Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990
Karlakórinn Fóstbræður heldur tónleika í Langholtskirkju.
Arlegnr samsöngur Fóstbræðra
KARLAKÓRINN Fóstbræður heldur hina áriegu samsöngva fyrir
styrktarfélaga sína í Langholtskirkju fimmtudag 19., föstudag 20.
og laugardag 21. þessa mánaðar. A fimmtudag og fiistudag hefj-
ast tónleikarnir kl. 20.30, en á laugardag hefjast þeir kl. 15.00.
Á tónleikunum verður frum-
flutt tónverk eftir Ragnar Björns-
son sem er samið við ljóð eftir
Steingerði Guðmundsdóttur.
Verkið ber nafnið „Altaristaflan
í Skálholtskirkju". Að sögn höf-
undar er það samið undir áhrifum
af listaverki Nínu Tryggvadóttur,
altaristöflunni í Skálholtskirkju.
Við flutning á verkinu aðstoða
nokkur börn úr skólakór Garða-
bæjar. Með einsöngshlutverk fer
Hjalti Guðmundsson.
í kórnum eru nú 50 söngmenn.
Á síðari árum hefur orðið mikil
endurnýjun meðal kórmanna. Því
þótti við hæfi að hafa á efnisskrá
ýmsar gamlar perlur er Fóstbræð-
ur hafa flutt á löngum ferli sínum.
Af innlendum lögum má nefna
syrpu íslenskra þjóðlaga í útsetn-
ingu Emils Thoroddsen, Búðar-
vísur eftir sama höfund og fimm
lög eftir Gyifa Þ. Gíslason. Af
erlendum lögum má nefna vinsæl
lög eins og Um sumardag, Spinn
spinn og Þú komst í hlaðið. Á
efnisskránni eru norræn lög,
þ. á m. Berceuse eftir A. Jarne-
felt, Úr „Bondbröllop" eftir A.
Södermann og Domaredansen eft-
ir O. Olsson.
Sú nýjung verður að á tónleik-
unum koma fram tveir sönghóp-
ar, kvartett og tvöfaldur kvartett,
sem syngja nokkur lög.
Nokkrir einsöngvarar koma
fram á tónleikunum. Einsöngvar-
ar utan raða kórmanna verða
Erna Guðmundsdóttir, Jóhann
Smári Sævarsson og Þorgeir
Andrésson.
Söngstjóri kórsins er Ragnar
Björnsson.
Undirleik á píanó annast Lára
Rafnsdóttir.
(Fréttatilkynning)
Lagnafélag Islands með
fræðslufund og tæknisýningu
NÝLEGA var haldinn fræðslufundur á vegum Lagnafélags íslands
um viðhald og rekstur lagnakerfa á Hótel Loftleiðum.
Á fundinum var í fyrsta sinn lögð
fram „Handbók fyrir lagnakerfi“
sem ætlað er að vera leiðbeinandi
við gerð rekstrarbókar um lagna-
kerfi fyrir hönnuði.
Á fundinum ræddu margir fyrir-
lesarar um vandamál og lausnir
húskerfa, meðal annars um hlut-
verk og samvirkni tækja, mælingar
■ DAGANA 18.—30. apríl sýnir
Grétar Þ. Hjaltason frá Selfossi
45 pastel- og vatnslitamyndir í
Eden, Hveragerði. Myndirnar eru
héðan og þaðan af landinu. Grétar
hefur áður sýnt á staðnum.
og stillingar og viðhald. Auk fram-
sögumanna sátu svo frammámenn
um lagnamál fyrir svörum í fundar-
lok. Samhliða þessum fræðslufundi
var nokkuð stór tæknisýning þar
sem um 30 aðilar sýndu tæki og
kynntu þjónustu sinna fyrirtækja.
„Handbók fyrir lagnakerfi" má
fá hjá félaginu. Aðalfundur félags-
ins verður haldinn hjá Hampiðjunni
í Stakkholti 4 20. apríl næstkom-
andi. Auk aðalfundarstarfa mun
Hampiðjan kynna starfsemi sína og
bjóða fundarmönnum upp á veiting-
ar.
