Morgunblaðið - 18.04.1990, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 1990
15
Morgunblaðið Ámi Sæberg
Aðalsteinn Guðjohnsen rafmagnsstjóri, skýrir hugmyndir að
framtíöarskipulagi í Elliðaárdal. Þar er gert ráð fyrir auknum
trjágróðri meðal annars við vegkanta við Reykjanesbraut og að
sáð verði í skert svæði við Stekkjarbakka en þar meðfram er
gert ráð fyrir að framhald Fossvogsbrautar liggi. Hugmyndirnar
verða kynntar í umhverfismálaráði borgarinnar í dag.
Rafinagnsveita Reykjavíkur:
Minjasafii í EUiðaárdal
RAFMAGNSVEITA Reykjavíkur, hefiir opnað Minjasafii á ann-
arri hæð Aðveitustöðvar 5 við Elliðaár. Á safninu eru munir og
myndir er tengjast sögu Rafinagnsveitu Reykjavíkur og virkjunar-
framkvæmdum í dalnum. Þá er sýnd hugmynd að framtíðarskipu-
lagi útivistarsvæðisins við árnar en Rafinagnsveitan hefur staðið
að gróðursetningu þar.
Að sögn Aðalsteins Guð-
johnsens rafmagnsstjóra, telur
Rafmagnsveita Reykjavíkur sig
eiga ýmsar skyldur við Elliðaárdal
og er tilgangur safnsins að glæða
áhuga almennings á dalnum og
því sem hann hefur upp á að
bjóða. Rakin er saga Rafmagn-
sveitunnar í dalnum frá upphafi
og dregin upp mynd af þeim að-
stæðum sem frumherjarnir unnu
við meðan á virkjunarfram-
kvæmdum stóð.
„Við gerum okkur ekki grein
fyrir því, hve mikilvægur og ráð-
andi þáttur rafmagn er í daglegu
lífi okkar, fyrr en rafmagnið fer
af,“ sagði Páll Gíslason formaður
stjórnar veitustofnana Reykjavík-
urborgar meðal annars í ávarpi
sínu. Sagði hann það fróðlegt að
sjá hver þróunin hefði verið á
undanförnum árum. Safnið gæfi
öldnum tækifæri til að rifja upp
gamlar endurminningar og ungir
fengju tækifæri til að kynnast
sögunni.
Davíð Oddsson borgarstjóri,
sagði í ávarpi sínu, að Rafmagns-
veita Reykjavíkur væri eitt þeirra
myndar fyrirtækja sem borgin
ætti. Þar væri vel staðið að verki
eins og sjá mætti á því hvernig
gengið væri frá utandyra eins og
til dæmis í Elliðaárdalnum. Raf-
magnsveitan hefði alla tíð látið
sér annt um dalinn og þann gróð-
ur sem þar er. Sagan væri mikil-
vægur grunnur og vonandi vær
safnið vísir að öðru og meira.
Staða Jóns Baldvins sem
formanns hefiir veikst
-segir Bjarni P. Magnússon sem mun
þó taka 3. sæti á lista Nýs vettvangs
BJARNI P. Magnússon borgarfulltrúi hefur ákveðið að taka 3. sætið á
framboðslista Nýs vettvangs í Reykjavík. Bjarni segir að ef formaður
og varaformaður Alþýðuflokksins hefðu látið af því að vinna gegn fúll-
trúum flokksins í prófkjöri Nýs vettvangs, hefði alþýðuflokksmaður
leitt framboðið, og hann telur stöðu Jóns Baldvins Iiannibalssonar sem
formanns Alþýðuflokksins vera veikari á eftir.
Bjarni P. Magnússon sagði við
Morgunblaðið, að metnaður sinn og
sinna flokksfélaga, hefði staðið til
þess að Alþýðuflokkurinn leiddi
framboð Nýs vettvangs, enda hefði
fiokkurinn verið forsendan fyrir því
að framboðið var mögulegt.
Bjarn: sagðist þó hafa ákveðið að
taka sér viku til að íhuga hvort hann
ætti að taka sæti á listanum, en eft-
ir samtöl við flokksmenn og aðra
stuðningsmenn hefði niðurstaðan
orðið sú, að til að vel færi, ætti Al-
þýðuflokkurinn að taka þátt í þessum
leik með fullum heilindum og reisn.
Bjarni, og aðrir frambjóðendur
Alþýðuflokksins í prófkjörinu, hafa
sakað formann og varaformann
flokksins um að hafa unnið gegn sér
og stutt þess í stað Ólínu Þorvarðar-
dóttur. Jón Baldvin Hannibalsson
hefur neitað þessum ásökunum, og
Bjarni sagði það ugglaust rétt, að
Jón Baldvin hefði ekki beitt sér per-
sónulega.
„En við bendum á að þegar við
hringdum í flokksfólk á seinni degi
prófkjörsins var okkur sagt af mörg-
um, að búið væri að hringja á vegum
ráðherra flokksins, annara en Jóns
Sigurðssonar, Þá má nefna að
Ámundi Ámundason hætti sem kosn-
ingastjóri fjokksins og gerðist kosn-
ingastjóri Ólínu og það veit nánast
alþjóð að hann er hægri hönd Jóns
Baldvins. Við gætum nefnt fleiri
dæmi þessu lík en munum ekki fara
út í slíkt heldur ræða þessi mál á
flokksvettvangi,“ sagði Bjami.
