Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 56
MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Bílainnflutningiirimi:
1572 bílar
- fluttir inn
ALLS voru 1.572 bílar fluttir inn
tii landsins fyrstu þrjá mánuði
ársins, og þar af voru 653 bílar
fluttir inn í marsmánuði. Af nýj-
um fólksbílum var mest flutt inn
af Mitsubishi fyrstu þrjá mánuði
ársins, eða alls 255 bílar, sem er
um 21% af markaðnum.
Af nýjum fólksbílum var næst-
mest flutt inn af Toyota, eða 194
bílar, og þá voru fluttir inn 113
Subarubílar og 112 Ladabílar. Alls
voru luttir voru inn 1.197 nýir fóiks-
bílar fyrstu þijá mánuðina, þar af
505 í mars, 145 nýir vörubílar, þar
af 51 í mars, og 138 nýir sendi-
bílar, þar af 58 í marsmánuði.
Dómsmálaráðherra:
Hæstirett-
ur fai Lands-
bókasafiiið
OLI Þ. Guðbjartsson dómsmála-
ráðherra segist aðspurður telja
hús Landsbókasafhsins ákjósan-
legustu lausnina á húsnæðismál-
um Hæstaréttar. Hann gerir ráð
fyrir að ræða þau mál við dóm-
ara réttarins í næstu viku. Til-
laga Ola um kaup á Utvegs-
bankahúsinu við Lækjartorg fyr-
ir héraðsdómstólana í Reykjavík
bíður afgreiðslu í ríkisstjórn,
meðan kannað er hvort lækka
megi kostnað við breytingar á
liúsinu.
Hæstiréttur er nú til húsa við
Lindargötu. Lengi hefur verið rætt
um þörf á því að flytja dómstólinn
- í rýmra húsnæði. Hugmyndin um
Landsbókasafnshúsið er ekki ný,
en Óli Þ. Guðbjartsson hefur tekið
henni betur en ýmsir aðrir ráðherr-
ar. Óli segir að af öðrum hugmynd-
um um nýtingu safnahússins, eftir
að Landsbókasafnið flytji í Þjóðar-
bókhlöðu, megi nefna að þar verði
áfram einhverskonar 'bókasafn og
jafnvel að húsið verði tekið undir
móttökur ríkisstjórnarinnar.
Dómhús fyrir héraðsdómstólana
í Reykjavík á að standa tilbúið eft-
ir tvö ár. Aðrir möguleikar en Út-
vegsbankahúsið sem ræddir hafa
verið eru að byggja hús við Lista-
braut og að breyta húsnæði ríkisins
við Borgartún 7.
Morgunblaðið/Júlíus
Ölvaður maður stal kranabíl, ók um bæinn og olli stórtjóni
Ölvaður maður skemmdi þrjú hús og hátt á annan tug bíla í
ökuferð á stolnum 8 tonna kranabíl um klukkan hálftíu í gær-
kvöldi. Maðurinn stal bílnum, sem var númerslaus og notaður
sem vinnuvél, á athafnasvæði Stálsmiðjunnar við Mýrargötu,
og ók vítt og breitt um Vestur- og Miðbæinn. Maðurinn skeytti
ekki um umferðarreglur og ók á móti umferð og gegn ein-
stefnu þegar hann vildi það við hafa. För mannsins stöðvaðist
á Frakkastíg þar sem hann missti vald á hemlalausum
kranabílnum, sem rakst á fjölda kyrrstæðra bíla, braut niður
ljósastaur og hafnaði á húsvegg. Lögreglan segir það mildi að
engan sakaði. Eignatjón varð mikið.
Sjá frásögn á bls. 4.
Áburðarverksmiðja ríkisins í Gufunesi:
Borgarráð krefet þess að
rekstrinum verði hætt
- félagsmálaráðherra segist ekki munu leggja til í ríkis-
stjórn að gripið verði til skyndiákvörðunar um lokun
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær tillögu Davíðs Odds-
sonar borgarsljóra um að krefjast
þess í kjölfar brunans í verksmiðj-
unni um páskana, að ríkisstjórnin
taki nú þegar ákvörðun um að
leggja eins fljótt og auðið er niður
rekstur Áburðarverksmiðju ríkis-
ins i Gufunesi. Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi: „Eg mun leggja til í ríkis-
stjórninni að haft verði samráð
um þá niðurstöðu sem verður við
borgaryfirvöld, þar sem allir
þættir og valkostir í málinu verða
skoðaðir en ekki að gripið verði
hér og nú til skyndiákvörðunar
Norrænni sendineftid meinað að sækja Litháa heim:
Sovét-heimsókn aflýst
FORSETI Norðurlandaráðs, Páll Pétursson, ákvað í gær, að höfðu
samráði við fulltrúa í forsætisnefnd ráðsins, að hætta bæri við fyrir-
hugaða ferð sjö manna sendinefndar til Sovétríkjanna. Þessi ákvörð-
un var tekin eftir að boð höfðu borist frá Sovétríkjunum þess efnis
að ekki gæti orðið af heimsókn sendinefndarinnar til Litháens vegna
„ríkjandi ástands þar“ nú um stundir. Ólafúr G. Einarsson, sem á sæti
í forsætisnefndinni, vill að kannaður verði vilji forsætisnefndarinnar
fyrir því að fulltrúar ráðsins verði sendir beint til Litháens.
