Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990 Danski leikhúsmaðurinn Ebbe Rode, forseti íslands frú Vigdís Finnbogadóttir og dóttir hennar, Ástríður, á hátíðarsamkomunni til .heiðurs forsetanum. Barnakór Kársnesskóla flutti þrjú lög á hátíðarsamkomunni. Morgunblaðið/Sverrir Forsetí íslands hylltur í tilefhi 60 ára amiælis FORSETI íslands, Vigdís Finnbogadóttir, varð sextug á páskadag, 15. april. Henni til heiðurs hélt ríkisstjórnin síðdegisboð á laugar- dag og um kvöldið var hátíðarsamkoma í Borgarleikhúsinu. Ríkisstjómin hélt forsetanum síðdegisboð á Hótel Sögu á laugar- dag, 14. apríl. Ymsir boðsgestir streymdu að klukkan 15 og frá klukkan 16-17 var húsið opið al- menningi. Fjöldi fólks kom til boðs- ins að heiðra forsetann. Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð- herra, flutti stutt ávarp, í fjarveru Steingríms Hermannssonar, for- sætisráðherra, sem er á skíðum í Sviss og forseti íslands þakkaði fyrir sig með nokkrum orðum. Á laugardagskvöld var hátíðar- samkoma í Borgarleikhúsinu til heiðurs Vigdísi sextugri. Samkom- an hófst á söng bamakórs Kárs- nesskóla undir stjóm Þómnnar Bjömsdóttur. Þá las Valdimar Flygenring, leikari, úr Yrkju ljóðið „Ættjarðarást" eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur og Valgerður Dan, leikari, las „Fjall bernsku minnar" eftir Nínu Björk Áma- dóttur, einnig úr Yrkju. Þá flutti Kammersveit Reykjavíkur kafla úr „Sögunni af dátanum" eftir Stravinsky. Manuela Wiesler, flautuleikari, flutti kafla úr verk- um eftir Jolivette og Þorkel Sigur- bjömsson og Hanna María Karls- dóttir, leikari, las ljóðið „Blóm“ eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur og Steindór Hjörleifsson las „Ljóð“ eftir Matthías Johannessen. Þessu næst fluttu Stuðmenn tvö lög og danski leikhúsmaðurinn Ebbe Rode fór með eigið efni. Þá lásu leikaramir Karl Guðmundsson, Þorsteinn Gunnarsson og Guðrún Ásmundsdóttir úr Yrkju, „Gamall maður á tali við einhyming", eftir Hannes Pétursson. Signý Sæmundsdóttir söng verk, sem þeir Hjálmar H. Ragn- arsson og Njörður P. Njarðvík sömdu sérstaklega af þessu tilefni og nefna „Emblu“. Undirleikari Signýjar var Þóra Fríða Sæmunds- dóttir. Þessu næst flutti Leikfélag- skórinn tvö lög og íslenski dans- flokkurinn flutti hluta verksins „Vorvindar“ eftir Per Jonsson, en verkið verður frumflutt í heild á morgun. Forseta Islands var afhent fyrsta eintak Yrkju, rits sem gefíð er út í tilefni afmælis hennar og til ágóða fyrir skógrækt á íslandi, en 30.000 nöfn fylgja bókinni. Vigdís ávarpaði gesti og þakkaði hlýhug þeirra í sinn garð. Hátíðar- samkomunni lauk með því að kór Kársnesskóla söng „Hver á sér fegra föðurland". Að því loknu tók forsetinn á móti gestum sínum í Borgarleikhúsinu. Forsetanum barst fjöldi gjafa á afmælinu. Ríkisstjórnin færði Vigdísi silfurlíkan af Bessastaða- stofu eftir Paul Oddgeirsson gull- smið og frá Alþingi barst málverk af Bessastöðum eftir myndlistar- manninn Jóhannes Geir. Á skrif- stofu forsetans fengust þær upp- lýsingar í gær, að fjöldi gjafa væri mikill, en forsetanum hefði ekki gefíst tími til að skoða þær áður en hún hélt úr landi í fyrradag. Forsetinn með Yrkju. Ríkisstjórnin færði forseta Islands silfurlíkan af Bessastaðastofu. Á myndinni skoða þær mæðgur, Ástríður og Vigdís, líkanið, ásamt Paul Oddgeirssyni gullsmið og Halldóri Ásgrímssyni, starfandi forsætisráðherra í fjarveru Steingríms Hermannssonar. Ríkisstjórnin hélt forsetanum hóf á Hótel Sögu á laugardag og þangað lögðu margir leið sína til Leikararnir Karl Guðmundsson, Þorsteinn Gunnarsson og Guðrún að hylla Vigdísi sextuga. Ásmundsdóttir lesa úr Yrkju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.