—Hvaða áhrif heldur þú að þetta
hafi í flokknum, m.a. í ljósi þess að
það verður haldið flokksþing í ár?
„Alveg ótvírætt þá hefur staða
Jóns Baldvins sem forrpanns veikst
við þetta,“ sagði Bjami P. Magnús-
son.
Farþegar til Amsterdam
með rútu frá Hamborg-
MIKLAR tafir urðu á áætlun Arnarflugs til Amsterdam á skfrdag vegna
deilna við eigendur flugvélarinnar sem Arnarflug hefúr á leigu út þenn-
an mánuð. Á endanum flaiig flugvélin til Hamborgar. Farþegar til
Amsterdam voru fluttir með áætlunarbíl þaðan og komu á áfangastað
seint um nóttina, hálfum sólarhring eftir áætlun.
Kristinn Sigtryggsson fram-
kvæmdastjóri Amarflugs sagði að
þetta hefði verið mjög leiðinlegt at-
vik og óhönduglega hefði tekist til.
Amarflug hefði lent í deilu við
Carnival Airlines, eigendur flugvél-
arinnar sem félagið tók á leigu fyrir
viku, um túlkun á leigusamningi.
Vonast hefði verið til þess að sú
deila leystist fljótt en það hefði ekki
orðið fyrr en um miðjan dag. Þá
hefði verið ákveðið að fara beint til
Hamborgar og taka farþega til
Amsterdam með flugfélaginu KLM.
En vegna frekari tafa í Keflavík
missti Arnarflugsvélin af flugvél
KLM í Hamborg.
I fréttum ríkisútvarpsins var haft
eftir farþega að þeim hefði ekki ver-
ið tilkynnt fyrirfram að að lenda átti
í Hamborg í stað Amsterdam og far-
þegar hafí ekki fengið að vita að
þeir ættu fyrir höndum 6 klukkutíma
ferð í rútu fyrr en komið var inn í
flugstöðina. Kristinn sagðist ekki
hafa skýringar á þessu.
Kristinn sagði áætlunarflug fé-
lagsins hafa gengið áfallalaust síðan
á skírdag.
Sljórn SPRON vegna ákæru í máli Töggs:
Telur ákæruna byggða
á algerum misskilningi
STJÓRN Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis hefúr sent frá sér
eftirfarandi yfirlýsingu:
Sjónvarpsóperan Vikivaki:
Lofsamleg ummæli
tónlistargagnrýnenda
Stokkhólmi, Ósló. Frá Erik Liden og Rune Timberlid, fréttariturum Morgunblaðsins.
ÍSLENSKA sjónvarpsóperan Vikivaki eftir Atla Heimi Sveinsson
fær góða dóma í sænskum og norskum blöðum, tónlistin og ljóð-
rænn texti Thors Villyálnissonar. Þá er finnska hljómsveitarstjór-
anum Petri Sakari hrósað fyrir kröftugt og vel unnið verk og
raunar öllum, sem að því stóðu. Tekur gagnrýnandi Svenska
Dagbladets þannig til orða, að sköpunarkrafturinn, sem borið
hafi uppi þetta samstarfsverkefiii norrænu sjónvarpsstöðvanna,
eigi betra skilið en að einangrast á hreggbarinni eldQallaeyju úti
í Atlantshafi.
God
TV-
Umfjöllun um Vikivaka hefur
nokkuð fallið í skuggann fyrir
öðrum tíðindum, slysförum í Nor-
egi og andláti Gretu Garbo í
Svíþjóð, en Carl-Gunnar Áhlén,
tónlistargagniýnandi Svenska
Dagbladets, fer lofsamlegum orð-
um um tónlist Atla Heimis og
texta Thors. Segir hann, að Atla
hafi tekist að sameina Darmstad-
tbakhjarlinn og ósvikna tilfinn-
ingu fyrir eðlilegum söng en finn-
ur það helst að verkinu, að mynd-
málið, hin hijúfa fegurð íslenskrar
náttúru, hafi stundum keppt um
of við sjálfa tónlistina. Segir hann,
að með þessari fyrstu íslensku
sónvarpsóperu og jafnframt
fyrsta samstarfsverkefni norrænu
sjónvarpsstöðvanna að þessu leyti
hafi verið hlaðin varða, sem vísi
fram á veginn.
Idar Karevold, gagnrýnandi
Aftenpostens í Ósló, rekur efnis-
þráðinn, sem sóttur er í samnefnt
verk Gunnars Gunnarssonar, og
segir, að verkið hafi einkennst af
fijóu ímyndunarafli, einkum þó
tónlistin og sjálf framleiðslan. Hér
hafi tekist að semja sátt milli sjón-
varpsins og óperunnar. Ber hann
lof á Helga Skúlason í hlutverki
Jaka Sonarsonar og segir, að
Hannu Heikinheimo leikstjóri og
Hrafn Gunnlaugsson framleiðandi
hafi kunnað að nota svipbrigði
hans og hreyfingar til að ná fram
leikrænum þunga. Þá segir hann,
Opera
NordvlBjonsproduksjonen
lftnrfrcda* av den Jalandake
operaen Vlklvaki av Atll
Helmlr Svelnuon.
