Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRIL 1990
45
mestur. Mættu páskarnir gefa ykk-
ur von og styrk til þessa að mæta
þessum hörmulegu aðstæðum og
ást Guðs mýkja beiskju ykkar og
harm.
Ólafiir Jóhannsson
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa,
hörmunga og rauna frí;
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sói.
Unun og eilíf sæla
er þín hjá iambsins stól.
(Hallgrímur Pétursson)
Við syrgjum og söknum góðrar
vinkonu; vinkonu sem var svo traust
og hlý, svo sönn og góð. Við sökn-
um brossins, „fréttanna", umhyggj-
unnar ... við söknum Ágú.
En við eigum minningar og við
eigum þá fullvissu að henni líði vel
núna. Hún átti lifandi trú og það
gefur okkur styrk á þessari sorgar-
stundu að vita að sá sem sigraði
dauðann hefur tekið hana í sinn
faðm.
Elsku Búi, Haukur, Birgir og
Arnar, elsku Stína og Börge, eisku
Johanna, Sigurður, Kristján og
Erla. Við minnumst Ágú og ykkar
í bænum okkar og biðjum góðan
Guð að vera með ykkur öllum og
styrkja nú og í framtíðinni.
Ingibjörg, Raggý, Laufey,
Maja, Ragnhildur og Alda.
Kveðja frá stjórn
KFUK í Reykjavík
í dag er kvödd hinstu kveðju
Ágústa Helga Sigurðardóttir, lög-
fræðingur. Með þessum línum vill
stjórn KFUK í Reykjavík minnast
hennar örfáum orðum.
KFUK-konumar kynntust
Ágústu á sama hátt og hún kynnt-
ist félaginu, þ.e. í gegnum foreldra
hennar, þau Sigurð Pálsson og Jó-
hönnu Möller. Yngra fólkið kynntist
henni einnig í gegnum störf föður
hennar fyrir Kristileg skólasamtök
þar sem heimili þeirra stóð okkur
opið. Þegar Ágústa eltist tók hún
þátt í ýmsu starfi innan KFUK og
Kristilegra skólasamtaka, söng í
æskulýðskór og tók þátt í fundum
og samkomum. Hún giftist góðum
manni, Búa Kristjánssyni, og áttu
þau saman þtjá syni.
Ágústa Helga gekk í aðaldeild
KFUK og sótti þar fundi og gladdi
það eldri konurnar að hafa hana
með í hópnum. í mars 1984 þegar
Ágústa var aðeins 23 ára var hún
beðin um að gefa kost á sér í stjórn
KFUK og á aðalfundi var hún kos-
in inn í stjórnina. Þar starfaði hún
næstu þijú árin. í stjórninni hafði
hún með höndum störf ritara og
leysti þau vel af hendi eins og ann-
að sem hún tók að sér. Síðustu störf
hennar fyrir KUFK vom einnig rit-
arastörf þar sem hún í lok mars sl.
var ritari á aðalfundi félagsins.
Þegar hún hætti stjórnarstörfum
sneri hún sér að því að ljúka námi
í lögfræði. Því námi lauk hún og
hóf síðan störf í fjármáiaráðuneyt-
inu.
KFUK biður Guð að hugga og
styrkja Búa og drengina og aðra
þá er syrgja þessa góðu stúlku.
Fyrir hönd KFUK í Reykjavík,
Mállríður Finnbogadóttir.
Blómastofa
friðfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öli kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tiiefni.
Gjafavörur.
t
Eiginmaður minn, bróðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
GUNNAR JÓNSSON
frá Breiðabólsstað,
Reykholtsdal,
til heimilis f Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í dag miðvikudaginn 18.
apríl kl. 13.30.
Sigríður J. Valdimarsdóttir,
Unnur Jónsdóttir,
Sigrún Jónsdóttir,
Brynjólfur Einarsson, Steinunn Geirsdóttir,
Valdimar Eínarsson, Fanný Erlingsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegt þakklæti fyrir samúO og hluttekningu vegna fráfalls sonar
míns,
- ÁSTÞÓRS ÆGIS GÍSLASONAR.
