Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990 Ölvaður ók kranabíl á þrjú hús og hátt á annan tug bfla ÖLVAÐUR maður á stolnum 8 tonna kranabíl ók á og skemmdi þijú hús og hátt á annan tug bíla á ferð um Vesturbæ og Miðbæinn í gærkvöldi. Tveir bílanna eru gjörónýtir að sögn lögreglu. Maður- inn stal bílnum í porti Stálsmiðjunnar við Mýrargötu um klukkan hálftíu og ók síðan um bæinn á skjön við allar umferðarreglur, meðal annars á móti umferð á Hringbraut og Sóleyjargötu, uns hann missti vald á bílnum á leið niður Frakkastíg. Þar rakst bllinn á Qóra fólksbíla og kastaði þeim á aðra þannig að allt að 20 bílar voru stórskemmdir eftir. Lögreglu var tilkynnt um ferðir mannsins þegar hann ók kranabíln- um á tvö fjölbýlishús við Skelja- granda. Hann lét það ekki stöðva för sína heldur ók áfram, þó ekki á miklum hraða að sögn lögreglu, um Eiðisgranda, Nesveg, Kapla- skjólsveg, Hringbraut, norður Suð- urgötu, vestur Túngötu, norður Garaðstræti, austur Vesturgötu, Hafnarstræti, Ingólfsstræti, Spítal- astíg, Grundarstíg, Helissund, Laufásveg í norður, Bókhlöðustíg í vestur, Lækjargötu, Frikirkjuveg og Sóleyjagötu í austur. Á móti einstefnu á Sóleyjargötu austan Njarðargötu, gegnt umferð austur Hringbraut og þurftu ökumenn á vesturleið að forða bílum sínum upp á umferðareyjar. Við Smáragötu ók maðurinn enn gegn einstefnu, þaðan austur Njarðargötu og niður Frakkastíg. í brekkunni jókst hrað- inn og missti maðurinn algjörlega vald á hemlalausum bílnum. Hann ók viðstöðulaust yfir Laugaveg rakst þá á fjóra kyrrstæða og mann- lausa bíla sem köstuðust til í bíla- stæðum og skemmdu nálæga bíla og lósastaur, sem brotnaði og lagð- ist að húsgafli. Skammt þar frá stöðvaðist för kranabílsins. Frá Suðurgötu fylgdu lögreglu- bílar kranabílnum eftir og og köll- uðu lögreglumenn til mannsins í gegnum gjallarhom að nema stað- ar. Reynt var að leggja lögreglubíl í veg fyrir akstursstefnu kranabfls- ins en hann smaug framhjá þeim. Að sögn lögreglu er það mikil mildi að engan sakaði. Hraði kranabflsins sem er númerslaus, skráður sem vinnuvél og notaður sem slíkur á athafnasvæði Stálsmiðjunnar, var ekki mikill ef undan er skilin ferðin niður Frakkastíg þegar hemlar hans héldu ekki í. Ökumaðurinn, sem er tvítugur Þorlákshafnarbúi, var að sögn lög- reglu dauðadrukkinn. Hann var geymdur í fangageymslum lögregl- unnar í nótt og verður færður til yfirheyrslu fyrir hádegi í dag. VEÐURHORFUR í DAG, 18. APRÍL YFIRLIT í GÆR: Yfir landinu er hæðarhryggur á leið austur en minnkandi 990 mb lægð skammt suövestur af Jan Mayen þokast norður. Um 500 km suðaustur af Hvarfi er vaxandi 1.000 mb lægð sem mun fara austur yfir sunnanvert landið á morgun. SPÁ: Breytileg átt, kaldi eða stinningskaldi með slyddu víða um land en norðlægari kaldi eða stinningskaldi þegar líður á daginn. Annað kvöld verður því snjókoma eða él norðanlands og suður með vesturströndinni en fer að létta til á Suðurlandi. Fremur svalt áfram. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Vaxandi sunnanátt og fer að rigna um landið sunnan- og vestanvert en hægt vaxandi suðvestanátt og úrkomulítið austanlartds. Hiti á bilinu 3 til 7 stig, hlýjast suðvestan- lands. HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðvestanstrekkingur um land allt og kólnandi veður, fyrst vestanlands. Skúrir og síðar slydduél sunnan- lands og vestan en lítils háttar rigning um landið austanvert. VEÐUR I!ÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 1 skýjaS Reykjavik 1 léttskýjaó Bergen 3 haglél á s. klst. Helsinki 9 skýjað Kaupmannah. 