— Jón Siguijónsson,
formaður LAFI
Hugrún Linda Guðmundsdóttir,
fegurðardrottning íslands, opn-
aði tæknisýninguna 3. mars
siðastliðinn með því að klippa á
borðann.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
17. apríl.
FISKMARKAÐUR hf. í I Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
uerð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 86,00 82,00 83,99 43,603 3.662.427
Lúða 250,00 100,00 178,06 0,253 44.961
Ýsa 114,00 103,00 105,77 18,127 1.917.365
Hrogn 135,00 135,00 135,00 1,536 207.360
Karfi 41,00 38,00 38,98 19,933 776.953
Ufsi 43,00 40,00 42,65 6,902 294.387
Samtals 76,40 90,355 6.903.453
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur(st) 83,00 49,00 79,52 62,735 4.988.918
Skata 10,00 10,00 10,00 0,014 140
Ýsa 98,00 92,00 96,85 42,725 4.138.059
Ýsa(ósl.) 120,00 118,00 119,00 3,538 421.012
Karfi 34,00 33,00 33,82 9,147 309.342
Ufsi 40,00 36,00 37,44 45,586 1.706.549
Steinb./hlýri 44,00 44,00 44,00 1,024 45.056
Langa 48,00 46,00 46,58 1,138 53.026
Lúða 295,00 190,00 247,15 0,792 195.745
Skarkoli 39,00 39,00 39,00 0,050 1.950
Sólkoli 36,00 36,00 36,00 0,027 972
Keila 33,00 33,00 33,00 0,133 4.389
Undirmál 47,00 47,00 47,00 0,599 28.153
Hrogn 200,00 200,00 200,00 3,701 740.200
Samtals 73,79 171,210 12.633.512
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 111,00 66,00 80,72 37,770 3.048.668
Keila 27,00 27,00 27,00 0,200 5.400
Ýsa 124,00 95,00 110,54 5,850 674.250
Undirmál 50,00 50,00 50,00 0,400 20.000
Karfi 34,00 34,00 34,00 0,042 1.428
Ufsi 32,00 18,00 31,78 0,508 16.144
Steinbítur 44,00 35,00 41,80 0,410 17.140
Langa 54,00 54,00 54,00 0,200 10.800
Lúða 355,00 355,00 355,00 0,032 11.360
Skarkoli 50,00 50,00 50,00 0,702 35.100
Samtals 82,69 46,114 3.813.290
..
■ K VENFÉLA GIÐ Selljörn
heldur sína árlegu kaffisölu í Fé-
lagsheimili Seltjarnarness á sum-
ardaginn fyrsta. Húsið verður opn-
að kl. 14.30. Að venju mun ágóði
renna til góðra málefna í bæjarfé-
lagi okkar.
■ FÉLAG íslenskra sjúkraþjálf-
ara efnir til ráðstefnu um heilbrigð-
ismál, dagana 20.—21. apríl næst-
komandi. Á ráðstefnunni verður
fjallað um heilbrigði og fyrirbyggj-
andi aðgerðir í anda Alþjóðaheil-
brigðisstofiiunarinnar um heil-
brigfði fyrir alla árið 2000. Ráð-
stefnan verður haldin í Borgartúni
6, Reykjavík. Á ráðstefnu þessari
verða fluttir fjölmargir fyrirlestrar
um efni sem snertir alla íslendinga
á einn eða annan hátt. Meðal ann-
ars verður fjallað um slitsjúkdóma
í atvinnulífinu og gildi þess að til-
einka sér réttar vinnustellingar.
Einnig verður fjallað um neyslu-
venjur, mataræði og reykingar.
Seinni ráðstefnudaginn verður
barnið í brennidepli en þann dag
verða fluttir fyrirlestrar um ung-
barnið og foreldrafræðslu. Auk þess
verða fyrirlestrar um íþróttir, bæði
innan skólakerfisins og í íþróttafé-
lögum. Félag íslenskra sjúkraþjálf-
ara minnist þeirra tímamóta um
þessar mundir að fimmtíu ár eru
liðin frá því félagið tók til starfa.
