelssonar og Margrétar Gunnlaugs-
dóttur. Hún stundar nám í Verslunarskóla íslands. Áhuga-
málin eru skólinn og félagslífið þar, ferðalög, dans og skíði.