8 þokumóða Narssarssuaq +8 snjókoma Nuuk +8 skafrenningur Osló 8 skýjað Stokkhólmur 10 skýjað Þórshöfn 6 skýjað Algarve 23 léttskýjað Amsterdam 8 hálfskýjað Barcelona 15 léttskýjað Berlín 12 léttskýjað Chicago 0.6 léttskýjað Feneyjar 16 léttskýjað Frankfurt 7 skúr á s. klst. Glasgow 5 skúr Hamborg 8 skýjað Las Palmas 20 skýjað London 10 skýjað Los Angeles 14 skúr Lúxemborg 8 skúr á s. klst. Madríd 16 skýjað Malaga 19 léttskýjað Mallorca 18 léttskýjað Montreal 7 rígning New York 11 skýjað Orlando 19 þokumóða París 10 úrkoma í grennd Róm 16 léttskýjað Vin 13 hálfskýjað Washington 13 mistur Winnipeg +4 skýjað N.-Múlasýsla: Meirihluti samþykkur niðurskurði sauðflár Geitagerði, iijóisdal. Á FUNDI í Végarði í Fljótsdals- hreppi í Norður Múlasýslu sem haldinn var laugardaginn 14. þessa mánaðar á vegum Búnaðar- sambands Austurlands, BSA, um varnir gegn riðuveiki, voru greidd atkvæði um tillögu um nið- urskurð alls sauðfjár í hreppnum. Atkvæði féllu þannig að 23 voru með niðurskurði en 11 á móti. Auk stjómar BSA voru mættir á fundinn sérfræðingur sauðfjársjúk- dómanefndar, Sigurður Sigurðsson dýralæknir, og Sævar Sigbjarnarson fulltrúi. Áður hafði verið samþykkt- ur niðurskurður á sauðfé í Fella-, Tungu- og Jökuldalshreppi austan Jökulsár á Dal á sameiginlegum fundi framangreindra hreppa sem haldinn var í Fellabæ í Fellahreppi. Sauðárkrókur: Vélsleðaslys í Tindastól Sauðárkróki. ALVARLEGT vélsleðaslys varð hátt í vesturhlíðum Tindastóls ofan við bæinn Heiði í Göngu- skörðum síðdegis á föstudaginn langa. Ungur maður ók vélsleða sínum fram af hengju og féll um 15 metra niður í gil. Margt manna var neðar á svæðinu sem er skíðaland Sauð- krækinga og gekk greiðlega að ná hinum slasaða af slysstað og niður að skíðalyftunni sem er niður við veg. Farið var með hinn slasaða á sjúkrahús á Sauðárkróki en hann síðan fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem hann liggur á gjörgæsludeild Borgarspítalans. - B.B. Bamfyrirbíl UNGUR drengur varð fyrir bíl á Vesturbrún á tíunda timanum að kvöldi annars dags páska. Hann meiddist i andliti og óttast var að hann hefði nefbrotnað. Þá voru ij'órir fluttir á slysadeild Boirgarspítalans eftir að lítilli fólks- bifreið var ekið á mannlausan og kyrrstæðan sendibíl á Sóleyjargötu við Njarðargötu á laugardag. Öku- maður var grunaður um ölvun. Alls munu vera á 14. þúsund fjár á þessu umrædda svæði. GVÞ. Atlantalhópurinn með firmanafh á * Islandi: Atlantsál ATLANTALhópurinn helur ósk- að eftir því að skrá firmaheitið Atlantsál hér á landi (á ensku Atlantal) vegna fyrirhugaðs reksturs nýs álvers á Islandi. Að Atlantsáli standa álframleiðslu- fyrirtækin Alumax, Hoogovens og Granges. Að sögn Jóns Sigurðssonar iðnað- arráðherra ræddu aðilar Atlantsáls fyrir skömmu við íslensk stjórnvöld um orkuverð, skatta, umhverfismál og staðsetningu nýs álvers. Jón sagði að viðræður væru ekki komnar á það stig enn að hægt væri að segja til um niðurstöðu nokkurs efnisþátt- ar. „Næstu fundir hafa verið ákveðn- ir 8. og 9. mai, að líkindum hér á landi, en þó er það ekki endanlega frágengið," sagði iðnaðarráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. Reið til stofii í ókunnu húsi DRUKKINN maður reið skafla- járnuðum hesti inn um gólf íbúð- arhúss í Hafnarfírði að kvöldi skírdags. Miklar skemmdir urðu á parketi og steinflísum á gólfi hússins. Maðurinn var ókunnur húsráðendum og virðist sem hann hafi farið húsavillt og ætlað að gera kunningjum sínum í ná- Iægu húsi þessa heimsókn. Lögregla var kvödd til og hand- tók manninn eftir að fólkið hafði komið honum og fararskjóta hans af höndum sér. Lögreglan geymdi knapann, sem var ofurölvi, í fanga- geymslum en klárinn, sem var sveittur og þrekaður, í hesthúsi. Að morgni játaði maðurinn á sig verknaðinn og hyggst bæta húseig- endum tjónið að fullu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.