Þessi ráðstefna er liður í fjölþættu
fræðsluátaki tengdu afmæli félags-
iris. Ráðstefnan er öllunfopin.
A-Húnavatnssýsla:
Húnavaka hefst í dag
Blönduósi.
HÚNAVAKAN, hin árlega menningarhátíð Ungmennasambands A-
Húnvetninga (USAH), hefst í kvöld, síðasta vetrardag, með Vöku-
draumi, sem er skemmtidagskrá og dansleikur. Húnavöku lýkur síðan
laugardaginn 21. apríl með stórdansleik í félagsheimilinu á Blöndu-
ósi hvar fyrir dansi Geirmundur og félagar úr Skagafírði Ieika.
Eins og fyrr greinir þá hefst
Húnavaka á Vökudraumi og mun
hin landsfræga Rósa Ingólfsdóttir
vera kynnir á þeirri skemmtidag-
skrá. Á Vökudraumi koma meðal
annars fram stórsveit Vesturlands.
Danssýningar verða og krúttmagar
frá Akureyri skemmta. Félagar úr
Leikfélagi Blönduóss verða með létt
söngatriði og Vökudraum lýkur
með dansleik þar sem heimamenn-
irnir í hljómsveitinni Ottó stýra.
Á sumardaginn fyrsta verður
fjölskyldumessa og sumarskemmt-
un grunnskólans á Blönduósi. Tvær
myndlistarsýningar verða opnaðar
þennan dag. Annarsvegar ersýning
á vegum Alþýðusambands íslands
og hinsvegar opnar Hjördís Bergs-
dóttir myndmenntakennari á
Blönduósi sýningu á Hótel Blöndu-
ósi. Á föstudag verður söng-
skemmtun á vegum kóranna í A-
Húnavatnssýslu og að söng-
■ KARLAKÓRINN Stefnir í
Kjósarsýsluheldur um þessar
mundir sína árlegu vortónleika.
Þeir verða haldnir sem hér segir:
Fólkvangi á Kjalarnesi á sumar-
daginn fyrsta kl. 20.30, Langholts-
kirkju sunnudaginn 22. apríl kl.
17, Hlégarði í Mosfellsbæ, þriðju-
daginn 24. apríl kl. 20.30. Sigrún
Hjálmtýsdóttir, óperusöngkona, er
einsöngvari með kórnum, en auk
hennar syngja nokkrir kórfélagar
einsöng eins og undanfarin ár. Að
þessu sinni eru það þeir Ármann
Ó. Sigurðsson, Stefán Jónsson og
Þorgeir H. Jónsson. Stjórnandi
Stefnis er Lárus Sveinsson,
trompetleikari og undirleikari Guð-
rún Guðmundsdóttir. Söngmenn
í Stefni eru nú 58.
■ SKÁTAMESSA verður í
Hallgrímskirkju á sumardaginn
fyrsta og hefst hún kl. 11. Séra
Karl Sigurbjörnsson mun þjóna
til altaris. Predikari verður Eiður
Guðnason, alþingismaður og org-
anisti verður Hörður Áskelsson.
Skátar munu ganga í skrúðgöngu
frá Skátahúsinu við Snorrabraut,
halda niður Laugaveginn og síðan
upp Skólavörðustíginn sem leið
liggur að Hallgrímskirkju. Skrúð-
gangan hefst kl. 10.