Anmeldt av
jdar KarrvQld.
Dct var lngen produksjon ope
■lelt myntet pA langfredag
NordvUlonen b«d pl í operaen
Vilclvakl Navnet henapfller pA
on gammel Ulandsk rlngd&ne,
og Hbrettoen aom vár akrevet
av Thor Vlljainson. var beaert
pA en roman av Qtuinar
Gunnaraon.
Selve handl tngen utspant
aegpá.en nyttAranatt da den
Ulandjike forfattcr Jakl So*
araon, mett pA goda og gull og
snsom 1 eln atore vllla eíter ko
nena dod. oppUvet at et dualn
begrávede mennesker ateg
■te om han var Den
ali—nfUn n
að frammistaða. hljómsveitarinnar
hafi verið afar áhrifarík og eftir-
tektarverð.
í tilefni af ákæru sem ríkissak-
sóknari hefur 11. þ.m. birt á hendur
tveimur starfsmönnum Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis vegna við-
skipta við Tögg hf. á fyrstu mánuð-
um ársins 1987 vill stjórn sparisjóðs-
ins taka fram:
1. Viðskiptin sem ákært er vegna
voru með þeim hætti að sparisjóður-
inn keypti af Tögg hf. viðskiptavíxla
og viðskiptabréf sem Töggur hf.
ábyrgðist, en þriðji aðili var jafnan
skuldari kröfunnar. Jafnframt leysti
fyrirtækið til sín viðskiptaskjöl fyrir
lægri fjárhæðir sem áður höfðu verið
keypt en voru í vanskilum. Hér er
um hefðbundnar viðskiptavenjur að
ræða, eins og tekið er fram í ákæru-
skjali og var þeim haldið áfram
óbreyttum á greiðslustöðvunartíma-
bili Töggs hf. Vildi sparisjóðurinn
þannig stuðla að því að rekstur fyrir-
tækisins kæmist á réttan kjöl, enda
hlýtur það að vera tilgangur með
veitingu heimildar til greiðslustöðv-
unar.
2. Stjórn sparisjóðsins telur frá-
leitt að starfsmenn sjóðsins hafi með
þessum hætti gerst sekir um refsi-
verðan verknað og að viðskiptin hafi
verið ívilnandi fyrir sparisjóðinn eins
og gefið er í skyn í ákæruskjali. Á
tímabili greiðslustöðvunar jók spari-
sjóðurinn þvert á móti fyrirgreiðslu
við Tögg hf. og þar með einnig
áhættu sína.
3. Undirstrika verður að sparisjóð-
urinn hafði við upphaf greiðslustöðv-
unar fullnægjandi veðtryggingar fyr-
ir skuldum og ábyrgðum Töggs hf.
4. Stjórn sparisjóðsins telur ákær-
una á hendur starfsmönnum spari-
sjóðsins byggða á algerum misskiln-
ingi á eðli þessara viðskipta og á
stöðu trygginga fyrir skuldbinding-
um Töggs hf. Er þá einnig undirstrik-
að, að þrotabú Töggs hf. hefur ekki
séð ástæðu til að leita riftunar á
þeim gerðum sem ákæruvaldið telur
vera ívilnandi fyrir sparisjóðinn.
5. Stjómin harmar að ákærunni á
starfsmenn sparisjóðsins skuli bland-
að saman við ákæru á stjómendur
fyrirtækis sem ákærðir era fyrir allt
aðrar sakir.
Stjórnin lýsir fullu trausti á þá
starfsmenn sparisjóðsins sem sætt
hafa ákæmnni, og telur að þeir hafi
í hvívetna staðið eðlilega og vel að
þeim málum, sem ákæruatriðið fjall-
ar um.
12. apríl 1990,
Stjórn Sparisjóðs Reykja-
víkur og nágrennis.
Skákmótið í Lyon:
Karl vann Mar-
geir og mótið í
síðustu umferð
KARL Þorsteins vann opna
skákmótið í Lyon í Frakkl-
andi sem lauk á páskadag.
Karl fékk 7 vinninga af 9
mögulegum ásamt franska
skákmanninum Santo Ro-
man.
Margeir Pétursson varð í 3-8.
sæti með 6 'A vinning. Þeir
Karl tefldu saman í lokaumferð-
inni en fyrir hana var Margeir
í 1-2. sæti en Karl í 3-5. sæti.
Skákin varð löng og ströng
enda mikið í húfi fyrir báða en
að lokum hafði Karl sigur, bæði
í skákinni og á mótinu.
Þriðji íslendingurinn, Lárus
Jóhannesson, endaði með 5
vinninga. Þeir þremenningarnir
fara næst til Gausdal í Noregi
og keppa þar í opnu alþjóðlegu
skákmóti.