Anna Jónsdóttir.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
HULDA SIGURÐARDÓTTIR,
Borgarvegi 10,
Ytri-Njarðvfk,
lést 8. apríl, útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Guðbrandur Sörensson,
Sigurður Guðbrandsson, Elfn Pálsdóttir,
Jón Guðbrandsson,
Vigdfs Guðbrandsdóttir, Benedikt Hreinsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarþel við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HELGU JÓAKIMSDÓTTUR,
Háaleitisbraut 105.
Ingimar Halldórsson,
Aðalbjörn Halldórsson, Marianna Bjarnadóttir,
Halldór Halldórsson, Bára Friðleifsdóttir,
Sigríður Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
SkráoiBgar og fyrirspersir u veríhréf og grauMpplýslB|»r
Mörgfremstu íslensku fvrirtækin eigaeitt
sameiginlegt. Verðbrefakerfi frá VKS!
Þú ættir ef til vill að athuga þetta nánar.
VKS hefur mikla reynslu í gerð
tölvukerfa til þess að annast verð-
bréf. Meðal fyrirtækja sem nota
verðbréfakerfi frá VKS eru Seðlabanki
íslands, Landsbréf, Verðbréfamark-
aður Islandsbanka, Verðbréfaþing
íslands, Iðnþróunarsjóður og Iðn-
lánasjóður.
Verðbréfakerfið Vísir er eitt þessara
kerfa. Það er t.d. notað hjá lífeyris-
sjóðum, fiskvinnslufyrirtækjum, iðn-
fyrirtækjum, bæjarfélögum og endur-
skoðunarskrifstofum.
Vísir er öflugt hjálpartæki. Auðvelt
er að reikna afborganir, eftirstöðvar
skuldabréfa, afborganir næsta árs og
útbúa greiðsluáætlanir og fylgiskjöl
fyrir bókhald svo eitthvað sé nefnt.
Verðbréfakerfið Vísir er mjög
sveigjanlegt. Það ræður t.d. við hluta-
greiðslur og getur útbúið yfirlit yfir
skekkjur sem verða þegar afborganir
eru greiddar.
Verðbréfakerfið Vísir ræður við
margs konar fjárskuldbindingar. Má
þar nefna jafngreiðslulán (annuitets-
lán), kaupleigusamninga, Visa- og
Euro-raðgreiðslur, víxla, óverðtryggð,
vísitölu- og gengistryggð skuldabréf
og fjárskuldbindingar með breytilega
vexti, Libor vexti, gjalddagagengi og
greiðsludagsgengi.
1
ihUíktífí
1) A uðvelt erað nota kerfið. Þvífylgir
skýrt valmyndakerfi ogmöguleiki á
vinnslu ígluggaumhvetfi. Einsogsést
á myndinni erunntað afla fiölbreyttra
uþþlýsinga með kerfinu.
2) Margs konar verðbréfmá setja
inn íkerfið. Hér sést kauþsamningur
með óreglulegum afborgunum.
3) Skuldabréfmá flokka á marga
vegu. Þessa flokkun býr notandinn
til eftirsínum þörfum.
'•m
li Viiiiin liiir !i '
k %4l*
VKS er hugbúnaðarfyrirtæki sem
þekkir þariTr tölvunotenda. Upp-
setning, notendahandbókogkennsla
eru því innifalin í verði Vísis, þar
sem þessir þættir eru nauðsynlegur
hluti af hugbúnaðinum. Auk þess
bjóðum við þjónustusamninga og
aðstoð við gangsetningu og rekstur
kerfisins ef þurfa þykir.
VERK- OG KERFISFRÆÐISTQFAN HF
BÍLDSHÖFÐA 14, 112 REYKJAVÍK.
Sími; (91) 68 75 00, Iþlefax: (91) 67 47 57
-fc*-