H JYRKI Uusitalo, sérfræðingur
við Rannsóknarstoftiun Finn-
lands um löggjöf og lagafram-
kvæmd í Helsinki, mun í dag, mið-
vikudag kl. 18, halda opinberan
fyrirlestur _ á vegum lagadeildar
Háskóla íslands. Fyrirlesturinn,
sem nefnist „Evolution, Revolu-
tion and the Epistemology of
Legal Analysis", verður fluttur í
stofu'201 í Lögbergi, húsi laga-
deildar og er öllum opinn. í fyrir-
lestri sínum mun Jyrki Uusitalo
gera grein fyrir nokkrum nútíma-
hugmyndum um þróun vísinda og
skýra hvernig þær varpa ljósi á
ýmsar kennisetningar sem lúta að
lögum og rétti. Einkum ætlar hann
að ræða um gagnsemi þróunar-
þekkingarfræði á þessu sviði. Jyrki
Uusitalo hefur verið starfsmaður
Rannsóknarstofnunar Finnlands
um löggjöf og lagaframkvæmd
siðan 1986. Áður kenndi hann rétt-
arheimspeki, aðferðafræði, vísinda-
heimspeki, heimspeki félagsvísinda,
og stjómspeki við Helsinki-
háskóla, og henn hefur einnig
kennt við Hagfræðiháskólann í
Helsinki og Lapplands-háskóla í
Rovaniemi. Jyrki Uusitalo heim-
sækir nú ísland til að taka þátt í
sameiginlegu verkefni íslendinga
og finna um undirstöðuatriði í refsi-
rétti, en þetta verkefni er unnið á
vegum Samtaka háskóla á norður-
slóðum.
skemmtun íokinni munu Þórir og
félagar leika fyrir dansi. Húnavöku
lýkur síðan á laugardag eins og
fyrr er greint frá með dansleik í
félagsheimilinu á Blönduósi og leik-
ur hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar fyrir dansi. Auk þess sem að
framan er talið verður ýmislegt
fleira við að vera á Húnavöku og
má þar nefna kvikmyndasýningar
og girnilegan mat á hverju kvöldi
á Hótel Blönduósi.
Jón Sig.
Afmæli
í DAG, 18. apríl, er sjötug frú
Una Þorgilsdóttir, Olafsbraut
62, Ólafsvík. Á laugardaginn
kemur, 21. þ.m., ætlar hún og
eiginmaður hennar, Guðmundur
Sigmarsson, að taka á móti gest-
um í Kiwanishúsinu í Hafnar-
firði, Dalshrauni 1, kl. 15—19.
■ DANSK-ÍSLENSKA félagið
mun gangast fyrir skemmtikvöldi í
Norræna húsinu í kvöld kl. 20.30.
Munu þar koma fram gestir félags-
ins þeir Erik Clausen, leikstjóri og
félagi hans leikarinn Leif Sylvester
Petersen. Dagskrána kalla þeir
„En aften með Clausen og Petersen
pa slap linie. Dansk kulturliv nar
det er værst.“ Eins og mörgum er
kunnugt hafa þeir félagar í fjölda
ára troðið upp víðsvegar um Norð-
urlönd með dagskrá kennda við
hinn alræmda danska húmor. Að-
göngumiðar verða seldir við inn-
ganginn.
(Fréttatilkynning)
■ END URMENNTUNAR-
NEFND Háskóla íslands mun
þann 20. apríl og 3. og 4. maí
næstkomandi, standa fyrir nám-
skeiði um stefnumótun í félags-
málaþjónustu sveitarfélaga. Nám-
skeiðið er einkum ætlað starfs-
mönnum í stjórnunarstöðum við
félagsþjónustu, nefndarmönnum í
félagsmálaráðum eða annars konar
nefndum, er fást við félagsmál og
sveitarstjórnarmönnum almennt. I
félagsþjónustu sveitarfélaga, svo
sem dagvistarmálum, þjónustu við
aldraða, við fatlaða, barnavernd,
félagslegum húsnæðismálum, at-
vinnumálum, æskulýðsstarfi
o.s.frv., er ekki síður en í öðrum
efnum æskilegt að vinna í samræmi
við mótaða stefnu að ljósum mark-
miðum. Námskeiði þessu er ætlað
að kenna almennt, verklag við
stefnumótun á þessu sviði í kaup-
stöðum eða kauptúnum, þannig að
þátttakendur geti að því búnu, stað-
ið fyrir slíkri stefnumótun í heima-
byggð sinni. Megináhersla verður
lögð á hagnýt vinnubrögð,fræðileg
umfjöllun verður í nauðsynlegu lág-
marki. Leiðbeinandi verður Jón
Björnsson, sálfræðingur, félags-
málastjóri Akureyrarbæjar. Allar
frekari upplýsingar eru veittar hjá
Endurmenntunarnefnd Háskóla Is-
lands. . i ( i