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs
hafði ákveðið að senda sjö manna
sendinefnd til Moskvu og Eystra-
saltsríkjanna þriggja. Fulltrúi ís-
lands í ferðinni átti að vera Páll
Pétursson, forseti Norðurlandaráðs.
Óiafur G. Einarsson, sem á sæti
í forsætisnefndinni ásamt Páli Pét-
urssyni, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að á síðasta fundi nefndar-
innar hefði sú ákvörðun verið tekin
að aflýsa bæri ferðinni fengju full-
trúar ráðsins ekki að sækja Litháa
heim. Þau boð hefðu síðan borist
frá skipuleggjendum ferðarinnar í
gær að ekki gæti orðið af heimsókn-
inni til Litháens vegna ástandsins
þar en Litháar lýstu sem kunnugt
er yfir sjálfstæði þann 11. fyrra
mánaðar.
Ólafur G. Einarsson hefur ritað
Páli Péturssyni bréf þar sem hann
leggur til að kannað verði hvort
vilji er fyrir því innan forsætis-
nefndarinnar að fulltrúar Norður-
landaráðs verði sendir beint til Lit-
háens til að þeim gefist kostur á
að kynna sér ástandið í landinu
beint og milliliðalaust. Beri þá að
sjálfsögðu að sækja um vegabréfs-
áritun til stjórnvalda í Litháen.
um lokun verksmiðjunnar."
„Menn mega ekki gleyma því að
þetta er enginn stundaræsingur.
Borgarráð skoðaði þetta mál afar
ítarlega fyrir tveimur árúm,“ sagði
Davíð Oddsson borgarstjóri í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Þá var því haldið fram af öllum
sérfræðingum og það sjálfsagt í
góðri trú að óhætt væri að nýta
gamla geyminn, enda væru engin
dæmi þess að geymar af þessari
tegund hefðu bilað nokkurstaðar í
veröldinni. Við vorum mjög hikandi
að samþykkja heimiid fyrir 500
tonnum af ammoníaki í stað 1.500
tonna áður en féllumst á það eftir
að sérfræðingar höfðu fullvissað
okkur um að það væri óhætt. At-
burðirnir sem síðan urðu á páskadag
sýndu að þær upplýsingar sem sér-
fræðingarnir bjuggu Ayfir stóðust
ekki og ijarri því. Við lítum þannig
á að í framhaldi af þessu og í fram-
haldi af mjög ítarlegúm athugunum
sem áttu sér stað fyrir tveimur árum
þá sé þetta rökrétt niðurstaða og
ekki vottur af óðagoti í henni. Við
erum einungis að meta þær aðstæð-
ur sem fyrir liggja. Menn hafa feng-
ið harkalega aðvörun um að taka
enga áhættu. Það var lukkan ein sem
varð þess valdandi að það voru 90
tonn af ammoníaki í geyminum en
ekki 500 eins og stóð til að dæla í
hann. Hefði það verið hefði allt get-
að gerst. Það var lukkan ein eftir
því sem mér skilst nú að það voru
menn á bryggjunni, að ég hygg skip-
verjar, sem sáu þennan eld en ekki
starfsmenn Áburðarverksmiðjunnar.
Þannig að hann hefði getað logað
lengi og með ófyrirsjáanlegum af-
ieiðingum. Miðað við þann litla
ávinning sem það er fyrir þjóðina
að reka þarna verksmiðju og miðað
við þá áhættu ef allt fer á versta
veg, sem sjálfsagt er ekki verulegar
líkur á að gerist eftir að nýi geymir-
inn kemur, en samt er ekki hægt
að fortaka að það geti ekki gerst,
þá er sá jöfnuður þannig að það er
ekkert vit í að taka slíka áhættu.
Ég sem borgarstjóri í Reykjavík get
ekki boðið fólki upp á það, miðað
við þá vitneskju og reynslu sem
menn hafa nú fengið, að búa við
einhverja óvissu. Mér finnst það
ekki koma til álita.“
Halldór Ásgrímsson starfandi for-
sætisráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að hann teldi
ekki rök til lokunar verksmiðjunni
og Steingrímur Sigfússon landbún-
aðarráðherra sagði að fara yrði
vandlega yfir breyttar forsendur og
væri hann tilbúinn til viðræðna við
borgaryfirvöld um það.
Guðrún Helgadóttir forseti sam-
einaðs þings hefur boðað flutning
þingsályktunartillögu um að rekstri
verksmiðjunnar í Gufunesi verði
hætt þegar í stað.
Sjá frásagnir og myndir á bls.
2, 22, í miðopnu og bls. 54 og
55..