Morgunblaðið - 18.04.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990
19
Morgunblaðið/Bjöm Björnsson
Nemendur Tónlistarskólans á Hvammstanga heimsóttu Tónlistarskólann á Sauðárkróki fyrir skömmu
og héldu nemendur skólanna sameiginlega tónleika.
Sauðárkrókur:
Tónlistarskóli Hvammstanga í heimsókn
NEMENDUR Tónlistarskólans á
Hvammstanga heimsóttu Tónlist-
arskólann á Sauðárkróki, föstu-
daginn 23. mars, og hélt þetta
unga og upprennandi listafólk
sameiginlega tónleika. Með heim-
sókn þessari eru Húnvetningar að
endurgjalda heimsókn Skagfirð-
inga fyrir nokkru, en ásamt hópn-
um, rúmlega 20 manns, komu
einnig skólastjóri og kennari.
Á tónleikunum komu fram einleik-
arar á ýmis hljóðfæri en einnig léku
saman blásarasveitir skólanna, undir
stjórn bræðranna Hjálmars og Sveins
Sigurbjörnssona.
Að sögn kennaranna eru heim-
sóknir sem þessar ætlaðar til þess
að gefa nemendum tækifæri á' að
kynnast og leika saman, auk þess
að gera sér nokkurn dagamun.
í Tóniistarskólanum á Hvamms-
tanga eru 95 nemendur og skóla-
stjóri er Elínborg Sigurgeirsdóttir,
en í skólanum á Sauðárkróki eru 165
nemendur og skólastjóri Eva Snæ-
bjarnardóttir.
ÓSÓTT VEIÐILEYFI
TIL SÖLU
Þar sem töluvert er ósótt af fráteknum veiðileyfum viljum
við benda félagsmönnum á, að þau hafa nú þegar verið sett
í sölu á almennum markaði.
Því viljum við benda áhugasömu veiðifólki á að við eigum
nokkra lausa daga í eftirtöldum ám:
Norðurá, Laxá í Leirársveit, Langá á Mýrum, Gljúfurá, Svartá,
Sogi, Breiðdalsá og á vatnasvæði Hvítár í Árnessýslu.
Verðskrá og upplýsingar um lausa daga liggur frammi á af-
greiðslu félagsins alla virka daga vikunnar frá kl. 13.00-18.00.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur,
Háaleitisbraut 68, Austurveri,
símar 686050 eða 83425, fax 32060.
Þarna sérðu Andrés, óhugamann um flug.
Hann er frjáls og kann að njóta þess.
Andrés er skynsamur maður sem
þekkir gullnu tækifærin þegar þau
bjóðast. Hann var t.d. fljótur að taka
við sér þegar nýir spamaðarmöguleik-
ar litu dagsins ljós með tilkomu Kjara-
bréfanna. - Hann gerði samning við
sj álfan sig - Lífskjarasamning. Andrés
átti sér nefnilega draum.. draum um
nægan tíma til að sinna áhugamáli
sínu, fluginu, áhyggjulaus með traust-
an varasjóð í bakhöndinni.
í 5 ár hefur hann mánaðarlega lagt fyr-
ir upphæð sem nemur 40.000 kr. á
núvirði hjá Verðbréfamarkaði Fjár-
festingarfélagsins. Á þeim tíma hefur
hann sannreynt að öryggi og góðir
vextir geta farið saman, því nú á hann
þrjár milljónir króna sem veita honum
og fjölskyldu hans öryggi og svigrúm
til að njóta hluta sem annars væm að-
eins til í gömlu draumunum.
Helstu hluthafar í Fjárfestingarfélagi
íslands hf.:
íslandsbanki hf.
Eimskipafélag íslands hf.
Lífeyrissjóður verslunarmanna.
VERÐBRÉFAMARKAÐU R
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF
HAFNARSTRÆTI28566 KRINGLUNNI689700 AKUREYRI10100